Morgunblaðið - 02.03.1989, Síða 18

Morgunblaðið - 02.03.1989, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 ísland í norrænu samstarfi eftirlngimar Einarsson og Tryggva Gíslason Samstarf ríkja og þjóða verður umfangsmeira með hveiju árinu sem líður. Engin þjóð getur lengur komist hjá því að taka þátt í eða eiga aðild að samningum, sam- komulagi eða bandalögum af ein- hverju tagi. Að sjálfsögðu er mis- jafnt, hversu mikinn þátt hinar ýmsu þjóðir taka í ríkjasamstarfí og ræður því m.a. lega landanna, saga þeirra og menning, efna- hagslíf og atvinnuhættir. Víðtækast er samstarf rílqa heims innan vé- banda Sameinuðu þjóðanna. Mann- réttindasáttmáii Sameinuðu þjóð- anna, sem undirritaður var árið 1984, markaði tímamót í baráttunni fyrir jafnrétti og bræðralagi. Efna- hagsbandalag Evrópu eða Evrópu- bandalagið, eins og nú er farið að kalla þessi samtök 12 Evrópuríkja, hefur þegar haft víðtæk áhrif á atvinnu- og efnahagssamstarf Evr- ópu. Engin þjóð í þessum heims- hluta kemst hjá því að taka afstöðu til þessa öfluga ríkjabandalags á næstu misserum. Samhliða þeirri umræðu, sem nú á sér stað um samskipti og afstöðu íslands til Evrópubandalagsins, hafa heyrst efasemdir _um gildi norrænnar samvinnu. SÚ skoðun hefur jafnvel verið látin í ljós, að íslendingar hefðu ýrnislegt þarfara að gera við tíma sinn og íjármuni en veija þeim til samstarfs við önn- ur Norðurlönd. Meira hefur þá ver- ið talað um kostnað vegna ferða- laga og fundahalda en hvaða gagn íslendingar kynnu að hafa af hinu margþætta samstarfí landanna. Jafnframt hefur gætt nokkurs mis- skilnings varðandi verksvið og eðli þeirra stofnana sem lykilhlutverki gegna í norrænni samvinnu. Af þessu tilefíii og vegna þess að nú er 37. þing Norðurlandaráðs haldið í Stokkhólmi þykir ástæða til að gera grein fyrir samvinnu Norðurlanda og hvem hag íslend- ingar hafa af samskiptum við þessi lönd. Samvinna ríkisstjómar og þjóð- þinga Norðurlanda er byggð á svo- nefndum Helsingforssamningi frá árinu 1962. Samningurinn kveður á um uppbyggingu og starfsemi Norðurlandaráðs og Norrænu ráð- herranefndarinnar. Utan ramma þessa samnings eiga sér einnig stað víðtæk samskipti og samvinna margra aðila. Má þar nefna nor- rænu félögin, samtök á vinnumark- aði, bæði samtök atvinnurekenda og launþega, svo og ýmis fíjáls félagasamtök. N orðurlandaráð Norðurlandaráð (Nordiska Rád- et) er samstarfsvettvangur þjóð- þinga Norðurlandanna. Sjálfstjóm- arlöndin þijú, Álandseyjar, Færeyj- ar og Grænland, eiga jafnframt aðild að ráðinu. Auk þess sitja ráð- herrar allra landanna árlegt þing Norðurlandaráðs. Norðurlandaráð hefur frumkvæði um málefni sem varða norræná samvinnu. í þeim tilgangi beinir Norðurlandaráð samþykktum, ályktunum og fyrir- spumum til Norrænu ráðherra- nefndarinnar. Þing Norðurlandaráðs, forsætis- nefnd ráðsins og fastanefnd þess eru burðarásamir í starfsemi Norð- urlandaráðs. Þing Norðurlandaráðs er haldið til skiptis í löndunum og stendur eina viku í senn, venjulega í fyrstu viku marsmánaðar. Forsæt- isnefnd Norðurlandaráðs og fasta- nefndir þess starfa á milli þinga ráðsins og undirbúa þau mál sem þar eru til umfjöllunar. Stofnunum Norðurlandaráðs þjónar sérstök skrifstofa forsætisnefndarinnar sem komið var á fót í Stokkhólmi árið 1971. í tengslum við þjóðþing hvers lands eru auk þess skirfstofur til aðstoðar fulltrúum þeirra í Norð- urlandaráði. Norræna ráðherranefiidin Norræna ráðherranefndin (Nord- iska Ministerrádet) er samstarfs- stofnun ríkisstjóma Norðurlanda. Sjálfsstjómarlöndunum þremur er heimil þátttaka í starfí ráðherra- nefndarinnar. Skipun Norrænu ráð- herranefndarinnar ræðst af því, hvaða málaflokkur er til umræðu hveiju sinni. Séu iðnaðarmál til