Morgunblaðið - 29.01.1989, Blaðsíða 21
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Framleiðslustj óri
Hagvangur auglýsir eftir framleiðslustjóra fyrir eitt af stærri
iðnfyrirtækjum landsins. Starfssvið hans verður gerð fram-
leiðsluáætlana, framleiðslustýring, kostnaðarstýring, stjóm-
un gæðaeftirlits. Jafnframt er honum ætlað að taka þátt í
og útfæra vöruþróunarverkefni, hafa umsjón með starfs-
mannahaldi, birgðahaldi og stjómun viðhalds véla og tækja-
búnaðar. Leitað er að vélaverkfræðingi, rekstrarverkfræð-
ingi eða manni með aðra haldgóða verkfræði- eða tæknifræði-
menntun. Krafist er reynslu af stjómunarstörfum, sjálfstæð-
is og framtakssemi. Tekið er fram að framundan séu mikil
og krefjandi verkefni í endurskipulagningu verksmiðjunnar.
Kerfisforritari
Reiknistofa bankanna auglýsir eftir sérfræðingi (kerfisforrit-
ara) í tæknideild reiknistofunnar. í starfmu felst uppsetning
og viðhald tölvustjómkerfa og mun framhaldsmenntun og
þjálfun fara fram hérlendis og erlendis. Tekið er fram að
æskilegt sé að umsækjendur hafi háskólapróf í tölvunar-
fræði eða verkfræði og/eða umtalsverða reynslu við forritun.
Verkeftiisstj óri í
sjúkraþjálftin
Landsspítalinn auglýsir eftir verkefnisstjóra í sjúkraþjálfun
við lyfja- og skurðdeild. Hér er um að ræða faglegan og
stjórnunarlegan yfirmann sem er ráðgefandi innan sviðs í
teymisvinnu við annað starfsfólk, með sérmenntun á viðkom-
andi sviði eða meða sérþekkingu.
Bifvélavirkjar til
Svíþjóðar >
Sænska fyrirtækið Bröd Brandt Bil AB auglýsir eftir bif-
vélavirkjum til starfa í Svíþjóð. Fyrirtækið er staðsett á
vesturströnd Svíþjóðar miðja vegu milli Gautaborgar og
Osló. Athafnasvæði fyrirtækisins er í Bohusléni á vestur-
ströndinni, sem er eitt fallegasta skeijagarðs- og útivistar-
svæði landsins. Við fyrirtækið starfa 250 manns og er ár-
svelta þess um 400 millj. s. kr.
RAÐAUGLÝSINGAR
Námskeið í Englandi
Boðið er upp á enskunámskeið í Eastboume í Englandi.
Þetta er orlofsstaður á suðurstöndinni og geta þátttakendur
bæði dvalið þar í heimavist eða á heimilum. Námsskeiðin
em ýmist sumar- eða heilsársnámskeið. Þarna er fyrir hendi
góð íþróttaaðstaða. Jafnframt er boðið upp á skóla víðs veg-
ar um England.
SMÁAUGLÝSINGAR
Sunnudagsferð
Útivist stendur fyrir ferð til Hraunsvíkur, Þórkötlustaðaness
og Hópsness. Þarna er um að ræða gamla verleið, þar sem
gengið er með ströndinni að austan til Grindavíkur. Komið
verður við hjá strandstað danska skipsins Marianne Daniels-
j en. Brottför er kl. 13.00 frá BSÍ, bensínsölu.
Morgunblaðið/Sverrir
Stóraukning starfstengdrar símenntunar er eitt af megineinkennum þróunar
menntamála á þessum áratug. Myndin er frá tölvunámskeiði í HÍ.
Háskólaráð óskar eftir lagabreytingu:
Endurmenntunarstofiiun Há-
*
skóla Islands verði stofiiuð
HÁSKÓLARÁÐ hefúr samþykkt að óska
eftir við menntamálaráðherra að hann hlut-
ist til um að lögum um Háskóla íslands
verði breytt, þannig að háskólanum sé heim-
ilt að setja á stofii Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands í samvinnu við aðila utan
skólans. Drög að reglugerð um Endur-
menntunarstofnun HI voru fyrst samþykkt
1985, en þá úrskurðaði menntamálaráðu-
neytið að ekki væri heimild í lögum fyrir
slíkri stofnun.
Síðastliðið haust voru 5 ár liðin
síðan Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands var sett á laggirnar
og var þá til húsa í leiguhúsnæði
við Nóatún, en í desember sl. flutt-
ist hún í Tæknigarða háskólans við
Dunhaga. í fyrstu var aðeins einn
starfsmaður, Margrét S. Bjöms-
dóttir, endurmenntunarstjóri. Síðan
hefur starfsemin aukist það mikið
að nú eru starfsmennirnir þrír.
Fjöldi námskeiða hefur aukist úr
26 fyrsta heila starfsárið í 100 í
ár og hefur þátttakendum fjölgað
úr 604 í 2080 á sama tíma.
