Morgunblaðið - 29.01.1989, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1989
MIDULEWIR
UfiHABAHBSIIIS
Helga Bachmann og Helgi Skúlason hafa verið
gift í þrjátíu ár og jafn lengi verið í hópi fremstu
leikara landsins. Nú leika þau aðalhlutverkin í
einu frægasta hjónabandsleikriti samtímans,
* „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?u hjá Leik-
félagi Akureyrar
eftir Kristínu Morju Baldursdóttur/mynd Rúnar Þór
MARTA OG Georg kunna allar leikreglur hjónabandsins,
slá aldrei vindhögg því þau þekkja út í æsar veikleika hvors
annars og geta því af kunnáttu og vandvirkni sært og drep-
ið ást og tilfinningar. í návist annarra eflast þau í illkvittni
sinni og orðheppni og sýna svart á hvítu hvílíkt helvíti hjóna-
bandið getur verið. En þau munu aldrei skilja, þessi hjón í
leikritinu „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?“, því á
milli þeirra liggur taugin sterka.
Leikararnir Helga Bachmann og Helgi Skúlason sem
saman hafa gengið veginn í þrjátíu ár, leiða nú íslenska
áhorfendur í gegnum þetta „skolpræsi“ hjónabandsins í
hlutverkum þeirra Mörtu og Georgs.
Yið erum ekki mjög
árásargjöm núna,“
segir Helga hæ-
versklega, enda eru
þau hjónin nýkomin
af fímm tíma æfíngu
þar sem þau leggja
sinn síðasta blóð-
dropa í sálir Mörtu og Georgs.
— Leikstjórinn sagði að þið vær-
uð í mjög góðu formi, segi ég þeg-
ar þau setjast og andvarpa eftir
átök dagsins. Og hvernig er leikari
þegar hann er í góðu formi?
Þá er ég fullkomlega, vitsmuna-
lega og tilfinningalega opin fyrir
öllu,“ segir Helga.„Ég er sem sagt
ekki að tala um strekktan maga,
þótt ég hunsi það ekki alveg að
hreyfa mig svona endrum og eins.
En annars stundum við engar reglu-
legar líkamsæfíngar, en höfum tek-
ið „heilsuköst“ svona annað slagið,
og það er ágætt.“
Helgi samsinnir því og lætur það
fylgja með að hver æfing sé á við
marga kúrsa í líkamsrækt. „Annars
finnst mér ég ekki vera í neitt
óvenjulega góðu formi núna, ekkert
frekar en vanalega. En auðvitað er
það örvandi að fást við verk sem
er afburðagott."
Það er Leikfélag Akureyrar sem
frumsýnir „Hver er hræddur við
Virginiu Woolf?“ eftir bandaríska
leikskáldið Edward Albee þann 10.
feb. nk. Leikstjórar eru Inga
Bjamason og Arnór Benónýsson,
tónlist eftir Leif Þórarinsson og
leikmynd og búningar eftir Guð-
rúnu Svövu Svavarsdóttur. Með
hlutverk ungu hjónanna sem heim-
sælq'a þau Mörtu og Georg átaka-
nóttina miklu fara þau Ragnheiður
Tryggvadóttir og Ellert A. Ingi-
mundarson.
Leikritið, sem ijallar um ástir
óskaplega ósamlyndra hjóna, eins
og Inga Bjamason komst að orði,
var fyrst sýnt á Broadway 1962
og vakti mikla hneykslun í fyrstu,
en gerði jafnframt stormandi Iukku.
Leikritið fékk ótal verðlaun og var
síðar kvikmyndað með þeim frægu
hjónum Elisabeth Taylor og Richard
Burton í aðalhlutverkum.
En nú em það Helga og Helgi,
eða Burtons Íslands eins og Peter
Ustinov leikari kallaði þau í gamni,
sem takast á í þessu magnaða leik-
verki.
PÚKAR
— Georg segir í einu atriðinu að
hjónaband þeirra Mörtu „líti út fyr-
ir að vera barsmíða- og rifrildissam-
band“, þannig að áhorfanda skilst
að svo muni þó ekki vera í rauninni?
