Morgunblaðið - 19.01.1989, Page 55

Morgunblaðið - 19.01.1989, Page 55
MORGUNBLAÐEÐ ÍÞRÓTTIR FTMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989 55 KNATTSPYRNA Valsmenn til Hollands eða Sviss? LEIKMENN Valsliðsins hafa mikinn hug á að fara í œf- ingaferð til útlanda um páskana. Það eru tveir stað- ir sem koma til greina - að vera í sumarhúsum í Hol- landi, eða fara til Sviss. Undanfarin ár hafa nokkur félagslið farið til Hollands á vegum Samvinnuferðar/Land- sýn og látið vel að allri aðstöðu. Hollandsferð er sterklega inn ( myndinni, Nokkrir leikmenn Vals hafa þó áhuga á ferð til Sviss, en eins og menn muna þá lék Sævar Jónsson með sviss- nesku liði í fyrra. Hann hefur sambönd i Sviss. Eins og við sögðum frá í gær þá fara FH-ingar í ævintýraferð til eyjunnar Cayman. FH-ingar fara út 19. mars og koma aftur 27. mars. KORFUBOLTI Jones dæmir í Keflavík William Jones, einn besti körfu- knattleiksdómari heims, mun dæma leik ÍBK og UMFN í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ á morg- un. Jones kemur til landsins á morg- un og nágrannaslagurinn í Keflavík verður fyrsti leikurinn sem hann dæmir á íslandi. Jones mun svo halda áfram og dæma leiki í íslandsmótinu út keppnistímabilið. Hann mun dvelja hér á landi fram í apríl en skjótast út annað slagið til að dæma leiki í Evrópukeppninni. Jones er talinn einn besti dómari heims og er einn af aðaldómurum FIBA. Mm FOLK I MIKIÐ kapphlaup er nú um Mel Sterland, hinn sókndjarfa bak- vörð Sheffield Wedensday, en hann er ósáttur við yfírmenn sína fyrir að svipta sig fyrirliðatitlinum. Forráðamenn bæði Tottenham og Manchester United óska þess nú að hann nái ekki sáttum við félag sitt og gangi á mála hjá þeim. Tottenham vill greiða eina milljón punda, en ólíklegt er að Man. Únited taki þátt í slíkum darraðar- dansi þar sem Alex Ferguson þjálf- ara liðsins hefur verið gert að spara sem mest hann má. ■ FRANCISCO BUYO mark- vörður Real Madrid bætti við sig leik í leikbannið sem aganefnd spænska knattspymusambandsins dæmdi hann í fyrir mánuði síðan. Verður garpurinn því uppi í stúku í næstu fjórum leikjum. Uppruna- lega var Antonio Orejuela, fram- heiji Atletico Madrid dæmdur í leikbann fyrir að lúskra á Buyo, en er stjóm og leikmenn brugð- ust ókvæða við, var myndband af leiknum skoðað ögn betur. Þá kom í ljós, að Buyo hafði sjálfur lamið Orejuela, en að því loknu varpað sér emjandi á völlinn eins og hann hefði sjálfur orðið fyrir þungu höggi. Þótti þetta óíþróttamannsleg framkoma svo ekki sé meira sagt, framheijinn var sýknaður, en mark- vörðurinn dæmdur og þarf einnig að borga um 75.000 ísl. kr. í sekt. KNATTBORÐSLEIKUR Davis fékk 4>4 milljónir fyrir sigurinn á Foulds Heimsmeistarinn hefur þénað 28,2 millj. kr. á tæpum tveimur mánuðum STEVE Davis, heimsmeistari í knattborðsleik - „snóker," fékk 4,4 millj. ísl. kr. fyrir að vinna Neal Foulds f einvígi þeirra á Hótel íslandi. Davis, sem sýndi snilldartakta bæði í sókn og vörn, var yfir sig ánægður með allar aðstæður og hann og Fouids hrósuðu áhorfendum - hvað þeir hefðu lifað sig inn í leikinn. Davis vann, 5:3, í skemmtilegu einvígi, sem 700 áhorfendur sáu og sjónvarpað var beint. Eftir sigurinn fór hann á kostum - þeg- ar hann sýndi áhorfendum ýmsa galdra knattborðsíþróttarinnar. Davis hefur grætt á tá og fingri að undanfömu, eða síðan keppn- istímabilið hófst hjá knattborðs- leikurum fyrir tæpum tveimur mán- uðum. Hann hefúr unnið í íjórum keppnum og fengið fyrir það 28,2 millj. ísl. kr. Neal Foulds, sem er í þriðja sæti á heimslistanum, fékk 1.760 þús. ísl. kr. fyrir leikinn gegn Davis á Hótel íslandi. Sextán bestu knattborðsspilarar heims leika nú um heimsmeistara- titilinn og leika þeir allir við alla. .