Morgunblaðið - 29.01.1989, Side 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1989
ERLENT
INNLENT
Stórvið-
skipti tapast
Verzlunarkeðjan Aldi Sud í
Þýzkalandi hefur ákveðið að
hætta kaupum á íslenzkri rækju
af Sölustofnun lagmetisins.
Astæðuna segja þýzkir vera hval-
veiðar íslendinga og þrýsting
grænfriðunga. Rúmlega 40%
íslenzks lagmetis fara á Þýzka-
landsmarkað og 75 manns munu
missa vinnuna vegna þess. SL
tapar viðskiptum fyrir 430 millj-
ónir króna.
Bjórmál skýrast
Forráðamenn ÁTVR hafa
ákveðið að þrjár erlendar bjórteg-
undir, Budweiser, Tuborg og
Kaiser, verði til sölu í áfengis-
verzlunum og milljón lítrar hafa
verið pantaðir af hverri tegund.
í sérverzluninni á Stuðlahálsi
mun einkum fást dökkt öl til að
byija með. íslenzk brugghús
bjóða upp á Egils gull, Sanitas
pilsner og lageröl, auk Löwen-
brau.
Samiðum
loðnustofninn
Samningar tókust við Norð-
menn og Grænlendinga um skipt-
ingu loðnukvótans þannig að Is-
lendingar fá 78% aflans, en hinir
11% hvor. Halldór Ásgrímsson
sj ávarútvegsráðherra segir að
samkomulagið byndi enda á deil-
ur þjóðanna vegna fiskveiða,
einkum sé mikilvægt að hafa sa-
mið við Grænlendinga.
Olía og áfengi
í strandinu
100.000 lítrar af gasolíu runnu
í sjóinn úr danska skipinu Mar-
iane Danielsen, sem strandaði
við Grindavík. Nokkuð er um að
dauðir fuglar hafí fundizt. Við
sjópróf kom fram að skipstjórinn
var ölvaður er skipið tók strikið
upp í fjöru.
Vonzkuveður og ófeerð
Hríð og ófærð hefur gert
mönnum lífíð leitt víða um land.
í Reykjavík var mesta ófærð í
fímm ár og mikið var um um-
ferðartafír og árekstra.
Ný lánskj aravísitala
Ný lánskjaravísitala hefur ver-
ið tekin upp. í henni vegur
launavísitala þriðjung. Ásmund-
ur Stefánsson, forseti Alþýðu-
sambandsins, segir að breytingin
sé fráleit og muni torvelda kjara-
samninga. í sama streng taka
aðrir verkalýðsleiðtogar. Úr-
skurðamefnd um verðtryggingu
telur að vísitalan verði að teljast
ný, og geti ekki gilt gagnvart flár-
skuldbindingum, sem til var
stofnað fyrir gildistöku hennar.
Baldur Guðlaugsson, lögfræð-
ingur, hefur kært nýja vísitölu-
grundvöllinn til nefndarinnar og
samband lífeyrissjóða hyggst
ekki ræða við ríkið um skulda-
bréfakaup fyrr en niðurstaða hef-
ur fengizt.
ERLENT
Blóðbaðí
Afganistan
Hundruð óbreyttra borgara féllu
í stórskotaliðsárásum Sovét-
manna og afganska stjómarhers-
ins á mánudag. Árásimar voru
gerðar á svæðið sunnan og norðan
við Salang-jarðgöngin en um þau
fara birgðaflutningar Sovét-
manna til Afganistan og sögðu
sjónarvottar að heilu þorpin hefðu
verið þurrkuð út.
Salvador Dali látinn
Spænski snill-
ingurinn
Salvador Dali þ
lést á mánudag,
84 ára að aldri.
Dali var síðasti
stórmálarinn úr
röðum súrreal-
istaogvareinnig ____
þekktur fyrir
sérstæða framkomu sína. Hann
hafði ekki málað í fímm ár vegna
taugaveiki og handskjálfta en
hjarta- og lungnamein dró hann
til dauða.
Jarðskjálfti í
Sovétríkjunum
Talið er að um 300 manns hafí
farist er öflugur jarðskjálfti reið
jrfír Sovétlýðveldið Tadzhíkístan á
mánudag. Tvö þorp grófust undir
aurskriðu, sem hljóp af stað í
skjálftanum og var í fyrstu óttast
að rúmlega 1.000 manns hefðu
týnt lífí
BushtilKína
George Bush Bandaríkjaforseti
fer í tveggja daga heimsókn til
Kína í næsta mánuði en forsetinn
var á sínum tíma sendiherra
Bandaríkjastjómar þar í landi.
