Morgunblaðið - 29.01.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.01.1989, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ • v m ' " - ■ • * * - « ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1989 raðauglýsingar Geymsluhúsnæði óskast á leigu Þjóðminjasafn íslands óskar eftir að taka á leigu í nokkur ár geymsluhúsnæði í Reykjavík eða nágrenni. Þörf er á tvennskonar geymslum: í fyrsta lagi óupphitaðri geymsluskemmu, 800-1000 m2 að gólffleti. í öðru lagi vandaðri, upphitaðri geymslu, 800-1000 m2 að gólffleti. Ákjósanlegt er húsnæði með litlum gluggum. Greið aðkoma bíla þarf að vera að breiðum geymsludyrum. Skrifleg tilboð sendist Þjóðminjasafni íslands, pósthólf 1489, fyrir 7. febrúar nk. íbúð óskast Dósent við Háskóla íslands sem hefur starf- að undanfarin 10 ár erlendis, óskar eftir 3ja- 4ra herbergja íbúð. Þeir, sem hafa áhuga eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 91-21383. Góð íbúð óskast Góð íbúð, 3ja-5 herbergja helst með bílskúr, óskast nú þegar í Hólahverfi (þó ekki skil- yrði), í a.m.k. ár. Góðri umgengni og skilvísi heitið. Nánari upplýsingar í síma 28505 á skrifstofu- tíma. TTyggvl Agnarsson HéraOsdómslögmaður - Garðastræti 38 - 101 Reykjavik • Simi 28505 - íbúð, 2-3 herbergi, óskast til leigu frá 15. mars í 2-3 ár fyrir erlendan fulltrúa. Innbú æskilegt. Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl., merkt: „íbúð - 6990“ fyrir 4. feb. Skóverslun óskast Er kaupandi að vel staðsettri skóverslun. Upplýsingar í síma 666576. Þrekhjól Óska eftir að kaupa notað Monark þrekhjól, gerð 868 eða 818. Góðfúslega hafið samband við Aðalstein Pétursson í síma 681200. Fyrirtæki óskast Traust fyrirtæki á sviði iðnaðar óskar eftir að færa út starfsemi sína með kaupum á fyrirtæki eða atvinnustarfsemi. Til greina kemur: ★ Iðnaðarfyrirtæki ★ Verslunarfyrirtæki tengt iðnaði. ★ Þjónustufyrirtæki tengt iðnaði. sTwsuúNiism h/i BtynjolfurJónsson • Nóatun 17 105 Rvik • simi 621315 • Alhlida rabningaþjonusta • Fyrirtækjasala • Fjármálaradgjöf fyrir fyrirtæki Hátíðarkór Kristskirkju Nokkrar raddir vantar í hátíðarkór Krists- kirkju. Mörg verkefni framundan, m.a. heim- sókn Jóhannesar Páls II páfa. Æfingar hefjast þriðjudaginn 31. janúar. Upplýsingar í síma 27415. BÖRG Listmunir- Sýningar- U ppboð Pósthússtræti 9, Austurstrarti 10,101 Reykjavík Sími: 24211, P.O.Box 121-1566 Málverk Nú hanga uppi í sýningarsal Gallerí Borgar í Pósthússtræti myndir gömlu meistarana. Verið er að undirbúa uppboð, sem haldið verður 12. febrúar. Þeir, sem vilja koma myndum á uppboðið og/eða í venjulega sölu í Galleríinu, látið vita sem fyrst, því talsverð eftirspurn hefur verið eftir góðum listaverk- um að undanförnu. mm SPOEX heldur fræðslufund á Hótel Lind þann 1. febrú- ar nk. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kristján Steinsson, gigtarlæknir, ræðir um psoriasisgigt. 2. Jón Hjaltalín Ólafsson, húðsjúkdóma- læknir, svarar fyrirspurnum. 