í spá sem Jón Torfi Jónasson,
formaður Endurmenntunamefndar,
hefur gert um fjölda háskólamennt-
aðs fólks á íslandi kemur fram, að
hann áætlar að árið 2000 verði
fjöldinn orðinn tvöfaldur á við það
sem nú er. Auk þess gerir hann ráð
fyrir að sá tími sem hver og einn
verji til endurmenntunar á ári nærri
fjórfaldist að meðaltali miðað við
sama tíma.
Um 60 námskeið eru í boði á
vorönn 1989 og em þau m.a. á
tölvu- og hugbúnaðarsviði, tækni-
sviði, í stjómun og rekstri, líftækni,
matsmannafræðsla, tungumála-
námskeið, markviss framsetning
efnis (ritað mál, framsögn, myndir)
heilsuspillandi efni og sýkingavarn-
ir á rannsóknarstofum og námskeið
ætluð ákveðnum greinum s.s. bóka-
safnsfræðingum, lyfjafræðingum
o.sfrv.
Námskeiðin era öllum almenn-
ingi opin. Yfirleitt er hér um að
ræða námskeið sem era 15-20 klst.
Tvö námskeið era til lengri tíma,
Tölvunámskeið fyrir PC-tölvur, sem
verður í 14 vikur og Konur í stjóm-
unarstörfum, sem stendur í 12 vik-
ur. Bæði námskeiðin hefjast nú í
vikunni. Er þetta í fyrsta skipti sem
haldið er námskeið, sem stendur í
heila önn, fyrir konur í stjórnunar-
störfum.
Ekki er ennþá á döfinni að stofna
öldungadeild við Háskóla íslands,
en Margrét S. Björnsdóttir, endur-
menntunarstjóri sagði að vissulega
væri það verðugt verkefni. Hins
vegar væri skólahúsnæðið fullnýtt
að degi til og ekki væri ljóst hvern-
ig staðið yrði að fjárhagslegu hlið-
inni, ef til þess kæmi.
í stjórnunarnefnd sitja fimm full-
trúar frá háskólanum og einn frá
hveiju eftirtalinna félaga: Tækni-
skóla íslands, BHM, HIK, Tækni-
fræðingafélagi íslands og Verk-
fræðingafélagi íslands.
Grindavík;
Þrjú frysti-
hús lokuð
Grindavík.
Á atvinnuleysisskrá í
Grindavík eru 54 samkvæmt upp-
lýsingum atvinnumiðlunarinnar.
Þetta er nokkuð mikið miðað við
árstíma. Hii«s ber þó að gæta að
vegna slæmrar tíðar og aflaleys-
is hefúr vetrarvertið varía kom-
ist í gang hér syðra.
Þijú fiystihús hafa stöðvast hér
að undanförnu og á það stóran þátt
í slæmu ástandi. Benóný Benedikts-
son, formaður Verkalýðsfélags
Grindavíkur, var þungorður um
ástand mála. Hann kvað sölu á
fiskiskipi og kvótum úr byggðarlag-
inu vera mjög alvarlega fyrir
Grindavík þar sem atvinna byggðist
að stóram hluta á sjósókn. I máli- -
hans kom fram að 20—30 manns
sækja vinnu upp á Keflavíkurflug-
völl. FÓ
Eskigörður;
Atvirmuhorf-
ur eru góðar
Eskifirði.
NOKKURT atvinnuleysi heftir
verið á Eskifirði frá miðjum des-
ember, en er nú í rénum.
Flestir hafa verið skráðir at-
vinnulausir 55, en í dag era á skrá
6 manns. Meginástæður atvinnu-
leysis í desember og janúar vora
breytingar sem staðið höfðu yfir í
frystihúsi Hraðfrystihúss Eskiflarð-
ar hf., en þar var verið að setja upp
flæðilínu sem nú hefur verið tekin
í notkun.
Atvinnuhorfur á Eskifirði era
góðar. Auk vinnslustöðvar Hrað-
frystihúss Eskifjarðar era reknar
hér tvær saltfiskverkanir auk fisk-
verkunarstöðva þar sem unninn er
harðfiskur og þurrkuð loðna.
- HAJ
Skipalón hf.
tekur til starfa
NÝTT fyrirtæki, skipasmiða-
stöðin Skipalón hf., hóf starfsemi
sína í Hafiiarfirði 9. janúar sl.
Framkvæmdastjóri er Jóhannes
Sigfusson og stjórnarformaður
er Hjalti Sigfusson.
Skipalón hf. mun starfrækja
skipasmði, auk þess veita alhliða
þjónustu við skip og báta, s.s. véla-
viðgerðir, rennismíði, jám- og
trésmíði, rafvirkjun og málun. Einn-
ig mun Skipalón hf. annast við-
gerðaþjónustu _ og viðhald fyrir
Mitsubishi báta og iðnaðarvélar.
Er fyrirtækið til húsa að Hval-
eyrarabraut 32-34, þar sem áður
var til húsa skipasmíðastöðin Báta-
lón hf. Aðaleigendur Skipalóns hf.
era núverandi starfsmenn fyrirtæk-
isins.