Þeir fá þrjú stig fyrir vinning, en eitt stig fyrir jafntefli. Þeir tveir kappar sem verða stigahæstir, keppa til úrslita. Þá verður keppt um 17,6 millj. í fyrsta vinning. Steve Davls sést hér munda kjuðann. KNATTSPYRNA „Þeir tmamér aldrei..." Steve Davis var mjög ánægður með móttökumar sem hann fékk á íslandi - í hinni stuttu heimsókn sinni vegna ein- vígisins gegn Foulds. Það sem kom Davis skemmtilega á óvart var að Linda Pétursdóttir, ungfrú heimur, skyldi afhenta þeim Foulds blómvendi og gjaf- ir. „Það er öruggt að félagar mínir heima á Englandi trúa mér aldrei - þegar ég segi þeim að ég hafi verið að kela „Miss World" í beinni sjónvarpsútsend- ingu,“ sagði Davis, sem þakkaði Lindu tvisvar fyrir með kossi. Morgunblaöiö/Svenir Steve Devis mætti í nýjum fötum á Hótel ísland. Hann fékk 1.260 þús. kr. á tímann, eða 21.000 kr. á mínútu. Tímafrekt að gera borðið klárt ÞAÐ kom maður frá Englandi til að setja saman billiardborðið, sem þeir Davies og Foulds kepptu á á Hótel íslandi. Það tók manninn fímm og hálfa klukkustund að setja borðið saman. Borðið, sem er nýtt og kom frá Englandi, er 1,4 tonn að þyngd. Búið er að taka borðið niður og verður það sent aftur til Englands. Keppnisföt Steve Davis saumuð í Reykjavík Íslandsferð Steve Davis var hcn- um eftirminnileg, enda lenti hann í ýmsu sögulegi. Eftir að Davis kom til Giasgow frá London, kom í ljós að ferðataska hans með keppnis- fötum fannst ekki - þrátt fyrir mikla leit.' Eftir dágóðan tíma kom í ljós að Stórmótá Seltjamamesi STÓRMÓT íþróttafróttamanna og Adidas í innanhússknatt- spyrnu verður haldið á Sel- tjarnarnesi á sunnudaginn kemur og hefst það kl. 13. Þetta er árlegt mót, sem hefur fram til þessa verið á Selfossi og Akranesi. Keppnin fer nú fram í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi á Seltjarnanesi. Stórmótið er boðsmót og hafa Samtök íþróttafréttamanna boðið átta félögum til leiks og hefur verið dregið í riðla. í A-riðli leika KR, KA, FH og Stjarnan. í B-riðli leika Fylkir, Fram, Akranes og Valur. Keppt verður eftir nýju regl- unum - þ.e.a.s. að mörkin verða stærri en handknattleiksmörk. Fimm leikmenn eru í liði - þar af einn markvörður. Það verða nágrannarnir, KR og Grótta, sem opna mótið. Tvö efstu liðin í riðlunum komast í undanúr- slit. Aðeins tvö félög hafa unnið í Stórmótinu í þau fimm skipti sem mótið hefur farið fram - KR og Fram. Framarar unnu mótið fyrst, en síðan komu þrír sigrar KR í röð. Framarar unnu svo aftur á Akra- nesi, síðast þegar keppt var. taska hans var send með flugi til Edinborgar. Umboðsmaður hans sendi strax skeyti til íslands og óskaði eftir því að keppnisföt yrðu saumuð á Davis. Gaf hann upp mál á buxum, skyrtu og vesti og skó- stærð. Þeir sem sáu um einvígið höfðu strax samband við Sævar Karl og báðu hann um að bjarga málunum, sem hann og gerði. Þremur tímum fyrir einvígið mátaði Davis klæðn- aðinn og varð að stytta buxumar og þrengja vestið. Þá valdi hann sér skyrtu, þverslaufu og skó. KNATTSPYRNA / U-21 LANDSLIÐ Guðni tekur við af Júrí Sedov Guðni Kjartansson verður í ár þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu skipað leikmönnum tuttugu og eins árs og yngri — tekur við af Júrí Sedov, sem var með liðið í fyrra. „KSÍ gerði tveggja ára samning við Guðna ( fyrra, en dregið hefur verið úr verkefnum a-landsliðsins á þessu ári og því lá beinast við að Guðni tæki við tuttugu og eins árs lið- inu,“ sagði Gunnar Sigurðsson, formaður landsliðsnefndar U-21 árs liðsins, við Morgunblaðið I gær. Guðni verður einnig áfram að- stoðarmaður Siegfrieds Helds Guðni Kjartansson með a-landsliðið, sem leikur fímm leiki á árinu f undankeppni heims- meistaramótsins. U-21 árs liðið leikur hins vegar fjóra leiki f Evr- ópukeppninni í ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.