Morgunblaðið - 29.01.1989, Síða 29
....... |l!(K9m£mA!fMmiT& rr„T
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1989
errv* jr
&Q
29
Haíiiarfjörður:
Sameiginleg messa
Þjóðkirkju og Fríkirkju
BIBLÍUDAGURINN er í dag,
sunnudag. Þá verður haldin sam-
eiginleg messa HafnarQ arðar-
sóknar og Frikirkj unnar i Hafnar-
firði i HafiiarQ arðarkirkj u og
hefst hún kl. 14.00.
Séra Einar Eyjólfsson, safnaðar-
prestur Fríkirkjunnar, prédikar
og séra Gunnþór Ingason, sóknar-
prestur Hafnarijarðarkirkju, þjónar
fyrir altari. Kirkjukórar beggja
kirknanna munu leiða söng undir
stjóm organista sinna þeirra, Smára
Ólasonar og Helga Bragasonar.
Að messu lokinni verður boðið til
kaffisamsætis sem kvenfélög kirkn-
anna standa að í Álfafelli, íþróttahús-
inu við Strandgötu. Þessi sameigin-
lega messa á biblíudaginn er haldin
Kvennalisti:
Fundur um
vígbúnað og
hervæðingu
Kvennalistinn boðar til fundar
á morgun, mánudag, undir yfir-
skriftinni: „Þíða erlendis frost á
íslandi — því vigbúumst við i
þíðunni?"
Guðrún Agnarsdóttir og Kristín
Ástgeirsdóttir flytja stutt
ávörp. Forsætisráðherra, utanríkis-
ráðherra og samgönguráðherra
hefur verið boðið að sitja fyrir svör-
um.
Fundurinn verður haldinn á Hót-
el Borg og hefst klukkan 17. Elín
G. Ólafsdóttir verður fundarstjóri.
til að leggja áherslu á sameiginlega
boðun þessara kirkna og til að
styrkja vinaböndin þeirra á millum.
Það er von okkar að sem flestir
sjái sér fært að taka þátt í þessari
sameiginlegu guðsþjónustu safnað-
anna (Fréttatílkynninjf)
Söngfé-
lagar 1 & 8 í
Gerðubergi
SÖNGFÉLAGAR 1 & 8 (einn og
átta) syngja í Gerðubergi í Breið-
holti f dag, sunnudaginn 29. jan-
úar kl. 16.00.
*
Asöngskránni em bæði íslensk
og erlend lög. Söngstjóri hóps-
ins er Helgi R. Einarsson, en undir-
leikari er Áslaug Bergsteinsdóttir.
Söngfélagar 1 & 8 hófu söngfer-
il sinn með ferð á íslandskynningu
í Sovétríkjunum sumarið 1987 og
hafa nú tekið upp þfáðinn að nýju
og hafa þegar haldið eina tónleika
í Mosfellsbæ, við mjög góðar undir-
tektir.
Einnig hafa þeir sungið við ýmis
tækifæri hér innanlands á sí. ári.
Miðasala verður við innganginn.
o
INNLENT
Myndbönd með Strumpunum koma út með íslensku tali.
Steinar gefe, út 100
myndbandatitla
ÚTGÁFA myndbanda hefur verið
vaxandi þáttur í starfeemi Steina
hf. á undanfómum árum, enda er
fyrirtækið umboðsaðili fyrir tvo
stærstu framleiðendur kvikmynda
og sjónvarpsefiiis i heiminum, þ.e.
Wamer Home Video og CBS FOX
Video.
Utgáfa myndbanda mun skipa
stærri sess í starfsemi fyrirtæk-
isins á nýbyrjuðu ári heldur en nokk-
um tíma áður. Nú þegar hafa verið
ákveðnar útgáfur á um 100 mynd-
bandatitlum. Gefnir verða út 3 flokk-
ar, þ.e. í fyrsta lagi myndir sem sýnd-
ar hafa verið í kvikmyndahúsum
hérlendis og erlendis, í öðru lagi
kvikmyndir sem framleiddar hafa
verið fyrst og fremst fyrir sjónvarp
eða þá sérlega framleiddar til mynd-
bandaútgáfu, en slíkt tíðkast í mjög
auknum mæli. í þriðja lagi mun fyrir-
tækið „endurútgefa" sígildar myndir
sem ekki hafa verið fáanlegar á ís-
landi nema þá ótextaðar og innflutt-
ar 'érleridií5ifra:‘'“,I“**********“
í janúar koma út Q'órtán titlar og
má þar finna blöndu af öllum gerðum
myndbanda. Má þar nefna myndir
sem sýndar hafa verið við vinsældir
í kvikmyndahúsum svo sem Baby
Boom þar sem Diane Keaton fer
með aðalhlutverk, Gardens of Stone
sem er nýjasta mynd Francis Ford
Coppola og boðaði jafnframt endur-
komu James Caan til kvikmynda eft-
ir langt hlé og Wall Street, en Mic-
hael Douglas fékk Óskarsverðlaun
fyrir leik sinn í aðalhlutverki í þeirri
mynd. Aðrir frægir leikarar koma
einnig til sögu, þ.e. feðgamir Martin
og Charlie Sheen.
