Morgunblaðið - 04.03.1989, Side 1
48 SIÐUR B OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
53. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 4. MARZ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Khamenei íransforseti:
Hótar dauða öllum
sem vanvirða íslam
Níkósíu, Stokkhólmi, London. Reuter.
FORSETI írans sagði í gær, að hér eftir vofði dauðadómur yfir
hveijum þeim, sem réðist gegn íslamskri trú, og vísaði jafhframt á
bug sáttatilraunum breskra stjórnvalda. Sænska akademían, sem
úthlutar Nóbelsverðlaununum í bókmenntum, hefiir ályktað um tján-
ingarfrelsið en þó án þess að nefiia írani á nafii.
Ali Khamenei íransforseti sagði
á fundi í Teheran í gær, að hér
eftir myndu múslimar um allan
heim sækjast eftir lífi þeirra, sem
níddu íslam með einum eða öðrum
hætti. Þá vísaði hann á bug augljós-
um sáttatilraunum Breta, þeim orð-
um Sir Geoffreys Howes, að vissu-
lega væri bókin „Söngvar Satans“
móðgandi fyrir múslima, og sagði,
að breska stjómin yrði að gefast
upp í þessu máli.
Sænska akademían hélt f fyrra-
dag sinn lengsta fund í 20 ár og
samþykkti að lokum með almennum
orðum að harma allar atlögur að
tjáningarfrelsinu. íranir eða Sal-
man Rushdie voru þó ekki nefndir
á nafn. Sagði ennfremur, að það
væri stefna akademíunnar að
blanda sér ekki í deilur, sem tengd-
ust pólitík að einhveiju leyti. Að
fundinum loknum læddust þeir 18
menn, sem sitja í akademíunni, út
um bakdyr til að forðast frétta-
mannaskarann við framdymar.
Svíunum
líkaði
selaglásin
Óaló. Reuter.
NORÐMENN hafa komið fram
hefiidum fyrir afskipti Karls
Gústafs Svíakonungs af selveið-
um þeirra, en hann fordæmdi
þær við litlar vinsældir norskra
Á fímmtudag hélt norska sendi-
ráðið í Stokkhólmi sænskum ráð-
herrum og öðmm fyrirmennum
veizlu. Meðal rétta var selaglás og
herma heimildir að flestallir sænsku
gestanna hafi bragðað á henni og
líkað vel. Við skálina var spjald sem
gaf til kynna hvað í henni væri.
Stóð þar að Norðmenn nýttu allt
selkjöt, engu væri kastað.
íranir hafa hótað að slíta stjóm-
málasambandi við Bretland 7. mars
verði þá ekki búið að banna bókina
þar en breska stjómin hefur nú
þegar kallað heim alla sendimenn
sína í Teheran. Flest önnur VeStur-
Evrópuríki hafa kvatt heim sjálfa
sendiherrana og frönsk stjómvöld
hafa beðið olíufélög um að minnka
kaup á íranskri olíu.
Norðurlandaráð:
Næsta þing
í Reykja-
vík að ári
37. þingi Norðurlandaráðs í
Stokkhólmi lauk í gær. Það var
Ólafur G. Einarsson, formaðu ■
íslcnzku sendinefiidarinnar og
annar fulltrúi íslands í forsætis-
nefnd ráðsins, sem sleit þinginu.
Ólafiir bauð til næsta þings ráðs-
ins í Reykjavík að ári fyrir hönd
íslenzku sendinefndarinnar.
Fjöldi mála var afgreiddur á
þinginu, en þar bar að venju hæst
tillögur ráðherranefndar Norður-
landaráðs. Þar á meðal er efna-
hagsáætlun Norðurlanda 1989-
1992, sem miðar að því að sam-
ræma efnahagslíf Norðurlanda nýj-
um aðstæðum í Evrópu.
Tillögur ráðherranefndarinnar
um áætlanir um samstarf í orku-
málum, fiskveiðimálum, neytenda-
málum og ferðamálum hlutu sam-
þykki á þinginu. Ákveðið var að
heija norræna jafnréttisáætlun til
fímm ára. Þá náðist samkomulag
um að samræma þjóðskrár Norður-
landanna, þannig að einfaldara og
þægilegra verði fyrir norræna ríkis-
borgara að flytjast milli Norður-
landanna.
Sjá frétt á bls. 17.
Leiddur til slátrunar
Reuter
Hvern föstudagsmorgun er haldið úlfaldauppboð í Kaíró i Egypt-
alandi. Þarna er þó ekki um að ræða tígulega reiðskjóta heldur
dýr sem ákveðið hefiir verið að slátra. Úlfaldarekar koma frá
Egyptalandi sjálfii og alla leið sunnan úr Súdan með dýr á mark-
aðinn. Á myndinni sjáum við eitt þeirra leitt til slátrunar.