3. Umræður um ísrael og Lanzaroteferðir. Kaffiveitingar. Sjáumst hress. Stjórn SPOEX. Enskuskólar í Eastbourne Lærið ensku á fallegum orlofsstað, East- bourne, við suðurströnd Englands. Heima- vist eða dvalið á heimilum. Sumar- og heils- ársnámskeið. Góð íþróttaaðstaða. Brottför að eigin ósk. Upplýsingar gefur Edda Hann- esdóttir, umboðsmaður International Stud- ent Advisory Service á íslandi, í síma 672701. Útvegum einnig skóla víðsvegar um England. Allt viðurkenndir skólar. Námsstyrkur við Háskólann í lowa Samkvæmt samningi milli Háskóla íslands og Háskólans í lowa (University of lowa) veitir Háskólinn í lowa tveimur íslenskum námsmönnum styrk til náms við skólann háskólaárið 1989/90. Annars vegar er um að ræða $1000 styrk til nemanda í grunnnámi (B.A.-B.S. námi). Hins vegar er boðið upp á styrk í formi niður- fellingar á skólagjöldum. Styrkurinn er ætlað- ur nemanda hvort heldur er á grunn- eða framhaldsstigi náms en skilyrði er að styrk- þegi hafi stundað nám við Háskóla íslands og greiði þangað árlegt skráningargjald. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu háskól- ans og skal umsóknum skilað þangað í síðasta lagi 13. mars nk. Háskóli íslands. Námskeið - tónleikar í Gerðubergi Júgóslavneski fiðlusnillingurinn Miha Pognacik ásamt Diedre Irons píanóleikara frá Nýja-Sjá- landi halda námskeið í „virkri hlustun" mánu- dagskvöldið 30. janúar nk. kl. 20.30. og tónleika þriðjudagskvöldið 31. janúar kl. 20.30. Verk eftir Beethoven, Bartok, Prokofiev og Shubert. Aðgöngumiðar við innganginn. Samtök IDRIART á íslandi. | fundir — mannfagnaðir \ Fáskrúðsfirðingar nær og fjær Hin árlega skemmtun verður í Fóstbræðra- heimilinu laugardaginn 11. febrúar nk. Félagsvist hefst kl. 20.30. Dans - Skemmtiatriði - Kaffisala - Happ- drætti. Mætið stundvíslega og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Þorrablót Þingeyingafélagsins á Suðurnesjum verður haldið í Stapa laugar- daginn 4. febrúar 1989. Hefst með borðhaldi kl. 19.00. Miðar seldir í Stapa fimmtudaginn 2.febrúarfrá kl. 17.00-19.00, sími 92-12526. Nánari upplýsingar í símum 92-11619 og 92-12516 eftir kl. 19.00. Stjórnin. DAGVI8T BARM tilkynnir: Leyfisveitngar til daggæslu barna á einka- heimilum hefjast að nýju 1. febrúar - 28. febrúar 1989. Sólarkaffi Arnfirðinga verður haldið í Domus Medica föstudaginn 3. febrúar 1989 og hefst kl. 20.00. Miðar verða seldir í Domus Medica föstudaginn 3. febrúar 1989 frá kl. 16-18 og við innganginn. Mætum öll. Stjórnin. Vakin skal athygli á því, að skortur er á dag- mæðrum í eldri hverfum borgárinnar. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Dagvistar bama í Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu. Athygli er ennfremur vakin á því, að sam- kvæmt lögum um vernd barna og ungmenna (nr. 53/1966) er óheimilt að taka börn í dag- gæslu á einkaheimili án leyfis barnaverndar viðkomandi sveitarfélags. Allar nánari upplýsingar veita umsjónarfóstr- ur í síma 27277 daglega frá kl. 8.30-9.30 og kl. 13.00-14.00, eða á skrifstofu Dagvist- ar í Hafnarhúsinu. [ þjönusta Húsgagnasprautun Sprautum nýjar og notaðar eldhúss- og bað- innréttingar, hurðir, veggsamstæður, borð- stofusett og hljóðfæri í hvaða lit sem er. Innréttinga- og húsgagnasprautun, Súðarvogi 32, sími 30585 - heimasími 74798.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.