í janúar líta einnig dagsins ljós
þijár nýjar spólur með Strumpun-
um, spólur númer 18, 19 og 20, en
þær innihalda sex ný ævintýri Strum-
panna. Það er Laddi sem ljáir
Strumpunum íslenskt mál. Strumpa-
myndböndin voru þau fyrstu með
íslensku tali enda hefur þessi mynd-
bandaflokkur notið meiri vinsælda
heldur en nokkrar aðrar útgáfur sem
'komið hafa út hér á landi.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis opnar myndlistarsýningu
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og
nágrennis opnar myndlistarsýn-
ingu í útíbúinu Álfabakka 14, i
Breiðholtí, í dag, sunnudaginn
29. janúar kl. 14.00—17.00. Sýnd
verða verk eftír Sigurð Þóri Sig-
urðsson.
Sigurður Þórir er fæddur árið
1948. Hann stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla íslands
á árunum 1968—1970. Hóf síðan
nám við Listaháskólann í Kaup-
mannahöfn árið 1974 og var þar
við nám hjá prófessor Dan Sterup-
Hansen í flögur ár, eða til ársins
1978.
Sigurður Þórir hefur haldið
einkasýningar í Reykjavík árin
Stílsveiflur
og samfé-
lagsform
BJÖRN Th. Björnðson listfræð-
ingur flytur erindi i Hafiiarborg
mánudaginn 30. janúar kl. 20.30.
Yfirskrift þess er Stflsveiflur og
samfélagsform. í erindinu
verður rakið með dæmum hvemig
breytingar þjóðfélags kalla sífelld-
lega fram ný stflbrigði í myndlist,
húsgögnum og annarri hýbýlalist.
Erindi Bjöms er hið fyrsta í röð-
inni af þremur sem fyrirhuguð eru
í Hafnarborg á næstu mánuðum.
Síðari erindin verða í höndum
Hrafnhildar Schram listfræðings,
þann 27. febrúar nk. og Aðalsteins
Ingólfssonar listfræðings, þann 3.
apríl nk. Þau erindi verða nánar
iiögprciðaF.'-——-----------
1976, 1977, 1981, 1983, 1985,
1986 og síðast á Kjarvalsstöðum á
árinu 1988. Erlendis hefur hann
haldið sýningar í Kaupmannahöfn
og Þórshöfn í Færeyjum. Þá hefur
hann tekið þátt í flölda samsýninga
hér heima og eriendis.
Verk Sigurðar Þóris eni í eigu
Listasafns íslands, Listasafns al-
þýðu og einkaaðila hér heima og
erlendis.
Sýningin er á Álfabakka 14 og
mun standa yfir til 31. mars nk.
og verður opin frá mánudegi ti!
fimmtudags, frá kl. 9.15—16.00 og
föstudaga frá kl. 9.15—18.00. Sýn-
ingin er sölusýning.
(Fréttatilkynning)
Atriði úr myndinni „í þokumistrinu" sem Bíóhöllin hefur tekið tíl
sýningar.
Bíóhöllin sýnir
„I þokumistrinuu
BÍÓHÖLLIN hefur tekið til sýn-
inga myndina ! þokumistrinu. í
aðalhlutverkum eru, Sigourney
Weaver, Bryan Brown og Julie
Harris. Leikstjóri, Michael
Appted.
Br. Louis Leakey hefur miklar
áhyggjúr af því, að góriilan í
Mið-Afríku, stærsta mannapateg-
und jarðar, verði brátt aldauða. Að
vísu á tegundin að heita friðuð en
veiðiþjófar skjóta apana og selja
hausa og hendur, sem menn hafa
til skrauts. ^
(Úr fréttatilkynningu)
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir og Ástmar Ólafeson halda tónleika i kvöld i Norræna húsinu.
Musica Nova í Norræna húsinu
(S) 0MB Hannu-BarUtm - M l'I*
Ný tónlist fyrir tvö píanó
Pianóleikararnir Ástmar Ól-
afeson og Sveinbjörg Villyálms-
dóttír halda tónleika i kvöld á
vegum Musica Nova i Norræna
húsinu kl. 20.30.
ar munu þau flytja tuttugustu
aldar tónlist fyrir tvö píanó. Á
efnisskránni eru verk eftir Lennox
Berkeley, Benjamin Britten, Mariko
Kabe, Willem Pijper og nýtt verk
eftir John Speight sem hann samdi
sérstaklega fyrir þau.
Ástmar Ólafsson stundaði píanó-
nám hjá Sveinbjörgu Vilhjálms-
dóttur við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og lauk þaðan burt-
fararprófí árið 1978. Hann stundaði
framhaldsnám hjá Philip Jenkins
við Royal Academy of Music í Lond-
on 1978-1983 og frá 1983-1985
sótti hann einkatíma til Louis
Kentner.
Undanfarin tvö ár stundaði hann
kennslu við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar en hefur nú aðset-
ur í Englandi. Þetta eru fyrstu opin-
beru tónleikar Á-stmars frá því að
hann lauk námi.
Sveinbjörg Viihjálmsdóttir
stundaði nám við Tónlistarskólann
í Reykjavík hjá Jóni Nordal og
framhaldsnám við Guildhall School
of Music I London frá 1965—1972
þar sem Thomas Rajna var aðal-
kennari hennar.
Þaðan lauk hún einleikara- og
kennaraprófi í píanóleik og kenn-
araprófi í einsöng. Hún hlaut skóla-
verðlaun Guildhall-skóla 1966 og
var veittur námsstyrkur Lundúna-
borgar.
Sveinbjörg hefur haidið fjölda
tónleika heima og erlendis með
ýmsum listamönnum. Hún starfar
nú sem skólastjóri við Tónlistar-
skóla Bessastaðahrepps og kennari-
við Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar.
!VIEt> ÍSI .ENSKU TAI.i
llulitinxur
1A1>I»I
. S