Morgunblaðið - 29.01.1989, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐW, AÐALSTRÆTJ 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
BláfjSll:
Ný gjaldskrá
í skíðalyftur
Bláljallanefnd hefur samþykkt
^eftirfarandi gjaldskrá í skfðalyf-
tumar i BláQöllum veturinn 1988
Árskort fullorð-
inna kr. 6.300,00,
árskort bama kr.
3.100,00, 8 miða
kort fullorðinna,
kr. 250,00, kort
með átta miðum
fyrir böm, kr.
150,00.
Dagkort fullorðinna, kr. 550,
dagkort bama kr. 250,00, kvöld-
kort fullorðinna kr. 450,00, kvöld-
kort bama kr. 150, dagkort í bama-
lyftur, böm og fullorðnir kr. 150,00.
Æfíngakort kr. 2.800.
Mjöloglýsi
selt fyrir
fímm millj-
arða króna
ÁÆTLAÐ útflutningsverðmæti
'^Sskinyöls og lýsis á sfðasta ári er
5,1 miHjarður króna. Aukning frá
fýrra ári er um 70%. Samtals voru
flutt utan 172.000 tonn af nyöli
og 87.000 af lýsí. í báðum tiifellum
er um nokkra magnaukningu að
ræða.
Verðmæti útfíutningsins árið 1987
var 3 milljarðar króna og 3,7 1986.
Af lýsi 1987 voru flutt utan 83.507
tonn 1987, 87.294 í fyrra, en
102.415 1986. Af mjöli fóru utan
159.426 tonn 1987, 178.727 1986
og í fyrra 172.427.
Á síðustu þremur árum hefur fiski-
mjöl verði flutt utan til 24 landa.
Útflutningurinn hefur verið mestur
til Bretlands, tæplega flórðungur
heildarinnar. í fyrra fór litlu minna
til Póllands og þriðji stærsti kaup-
andinn var í Alsfr, 23.000 tonn, en
ekkert var selt þangað árin áður.
Aðrir stórir kaupendur eru Finnar,
Frakkar, Svíar og Danir.
Búklýsi hefur sfðustu þq'ú ár verið
selt til 8 landa. Norðmenn keyptu í
fyrra 41.872 tonn, Hollendingar
16.409 og Bretar 16.278 tonn. Aðrir
keyptu minna. _____
íslensk flugsfjóm:
Aukning í
alþjóðaflugi
VERULEG aukning varð f al-
þjóðlegu flugi um íslenska flug-
stjórnarsvæðið & sfðasta ári og
einnig heftir orðið veruleg aukn-
íng f blindflugi ínnanlanila. Lang-
mest flugumferð er um tvo flug-
velli f innanlandsflugi utan
Reykjavfkur, Akureyrarflugvöll
og VestmannaeyjaflugvðU.
62 þúsund loftför fóru um
íslenska flugstjómarsvæðið á sl. ári
eða 8.947 fleiri en 1987 og er aukn-
ingin 16,85%. Stöðugaukninghefur
arðið í aJþjóðlegu flugi sfðan 1983,
en þá fóru nær 37 þúsund loftför
um íslenska flugstjómarsvæðið.
Aukningin er því um 70%. Þá varð
10% aukning f blindflugi á vegum
innanlandsdeildar íslenska flugum-
sjónarsvæðisins, en árið 1988 flugu
72.500 loftför blindflug innanlands
á móti 63.000 1987. Aukning í
"■blindflugi frá 1983 til 1988 er um
25%.
Símamynd/Reuter
Keppendurnir hittast
Stórmeistararnir Anatoly Karpov og Jóhann Hjartarson hittust fyrst við setningu einvfgis þeirra
f Seattle.
Sjá frásðgn á bls. 6
Flensufar-
aldurinn
virðist
vægur
„Sýnilegt er að flensufaraldur-
inn er vægur og ekki útlit fyrir
að hann nái sér verulega á strik
f ár. Hjá Læknavaktinni einni sér
hafa 40 tilfelli verið skráð sfðan
flensan greindist fyrst þann 11.
janúar sl. í aprílmánuði f fyrra,
þegar flensan gekk sfðast yfír,
komu hinsvegar upp á borð
Læknavaktarinnar 68 tilfelli.
Þetta er aðeins vfsbending, sem
gefur til kynna að minna sé um
veikindi nú af völdum flensunnar
en í fyrra og kemur það heim
og saman við þær upplýsingar,
sem ég hef aflað mér frá lækn-
um,“ sagði Skúli G. Johnsen,
borgarlæknir, f samtali við Morg-
unblaðið.
Skúli sagði að eflaust hjálpuðu
bólusetningamar til þó erfitt væri
að gera sér nákvæma grein fyrir
vægi þeirra.
