Morgunblaðið - 02.03.1989, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989
Fjarhagsáætlun felur í
sér aukið framkvæmdafé
- segir Sigurður J. Sigurðsson bæjarfiilltrúi
„Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar felur í sér verulega aukningu á
framkvæmdafé auk þess sem reynt hefur verið að ná fram aðhaldi í
rekstri. Rekstrarþættir hafa verið endurskipulagðir og unnið er að enn
frekari verkefnum á því sviði. Verkefiii á vegum hafiiarsjóðs verða
fyrst og fremst við nýju fiskihöfiiina og ný verkefni veitustofnana
verða að mestu bundin í nýjum íbúðasvæðum í Giljahverfi og ofan
Spítalavegar. Aætlað er að veija tæpum 30 milljónum til niðurgreiðslu
skulda, en að sjálfsögðu verða afborganir lána háðar því hversu vel
tekst til með að halda áætlun á öðrum sviðum,“ sagði Sigurður J. Sig-
urðsson, bæjarfúlltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið.
Guðrún Karitas Steinunn
Brynja Þóranna
Fegurðardrottningin
1989 er valin í kvöld
Fegurðardrottning Norður-
Iands 1989 verður valin með
pomp og prakt í Sjallanum í
kvöld. Um titilinn eru sex stúlk-
ur, allar frá Akureyri, að þessu
sinni. Auk fegurðardrottningar
Norðurlands verður valin ljós-
myndafyrirsæta Norðurlands og
stúlkurnar sex munu kjósa sín á
milli hver hlýtur titilinn vinsæl-
asta stúlkan.
Heiðursgestur verður Kamilla
Rún Jóhannsdóttir, sem á síðasta
ári hlaut alla þijá titlana. Hún mun
síðan krýna arftaka sinn um mið-
nætti. Dómnefnd skipa: Ólafur
Laufdal, formaður, Erla Haralds-
dóttir danskennari, Sigtryggur Sig-
tryggsson, fréttastjóri, Guðrún Jó-
hannsdóttir, verslunarmaður og
Karl Davíðsson, gleraugnasmiður.
Kynnir verður Jóhann Steinsson.
Þetta er fyrsta undankeppnin
fyrir keppnina um titilinn fegurðar-
drottning íslands, sem fram fer á
Hótel íslandi þann 15. maí nk.
Haldnar verða sjö undankeppnir.
Áætlað er að heildartekjur bæjar-
sjóðs og veitustofnana verði rúmar
1.950 milljónir kr. Gjöld eru áætluð
rúmar 1.611 milljónir króna. Til
eignabreytinga koma því rúmar 340
milljónir kr., sem er tvöföldun þess
fjármagns sem varið var til eigna-
breytinga á síðasta ári. Nýfram-
kvæmdir á vegum bæjarsjóðs verða
195,5 millj. kr. og til tækjakaupa er
ákveðið að verja 12,6 millj. kr. Fé
til nýframkvæmda skiptist á eftirfar-
andi hátt: Fjórðungssjúkrahúsið 14
millj. kr., fasteignakaup vegna skipu-
lags 9 millj. kr., Síðuskóli 10 millj.
kr., Verkmenntaskóli 86,7 millj. kr.,
dagvistir 17,8 millj. kr., bæjarskrif-
stofur ein milljón, Amtsbókasafn 6
milljónir, íþróttahöll 8 milljónir,
Sundlaug við Glerárskóla 28 milljón-
ir og dvalarheimili og þjónustukjami
15 milljónir. Framkvæmdafé bæjar-
sjóðs er þó verulega meira en fram
kemur í þessum tölum. í því sam-
bandi má nefna að fé til gatnagerðar
verður 65-70 milljónir. Þá hafa sum-
ar fjárveitingar veruleg áhrif til enn
Valdimar
Jóhannes Geir Jón
Þorleifur Þór Lilja
Sigfús
Atvinnulíf á
Norðurlandi
Fundur um atvinnulíf á Norðurlandi á Hótel
KEA föstudaginn 3. mars 1989 kl. 14.00.
Dagskrá:
Sjávarútvegur: Valdimar Bragason framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Dalvíkinga.
Landbúnaður: Jóhannes Geir Sigurgeirsson, bóndi, Öngulsstöðum.
Iðnaður: Jón Sigurðarson forstjóri Álafoss hf.
Þjónustugreinar: Þorleifur Þór Jónsson starfsmaður atvinnumálanefndar Akureyrar-
bæjar.
Staða fyrirtækja: Lilja Steinþórsdóttir endurskoðandi Endurskoðun og reikningsskil hf.
íslenskt atvinnulíf.
Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands mun flytja
erindi um íslenskt atvinnulíf.
Fundarstjóri verður Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um íslenskt
efnahags- og atvinnulíf.
Fundargjald kr. 1.000,- (veitingar innifaldar).
Stjórnunarfélag Félag viðskipta- og Iðnþróunarfélag
Norðurlands hagfræðinga Eyjafjarðar
Norðurlandsdeild
frekari framkvæmda. Framlag til
FSA er aðeins um 15% af heildar-
framkvæmdakostnaði og framlag til
félagslegra íbúða, sem er í fjárhags-
áætlun 25,6 milljónir, er ætlað til
byggingar 75 íbúða. Verðmæti slíkra
íbúða er að minnsta kosti 400 millj.
kr. Því má segja að framkvæmdir
sem tengjast þessari áætlun á sviði
nýframkvæmda séu ekki undir 900
millj. kr., að sögn Sigurðar.
7,2% útsvar á Akureyri
Núverandi meirihluti tók þá
ákvörðun við gerð fjárhagsáætlunar-
innar að fella niður álag á fasteigna-
skatt af íbúðarhúsnæði. Sú ákvörðun
mætti harðri gagnrýni fulltrúa Al-
þýðubandalags sem vildu hækka
fasteignaskatt og ná þannig fram
um 16 millj. kr. viðbótarskattheimtu.