umfjöllunar, eru það iðnaðarráð- herrar landanna sem um þau flalla. Félagsmálaráðherrar annast fé- lagsmál, samgönguráðherrar sam- göngumál o.s.frv. Löndin skiptast á formennsku í ráðherranefndunum og gegnir hvert land formennskunni eitt ár í senn. Ákvarðanir Norrænu ráðherranefndarinnar eru bindandi fyrir aðildarríkin, enda hafa þau hvert um sig neitunarvald í nefíid- inni, þannig að grundvöllur sam- starfsins er ftjálst samkomulag ríkjanna. Hver ráðherranefnd hefur sína eigin embættismannanefnd sem í eiga sæti fulltrúar frá ráðuneytum landanna. Embættismannanefndin undirbýr mál sem fjallað er um í ráðherranefndinni. Flestar embætt- ismannanefndir hafa sér til aðstoð- ar vinnuhóp, sem sinna einkum til- lögugerð og sérhæfðum verkefnum. Innan ríkisstjómar hvers lands fer einn ráðherra með norræn mál- efni, svonefndur samstarfsráð- herra. Samstarfsráðherramir sjá um samræmingu norrænna mál- efna í eigin landi og á norrænum vettvangi, auk þess sem þeir hafa yfirumsjón með allri starfsemi á vegum Norrænu ráðherranefndar- innar. Til aðstoðar samstarfsráðhemim starfa svonefndir staðgenglar sem undirbúa öll mál sem samstarfsráð- herramir Qalla um. Nefndin annast einnig einstök mál í umboði ráð- herranna. 1 hveiju landi er sérstök - skrifstofa til aðstoðar viðkomandi samstarfsráðherra og staðgengli hans. Á íslandi gegnir Norður- landadeild utanríkisráðuneytisins þessu hlutverki. Núverandi sam- starfsráðherra íslendinga er Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskipta- ráðherra. Skrifstofa Norrænu ráðherra- nefndarinnar í Kaupmannahöfn annast störf á vegum Norrænu ráð- herranefndarinnar. Skrifstofan er því eins konar sameiginlegt ráðu- neyti landanna er undirbýr og sér um framkvæmd þeirra málefna er varða hið opinbera samstarf Norð- urlandanna fimm. Hagur íslands af Norrænu samstarfi Sem fyrr getur hefur íslensk umræða um norrænt samstarf eink- um snúist um kostnað vegna ferða- laga og fundahalda. Minna hefur hins vegar farið fyrir athugunum á því hvaða hag við höfum af þessu samstarfí. Þótt vissulega sé erfitt að meta slíkt, má nefna nokkur dæmi sem sýna að íslendingar fá aftur margfalt verðgildi þess sem lagt er fram í peningum auk hins óbeina hagnaðar sem aldrei verður metinn til flár. Á þessu ári nema fjárlög Nor- rænu ráðherranefndarinnar sam- tals 611 milljónum danskra króna, eða um 4,3 milljörðum íslenskra króna, og er framlag íslands 1% af þeirri upphæð eða sem svarar um 43 milljónum íslenskra króna. Fjármunum þessum er varið til samstarfs í yfír 20 málaflokkum, til rekstrar 70 stofnana, 150 fasta- nefnda og vinnuhópa, og auk þess kostar ráðherraneftidin um 1.000 rannsóknarverkefni. Menningarsamstarf Menningarsamstarf Norðurlanda er reist á sögulegum og menningar- sögulegum grunni. Norrænu málin fimm: danska, færeyska, íslenska, norska og sænska eru öll af sömu rót runnin, og tengsl Finna og Svía svo og Grænlendinga og Dana hafa Ingimar Einarsson •• „Oflug norræn sam- vinna í efhahagsmálum svo og á öðrum sviðum getur auðveldað lönd- unum að búa sig undir þá auknu samkeppni sem vænta má í kjölfar sameiginlegs markaðar Evrópubandalagsins árið 1992. Þetta ber að hafa í huga þegar rætt er um breyttar áherslur í samskiptum íslands við önnur lönd og þá sérstaklega takmark- anir á þátttöku okkar í norrænu §amstarfi.