Skúli sagði að hér á landi væri
alltaf bólusett við þremur tegundum
veim í einu sem væri í einni og
sömu sprautunni. Borgarlæknir
taldi afar ólíklegt að annar flensu-
stofn sprytti upp nú í kjölfar tiltölu-
lega veiks flensufaralds, sem er,
eins og fram hefur komið, af A-
stofíii. í fyrra greindust hinsvegar
þrír stofnar hér á landi, tveir A-
stofnar og einn B-stofn.
Tillögur fískimáladeildar EB:
Getur þýtt verðlækkun
á íslenzkum saltfiski
- segir Magnús Gunnarsson, firamkvæmdastjóri SÍF
MAGNÚS Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sölusambands fslenzkra
fískframleiðenda, segir að tillögur fískimáladeildar Evrópubanda-
lagsins um niðurskurð á innfíutningi saltfisks til bandalagsins og
hækkun tolla á þeim saltfiski, sem fluttur verður inn, geti haft alvar-
leg áhrif fyrir fslenzka saltfiskfiramleiðendur. Verði tillöguraar sam-
þykktar, geti það þýtt verðlækkun á fslenzkum saltfíski.
Magnús segir að
samkvæmt
GATT-samkomu-
lagi sé aðilum utan
EB leyfílegt að
flytja inn 25.000
tonn af saltfiski til EB tollfrjálst á
ári. „Við eigum þar í kapphlaupi
við aðra innflytjendur, einkum Nor-
eg og Kanada. Það virðist sem þessi
tollfíjálsi kvóti verði uppurinn fyrr
en á síðustu tveimur árum, þar sem
bandalagsþjóðimar hafa margar
hveijar undirbúið innflutning á
fyrstu vikum þessa árs til þess að
nýta sér kvótann," sagði Magnús.
„Þegar þessi kvóti er búinn,
verða íslendingar að greiða 13%
toll þar til nýr kvóti hefur verið
samþykktur. Það er ljóst að það er
mikið áfall fyrir fslenzka saltfísk-
framleiðendur ef heildarkvótinn
verður minnkaður og tollamir
hækka. Miðað við aðstæður á mark-
aðnum í dag óttast ég að þessar
fyrirhuguðu tollahækkanir muni
virka sem beinar verðlækkanir fyrir
íslenzka framleiðendur, þar sem
Norðmenn, helztu samkeppnisaðilar
okkar, hafa samkvæmt sérstöku
samkomulagi við EB tollfíjálsa
kvóta umfram þennan sem við þurf-
um að skipta með þeim, sagði
Magnús."
Magnús sagði að SÍF væri nú
að kynna sér þessi mál, og vonuðu
menn að tillögur fískimáladeildar-
innar breyttust í meðfömm ráð-
herra EB. „Meðan enn er til toll-
fíjáls kvóti verðum við að leggja
áherzlu á að ná sem stærstum hluta
hans,“ sagði Magnús.
Magnús sagði að menn vissu að
forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra hefðu átt fundi með ýmsum
ráðamönnum innan EB vegna sam-
skipta íslendinga við bandalagið og
sértækra vandamála, sem þau
snertu. „Við hljótum að gera okkur
vonir um að það takist að leysa úr
þessum samskiptavandamálum, að
öðmm kosti mun þetta hafa mjög
varanieg áhrif á þróun saltfísk-
vinnslunnar," sagði Magnús.
Sundmagaverkun að
• •
heflast í Oræfum
VERKUN á sundmaga er að
heQast um þessar mundir f
fyrrum sláturhúsi KASK & Fag-
urhólsmýri f öræfum. Verkun
þessi er að frumkvæði frysti-
húss KASK á Höfin. Sundmag-
inn er ensfmverkaður og sfðan
saltaður til útflutnfngs til Suð-
ur-Evrópu.
Ari Þorsteinsson, yfirmaður
þróunardeildar KASK á Höfn,
hefur unnið að undirbúningi þessa
verkefnis. Hann sagði í samtali
við Morgunblaðið, að sláturhús
KASK á Fagurhólsmýri hefði
misst sláturleyfí og því orðið skarð
fyrir skildi í atvinnumálum Öræf-
inga. Vegna þessa væri nú til
reiðu þama bæði vinnuafl og hús-
næði, sem að undanfömu hefði
verið endurbætt vemlega. Þannig
háttaði einnig til á Höfn, að á
vetrarvertíð væri allt húsnæði og
vinnuafl fullnýtt við hefðbundna
vinnslu og því ekki mögulegt að
vinna sundmagann af nokkmm
þrótti þar. Þessi leið kæmi því
öllum aðilum til góða. KASK væri
með reglubundna vöruflutninga
milli Hafnar og Fagurhólsmýrar
og þar sem sundmaginn væri ekki
fyrirferðarmikil afurð, nýttust
flutningamir betur.