Við breytingar þær sem gerðar voru
á sl. ári til staðgreiðslu skatta var
útsvarsprósentan ákvörðuð gegn
vilja sveitarstjórnarmanna. Nú hins-
vegar höfðu sveitarstjómir sjálfdæmi
í málinu, þó með 7,5% sem hámark.
Ákveðið var að hafa útsvarsprósent-
una 7,2% á Akureyri, sem er að sögn
Sigurðar nokkurs konar millivegur
þess hámarks sem leyft er og þess
sem var á sl. ári. Með þessum breyt-
ingum er leitað leiða til að ná fram
viðunandi tekjugrunni án þess að
nota allar tiltækar leiðir til skatt-
heimtu. Með slíku er jafnframt verið
að sýna fram á þá leið að stilla
rekstrargjöld og framkvæmdir á
þann veg að enn sé nokkurt svigrúm
og að fyrr sé leitað hagkvæmra leiða
í rekstri en nýrra skatta, að sögn
Sigurðar.
Öldrunarmál hafa forgang
Nýlega hefur verið unnið að
stefnumótun í öldrunarmálum á veg-
um Akureyrarbæjar og hefur hún
verið samþykkt. I stefnumótuninni
er gert ráð fyrir að efla heimilis-
þjónustu í stað stofnanaþjónustu.
Jafnframt er verið að breyta eldri
byggingunni í Hlíð í hjúkrunardeild
og koma þar upp öflugri þjónustu
við aldraða í nýrri þjónustumiðstöð,
sem er í Hlíð. Sigurður sagði að í
gagnrýni á fjárveitingar til öldrunar-
mála hafi verið látið að því liggja
að framlög til þessara mála hafi ver-
ið skorin niður. „Því er til að svara
að á sl. ári var áætlað að kostnaður
við öldrunarþjónustu yrði um 180
millj. kr. Á yfirstandandi ári er gert
ráð fyrir að þessi rekstur kosti um
280 millj. kr. Áætlað er að veija 12
millj. kr. úr bæjarsjóði til viðhalds-
framkvæmda. Til nýframkvæmda á
þessu sviði er áætlað að veija 15
millj. kr., en sú upphæð var 7 millj.
kr. í fyrra. Af þessu má glöggt sjá
að fullyrðingar um niðurskurð til
þessara mála eiga ekki við nein rök
að styðjast. Hinsvegar má segja að
verulega fjármuni vanti í þennan
málaflokk á komandi árum svo að-
staða til þess að þjóna öldruðum
verði með þeim hætti sem telja verð-
ur viðunandi." •
Staða bæjarsjóðs viðunandi
„Ákvarðanir, sem nefndar hafa
verið „töfrabrögð" af fulltrúum
minnihlutaflokkanna í bæjarstjóm
em einfaldar ráðstafanir, sem gerðar
em með hliðsjón af ljárhagsstöðu
bæjarsjóðs og þeim markmiðum, sem
sett em við gerð nýsamþykktar fjár-
hagsáætlunar. Fyrir síðari umræðu
lá fyrir bráðabirgðayfirlit yfir rekstur
og framkvæmdir bæjarsjóðs á sl.
ári. Niðurstöðumar em í stuttu máli
þær að tekjur urðu meiri en gert var
ráð fyrir og tekist hefur að laga svo-
kallaða veltufjárstöðu vemlega.
Greiddar vom niður meiri skuldir en
gert hafði verið ráð fyrir og jafn-
framt hefur verið hægt að eyða
rekstrarhalla dvalarheimilanna, sem
var orðinn hátt í 50 millj. kr. Hér
hafa því orðið veruleg umskipti í
stöðu bæjarsjóðs og stefnt er að því
að laga hana enn frekar á þessu
ári. Aðgerðir þær, sem stefnt er að,
em öllum ljósar sem um málin fy'alla.
Hér er því engin feluleikur að eiga
sér stað, hvert á móti em sett mark-
mið sem að er stefnt. Þessi atriði em
meðal annars fólgin í því að lækka
kostnað við tannlæknaþjónustu, að
ná fram raunhæfum daggjalda-
greiðslum fyrir hjúkmnardeildina í
Hlíð og að lækka skuldir um 30
millj. kr.,“ sagði Sigurður.
„Verkefni sveitarfélaga líkt og
ríkissjóðs em ótæmandi og því mikil-
vægt að menn átti sig á því hversu
mikla þjónustu er í raun hægt að
veita og hvemig sé hægt að verða
við óskum, sem sífellt era að koma
fram um auknar fjárveitingar. Um-
svif sveitarsjóða verða ekki annað
sótt en til einstaklinga og fyrirtækja
og það verða allir að hafa hugfast.
Með áframhaldandi þróun í þá átt,
sem nú stefnir í málefnum bæjarins,
mun Akureyri eflast,“ sagði Sigurður
J. Sigurðsson að lokum.
11 * n »i I i f í {I i
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bókval fær umboð fyr ir Veröld
Ferðamiðstöðin Veröld hefiir ráðið þá bræður Jón Ellert og Unnar
Þór Lárussyni umboðsaðila sína á Akureyri.
Þeir eiga og reka fyrirtækið Bókval-Tölvutæki í Kaupvangsstræti og í því
húsnæði hafa þeir opnað söluskrifstofu í tengslum við Veröld. Á myndinni
má sjá þá Jón Elleit og Unnar Þór ásamt Björku Ólafsdóttur, sem ráðin
hefur verið til þess að sjá um söluskrifstofuna, sem er á annarri hæð Bók-
vals-Tölvutækja.