Morgunblaðið - 29.01.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.01.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1989 GÁRUR eftir Etinu Pálmad&ttur Uppselt í heilabúið Stundum var ég seinn til svara og seinn á fæti, en það voru engin látalæti að !áta fólkið gráta af kæti Sagði Káinn. Og tíminn er víst afstæður. Ekki þarf umsvifalaust að gefa á garð- ann það sem kætir eða hitt- ir naglann á höfuðið. í flóði af hátíðarræðum og yfirlýs- ingum um áramótin víkja gullkornin hans Jónasar Kristjánssonar, forstöðu- manns Ámastofnunar, við afhendingu bókmennta- verðlauna Ríkisútvarpsins jafnan fyrir öðm nauðsyn- legra. Rúmast ekki í fjöl- miðlum nema 1 -2 setningar á slíkri ræðuvertíð. Undir flutningi hans í fámenni tautaði Gámhöfundur ofan í barm sér „orð að sönnu“. Hyggst því skreyta sig hér með fjöðmnum hans Jónas- ar, sem ekki komust fyrir á réttri stundu. Jónas var þar einmitt að tala um þennan afstæða tíma. Þegar menn gerast aldraðir taki æfin að bmna hraðar og hraðar eins og lestin. Um hraðfleygan tíma nýliðinna ára sagði hann: „Mikið hefur á þessum síðustu ámm verið fjasað um kapphlaup manna hér á landi eftir svokölluðum lífsgæðum: hærra kaupi, stærri íbúð, fínni bíl . . . Stöku sinnum er minnt á það að til muni þeir sem ekki hafa ráð á að taka þátt í hlaupinu því — „þeir lægst- launuðu“ — um þá er eink- um talað fyrir kosningar og í hópi stjórnarandstæðinga. Laun þeirra em reiknuð út í stóm móðurtölvunni og sýnast ekki munu hrökkva langt. En í reynd em hinir furðu margir sem reyna að trítla kring um gullkálfinn. Því verður ekki neitað að bylting . nýrrar tækni óg lífshátta hefur steypst yfir okkur íslendinga á síðustu áratugum, og verður ekki séð hvar það steypibað end- ar. Nýja íbúðin er óþægilega stór þegar menn þurfa að gegna dyrabjöllunni eða húsfreyja að skúra pallinn og bóndi að ryksjúga teppin á laugardögum. Bót í máli RENAULT TILKYNNING . / frá Renault umboðinu Bílaumboðið hf. hefur tekið við einkaumboði fyrir Renault bifreiðar á íslandi. Bílaumboðið hf. annast því allan innflutning og sölu auk varahluta- og viðgerðarþjónustu fyrir Renault bifreiðar. Bílaumboðið hf. héfur aösetur í eigin húsnæði að Krókhálsi 1 í Reykjavík, þar sem öll þjónusta verður undir einu þaki. Innflutningur á Renault bifreiðum af árgerð 1989 er þegar hafinn og eru sýningarbílar væntanlegir innan skamms. Bílaumboðið mun á næstu dögum hefja sölu á nokkrum Renault 5 bifreiðum af árgerð 1988 á sérstöku tilboðsverði sem nánar verður auglýst síðar. Renault 5 er lítill, sprækur, ódýr og umfram allt góður og þægilegur bíll. Hafðu samband við söludeild í síma 686633. Einkaumboð á íslandiJyxitBMW og Renault bifreiðar Bílaumboðið hf Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 6866B3 að maður losnar við það þessar vikur sem dvalist er á sólarströndinni — þótt fylgi að vísu óþægilegur bruni og mýbit. Nýja bifreið- in er býsna stór og gljáandi, og sú gamla er líka rólfær þegar búið er að taka hana heim úr flotanum á bílasöl- unni. En það kemur að litlu haldi að eiga margra bíla þegar þeir þvælast hver fyr- ir öðrum í endalausum bið- röðum umferðarinnar, og allir of seinir í vinnuna þótt reynt sé eftir megni að pot- ast á milli akreinanna. Þá er þó hægt að stytta bið- tímann með því að skrúfa frá viðtækinu og hlusta á poppið sem glymur frá öll- um nýju útvarpsstöðvunum — og jafnvel líka frá þeirri gömlu einu og sönnu Út- varpsstöð Islands í Reykjavík. Og þegar heim er komið fylla sjónvarp og bandvarp allar frístundir á degi og nóttu, með siðsljóvg- andi lýsingum á manndráp- um