Morgunblaðið - 02.03.1989, Page 52

Morgunblaðið - 02.03.1989, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1989 mmmn ________________€)19fl7 Unlvrxl Pw» Syndtoaf ‘Viiiru gleyrruO' tönjfum e&x. einlrwerju ihní l Hef pörf fyrir peningarux.-" \ Þú ert liklega tæplega vaknaður? Ég myndi bjóða þér inn heima, en dymar eru bara ekki nógu breiðar... Þessir hringdu .. Lífeyrissjóður húsmæðra Hólmfríður Sólveig Jónsdóttir hringdi: Á íjárlögum þessa árs eru stórar fjárhæðir í framlög til lífeyrissjóðs bænda og hefur ríkisvaldið þannig viðurkennt sérstöðu bænda í lífeyr- issjóðakerfinu, en engin framlög er þar að finna til lífeyrissjóðs hús- mæðra. Það hlýtur að vera tíma- bært að taka málin um lífeyris- greiðslur til gagngerrar athugunar. Það er hvort eð er ríkissjóður sem er greiðsluaðili að öllum helstu lífeyrissjóðunum. Það er ömurlegt að hugsa til þess að húsmæður sem hafa ef til vill verið giftar í 40 ár eða meira og alið upp mörg böm eigi engan rétt á lífeyri. Ef eiginmaðurinn deyr á undan, sem oft ber við vegna þess að menn voru of fátækir í gamla daga til að gifta sig ungir, þá verður ekkjan oft að hrökklast úr húsinu þeirra. Engu máli skiptir þó að hún hrökkvi upp af. Mér finnst að konan eigi skilyrð- islaust eins mikið í lífeyri mannsins og hann sjálfur og allan rétt á óskertum lífeyri hans á meðan hún lifir, að minnsta kosti upp að 70 eða 80.000 krónum á mánuði. Það er að verða alltof mikið misrétti í lífeyrisgreiðslum þeirra sem nú eru í þann veginn að hætta störfum. Sumir geta fyrirhafnarlaust rakað að sér mörg hundruð þúsundum á mánuði, en aðrir fá ekki neitt. Fólk utan af landi fer verst útúr þessu. Þar voru engir lífeyrissjóðir til og enga menntun að fá. Sérstaklega eru konur utan af landi illa settar að þessu leyti. Erlendis láta félagasamtök eldri borgara mikið að sér kveða um velferðarmál þeirra eldri og er full þörf á að gera það einnig hér þeg- ar gamalt fólk er þrúgað með skött- um fram í dauðann og fær ekki einu sinni frið til að búa í íbúðunum sínum fyrir skattpíningu. Húsmæður sem nú eru að kom- ast á eftirlaunaaldur hafa margar tekið ómældan þátt í uppeldi bama- bamanna svo að bömin þeirra gætu lokið námi og féllu ekki í sömu gryfju menntunarskorts og þær. Og nú em þær önnum kafnar við að hjúkra gömlu mönnunum sínum svo þeir þurfi ekki að fara á sjúkrahús eða elliheimili. Störf húsmæðra em ekki síður þjóðhagslega mikils virði en ann- arra. Þau hafa bara ekki ennþá verið metin í peningum. Það má ekki dragast lengur ef nokkur kona á í framtíðinni að fást til að vera húsmóðir. Alþingismenn, karlar jafnt sem konur, ættu að sjá sóma sinn í því að koma því réttlætis- máli f höfn sem lífeyrissjóður hús- mæðra er. Það þolir enga bið. Kringlunni, líklega í matvömversl- un Hagkaups. Finnandi vinsamleg- ast hringi í síma 25307. Maja hringdi: Ég týndi úrinu mínu í JL-húsinu eða þar fyrir utan á leið minni að Framnesvegi sl. laugardag. Þetta er gyllt Pierpont-úr með svartri leðuról. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 626443. Vísa Sveitamaður hringdi: Góðir landar, okkur er ærinn vandi á höndum, ef á að blanda bjórinn hér, í böli fjandans stöndum. Lyklar fundust Góð þjónusta Hanna hringdi: Lyklar fundust síðastliðinn laug- ardag á göngustíg milli Háaleitis- brautar og Safamýrar. Uppiýsingar f sfma 82692. Kona í Hafnarfirði hringdi: Ég vil koma á framfæri þakk- læti mínu til húsgagnaverslunar- innar Dúx. Ég hringdi og kvartaði yfir því að teinamir í dýnunni minni væm famir að ganga upp og stinga mig. Mér fannst þetta slæm ending eftir tæpa fimm ára notkun. Vin- gjamleg karlmannsrödd svaraði og sagði að þetta væri ekkert mál, hann skyldi taka gömlu dýnuna og láta mig hafa nýja í staðinn, mér að kostnaðarlausu. Daginn eftir kom nýja dýnan. Þetta kalla ég frábæra þjónustu og óska húsgagnaversluninni Dúx góðs gengis í framtfðinni. Bestu þakkir fyrir fljóta og góða fyrir- greiðslu. Kanína tapaðist Gottskálk hringdi: og sagðist hafa tapað kanfnunni sinni frá Bollagörðum 55 á Seltjamamesi. Hann biður fólk að huga kringum hús sín í nágrenninu en hún er grá á litinn og grönn. Ef einhver hefur orðið var við kanfnuna vinsamleg- ast hringið í síma 629879. Herðasjal Gleraugu fundust Gleraugu fundust fyrir utan Hafnarbúðir þann 10 febrúar síðastliðinn. Þau em í gylltri um- gerð og glerin em þykk. Linsa í öðm glerinu er tvískipt. Gleraugn- anna er hægt að vitja hjá ritara í Hafnarbúðum. Kona