Helgi: „Nei það er miklu beittara
en það. Taugin á milli þeirra er svo
sterk að þau munu aldrei geta ski-
lið eða farið frá hvort öðra þessi
hjón. Og ef ekki væri fyrir þessa
sterku taug, þá væra átök þeirra
ógeðfelld."
Helga: „Þau hanga ekki saman
á húsinu. Eða á bílnum.“
Helgi: „Eða á mávastellinu.“
„Þetta verk stendur jafnfætis
verkum Strindbergs, nema það er
fyndnara," segir Helga. „Þetta era
soddan púkar, svo klár í hausnum.
Niðurrifíð og drápið er afskaplega
vandað hjá þeim, því þetta er fólk
sem kann til verka og vinnur störf
sín vel.“
Helgi: „Og húmorinn er aldrei
langt undan. í miðjum átökum get-
ur hún allt í einu komið auga á
„húmorbrilljans“ hjá honum . . .
Helga: . . . og reynir að leyna
hrifningu sinni.“
— Hvemig er það, verða leikarar
ekki að hafa upplifað hamingju og
helvíti hjónabandsins til að geta
leikið þessi hlutverk?
„Heyrirðu hvað hún er lúmsk
Helgi? Nei ég hef reynt við svo
mörg hlutverk sem ég hef aldrei
upplifað sjálf, eins og til dæmis
Höllu þegar hún kastaði baminu
sínu í fossinn, svo ég nefni eitt-
horfa upp á öll andstyggilegheitin,
en botnar jafnframt ekkert í því
hvað það er sem heldur þessum
hjónum saman.
„Enda er það í rauninni óútskýr-
anlegt," segir Helgi. „Það era þessi
sterku bönd ytri og innri aðstæðna
sem þau geta ekki slitið. Strindberg
fæst einnig við þetta í Dauðadansi.
Þetta fólk sem er tengt svo saman
berst fyrir lífi sínu, gerir stöðugt
árás hvort á annað, en getur samt
ekki skilið.“
Helga: „Ekki hægt að útskýra
þetta með orðinu ást.“
— En hvað heldur ykkur saman?
Helgi hugsar sig um: „Köttur-
inn.“
„Hann er nú bara 10 ára gam-
all, Helgi,“ segir Helga.
„Nei, ástæðan er sú að í upphafi
löðuðumst við hvort að öðra. Við
sáumst fyrst í leiklistarprófi í Þjóð-
leikhúsinu. Hann var úr Keflavík
hann Helgi, utanbæjarmaður."
Helgi: „Já, ég fór bara með rút-
unni heim um kvöldið aftur.“
hvað. Það er ekki hægt að virkja
eða nota tilfinningar annarra, en
það er hægt að spila og leika á eig-
in tilfinningar, láta þær fæðast inni
í sjálfum sér.“-
„Tæknilega þá er ferlið það, að
koma sér í ástand þeirrar persónu
sem maður túlkar,“ segir Helgi.
„Setja sig inn í hugsanagang og
tilvera persónunnar. Það er ekki
hægt með því að muna um hvað
maður var að rífast við konuna sína
deginum áður. En öll tilfínningaleg
reynsla hjálpar manni auðvitað til
að lifa þessar sveiflur á sviðinu og
það er held ég ómögulegt að setja
manneskju inn á svið sem aldrei
hefur skipt skapi.“
Helga segist muna eftir leikara
sem sagðist aldrei hafa fundið fyrir
afbrýðisemi, en var þó að leika Jago
í Othello. „Ég vorkenndi honum um
leið og hann sagði þetta, því það
er erfitt að leika tilfínningar sem
maður hefur aldrei upplifað sjálf-
ur.“
- Hún þagnar aðeins, segir svo:
„En svo er það leikarinn sem geng-
ur inn á sviðið en hefur kannski
stuttu áður misst náinn ættingja.
Áhorfandinn finnur að eitthvað er
ekki í lagi, en hann hefur borgað
sinn aðgöngumiða og á því heimt-
ingu á að fá góða sýningu.
Þetta er kalt starf, allar persónu-
legar tilfínningar verður að hreinsa
burtu áður en gengið er inn á svið-
ið.“
ANDSTYGGILEG
Helga og Helgi hafa verið gift í
þijátíu ár sem þætti nú nokkuð
gott í sömu atvinnustétt úti í hinum