Morgunblaðið - 03.02.1989, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
4
r i
Einhell
vandaöar vörur
Kynntu þér mjúku
heimilistækjalínuna frá
Blombera
Hún kemur þægilega á
óvart.
Einar Farestvert&Co.hf.
■OROARTUN 2«. SIMAR: (• I) IIMI OO «22*00 - W«Q ■<LA»T«iOI
Leið 4 stoppar við dyrnar.
LITGREINING
MEÐ
CROSFIELD
ER
LYKILLINN
AÐ VANDAÐRI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF
ARGON-
SUÐUVÉLAR
Á GÓBU VERÐI
Skeljungsbúðin
Síöumúla 33
símar 681722 og 38125
Hverfisgata 4-62
AUSTURBÆR
Heiðargerði
NORÐURBÆR
Sunnuvegur
Laugarásvegur 32-66
Voga- og Heimahverfi
JIIí>T0unfolaí»ffa
RYÐFRÍAR MIÐFLÓTTAAFUS-
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN Sl'MI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Ábending
til ríkisslj-
órnarinnar
Til Velvakanda. /
Ég vil geta þess að hingað í Norð-
urbrún í komu til okkar lögregluþjón-
ar til að ræða við okkur um um-
ferðarmál. Þetta voru indælir, elsku-
legir og kurteisir menn og gaman
að ræða við þá. Ég lét auðvitað mína
skoðun í ljós, og benti þeim á að
þeir ættu að ræða þessi mál á öðrum
stöðum; við sem orðin erum 60 ára
og eldri kunnum þau betur en margt
þetta unga fólk. Ég benti þeim á að
ræða þessi mál við unglingana, þessa
sem eru 17 og 18 ára, þeir valda oft
slysum með framúrkeyrslu og
glannaskap og alltof hröðum akstri.
Þessir blessuðu ungu menn kunna
heldur ekki að haga keyrslunni eftir
ástandi veganna hveiju sinni. Eins
er með þá sem keyra undir áhrifum,
það á að svifta þá ökuleyfl ævilangt
við fyrsta brot. Eins benti ég á að
það ætti að hækka ökuleyfísaldur
úr 17 uppí 21 árs. 17 ára krakkar
hafa ekkert vit á að keyra bíl enda
hafa þeir valdið mörgum slysum.
Lögin sem við búum við eru orðin
úrelt fyrir tugum ára. Það þarf að
þyngja þau að miklum mun frá því
sem nú er. Lögreglumennimir voru
Þetta bréf barst inn á borð til
Velvakanda nú í vikunni. Það er
póstlagt í Granada í janúar á þessu
ári. Sendandi er Luis Contes Hered-
„Ungir ökumenn kunna ekki að
hveiju sinni.“
mér sammála og sögðust skyldu fara
á fund dómsmálaráðherra, en þeir
eru nú svo stórir með sig þessir ráð-
herrar að þeir þykjast víst ekki þurfa
að fá neinar ábendingar frá kjósend-
um; það færi betur að þeir væru eins
skilningsríkir og sanngjamir og þess-
ir góðu og kurteisu lögregluþjónar.
Ég skrifaði langa grein f Morgun-
blaðið í fyrra um alls kyns glæpa-
mennsku sem gengur yfír borgina
um þessar mundir, manndráp, inn-
brot, nauðganir og fíkniefnamál og
fyllirí á þeim sem aka bifreiðum. Það
segir enginn þessum mönnum að
drekka sig fulla og valda slysum.
Þetta er sjálfskaparvíti. Ég er viss
um að engin þjóð býr við jafn lélegt
réttarfar og íslendingar; ég vil benda
in, Granada á Spáni. Viðtakandi er
Astrid Maensson, en gæti átt að
vera Magnusson. Bréfsins má vitja
hjá Velvakanda.
haga keyrslunni eftir aðstæðum
á slys þar sem 18 ára unglingur
varð þess valdandi að 3 önnur ung-
menni létu lífíð. Ef ráðamenn þjóðar-
innar hefðu breytt lögunum í fyrra
og hækkað aldurinn í 21 ár væm
blessaðir unglingamir á lífi. Það þarf
að þyngja lögin og breyta þeim, þá
fækkar slysum mikið og einnig fækk-
ar afbrotum þessara glæpamanna
sem ganga lausir. Vona ég að ráð-
herra taki þessar ábendingar til
greina. Það ríður ekki við einteyming
hvað glæpamennskan er orðin mikil
á höfuðborgarsvæðinu sem ekki er
hægt að draga úr nema breyta lögun-
um og þyngja þau að miklum mun
frá því sem nú er, en það má aldrei
benda þessum háu herrum á neitt.