í Breiðagerði hringdi: Herðasjal, rústrautt með glit- þræði, tapaðist laugardaginn 18. febrúar, sennilega í Breiðagerði eða á leið þaðan í samkomuhús bátafé- lagsins Snarfara. Vinsamlegast skilist gegn fundarlaunum. Upplýs- ingar í síma 34535. Bjórínn og börnin Fríða hringdi: Ég týndi armbandsúrinu mínu í Móðir hringdi: Mig langar til að vekja athygli á því hvaða áhrif bjómmræðan hefur haft. Ég á 10 ára gamalt bam, sem hélt að frí væri gefið í skólanum 1. mars af því þetta væri svo mikill dagur að kennar- amir þyrftu að halda upp á hann með bjórdrykkju. i i Víkveiji skrifar Iviðtalsþætti á Stöð 2 fyrir nokkm ræddi Jón Óttar Ragnarsson við þijá menn, sem fæddir em erlendis, en búsettir hér á landi. Víða var komið við, en þar kom sögu að sjón- varpsstjórinn spurði gesti sína hvaða breytingar þeir vildu helzt sjá á íslenzku þjóðfélagi. Frakkinn í hópn- um orðaði svar sitt eitthvað á þá leið, að hann vildi helzt ekki sjá nein- ar breytingar. Nóg væri komið af slíku og ef svo héldi sem horfði yrði ísland eins og hvert annað Evrópu- land. íslendingar ættu að halda í sérkenni sín og fannst Víkveija þetta orð í tíma töluð. Ekki þannig að við hættum að fylgjast með þróuninni, heldur að við gleypum ekki hvaða vitleysu sem er hráa og hugsunar- laust. atvinnureksturs, til dæmis til fólks- flutninga. armanna, þar sem em, samkvæmt Hagtíðindum, 79 karlar en aðeins 10 konur, og utan trúfélaga, en þar em 1.908 karlar á móti 1.427 konum. Adögunum var frétt í Morgun- blaðinu um aukið verðlagseftir- lit með einkaleyfishöfum og var vitn- að í samgönguráðherra. Lesandi hafði samband vegna þessa og fannst ankannalegt að samgönguráðherra væri að skipta sér af einkaleyfum. Ef á slíku þyrfti að halda hlyti það að vera á verksviði iðnaðarráðherra. Þama hafði eitthvað skolast til og í umræddri frétt var greinilega átt við sérleyfishafa. Samkvæmt orðabók Menningarsjóðs felst í orðinu einka- leyfi einkaréttur til að framleiða (selja) eitthvað. Sérleyfi felur hins vegar í sér leyfí veitt einhveijum til Margvíslegan fróðleik er að finna í Hagtíðindum, sem Hagstofan gefur út og vart að finna í öðm riti íslenzku eins mikið af tölulegum upplýsingum. í nýlegu eintaki af Hagtíðindum er t.d. tafla sem sýnir fjölda í hinum ýmsu trúfélögum hér á landi 1. desember síðastliðinn. 234 þúsund em í þjóðkirkjunni og hefur fjölgað jafnt og þétt. I Fríkirkjusöfnuðum vom samtals 8.609 einstaklingar, en fækkun varð í tveimur fríkirkjusöfnuðanna á liðnu ári. í Fríkirkjunni í Reykjavík vom 1. desember síðastliðinn 5.584 ein- staklingar eða 200 færri en 12 mán- uðum fyrr. í Óháða söfnuðinum var 1.091 eða 10 færri en árið á undan. í Fríkirkjunni í Hafnarfirði ijölgaði hins vegar um 29 manns á árinu, 1. desember vora 1.934 í söfnuðin- um. í kaþólsku kirkjunni fjölgaði á árinu um 371 einstakling. Nokkur flölgun varð einnig í Söfnuði aðvent- ista, Hvítasunnusöfnuðinum, Sjónar- hæðarsöfnuðinum, Vottum Jehóva, Baháisamfélaginu, Ásatrúarfélag- inu, Krossinum, Söfnuði mormóna og í hópi þeirra sem era utan trúfé- laga. Sömu sögu er að segja um þá sem em í öðmm trúfélögum eða ótil- greindir. Yfirleitt er svipaður fjöldi karla og kvenna í söfnuðum þessum og trúfélögum, nema meðal ásatrú- XXX Mikill var sigur handboltamann- anna í B-keppninni í Frakk- landi og sömuleiðis sigur ríkissjón- varpsins í keppninni um áhorfendur á sunnudaginn. Meira en fjórir af hveijum fimm aðspurðra sögðust hafa horft á leikinn og ef ekki hefði komið til rafinagnsleysi á norðan- verðu landinu hefði þessi tala orðið hærri. Þá sagði einhver Víkveija dagsins að böm og unglingar innan 16 ára væm ekki tekin með í könnun sem þessari og hefði þessi aldurs- hópur trúlega lyft tölunni enn. Það er ekki á hveijum degi sem menn ná á svo rækilegan hátt til flestallra landsmanna og ábyggilega ekki of- mælt þó fullyrt sé að handboltastrák- amir hafi lyft geði landsmanna þess- ar síðustu skammdegisvikur. Þegar vel gengur ná fremstu íþróttamenn að vekja þjóðarstoltið á eftirminni- legan hátt. Lokaorð þessa Víkveijapistils em sótt í forystugrein Morgunblaðsins síðastliðinn þriðjudag. „Það var stolt þjóð sem horfði á lið sitt undir sigur- boga heimsborgarinnar á sunnudag- inn. Hún fann sig í þakkarskuld við þá sem gerðu garðinn svo frægan. Megi sú tilfinning vara lengur en augnablikið. Afborganir af þakkar- skuld falla ekki sízt þegar syrtir í álinn." i i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.