AtökíCaracas
Reuter
Enn er ókyrrt í Caracas, höfuðborg Venezúela,
en undanfarna daga hafa a.m.k. 150 manns týnt
lífi í átökum almennings og herliðs i landinu.
Fólkið mótmælti harkalegum efiiahagsaðgerð-
um ríkisstjórnarinnar sem beindust einkum að
því að lækka niðurgreiðslur á ýmsum nauðsynja-
vörum. Stjórnvöld létu undan síga en í gær til-
kynnti forseti landsins að rikið hefði hætt að
greiða af erlendum skuldum um óakveðinn tíma.
Á myndinni sjást alvopnaðir hermenn í Caracas
en veggjakrotinu í baksýn er beint gegn efiia-
hagsaðgerðunum.
Sjá ennfremur bls.18: Hætta að greiða..."
Borgarastríðið í Eþíópíu:
Stjórnarherlið yfir-
gefur borgir í Tigray
Dessie, Eþíópíu. Daily Telegraph.
MARXISTASTJÓRN Mengistu í Eþiópíu hefur dregið her sinn á
brott frá mikilvægri virkisborg, Mekele, i Tigray-héraði i norður-
hluta landsins. Skyndileg brottför herliðsins var fyrirskipuð af æðstu
yfirvöldum í höfuðborginni, Addis Abeba, og er talið að hún geti
verið fyrirboði umskipta í borgarastriðinu sem geisað hefiir á þess-
um slóðum um 14 ára skeið. Þetta er í annað skipti á tveim mánuð-
um sem stjórnarherinn gefur upp á bátinn mikilvæga borg í héraðinu.
Vestrænir stjórnmálaskýrendur
telja mögulegt að Mengistu ráðgeri
nú að hefja viðræður við Frelsis-
hreyfingu Tigray-búa og sömuleiðis
Frelsishreyfingu Eritreumanna sem
beijast gegn marxistastjóminni
norðar í landinu.
Fyrstu vörubílamir komu hlaðnir
hermönnum og konum ásamt. far-
angri til Dessie, höfuðstaðar Wollo-
héraðs, frá Mekele síðastliðinn
þriðjudag. Sjónarvottar sögðu að
lögreglumenn hefðu vísað embætt-
ismönnum á sérstök íbúðarhverfí í
borginni. Sovésk-smíðaðar, bryn-
varðar þyrlur sjást fljúga til og frá
flugvelli við bæ í nágrenninu þar
sem hermenn hafa komið fýrir
þungum fallbyssum. Talsmenn
skæruliða segja að Mekele hafí fall-
ið bardagalaust í hendur þeirra eft-
ir brottför stjómarliðsins, 10-20
þúsund manns, en eru þó ekki sann-
færðir um að þeim takist að halda
yfirráðum þar. Heimildarmenn
segja að stjómarhermenn hafi eyði-
lagt vatns- og orkuveitustöðvar
áður en þeir yfirgáfu borgina.
Erlendir stjómarerindrekar telja
mögulegt að marxistastjómin sé
undir þrýstingi af hálfu Sovét-
manna um að binda enda á átökin
við skæruliðahreyfingamar. Sovét-
menn hafa séð stjóminni fyrir vopn-
um og kostað til þess óhemju fé.
Mengistu forseti hefur af þrákelkni
haldið fast við þá stefnu sína að
skæruliðum skuli komið á kné með
hervaldi.
Búist er við metuppskeru í
landinu á þessu ári en vegna
stríðsins og mistaka stjómvalda
getur þjóðin samt ekki brauðfætt
sig. Árin 1984-1985 fórst milljón
Eþíópíumanna af völdum hungurs-
neyðar og enn er fjöldi fólks mat-
arlítill og þjakaður af hörgulsjúk-
dómum.
Sauðkindin:
Greindari en talið var
Daily Telegraph.
VÍSINDAMENN þjá Rannsókn-
arstofiiun landbúnaðar og mat-
væla i Bretlandi kanna nú and-
legt atgervi sauðkindarinnar
og er markmiðið að finna leiðir
til að auka vellíðan skepnunn-
ar. Niðurstöðumar ge& til
kynna að kindur séu ekki eins
sauðheimskar og áður var talið.
Reynt er að komast að því hvers
konar umhverfi skepnunum líki
best við. „Við gefum skepnunum
færi á að greiða atkvæði með fót-
unum eða snoppunni," sagði
stjómandi rannsóknanna, Dr.
Barry Cross.
Greindar hafa verið sérstakar
heilafrumur sem annast viðbrögð
við tvífætlingum og aðrar sem
bregðast við homum. Kindur virð-
ast tengja homastærðina við völd
og kynorku. Aðrar frumur sjá um
að geyma minningai- um aðrar
kindur og loks má néfna fmmur
er greina rándýr frá öðmm dýr-
um. „Það kom okkur á óvart að
kindur virðast ekki greina á milli
manna og hunda." Cross bætti
því við að greindarpróf sýndu að
kindur væm fljótar að læra.