Morgunblaðið - 09.03.1989, Page 51

Morgunblaðið - 09.03.1989, Page 51
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1989 51 HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Bikarinn innan seilingar VALSMENN juku enn á forskot sitt í gærkvöldi þegar þeir lögðu Stjörnuna að velli að Hlíðarenda með 26 mörkum gegn 18. HiðknáaliðVals- manna hefur enn ekki tapað leik í mótinu og hefur átta stiga forystu á KR-inga sem hafa að vísu leikið tveimur leikjum færra. að voru Stjömumenn sem leiddu framan af leiknum, eða allt þar til á 18. mínútu að Vals- menn komust 5:4 yfir. Eftir það var jafnt á öllum tölum SkúliUnnar fram að leikhléi en Sveinsson Valsarar voru ætíð sknfar fyrri til að skora. í síðari hálfleik jókst munurinn síðan smátt og smátt og nokkuð öruggur sigur Vals var staðreynd. Stjömumenn veittu þeim þó verðuga keppni lengst af og góður leikur beggja liða gerðu þennan leik skemmtilegan fyrir áhorfendur. Brynjar Kvaran átti stórleik í marki Stjömunnar í fyrri hálfleik og varði þá 12 skot, þar af eitt víti, en hönum gekk ekki eins vel í síðari hálfleik. Vöm Garðbæinga var geysisterk lengst af en í sókninni voru þeir sérstaklega óheppnir með skot því mörg þeirra lentu í mark- stöngunum. Sigurður Bjamason lék einnig vel. Ungur og efnilegur strákur sem er alsendis ófeiminn við mótherjana og fullur sjálfstrausts. Axel hélt Valdimar algjörlega niðri í fyrri hálfleiknum og Skúli lék einnig vel í vöminni. Hjá Val átti Jón mjög góðan leik. Hann naut sín vel eftir að hann tók við af Júlíusi í sókninni og einnig sem leikstjómandi, en það er hans venjulega staða. Geir var lunkinn á línunni og Valdimar var sprækur í síðari hálfleik. ÍpfémR FOLK ■ FJÓRIR leikmenn Magde- burg, sem mæta Valsmönnum í Evrópukeppni meistaraliða í hand- knattleik á sunnudaginn, léku gegn íslendingum á Ólympíuleikunum í Seoul - í hinum fjöruga leik þar, sem A-Þjóðveijar tryggðu sér far- seðilinn til HM í Tékkóslóvakiu, eftir vítakastkeppni. Það em Wie- land Schmidt, markvörðurinn sterki, sem hefur leikið 279 lands- leiki, skyttan Peter Pysall (156), Jens Fiedler og Holger Winsel- mann. ■ INGOLF Wiegert, landsliðs- maðurinn kunni, hefur verið fyrir- liði Magdeburg. Wiegert, sem hefur leikið 225 landsleiki, hefur átt við meiðsli að stríða. ■ Wieland Schmidt ákvað að hætta að leika með landsliði A-Þýskalands eftir ÓL. Magde- burg er með annað landsliðsmark- vörð - Gunnar Schimrock, sem hefur leikið 43 landsleiki. Schmidt varði sextán skot gegn íslending- um á ÓL. ■ KLAUS Miesner, þjálfari Magdeburg í 21 ár, dó úr hjarta- slag 11. febrúar sl.'Miesner, sem tók við þjálfun liðsins 1968, var 53 árá þegar hann dó. Aðstoðarmaður hans Hartmunt Krliger, fyrrum homamaður liðsins og landsliðsins, tók við þjálfuninni ásamt Wieland Schmidt, sem hefur leikið minna með Magdeburg en oft áður, vegna veikind. ■ MAGDEBURG hefur verið meistari í A-Þýskalandi sjö sinnum síðan 1980. Fyrst sex ár í röð, 1980-1985 og síðast 1988. Morgunblaðið/Júllus Sigurjónsson Haföu þettal Skúli Gunnsteinsson virðist hér gefa Sigurði Sveinssyni einn á’ann í leiknum í gær. Vöm Stjömunnar var fost