Þeir þykjast alltaf vita best sjálfír,
það er ekki hægt að draga úr þess-
ari glæpaöldu sem nú hefur gengið
yfír borgina síðastliðið ár nema að
breyta lögunum og herða þau að
miklum mun frá því sem nú er. Lög-
in eru orðin úrelt frá því fyrir tugum
ára. Til að lögum verði breytt þarf
Alþingi að flytja frumvarp. Það nær
engri átt að þessi glæpalýður fái að
ganga laus og halda iðju sinni áfram,
t.d. innbrotsþjófar, sem leita á böm
og unglinga og einnig þeir sem selja
unglingum alls kyns fíkniefni. Margt
fleira má benda á eins og t.d. með
manndrápara, ég veit um 2 tilfelli
þar sem ráðherrar hafa sjálfir brotið
lögin með því að taka fram fyrir
hendumar á dómstólunum með því
að náða 2 menn sern búið var að
dæma annan í 10 ára fangelsi og
hinn í 15 ár. Ég mætti þeim siðan
báðum eftir 2—3 ár niður í bæ. Þeir
hafa sjálfsagt haft sama pólitíska lit
og ráðherrann sem náðaði þá. Ég
vona að ráðamenn þjóðarinnar og
þá ekki hvað síst dómsmálaráðherra
taki þessar ábendingar til greina.
Með vinsemd og virðingu,
Jóhann Þórólfsson,
Norðurbrún 1.
£ 0. boK-W-----
]£i .R 5 y R
T cAomA. - Ts LuJl
CORREO AEREO
'“TT,-
/Á0* F/ ■ -<
BREFIOSKILUM
Víkverji skrifar
Nú er hörkuvetur um allt
land,“ sagði fréttamaður
ríkisútvarpsins í aðalfréttatíman-
um á laugardagskvöld. Víkverji var
þá í bíltúr með fjölskylduna, stadd-
ur á nýju Reykjanesbrautinni.
Brautin var nánast auð og hitastig
um frostmark. Þvílíkar hörkur!
Utvarpið gerði mikið úr ófærð í
Reykjavík og nágrenni og um allt
land, eins og aldrei hefði áður snjó-
að á Islandi. Þó Víkveiji legði leið
sína víða um borgina, varð hann
hvergi var við veturinn og ófærð-
ina. Þá gat útvarpið um árekstur
margra bíla í Kópavogsbrekkunni
og um var kennt flughálku og
slæmu skyggni. Þegar Víkveiji tók
bílpróf, var mikilvægur kafli í
fræðunum þar sem tekið var fram
að haga bæri akstri eftir aðstæð-
um. Víkveija grunar að hvorki
hálka né dimmviðri hafi orsakað
árekstrana, heldur akstur glanna-
fenginna bílstjóra. á illa búnum
bílum. Það virðist oft gleymast
hver veldur.
Oft er með ólíkindum, hvað mik-
ið er gert úr því að vetur skuli
vera á landinu, sem stundum virð-
ist ekki ná upp fyrir Ártúnsbrekk-
una. Almenningur fær hland fyrir
hjartað og heldur að heimsendir
sé í nánd. Kennarar fyllast ótrú-
legri umhyggju fyrir skólabömum
og gefa þeim frí, skyldi „aftaka-
veður“ bresta á. Veðrið brast auð-
vitað ekki á og foreldrar voru í
stöðugum leiðöngrum til að koma
bömunum fyrir meðan unnið var
fyrir salti í grautinn. Þá leiðangra
hefti „ófærðin" ekki. Hugsunar-
háttur borgarbúa virðist orðinn á
þá leið, að hér eigi ekki að vetra
hvað sem hver segir. Falli síðan
einhver snjór umtumast allt og
allir kenna snjónum um. Það er
ekki þeim að kenna þó þeir sitji
fastir á sportbínum sínum á sumar-
dekkjum á nær hallalausum götun-
um og stöðvi umferðina jafnvel
klukkustundum saman.
XXX
að er ekki að efa, að áróður
gatnamálastjóra gegn því að
bílar séu sem bezt búnir til aksturs
að vetri hefur áhrif á þetta. Borgar-
yfirvöld hafa kappkostað að koma
þeim upplýsingum á framfæri, að
það sé undantekning að þörf sé á
negldum vetrardekkjum í Reykja-
vík. Og fyrir flesta kemur það sér
vel að taka mark á þessum áróðri
og spara, ekki bara naglana, heldur
snjódekkin líka. Það snjóar nefni-
lega nánast aldrei í Reykjavík eða
í það minnsta á ekki að gera það.
Það vill svo til að „fannfergið" á
landinu nú er varla í meðallagi.
Síðast var jafnmikill snjór í
Reykjavík fyrir nær þremur árum
(það umtumaðist reyndar allt þá
líka) og víðast úti á landi er snjór
hvorki meiri né minni en venjulega,
þó hann sé kannski meiri en á suð-
vesturhominu. Undantekning er að
heyra fréttir um umferðartafír
vegna ófærðar í öðrum bæjum en
höfuðborginni og nágrenni. Menn
sem moka sig fram og aftur um
Holtavörðuheiði og eru tíu tíma að
án þess að hafa um það mörg orð
hljóta að brosa í kampinn, þegar
þeir heyra Reykvikinga lýsa baráttu
sinni við ófærðina á Miklubraut-
inni.
i
v
I
€
T