Morgunblaðið - 19.01.1989, Side 26

Morgunblaðið - 19.01.1989, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR1989 . ...bjóðum viö og drykk. Nýr, spennandx bragðlaukana. að besta í mat eðill, sem kitlar Umhverfið ergh á þægindi. Opið fimmtudi crá kl. 19.00. t og áhersla lögð sunnudaga ’a ísíma 29098. Borðapantahir RESTAURANT A LA CARTE Brautarholti 20, 3. hæð. Gengið innfrá horni Brautarholts ogNótatúns. HONIG -svolítið sérstakt. Fljótlegt og fyrirhafnarlítið. Brottrekstur Daniels Barenboims: Biður Mitterr- and forseta að skerast í leikinn París. Daily Telegraph. Intemational Herald Tribune. HINN heimsþekkti hljómsveitarstjóri Daniel Barenboim, sem síðastliðinn fóstudag var sagt upp starfi sem aðalstjórnandi hinn- ar nýju Bastille-óperu i París, hefiir nú beðið Francois Mitter- rand Frakklandsforseta að leysa deilur þær sem málið hefur valdið. Það var Pierre Bergé, yfirmaður sambands óperuhúsa Parísar sem vék Barenboim frá og sagði Bergé að ráðning'arsamn- ingur Barenboims, sem staðfestur var af ríkisstjórn íhaldsmanns- ins Jacques Chiracs fáeinum dögum fyrir síðustu forsetakosning- ar, væri „ógildur." Á bak við þessar deilur er m.a. ágreiningur um grundvallarstefhu hins nýja og glæsilega óperuhúss sem sósía- listar komu á laggirnar á fyrstu stjórnarárum Mitterrands. Barenboim hélt vel sóttan blaðamannafund á mánudag. Hann sagði þar að ráðningar- samningurinn væri í fullu gildi og Frakklandsforseti yrði að gera upp við sig hvort hann kysi ann- ars vegar sig og mikinn fjölda heimsþekktra listamanna sem hann hefði samið við um störf hjá stofnuninni eða hins vegar stefnu sem mótuð væri af „fram- kvæmdastjóra tískuhúss." Bergé er framkvæmdastjóri Yves Saint Laurent-tískuhússins en var skip- aður yfir óperusambandið af Jack Lang, menningarmálaráðherra sósíalistastjómarinnar síðastliðið haust. Ekki er talið víst að Mitterrand setji Barenboim aftur í starfið þar sem vitað er að forsetinn og ráð- gjafar hans í menningarmálum voru lítt hrifnir af áætlunum Bar- enboims. Þykir þeim hann hafa gert of lítið af því að höfða til almennings í verkefnavali sínu. Of mikið sé af Wagner og Mozart en of lítið af vinsælum Verdi- óperum og auk þess séu fyrir- hugaðar uppfærslur ekki nógu margar. Barenboim hefur svarað því til að höfða beri til eins margra áhugahópa og unnt sé. Á hinn bóginn beri að halda miðaverði lágu. Að hluta snúast deilumar einn- ig um valdsvið Bergé og Baren- boims en sá síðamefndi hefur Daniel Barenboim sagt að vilji Bergé móta stefnuna þá hljóti hann að helga sig alger- lega óperunni og fá leyfi hjá tísku- húsinu. Loks má geta þess að Bergé finnst laun Barenboims allt of há. Fjölmargir þekktir tónlistar- menn, þ.á m. Herbert von Karaj- an, Sir Georg Solti og Jessye Norman, hafa lýst yfir stuðningi við Barenboim og segjst ekki munu starfa við óperuna nema hann verði endurráðinn. Ekki hafa enn verið gerðir formlegir, undir- ritaðir samningar við listafólkið og er talið að þetta geti seinkað opnun ópemnnar um allt að eitt ár. Dönsk stórfyrirtæki: Keppast um að sameinast til að búa sig undir innri markað EB Kaupmannahöfh. Frá NJ. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. AÐEINS á einum mánuði hefur þrisvar sinnum verið skýrt Érá sam- einingu stórra fyrirtækja í Danmörku og hefur ástæðan ávallt verið sú sama. Með því að taka höndum saman eru fyrirtækin að treysta stöðu sína og búa sig undir innri markað Evrópubandalagsins á árinu 1992. Á mánudag var frá því skýrt, að dönsku sykurverksmiðjumar, spíritusverksmiðjurnar og Danisco ætluðu að ganga í eina sæng. Verð- ur samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna þriggja 12.000 manns og ársveltan um 90 milljarð- ar ísl. kr. Rétt eftir áramótin sam- einuðust ferðaskrifstofumar Spies og Tjæreborg og í síðustu viku tóku Novo og Nordisk Gentofte höndum saman í lyíjaframleiðslunni. Þá er á kreiki orðrómur um að Danfoss og Damixa séu að velta því sama fyrir sér en þessi fyrirtæki em stór í alls kyns véla- og tækjafram- leiðslu og ekki síst fyrir landbúnað- inn. 10% kviminéarafsláttur Heteudýnur-tóteukoddar-sprmgdýnur og einnig vatnsdýnut- |f/ ||||> #ff. Grensásvegi 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.