“ valdið því, að þessar þjóðir byggja allar á sameiginlegum arfí. Nor- rænt samstarf á sviði atvinnu- og skólamála hefur leitt til þess, að fólk getur auðveldlega stundað nám í öðru landi en heimalandi sínu, og Norðurlönd eru nú sameiginlegur vinnumarkaður nema þar sem gilda séretakar takmarkanir. íslenskir námsmenn á hinum Norðurlöndunum skipta nú þúsund- um. Atvinnufyrirtæki á íslandi hafa margvíslega samvinnu við fyrirtæki á Norðurlöndum, bæði um menntun starfsfólks, vöruframleiðslu og markaðsöflun. Verkfræði- og ráð- gjafarfyrirtæki á íslandi hafa nána samvinnu við fyrirtæki á öðrum Norðurlöndum, enda hafa starfs- menn og forstjórar þessara fyrir- tækja iðulega stundað nám saman. Samvinna íslendinga við aðrar Norðurlandaþjóðir á sviði fiskveiða, fiskiðnaðar og landbúnaðar er ára- tuga gömul. Sömu sögu er að segja um samstarf hinna landanna, sem fléttast saman á ótalmörgum svið- um. Á þessu ári tók til starfa styrkt- arsjóður námsmanna á Norðurlönd- um sem nefndur er NORDPLUS. Á hveiju ári er ætlunin að veita um 1.200 styrki til námsfólks sem stunda vill nám í þijá til sex mán- uði í öðru landi en heimalandi sínu sem hluta af grunnnámi heima fyr- ir. íslenskir námsmenn hafa þegar notið góðs af þessu nýja samstarfi. í áratugi hafa ríkisstjómir Norð- urlandanna haft með sér formlegt samstarf á sviði skólamála. Á hveiju ári eru haldnir fundir, þar sem skipst er á upplýsingum og kynnt er þróun og verkefni í skólum landanna og skipulagt samstarf um sameiginleg verkefni, bæði í grunn- skólum, í'ramhaldsskólum svo og í fullorðinsfræðslu. Öllum er ljóst að menntun er undirstaða velferðar og velmegunar Iandanna. Með þessari samvinnu á sviði skólamála hefur verið stuðlað að endurbótum í kennslu og námi á öllum skólastig- um. Nú síðast hefur á vegum skóla- samstarfsins verið unnið að gerð Tryggvi Gíslason kennsluforrita fyrir skóla á Norð- urlöndum, bæði í náttúrufræði- greinum, tungumálum, sögu og stærðfræði. Menningarstofiianir Norðurlanda Á vegum Norrænu ráðherra- nefndarinnar eru starfræktar fjöl- margar norrænar menningar- og rannsóknaretofnanir. Nefna má Norrænu eldfjallastöðina á íslandi. Stöðin er kostuð af sameiginlegum sjóði ráðherranefndarinnar og nema fjárveitingar til hennar um 30 millj- ónum íslenskra króna í ár. Norræna húsið í Reykjavík tók til starfa árið 1968. Fjárveitingar til þess nema í ár um 25 milljónum íslenskra króna. Norræna húsið í Færeyjum tók síðan til starfa 1983 og á Grænlandi og Álandseyjum starfa einnig norrænar menningar- stofnanir. í Osló er rekin Norræn málstöð (Nordisk spráksekretariat) sem vinnur m.a. að eflingu tungu- málasamstarfs á Norðurlöndum og að auknum málskilningi. Stöðin er um leið samstarfsvettvangur nor- rænu málanefndanna níu. Á ís- lenska málnefndin að sjálfsögðu aðild að þessu samstarfi. í Sveaborg við Helsingfore hefur í 10 ár starfað Norræna listmiðstöð- in (Nordiska konstcentret.) Þar eru sýningarsalir, íbúðir og vinnustofur fyrir myndlistarmenn. Hafa margir íslenskir listamenn sýnt í Sveaborg og dvalist þar til að vinna að list sinni. Listmiðstöðin vinnur auk þess að listsýningum annars staðar á Norðurlöndum og víðar í Evrópu. Á næstu árum er ætlunin að efla Norrænu listmiðstöðina, m.a. með því að koma á föstum tengslum við listamiðstöðvar annars staðar í Evr- ópu. Norræni menningarmálasjóður- inn hefur starfað í mörg ár og veitt styrki til ýmiss konar menningar- starfa: listsýninga, bókaútgáfu og námskeiða fyrir kennara og lista- menn. Á síðasta ári var fyrir til- stuðlan sjóðsins komið á fót nor- rænum bókaklúbbi (Bokklubben NORDEN), sem gefur út bók- menntaverk Norðurlanda og selur á vægu verði. Norræna ráðherranefndin veitir árlega fé á fjárlögum sínum til bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs og til tónlistarverðlauna Norður- landaráðs. Þessi verðlaun hafa orð- ið til þess að auka áhuga listunn- enda á norrænum bókmenntum og norrænni tónlist og vekja athygli á því starfi sem unnið er á sviði bók- mennta og tónlistar á Norðurlönd- um. Um síðustu áramót tók gildi ný framkvæmdaáætlun um norrænt samstarf á sviði menningarmála. Norræna