Morgunblaðið - 29.01.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1989
7
RNLI - „Grace Paterson Ritchie" mun innan tiðar sigla undir íslensk-
um fána og merki SVFÍ.
Forráðamenn Sjóvá og SVFÍ, Benedikt Sveinsson form. Sjóvá afhendir forseta SVFÍ, Haraldi Henrys-
syni, gjöfina. Aðrir á myndinni: f.v. Örlygur Hálfdánarson, SVFÍ, Einar Sveinsson, Sjóvá, Ester Kláus-
dóttir, Garðar Eiriksson, Hannes Þ. Hafstein, SVFÍ og Sigurjón Pétursson, Sjóvá.
Sjóvá
öfefur
SVFÍ
stórgjöf
Björgunarbátur
keyptur firá Englandi
Á SÍÐASTA stjórnarfundi Sjó-
vátryggingafélags íslands hinn
17. janúar sl. var samþykkt að
styrkja Slysavarnarfélag ís-
lands með einnar milljónar
króna framlagi til kaupa á
björgunarbáti frá Englandi.
Þá nýverið hafði SVFÍ undirrit-
að samning við RNLI (The Royal
National Lifeboat Institution) um
kaup á einum af bátum stofnunar-
innar. Báturinn er yfir 70 lestir,
byrðingur og þilfar úr stáli, en
lúkarskappi og yfirbygging úr áli.
Botninn er tvöfaldur og þar eru
olíukjölfestu- og vatnsgeimar og
þurrrými. Síður eru einnig tvöfald-
ar og hólfaðar í mörgu, uppdrifs-
eða flotrými. Alls eru 43 vatnsþétt
rými í bátnum. Hann er knúinn
tveim 230 hestafla aðalvélum, sem
hvor um sig er í sjálfstæðum vatns-
þéttum vélarrúmum og ganghraði
11,5 sj. á klukkustund.
Þá er báturinn búinn öflugum
slökkvi- og björgunardælum auk
margháttaðs annars öryggisbún-
áðar. Á framþilfari er 16 feta
slöngubátur með 40 hestafla utan-
borðsvél til notkunar á grunnsævi.
í yfírbyggingu, brú og kortaklefa
eru nauðsynleg siglingatæki og
kallkerfi fyrir fram- og afturþilfar,
vélarrúm og lúkar.
Þar er einnig sameiginlegt eld-
hús og borðsalur áhafnar. Vistar-
verur eru í mjög góðri hirðu, með
hreinlætisaðstöðu, loftræstingu og
rafinagnsblásurum til hitunar. I
afturskipi er káeta með tveim koj-
um og bekkjum, en í framskipi er
rúmgóður lúkar með tveim her-
bergjum.
Heimahöfn bátsins var áður í
Kirkwall á Orkneyjum og gengdi
hann veigamiklu hlutverki á þvi
erfiða hafsvæði. Á sl. ári var þar
staðsettur annar bátur af nýjustu
ferð björgunarbáta RNLI.
Heimsigling bátsins er fyrir-
huguð um miðjan marsmánuð nk.
Það var á landsþingi SVFÍ á sl.
vori þegar minnst var 60 ára af-
mælisins að viðræður hófust um
kaup á bátnum, en þá komu full-
trúar frá RNLI í heimsókn í tilefni
þeirra tfmamóta.
SVFÍ færir Sjóvátryggingafé-
lagi íslands bestu þakkir fyrir hina
rausnarlegu gjöf til styrktar hinum
veigamikla þætti sjóslysavama fé-
lagsins er lýtur að kennslu og þjálf-
un og til leitar- og björgunarstarfa.
7s&3L\
Nú er skíðaáætlun vetrarins tilbúin hjá Samvinnuferðum-Landsýn. í ár skíðum við enn hærra en áður og
kynnum aðeins toppskíðastaði, sem sannað hafa gildi sitt aftur og aftur. Með í hverri ferð er íslenskur fararstjóri,
sem sér til þess að allir eigi ánægjulega dvöl og skemmti sér sem best jafnt að degi sem kvöldi.
SÖLDENOG
SfíALBACH/HINTERGlEMM
- Einungis fyrsta flokks skíðasvæði
Aðalskíðastaðirnir í ár, Sölden og Saalbach/Hinterglemm,
hafa fyrir löngu skipað sér sess á meðal allra bestu
skíðalanda Evrópu. Fjölbreyttir möguleikar í gistingu, vel
staðsett hótel og vandaðir gististaðir ásamt fyrsta flokks
skíðaaðstöðu og fullkomnum aðbúnaði til leikja og hvíldar eru
dýrmæt trygging fyrir hnökralausri ferð.
BROTTFARARDAGAR TIL
SÖLDEN:
18. mars -13 nætur - PÁSKAFERÐ
BROTTFARARDAGAR TIL
SAALBACH/HINTERGLEMM:
18.febrúar-2vikur UPPSELT
4. mars - 2 vikur
Verð frá kr.
48.500*
* Verð m.v. 2 vikur án fæðis
í Saalbach, 5 í ibúð m/2 svefnherb.,
brottför4. mars, staðgr.
DRAUMAVIKAISAIZBURG
Hér er sannkallað ævintýri á ferðinni; skíða- og listaferð til
Salzburg. Þú býrð á glæsilegu 4ra stjörnu hóteli í Salzburg og
skíðar á mörgum nafntoguðustu skíðasvæðum Austurríkis
milli þess sem þú stundar listina að lifa í háborg tónlistarog
menningar!
BROTTFARARDAGAR TIL
SALZBURG:
18/2,4/3 og 18/3.
Verð kr.
41100*
• Verð m.v. gistingu i tvíbýli
á Hótel Winkler í viku ásamt
morgunverðarhlaðborði,
staðgr. og gengi 20.01.89.
Innifaldar eru ferðirtil og frá
flugvelli erlendis og 6 dagsferðir
með fararstjóra á einhver bestu
skiðasvæði austurrísku Alpanna.
Samvinnuferdir - Landsýn
oggengi 20.01.89.
Austurstræti 12 ■ Sími91 -69-10-10 • Suðurlandsbraut 18 • Sími91 -68-91-91
Hótel Sögu við Hagatorg • Sími 91 -62-22-77 • Skipagötu 14 • Akureyri ■ Sími 96-2-72 00