Morgunblaðið - 10.03.1989, Side 21

Morgunblaðið - 10.03.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1989 21 > Reuter 33 bíla árekstur Pjórir manns létust og að minnsta kosti tólf slösuðust í miklu um- ferðaróhappi á M6-hraðbrautinni nálægt Cheshire á Englandi í gær. Alls lentu 33 bílar og vöruflutninga vágnar í slysinu. Hraðbrautin var lokuð fyrir allri umferð í nokkra tíma meðan björgunarstarf fór fram. Danmörk: Sést dað sem |m prentar út? HAFIÐ SAMBAND VIÐ KRISTJÁN DANÍELSSON, VEITINGASTJÓRA, SEM VEITIR ALLAR NÁNARIUPPLÝSINGAR. Innflytj en durnir að verða ríki í ríkinu? f einu úthverfa Árósa hljómar danskan eins o g ókunn tunga f Gjellerup-hverfi í Árósum í Danmörku lætur danskan í eyrum eins og framandi tunga. Við sumar göturnar eru Danir í minnihluta og í sumum bekkjardeildum í hverfisskólanum eru allt að 80% nemend- anna innflyljendur. Á leikskólum, vöggustofum og tómstundaheimil- um í Gjellerup er ástandið þannig, að danskir foreldrar hafa hótað að fara með bömin sín annað verði ekki settar takmarkanir við Qölda útlendu barnanna. Hverfið er að verða að „gettói“, að fyllast af Tyrkjum og öðm fólki frá þriðjaheimsríkjum, sem leitar á náðir dönsku veiferðarinnar. Var um þetta fjallað í danska blaðinu Det Frí Aktuelt sl. þriðjudag. „Við erum á góðri leið með að verða að eins konar „ruslakistu". Hér verða aðeins eftir Tyrkir og þeir, sem eiga undir högg að sækja í lífinu. Tyrknesku fjölskyldumar eru yfirleitt bammargar og tekju- lágar og reglum samkvæmt ganga þær því fyrir um húsnæði," segir Torben Overgaard, formaður í íbúa- samtökum í Gjellerup í viðtali við Det Fri Aktuelt. Overgaard segir ennfremur, að Tyrkimir séu eins og ríki í ríkinu. Þeir haldi hópinn og hafi lítil sam- skipti við Dani enda fáir talandi á dönsku. í sumum götum hafa kjall- arar verið innréttaðir sem moskur þar sem verið er við bænahald fimm sinnum á dag og Tyrkimir leggja áherslu á, að þeir vilji að vísu aðlag- ast lífínu í Danmörku en ekki breyt- ast í Dani. Innfæddir Danir, sem eiga þess kost, flýja burt frá Gjellerup hver sem betur getur en þeir, sem eftir em, hafa krafist þess, að á barna- heimilum, vöggustofum og tóm- stundaheimilum megi útlendu böm- in ekki vera fleiri en 50%. Að öðmm kosti segjast þeir munu fara með bömin sín annað, í skóla þar sem danska er töluð. Á mörgum stofn- unum er komið að þessum mörkum og í mörgum yngstu bekkjardeild- anna í Nordgárds-skólanum em innflytjendabömin allt að 80%. Láti dönsku foreldrarnir verða af því að flytja bömin sín munu tyrknesk böm koma í staðinn og þá fer að styttast ní að myndin verði fullkom- in: Tyrkneskt þjóðarbrot í Dan- mörku. Reuter Lítið lát er á innflytjendastraumnum til Danmerkur og afleiðingarn- ar eru þær, að sum borgarhverfi í Danmörku eru orðin eins og annar og framandi heimur fyrir hina innfæddu. ARMOR LETURBORBAR í hasta gæðaflokki leysa öli útskriftarmál. Betia verö og fliót afgreiðsla! Gerðu pöntun stiai! Agnar K. flreinsson H., simi 16382, Hafnarhúsi, pðsthólf 656,121 Reyhiavíh. BRAUTARHOLTI 20 • SÍMAR 29099 OG 23335 Kína: Míklar virkj unarfram- kvæmdir samþykktar Peking. Reuter. FLEST bendir til þess að reist verði stór stifla á Yantze-fljóti í Kina og gætu framkvæmdimar orðið til þess að rúm milljón manna yrði að flytja búferlum frá virkjunarsvæðinu. Nefiid 500 sérfræðinga hefiir lagt blessun sina yfir framkvæmdimar eftir 32 mánaða rannsóknir, þrátt fyrir mótmæli ýmissa annarra sérfræðinga. Áætlað er að það taki 18 ár að reisa stífluna og að kostnaður- inn nemi 36,11 milljörðum yuana (490 milljörðum ísl. kr.). Talið er. að 1,13 milljónir manna búi á því svæði sem leggjast mun undir vatn. Sérfræðingamir komust að þeirri niðurstöðu að stíflan mjmdi stórauka rafmagnsframleiðsluna og koma í veg fyrir flóð, auk þess sem skip gætu siglt upp til borga við fljótið. VEISLU- 0G RÁÐSTEFNUSALIR - HVERT SEM TILEFNIÐ ER, HVENÆR SÓLARHRINGSINS SEM ER VIÐ BJÓÐUM GLÆSILEGA SALIÞÓRSHALLAR FYRIR HVERSKONAR VEISLUR OG MANNFAGNAÐI, SVO SEM; FERMINGARVEISLUR, BRÚÐKAUPSVEISLUR, AFMÆLISFAGNAÐI, FYRIRTÆKJAKYNNINGAR OG ERFIDRYKKJUR. SALIR OKKAR HENTA EINNIG VEL FYRIR SMÆRRISEM STÆRRIRÁÐSTEFNUR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.