ráðherranefndin sam- þykkti þessa áætlun á fundi sínum í Osló hinn 10. mare 1988. Mark- mið framkvæmdaáætlunarinnar er að styrkja sjálfstæða menningu Norðurlanda og gera þau að einu menningarevæði og sameiginlegum markaði á sviði bókmennta og lista. Verða framlög á fjárlögum ráð- herranefndarinnar aukin á næstu árum í þessu skyni. Heilbrigðis- og félagsmál Samstarf á sviði heilbrigðis- og félagsmála er byggt á stefnuyfirlýs- ingu heilbrigðis- og félagsmálaráð- herra Norðurlanda sem upphaflega var samþykkt árið 1977 og síðast var endurskoðuð árið 1988. Stefnu- yfirlýsingin byggir á áætlun Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinn- ar, sem nefnd er „Heilbrigði allra árið 2000", og á samþykkt um þró- un félagslegra málefna í Evrópu frá árinu 1987. Hin eiginlega starfsemi er hins vegar borin uppi af norræn- um stofnunum, fastanefndum og vinnuhópum. Auk þess kostar ráð- herranefndin fjölda rannsóknar- verkefna víðs vegar á Norðurlönd- um. Stærsta stofnunin er Norræni heilsugæsluháskólinn (Nordiska hálsovárdshögskolan) í Gautaborg, sem stofnaður var árið 1962. Hann er sameiginleg stofnun Norður- landa á sviði framhaldsnáms og rannsókna í heilbrigðisfræðum. Helstu kennslugreinar við skólann eru stjómun heilbrigðisstofnana, faraldsfræði, félagslækningar og hjúkrunarfræði. Skólinn stendur einnig fyrir stuttum námskeiðum og ráðstefnum um mikilsverð heil- brigðismál. Fjöldi íslendinga stund- ar ár hvert nám við skólann. Norræna tannlækningastofnunin (Nordiska institutet for odontolog- isk materialprövning) í Osló vinnur að gerð staðla, prófun efna og tækja, sérhæfðum rannsóknarverk- efnum og upplýsingamiðlun á sviði tannvemdar og tannlækninga. Upplýsingar um niðurstöður rann- sókna og prófana eru reglulega sendar öllum starfandi tannlæknum og tannsmiðum á Norðurlöndum. Auk þess veitir stofnunin löndunum sérfræðilega ráðgjöf í málum sem varða tannlækningar. Norræna lyfjanefndin (Nordiska lákemedelsnámnden) vinnur að samræmingu laga og reglna á sviði lyfjamála á Norðurlöndum. Starf nefndarinnar hefur borið þann árangur að nú em gerðar sömu kröfur við lyfjaframleiðslu og notk- un lyQa í löndunum öllum. Nefndin vinnur einnig að því að heilbrigðis- yfirvöld fylgi sömu reglum um skráningu nýrra lyfja. Skrifstofa nefndarinnar í Uppsölum gefur út Qölda rita, m.a. skrá um lyfjanotk- un sem vakið hefur athygli víða um lönd. Vegna þessa samstarfs hafa íslendingar aðgang að mikilsverð- um rannsóknamiðurstöðum, sem spara bæði tíma og fjármuni við lyfjarannsóknir og lyfjaframleiðslu hér á landi. Norræna nefndin um málefni fatlaðra (Nordiska námnden för handikappfrágor) hefur frá því hún tók til starfa árið 1980 haft aðal- stöðvar sínar í Stokkhólmi. Nefndin fæst einkum við þróun og rannsókn- ir á tækjabúnaði fyrir fatlaða og þroskahefta. Jafnframt vinnur hún að rannsóknum á högum og sér- þörfum fatlaðra og þjónustu við þá. Komið hefur verið á fót tölvu- bundnu upplýsingakerfi um hjálpar- tæki fyrir fatlaða á Norðurlöndum. í íslenskum dagblöðum var nýlega frá því skýrt að nefndin hefði veitt styrk til þróunar íslensks hug- búnaðar, Isbliss, fyrir mál- og hreyfihamlaða, sem gerir þeim kleift að tjá sig með tölvubúnaði. Norræna rannsóknamefndin á sviði vímuefna (Nordisk námden för alkohol- och drogforekning) var stofnuð árið 1987. Starf hennar beinist einkum að rannsóknum á félagslegum afleiðingum vímuefna- neyslu. Nefndin hefur fmmkvæði að norrænum athugunum, stuðlar að þverfaglegum samskiptum og skipuleggur vísindaráðstefnur. Ennfremur sér skrifstofa nefndar- innar í Helsingfore um upplýsinga- miðlun og skýrelugerð. Meðal þeirra verkefna sem Nor- ræna ráðherranefndin kostar á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.