fyrir, en gaf eftir þegar liða tók á leikinn og Garðbæingar urðu að sætta sig við tap. UBK-Fram 18 : 23 íþróttahúsið Digranesi, íslandsmótið í handknattleik — 1. deild karla, mið- vikudaginn 8. mars 1989. Gangur leiksins: 0:4, 1:4, 1:7, 8:7, 5:11, 6:14, 8:16, 11:19, 15:21, 18:23. UBK: Þórður Davíðsson 5/1, Hans Guðmundsson 4/1, Pétur Ármannsson 3, Kristján Halldórsson 2, Andrés Magnússon 2, Sveinn Bragason 1, Ólafur Bjömsson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 11/1, Þórir Siggeirsson 2. Utan vallar: 8 mínútur og eitt rautt spjald. Fram: Birgir Sigurðsson 8/1, Tryggvi Tryggvason 6, Agnar Sigurðsson 4, Gunnar Andrésson 3, Egill Jóhannes- son 2, Dagur Jónasson 1. Varin skot: Jens Einarsson 20/3. Utan vallar: 4 mínútur. Áhorfendur: 100. Dómarar: óli ólsen og Einar Sveins- son. Dæmdu miður vel. Blikar fallnir? ÞAÐ var glæsileg markvarsla Jens Einarssonar sem ööru fremur skóp öruggan sigur Fram á Breiðbliki f gærkvöldi. - Jens varði 20 skot þar af 3 víti og Framarar sigruðu 23:18. Þar með er Breiðablik svo gott sem fallið í 2. deild. Leikur liðanna þróaðist mjög sérkennilega því þegar liðnar voru 24 mínútur af leiknum var staðan 7:1 fyrir Fram og höfðu BHHHH Blikar hvorki fundið KristinnJens glufu á vöminni né Sigurþórsson hjá nafna mínum í skritar markj pYam. í seinni hálfieik höfðu Framarar Iengst af átta marka forystu og það var ekki fyrr en í lokin að Blikar minnkuðu mun- inn í fímm mörk. Framarar skomðu reyndar einu marki fleira en lokatölumar segja til um. Því Dagur Jónasson skoraði svo greinilega eftir gegnumbrot, en boltinn fór í gegnum gat á netinu og afturfyrir. Þrátt fyrir athugun dómaranna á þessu atviki fundu þeir ekki gatið, og það var ekki fyrr en nokkra strákpolla dreif að eftir leikinn, að gatið á netinu fannst. í raun og vem var því um alvarleg dómaramistök að ræða og heppilegt að leikurinn var ekki hníflafn; eða skomðu Blikar kannski tíu sinnum í fyrri hálfleik án þess að nokkur tæki eftir? LYFJANOTKUN / YFIRHEYRSLURNAR í KANADA Johnson ómeðvitadur um afleidingamar? LÖGFRÆÐINGUR Bens Jo- hnsons hélt því fram i gær, á sjötti degi yfirheyrslna yfir þjálfara hlauparans í Kanada, að Johnson væri ekki fær um að skilja hvaða afleiðingar notkun steralyfja gæti haft á hann. Edward Futerman, lög- fræðingur hlauparans, yfir- heyrði þjálfarann Charlie Francis í gær og var ómyrkur ímáli. Francis sagðist hafa verið sannfærður um að Ben Jo- hnson vissi nákvæmlega hvað um væri að vera. Aður hefur þjálfar- inn lýst því yfir, eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu að Johnson hafí bytjað ólöglega ly- flaneyslu árið 1981; einnig að honum hafí verið gefín vaxtar- hormón og steralyf aðeins þremur vikum fyrir Ólympíuleikana (Seo- ul í fyrra - þar sem hann féll á lyfjaprófi. Mannorð í veði nÉg var sannfærður um að Johnson skyldi mætavel þau fyrir- mæli sem hann fékk. Að hann vissi hvenær hann mátti taka lyf- in og hve lángt hlé yrði að vera á notkun þeirra til að hann félli ekki á lyfjaprófum. Hann vissi að mannorð mitt, eins og hans, var í veði [ef upp kæmist um lyfja- notkuninaj". Lögfræðingurinn hótaði því að kalla til vitni sem hefðu þveröfuga sögu að segja af Johnson. Hann spurði Francis hvemig Johnson hefði virkað á hann er þeir hittust fyrst, er hlauparinn var 15 ára. „Kom hann vel fyrir?