Bush verður í Kína 25. og 26.
febrúar og er yfírlýstur tilgangur
heimsóknarinnar sá að treysta
enn betur góð samskipti ríkjanna
tveggja.
Fækkað í herafla
A-Þjóðverja
Erich Honec-
ker, leiðtogi
austur-þýska
kommúnista-
flokksins, skýrði
frá því á mánu-
dag að ákveðið
hefði verið að
fækka í herafla Iandsins um
10.000 manns fyrir lok næsta árs
auk þess sem framlög til hermála
yrðu skorin niður um tíu prósent
á þessu tímabili.
Sorsa biðst lausnar
Kalevi Sorsa, utanríkisráðherra
Finnlands, afhenti Finnlandsfor-
seta afsagnarbeiðni sína á þriðju-
dag. Sorsa sagði af sér til að koma
formanni Jafnaðarmannaflokks-
ins inn í ríkisstjómina en aðrir
ráðherrar flokksins reyndust ekki
reiðubúnir til að láta stóla sína
af hendi í þessu skyni.
Sakharov keppir um
þingsæti
Sovéski mann-
réttindafrömuð-
urinn og Nóbels-
verðlaunahafinn,
Andrej Sak-
harov, hefur
verið valinn einn
af frambjóðend-
um fyrir Moskvu í kosningum til
nýs fulltrúaþings sem brátt verður
valið. Fullvíst er talið að Sakharov
keppi um þingsæti við Vítalíj
Vorotníkov, sem á sæti stjóm-
málanefnd Kommúnistaflokksins.
Dag Solstad:
Þróun 68-
kynslóðar-
ínnarrakín
Dag Solstad er fímmti Norð-
maðurinn sem 6er bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs. Að
auki hafa 10 Svíar. fimm Danir,
fimm Finnar, þrir íslendingar og
einn Færeyingur fengið verðlaun-
in sem fyrst voru veitt 1962. Dóm-
nefnd bókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs segir m.a. i rökstuðn-
ingi sínum fyrir valinu á bók Dags
Solstads, „Roman 1987“, að höf-
undurinn lýsi „i bókinni þróunar-
sögu 68-kynslóðarinnar, mistök-
um hennar og afdrifum i norskum
smábæ...“
Skýrt var frá úthlutuninni á frétta-
mannafundi í Krístjánsborgarhöll í
Kaupmannahöfn en fulltrúar íslands
í dómnefndinni eru rithöfundamir
Jóhann Hjálmarsson og Sveinn Ein-
arsson. Verðlaunin, 150.000 dkr.,
(1.100 þúsund isl. kr.), verða afhent
þann 28. febrúar nk. á 37. þingi
Norðurlandaráðs við hátíðlega at-
höfn í ráðhúsinu í Stokkhólmi af
forseta Norðurlandaráðs.
í viðtali við Morgunblaðið sagði
Jóhann Hjálmarsson, að „Roman
1987“ væri opin skáldsaga þar sem
Solstad gagnrýndi stjómmálaskoð-
anir 68-kynslóðarinnar og þar með
sjálfan sig. Væri hér um að ræða
mjög heiðarlegt verk.
Jóhann Hjálmarsson var formaður
dómnefndarinnar, sem nú skilaði af
sér. Var þetta f sfðasta sinn, sem
nefndin starfaði með þeim hætti, sem
verið hefur.
Reuter
LaRouche í 15 ára fangelsi
Bandaríski öfgamaðurinn Lyndon LaRouche var á föstudag dæmdur
i 15 ára fangelsi fyrir klækjabrögð. LaRouche, sem er 66 ára gam-
all og hefur ýmist boðað vinstri eða hægri öfgar, er sakaður um
skattsvik og auk þess telja yfirvöld að hann hafí aldrei ætlað að
greiða stuðningsmönnum sfnum milljónir dollara er þeir sendu hon-
um að láni með póstinum. Við réttarhöldin sakaði LaRouche m.a.
Elísabetu Bretadrottningu og fyrrum utanrikisráðherra Banda-
ríkjanna, Henry Kissinger, um aðild að alþjóðlegri fíkniefnasölu. Á
myndinni sést LaRouche leiddur á brott frá réttarsalnum.
Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklandsr
Slyngari stj órnmálamað
ur en menn höfðu ætlað
FRAM til þessa hefur Michel Rocard, sem tók við embætti forsæt-
isráðherra Frakklands í maí á síðasta ári, ekki talist til þungavigt-
armanna í frönskum stjóramálum. Hann þykir ekki hafh yfir sér
yfirbragð leiðtoga, er t.a.m. bæði nákvæmur og smámunasamur.
