Morgunblaðið - 19.01.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989
17
að taka á sig hluta vandans, t.d.
með skipulögðúm spamaði eða deila
hallanum niður á fleiri ár, er ekki
fyrir hendi. Þetta tel ég megingalla
þessara fjárlaga og ekki stórmann-
lega að staðið hjá ríkisstjórninni.
Það er eins og ríkissstjórnin og
sérfræðingalið hennar geri sér ekki
grein fyrir þeim gífurlegu erfiðleik-
um sem fólk um allt land hefur
komist í.
Niðurskurður á
framkvæmdafé
Þrátt fyrir yfirlýsingar þessarar
ríkisstjómar jafnréttis og félags-
hyggju að gera átak í að rétta við
hinar dreifðu byggðir landsins þá
er staðreyndin sú að í þessu frum-
varpi. er skorið á framkvæmdafé,
skorið á framlög til atvinnuveg-
anna, skorið á framlög til byggða-
mála. Og sérstaklega er ömurlegt
að horfa upp á það að framþróun
í vegamálum undangenginna rára
er rofin með því að leggja nýja stór-
fellda skatta á umferðina sem renna
beint í ríkissjóðshítina en ekki til
framkvæmda í vegamálum. Er hér
um að ræða á 9. milljarð kr. I
mörgum landshlutum horfir svo að
um mjög litlar vegaframkvæmdir
verður að ræða í sumar. Var þó
þegar nóg að gert hjá Alþingi og
ríkisstjómum á undanfömum ámm
að standa ekki við þau áform sem
Alþingi setti sér með langtímaáætl-
un árið 1982. Nú sýnist grunnurinn
vera lagður að því að falla frá
markmiðunum frá 1982, þannig að
langtímaáætlunin hrynur endan-
lega, ef menn taka sig ekki vem-
lega á við afgreiðslu lánsfjáráætl-
unar og vegaáætlunar síðar í vetur.
Ríkisstjórnin og
lánskjaravísitalan
Eitt þeirra mála sem ríkisstjórnin
er í vandræðum með er lánskjara-
vísitalan er í því máli virðist skorta
hugrekki. Hún var sett í endurskoð-
un á síðasta ári. Ut úr þvi starfí
kom að engu þurfti að breyta, svo
gott væri þetta fyrirkomulag. Þrátt
fyrir það var við síðustu stjórnar-.
skipti ákveðið að taka launavísi-
töluna til helminga inn í gmndvöll-
inn á móti byggingarvísitölu og
framfærsluvísitölu og skyldi það
taka gildi um áramótin. Þau em
nú nýliðin. Flestum var og er þó
ljóst að það gerir aðeins illt verra
nema meiningin sé að halda kaup-
inu föstu eins og verið hefur að
undanfömu, en láta allt annað
hækka. Eitthvað virðist standa á
stuðningi Seðlabankans við þessar
aðgerðir og nú um áramótin var
öllu slegið á frest í nokkra mánuði.
Seðlabanki og hæstv. viðskiptaráð-
herra virðast enn eiga að ráða. En
í áramótaboðskap sínum telur fyrrv.
fjármálaráðherra og núv. utanríkis-
ráðherra, Jón Baldvin, að nú verði
að fara að breyta lögunum um
Seðlabankann til þess að hægt sé
að taka á þessum málum. Undar-
legt er að menn geti setið í ráð-
herrastól ár eftir ár án þess að taka
til hendinni í meginmálum, benda
bara á vondan Seðlabanka sem
þeir segja að allt sé að kenna. Það
er vissulega gott fyrir ýmsa sem
em við völd að hafa blóraböggul
til að koma flestu hinu illa á. Vafa-
laust má laga lögin um Seðlabanka
en menn sem em í ráðherrastólum
eiga að vera menn til að stjóma
og ef hindranir em í vegi þarf að
ryðja þeim snarlega í burt en ekki
bara að tala, án þess að fram-
kvæma.
„Bjargráðið“ mikla
í upphafi þessara orða gat ég
þess að mikið hefði legið á í haust
að mynda núverandi stjórn til að
bjarga þjóðinni. Þrátt fyrir þriggja
rnánaða setu hafa bjargráðin enn
ekki séð dagsins ljós því það getur
varla talist bjargráð að seilast enn
dýpra ofan í vasa almennings eða
bæta enn á taprekstur fyrirtækj-
anna. En eitt „bjargráð" er þó boð-
að og það er kannski ljós í myrkr-
inu. Það er ferðalag tvímenning-
anna, A-mannanna, hæstv. ráð-
herra utanríkismála og íjármála,
um landið. Það verður mikil „dýrð“
fyrir fólk að hitta þá. Kannski þeir
geti sannfært fólkið í landinu um,
hversu skattpíningin er mikil bless-
un fyrir þjóðina!
Höfundur er alþingismaður fyrir
SjálfstæðisBokkinn í Suðurlands-
kjördæmi.
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Næsta hraðlestrarnámskeið hefst 25. janúar nk.
Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn í hvers kyns les-
efni skaltu skrá þig tímanlega á námskeiðið.
Nemendur HRAÐLESTRARSKÓLANS þrefalda að með-
altali lestrarhraða sinn með betri eftirtekt en þeir hafa
áður vanist.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKÓLINN.
h EGAR EITTHVAÐ
TENDURTIL!
Hvort sem það er
árshátíð, þorrablót, brúðkaup
eða fermingarveisla er nauðsynlegt að
hafa líflegt í kringum sig. dúkarúllur
eru til í mörgum fallegum litum og ávallt í nýjustu
tískulitunum. <5S> dúkarúllur eru 40 m á lengd
og 1,25 m á breidd. Þeim má rúlla út á hvaða
borðlengd sem er og síðan skærin á.
Þægilegra getur það ekki verið.
Fannir hf. H. Sigurmundsson hf., heildverslun Hafsteinn Vilhjálmsson M. Snædal, heildverslun
Bíldshöfða 14 a. 91-672511 Vestmannaeyjum. s. 98-2344/2345 Hliðarvegi 28, ísafirði, s. 94-3207 Lagarfelli 4, Egilsstöðum. s. 97-1715.
Osta- og smjörsalan sf 'Rekstrarvörur Þ. Björgúlfsson hf., heildverslun
Bitruhálsi 2. Reykjavik, s. 91-82511 Rétlarhálsi 2, Reykjavik, s. 91-685554 Hafnarstræti 19, Akureyri, s. 96-24491
á tilboðsverði: Kr.398 þúsundl!
Við eigum til afgreidslu strax nokkrar LANCIA
Skutlur á sérstöku tilboðsverði. eða
kr. 398 þúsund krónur.
Ennfremur sérstaka sportútgáfu í hvítum
eða svörtum lit með samlitum
HAGSTÆD
GREIÐSLU
BILABORG HF
FOSSHALSt 1. S. 68-1299
w ~
W i c i
p,- _
I
Ipyf £ , " y i-.s‘ .. § iiiiÉi