og öðrum voðaverkum. En sóknin í „lífsgæðin" knýr menn til að vinna og vélvæðingin rekur menn áífram; og á íslandi er mikið unnið, mikið aflað og upp- byggt af fáum höndum í stóru landi sem er harðbýlt en þó gjöfult á margan hátt. Það er mönnum náttúrulegt að leita þess sem þeir telja að veiti yndi, skemmtan, þægindi, og það er ólíklegt að hér verði slíkt hrun að hjól tækninnar nemi staðar. En margir bera kvíðboga fyrir því að gömul verðmæti týnist í öllum þessum nýja flaumi, þræðir til fortíðar slitni, jafnvel að tunga okk- ar og sjálfstæði glatist og við drukknum í hafi þjóðanna. Það er víst að eitthvað gamalt verður að rýma fyrir öllu því nýja sem til okkar berst. Ég segi stundum sögu af dönskum dýrafræðingi sem eitt sinn fór til Ameríku og fékk að ganga á fund eins af frægustu skordýrafræð- ingum veraldar. Aðstoðar- piltur vísaði honum inn í skrifstofu hins mikla lær- dómsmanns. Þegar gestur- inn kom aftur fram spurði ungi maðurinn: „Var hann fúll í dag sá gamli?“. Daninn hlaut að viðurkenna að svo hefði verið. „Já,“ sagði pilt- urinn, „hann er nefnilega búinn að fylla heilabúið af skordýrum svo að þar kemst ekki meira fyrir, og ef hann kynnist nýjum manni verður hann að ryðja burt einu skorkvikindi, en við það er honum meinilla eins og vænta má.“ Og svip- að má segja um unga fólkið okkar. Þau þurfa að kunna skil á öllum hugsanlegum íþróttamönnum, filmstjörn- um, poppsöngvurum o.s.frv., og þótt þau séu furðulega námgjörn og minnug á þessa hluti þá hlýtur svo að fara um síðir að heilabúið fyllist, og þá er ekki von að þar sé nokkurt rúm fyrir Egil Skallagríms- son eða Snorra Sturluson." Og nú er ræða Jónasar búin að fylla Gárurýmið. Verður að setja punktinn. En niðurstaða Jónasar var semsagt að hið nýja komi yfir okkur, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Hæfilegt viðnám sé mikil- vægt, en hitt skipti ekki síður miklu máli að laga hið nýja að því gamla, hræra rækilega í deiglunni þannig að allt blandist saman í rétt- um hlutföllum og úr verði nýtt efni, jafngott eða helst betra en öll frumefnin. Uppselt? Hvað skyldi nú vera í troðfullum heilanum? Það er stóra spurningin. Þorsteinn Gíslason formaður stjómar SR ÞORSTEINN Gislason, fiskimála- stjóri, var einróma kosinn formað- ur nýkjörinnar stjórnar Sfidar- verksmiðja rikisins & fyrsta fimdi hennar á fimmtudaginn og er þetta fimmta kjörtimabilið sem Þorsteinn gegnir formennsku i stjórninni. Alþingi kýs fimm stjómarmanna og er Þorsteinn tilnefndur af Sjálf- stæðisflokki. Varaformaður stjómar Sídarverksmiðjanna var kosinn Hannes Baldvinsson, sem tilneftidur er af Alþýðubandalagi, og ritari Bogi Sigurbjömsson, fulltrúi Framsóknar- flokks. Auk þeirra voru þau Kristfn Karlsdóttir, tilneftid af Kvennalista, og Kristján Möller, tilnefndur af Al- þýðuflokki, kosin í stjómina nú um áramótin. Pulltrúi Landssambands islenskra útvegsmanna í stjóm SR er Pétur Stefánsson og Alþýðusam- band íslands tilnefndi Guðmund M. Jónsson sem sinn fulltrúa. Tryggingafélögi1!: Athugasemd við frétt ÓLAFUR B. Thors, annar af fi-amkvæmdastjórum trygginga- félagsins Sjóvá - Almenna, hef- ur óskað eftir að gera eftírfár- andi athugasemd við ummæli Inga R. Helgasonar forstjóra Brunabótafélagsins, í frétt sem birtist í Morgunblaðinu á föstu- dag. „í fréttinni er gefið í skyn að stjómendur Almennra Trygginga og Sjóvá hafí haft ákvörðunarvald um samrunna félaganna en það er ekki rétt. Ákvörðunarvaldið er hjá eigendum félanna, sem gáfu sam- þykki sitt fyrir sammna þeirra á hluthafafundum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.