Morgunblaðið - 02.03.1989, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 02.03.1989, Qupperneq 43
MORGUNBIAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 Í43 Vilt þú gefa föngnnum eina peysu? Fríkirkjan í Hafiiarfirði. Fyrirlestur um um Passíusálma í KVÖLD, fimmtudagskvöld 2. mars klukkan 20.30. mun Smári Ólason, organisti, flytja erindi í Fríkirýunni i Hafnarfirði um lagboða og gömlu lögin við Passiusálma sr. Hallgríms Pét- I urssonar. Þetta er sérstaklega áhugavert umfjöllunarefni nú á föstunni og eru allir boðnir velkomnir. Að loknu erindi verður sungin náttsöngur og mun kór kirkjunnar leiða sönginn. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafn- arfirði heldur basar nk. laugardag 4. mars og hefst hann klukkan 14.00 í Góðtemplarahúsinu. Þar verða kökur og margt eigulegra muna á boðstólum. Á þriðjudagskvöld 7. mars verður spilakvöld í Gúttó á vegum kvenfé- lagsins og spiluð félagsvist frá klukkan 20.30. - Einar Eyjólfsson Ljóð í Nýhöfii Listasalurínn Nýhöfii ásamt Ara Gísla Bragasyni og Steinunni Ásmundsdóttur gengst fyrir ljóða- og tónlistarkvöldi í kvöld, fimmtudaginn 2. mars. Þar stendur nú yfir sýning Bjargar Örvar á oliumálverkum. Þeir sem lesa upp úr verkum sínum eru: Aðalsteinn Ásberg Sig- urðsson, Ragnhildur Pála Ofeigs- dóttir, Olafur Haraldsson, Gísli Þór Gunnarsson, Þorsteinn frá Hamri, Bárður Jónsson, Eiríkur Brynjólfs- son, Hansína Ingólfsdóttir og Jónas Þorbjarnarson. Karl Guðmundsson mun lesa úr ljóðaþýðingum sínum. Kynnir er Steinunn Ásmundsdóttir. (Fréttatílkynning) Imoimza Rúmgóður og sterkbyggður bíll, sérsmíðaður fyrir íslenskar aðstæður. Mjög vandaður og þægi- legur fjölskyldubíll á verði sem fæstir geta keppt við. Verð frá kr. 725.000,-. | Ert þú í bílahugleiðingum? Reyndu þá bíl frá General Motors og finndu muninn! kmfjÞ£aerri BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 eftir Magnús H. Skarphéðinsson Þannig háttar nú til að við í félag- inu Ísland-Palestína reynum af veikum mætti að leggja okkar lið til að lina þjáningar verst leiknu þolendanna í hinum harðvítugu deilum ísraels- manna og palestínsku þjóðarinnar þessa mánuðina, með því meðal ann- ars að senda hinum 20.000 palestínsku föngum í ísraelskum fangelsum eitt- hvað af peysum til að vera í nú í kuld- unum þar syðra í fangaklefum sínum. Og okkur datt í hug að þú vildir kannski vera með? Hugmyndin um peysusendingamar er komin upphaflega frá stuðnings- samtökum palestínskra fanga, sem starfa í ísrael og pqóna um þessar mundir ýmisskonar hlífðarfatnað handa þessum föngum. Fjöldi fang- anna er orðinn svo mikill að við höfum verið beðin um að hjálpa til ásamt fleira fólki vfðar á hnettinum. Þess vegna datt okkur í hug að biðja alla þá sem hjartalag hafa og tök eiga á að slást í hópinn með okk- ur og prjóna svosem eina peysu handa föngunum og koma henni áleiðis til Rauða kross Islands, Rauðarárstíg 18, Reykjavík, sem fyrst. Rauði krossinn hefur lýst sig reiðu- búinn til að taka á móti peysunum og senda þær áfram. En tilgreina verður á pakkann: Palestína — FANGAR. Þau skilyrði eru sett af ísraelskum yfirvöldum að peysumar verði að vera dökkbláar með v-hálssniði. Ef menn geta ekki einhverra hluta vegna prjónað peysu eða gefið, en vildu helst gefa eina, þá var stofnaður sérstakur bankareikningur sem tekur á móti peysuandvirði sem metið er á 1200 krónur fyrir hjartahlýja. Allt fé sem safnast á reikninginn verður sent beint til Rauða krossins á staðnum, sem heitir reyndar Rauði hálfmáninn þar syðra. Þeir sem stutt gætu þessa illa stöddu skjólstæðinga okkar eru vin- samlegast beðnir um að bregðast skjótt við svo lina megi eitthvað þær hörmungar sem yfir þetta fólk hefur dunið síðan ástandið varð svona slæmt eins og fréttir bera daglega með sér. Rétt er að geta þess, svo undarlegt sem það lítur út hér, að stór hluti þessara fanga eru nánast krakkar, komungir táningar, sem sitja inni fýr- ir mótmæli gegn hersetu ísraelsmanna á hemumdu svæðunum og höfðu eng- um vopnum beitt gegn neinum. Enda engin vopn undir höndum. „Þeir sem stutt gætu þessa illa stöddu skjól- stæðinga okkar eru vin- samlegast beðnir um að bregðast skjótt við.“ Það er ekki síður þess vegna sem við teljum rétt að liðsinna þessu ógæf- usama fólki, sem við trúum og vonum að eigi sér einhver önnur örlög í framt- íðinni en þau sem nú hafa hellst yfir það. Réttum því Palestínuföngunum smá hjálparhönd héðan úr velsældar- klúbbnum. Okkur munar ömgglega ekki svo mikið um það. Hinum munar um það, meira en flesta hér heima gmnar. Höfundur er fyrrver&ndi vagn- sijóri SVR ogmeðlimur ífélaginu Ísland-Palestína. SPARIABOT ÚTVEGSBANKANS Reglubundinn sparnaður með Spariábót Útvegsbankans hækkar ávöxtun peninganna þinna um tvö vaxtastig þegar í stað! Útvegsbankinn auðveldar þér leiðinatil sparn- aðar með sérstakri Spariábót. Þú leggur minnst 5000 krónur mánaðarlega inn á Ábótar- reikning og við hækkum Ábótina strax upp um tvö vaxtastig. ^ábót Þekking okkar og þjónusta hefur byggt grunn- inn að Ábótarreikningi Útvegsbankans. Það er ef til vill full mikið að líkja Ábótinni við veraldar- undrin sjö. En eitt eiga pýramídarnir og Ábótin sameiginlegt: Þau hafa staðist tímans tönn. ÚO ag, Útvegsbanki Islands hf Þar sem þekking og þjónusta fara saman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.