“ Francis svaraði: „Hann var n\jög viðkunn- anlegur. Hann var ákaflega feim- inn og var málhaltur," og vitnaði til þess að Johnson stamar, og hefur gert frá bamæsku. Grelndur? Francis sagðist hafa rætt við kennara og skólastjóra ( skóla þeim fyrir afskipt böm, sem Jo- hnson var í, til að forvitnast um möguleika drengsins. „Ég hafði á tilfinningunni að Ben væri greind- ur og ætti skilið að koma sér áfram í lífinu." Lögfræðingnum varð tíðrætt um samband Francis við Johnson, þar sem þjálfarinn hefði verið í nánari tengslum við hann en nokkur annar fullorðinn maður. „Sástu einhvem tíma skól- askírteini hans? Sástu einhvem tíma niðurstöður úr sálfræðipróf- um hans? Aðstoðaðirðu hann ein- hvem tíma við heimaverkefni?“ Francis svaraði þessum spuming- um neitandi. „Var Ben góður nemandi," spurði þá lögfræðing- urinn. „Nei, það var hann ekki. En ég taldi þó að hann hefði hæfíleika til að koma sér áfram (lífinu á öðrum sviðum en i íþrótt- um,“ svaraði Francis. Johnson, sem var settur i tveggja ára bann frá alþjóðlegri keppni eftir ly^ahneykslið í Seo- ul, kemur fyrir rannsóknamefnd- ina síðar, en ekki er ákveðið hve- nær það verður. Hlauparinn, sem fæddur er á Jamaíka, er 27 ára. Hann hefur aðeins einu sinni tjáð sig opinberlega um sín mál eftir að hann féll á lyfjaprófinu. í yfír- lýsingu sem lögfræðingur hans, Futerman, gaf út í október, sagði Johnson: „Eg, Ben Johnson, hef aldrei nokkum tima, svo ég viti, tekið ólögleg lyf.“ HefM unnið... Þjálfarinn Francis hefur sagt við yfirheyrslumar að anabólskir sterar hafí vissulega átt þátt í árangri Johnsons, en einnig hjá keppinautum hans. „Ég hef trú á að Ben hefði unnið [hlaupið í Seo- ul] með sama mun ef enginn kepp- endanna hefði neytt lyfja. Hann er besti spretthlaupari állra tima,“ sagði þjálfarinn. Valur-Stjaman 26 : 18 fþróttahúslA að Hlfðarenda, is- landamótlð f handknattlelk, miA- vikudaglnn 8. mars 1989. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 5:4, 6:6, 7:7, 8:8, 10:9, 14:10, 16:12, 19:16, 24:16, 26:18. MSrk Vals: Jón Kristjánsson 9/1, Valdimar Grímsson 4, Jakob Sigurðs- son 8, Júlfus Jónasson 3, Sigurður Sveinsson 3/1, Geir Sveinsson 2, The- odór Guðfinnsson 2, Gfsli Óskarsson, Þorbjöm Jensson, Sigurður Sævarsson. Varin skot: Páll Guðnason 9/1, Ólafur Benediktsson. Utan vallan 2 mínútur. Mörk Stjörnimnar: Gylfi Birgisson 7, Sigurður Bjamason 6, Skúli Gunn- steinsson 2, Einar Einarsson 1, Haf- steinn Bragason 1, Hilmar Hjaltason 1, Magnús Eggertsson, Sigurjón Bjamason, Þóroddur Ottesen, Axel Bjömsson. Varin skot: Brynjar Kvaran: 16/1, Halldór Kjartansson. Utan vallar: 12 mfnútur. Áhorfendur: 253. Dómarar. Ámi Sverrisson og Egill Már Markússon og vom þeir ekki áber- andi traustvekjandi. Brynjar Kvaran Stjörnunni. Jón Kristjánsson Val. Jens Einarsson Fram. Geir Sveinsson Val. Sigurður Bjarnason Stjörnunni. Birgir Sigurðsson Fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.