Verkföll ríkisstarfsmanna hleyptu illu blóði í almenning og forsæt-
isráðherrann saup seyðið af þvi. Vinsældir hans minnkuðu ört
og skoðanabræður hans innan Sósialistaflokksins gerðust gagn-
rýnir ekki síst er flokkurinn tapaði tveimur mönnum f aukakosn-
ingum. Nú hefur Rocard tekist að binda enda á verkföllin án
þess að samið hafi verið um óhóflegar launahækkanir og staða
hans þykir traustari en nokkru sinni fyrr. Vinsældir hans hafa
aukist til muna og það markmið hans að hverfa frá forskriftum
þaulskipulagðar hugmyndafræði virðist eiga hljómgrunn meðal
almennings.
Skömmu fyrir jól lýsti Rocard
því yfír í sjónvarpsávarpi að
hann hefði hvergi hvikað frá því
markmiði sínu að skapa þjóðar-
sátt og lægja þann hugmynda-
fræðilega ágreining milli vinstri
manna og hægrisinnaðra sem ein-
kennt hefur ■ frönsk stjómmál.
Tæpum mánuði áður höfðu 40
prósent aðspurðra lýst yfír
óánægju sinni með störf forsætis-
ráðherrans og
menn voru famir
að gera því
skóna að Rocard
myndi ekki end- eftir Ásgeir
ast í embætti
fram til vors. Þjóðin var greinilega
búin að nóg af verkföllunum, sem
hafíst höfðu í september, og Roc-
ard var vændur um úrræðaleysi
og litla stjómvisku. Flokksbræður
hans og andstæðingar gengu á
lagið og þannig lýsti Jaques
Chirac, fyrrum forsætisráðherra
og leiðtogi Ný-Gaulista, yfír því
að sáttastefna forsætisráðherrans
hefði lamandi áhrif á þjóðfélagið.
Almenningur gerði sér nú ljóst
að stefna „spámannsins" leiddi
einvörðungu eymd og volæði yfír
þjóðina.
Aðförin að Rocard mistókst.
Honum tókst að binda enda á
verkföllin og í nýlegri skoðana-
könnun kváðust 45 prósent að-
spurðra ánægð með frammistöðu
hans og 53 prósent sögðust vilja
að hann yrði áfram forsætisráð-
herra næstu tvö árin hið minnsta.
Um líkt leyti birtist skýrsla
frönsku Tölfræðistofnunarinnar
um ástand efnahagsmála og sagði
þar að gera mætti ráð fyrir áfram-
haldandi hagvexti, sem mældist
H 3,5% á sfðasta
ári. Loks var því
spáð að atvinnu-
leysi yrði komið
Sverrisson niður fyrir 10% í
júnímánuði.
Rocard var að sönnu heppinn
en fleira kom til. Þann 18. desem-
ber kom Rocard fram í sjónvarps-
viðtali, því fyrsta sem hann hefur
veitt frá því hann varð forsætis-
ráðherra, og þótti standa sig mjög
vel. Honum tókst að skýra við-
horf sín á einföldu máli og án
útúrsnúninga og þrotlausra mála-
lenginga sem þótt hafa einkenn-
andi fyrir málflutning hans. Roc-
ard lýsti m.a. yfír því að tími inn-
antómra slagorða væri liðinn, þau
væru yfírborðskennd og vitur-.
legra væri að láta verkin tala. „Ég
hef ávallt verið þeirrar skoðunar
að stjómmálamenn taki of oft til
Michel Rocard.
máls og tali of lengi um lítið sem
ekkert," sagði hann.
Telja má hæpið að Rocard tak-
ist það ætlunarverk sitt að færa
frönsk stjómmál nær miðju á
næstu mánuðum því reynslan sýn-
ir að stjómmálaflokkar em al-
mennt og yfírleitt fhaldssamar
stofnanir. Samstarf hans og Fran-
cois Mitterrands Frakklandsfor-
seta þykir hins vegar hafa gengið
prýðilega og báðir njóta þeir al-
mennra vinsælda. Ólíklegt er talið
að Pechiney-fjármálahneykslið
grafí undan stjóm Rocards ekki
síst ef hann bregst skjótt við og
skýrir á hvem hátt stjómvöld
hyggjast halda uppi eftirliti með
kauphallarviðskiptum. Allt að
einu virðist ljóst að Michel Rocard
býr yfír meiri útsjónarsemi og
stjómunarhæfíleikum en menn
höfðu ætlað.