Morgunblaðið - 23.03.1989, Side 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
Stykkishóimur;
Fjárhagsáætlun
bæjarins afgreidd
Stykkishólmi.
Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir þetta ár var samþykkt
við aðra umræðu á bæjarstjórnarfimdi fyrir skömmu. A þessum
bæjarstjómarfundi voru fjölmörg mál til umræðu og afgreiðslu.
Bæjarráð hafði áður þingað um málin og lagt tíl hvemig rétt væri
að standa að þeim og meðal annars breytt Qárhagsáætlun frá fyrstu
umræðu. Vom málin samþykkt einróma og eins Qárhagsáætlunin
eftir nokkrar umræður.
Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri,
gerði grein fyrir afkomu bæjarins
á sl. ári, í stórum dráttum. Kom
meðal annars fram að tekjuliðir
voru heldur lægri en áætlun og
setti vetrarvertíðin í fyrra og grá-
sleppuvertíðin stórt strik í reikning-
inn. Framkvæmdir voru miklar á
vegum bæjarins á sl. ári og með
tilliti til atvinnu verður reynt að
halda uppi eðlilegri atvinnu og
framkvæmdum á vegum bæjarins
þetta ár. Helstu niðurstöður áætl-
unarinnar eru: Bæjarsjóður, heild-
artekjur 101 millj., þar stærstu lið-
ir útsvör 55 millj. og aðstöðugjöld
13 millj. Af útgjöldum eru helst
fræðslumál 17 millj., Almannatr.
13 millj., leikskóli 6,5 millj., Amt-
bókasafn 4,4 millj., Dvalarheimili 7
millj.
Aætlað er að vinna að nýju
íþróttamiðstöðinni fyrir 20 millj.,
Hafnarsjóður: Tekjur 11 millj., gjöld
Jasshljóm-
leikar á
Húsavík
Húsavík.
LÉTTSVEIT Húsavíkur og söng-
flokkurinn Norðaustan 12
skemmtu í Félagsheimilinu á
Húsavík, laugardagskvöldið 11.
mars sl. með gölbreyttri
skemmtidagskrá, sem stóð í tæpa
3 tíma.
Léttsveitin var stofnuð fyrir
rúmu ári og skipa hana 16 hljóð-
færaleikarar sem starfað hafa af
miklum áhuga undir stjóm Sandy
Miles, tónlistarkennara.
Söngsveitin NA-12 er skipuð 12
söngvurum, hefur starfað undan-
farin 2 ár undir stjóm Line Wemer
og syngur hún fyrst og fremst jass-
tónlist.
Undanfamar vikur hefur verið
hér norskur tónlistarmaður, Philip
Kmse, og haldið námskeið fyrir
þetta hljómlistarfólk. Tónleikamir
tókust vel og sýndu Húsvíkingar
vaxandi áhuga fyrir jasstónlist.
— Fréttaritari.
10 millj. Ákveðið er að vinna að
hafnarbótum fyrir 40 millj. Velta
vatnsveitu, Dvalarheimilis og ann-
arra stofnana em áætlaðar 35 millj.
Vinna við tjaldstæði, breyting
stækkun, 1 millj.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Frá bæjarsljórnarfundi í Stykkishólmi, frá vinstri: Guðmundur Lárusson, Einar Karlsson, Pétur Ágústs-
son, Sturla Böðvarsson bæjarstjóri, Ellert Kristinsson forseti bæjarsljórnar, Jóhannes Finnur Halldórs-
son bæjarritari, Gunnar Svanlaugsson, Magndís Alexandersdóttir, Kristín Björnsdóttir.
Færeyskir tónlistarmenn í heimsókn:
Tónleikar í Lang-
holtskirkju á morgun
Reykjavíkurborg efnir til tónleikahalds í Langholtskirkju á
skírdag, fímmtudaginn 23. marz, kl. 20.30, í tengslum við opinbera
heimsókn borgarstjórnar Þórshafriar í Færeyjum til Reykjavíkur. Á
tónleikunum flytja um 70 færeyskir tónlistarmenn söngverkið „Jesús
og maðurinn frá Makedóníu" eftir Pauli í Sandagerði og Sigmund
Paulsen. Öllum er heimill ókeypis aðgangur að tónleikunum meðan
húsrúm leyfir.
Morgunblaðið/Ámi Helgason.
Lionessuklúbburinn Harpa, færði sjúkrahúsinu í Stykkishólmi að
gjöf, sjónvarpstæki og var það aflient af formanni klúbbsins Auði
Bárðardóttur.
Lionessur í Stykkishólmi;
Sjúkrahúsinu færð gjöf
Tónverk þetta var fmmflutt í
Þórshöfn á páskum 1984 í tilefni
af afmæli Norræna hússins þar.
Hugmyndina að verkinu átti borg-
arstjórinn í Þórshöfn, Poul Mich-
elsen. Þar eð verkið átti að flytjast
á páskum var ákveðið að byggja
það á píslarsögu Jesú eins og frá
henni er greint í guðspjöllunum fjór-
Stykkishólmi.
Lionessuklúbburinn Harpa í
Stykkishólmi hefir starfað hér í
Stykkishólmi af miklum dugnaði.
Hann telur nú 38 félaga.
í þessum mánuði færði klúbburinn
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi að gjöf
stórt og vandað sjónvarpstæki og
var það afhent af formanni klúbbs-
ins, Auði Bárðardóttur, við veglega
athöfn á sjúkrahúsinu í vikunni fyr-
ir pálmasunnudag, þar sem viðstadd-
ir vom læknar sjúkrahússins og for-
stöðufólk.
Með þessari kveðju til sjúkrahúss-
ins vill Lionessuklúbburinn sýna
þakklæti fyrir þá miklu aðstoð og
hjálp sem sjúkrahúsið hefir verið og
sýnt bæjarbúum og aldrei verður
metið til fulls.
Príorinna og læknar færðu gef-
endum sérstakar þakkir um leið og
þau báðu Lionsamtökunum allrar
blessunar, en starf Lions hér í bæ
hefir mótast af því að viðurkenna
og þakka það líknarstarf sem syst-
urnar vinna hérí bæ, ekki einungis
við sjúkrahúsið heldur bæjarbúum
almennt.
Það líður nú senn að því að við-
bygging sjúkrahússins verði tilbúin
til afnota ef ekki kemur neitt óvænt
fyrir. í
— Ami.
0
INNLENT
um. Hlutverk hins ókunna físki-
manns frá Makedóníu, sem titill
verksins vísar til, er að brúa milið
á milli nútíma fiskveiðiþjóðar í
Norðurhöfum og samtímamanna
Krists. Maðurinn frá Makedóníu
umgengst nánustu vini frelsarans
og lærisveina hans og veitir okkur
persónulega innsýn í píslargöngu
hans. Stílbrigði verksins em marg-
breytileg, allt frá köflum í ætt við
rokktónlist til þátta, sem byggja á
hefðbundnari tónsmíðaaðferðum.
Hljómsveitin er skipuð strengleikur-
um, blásumm og „rokkhljómsveit",
ásamt einsöngvumm og á fjórða
tug kórsöngvara.
(Úr firéttatilkynmngu frá Reykjavikur-
borg)
Þolreiðarnámskeið í Mosfellsbæ
Námskeið í þolreið verður
haldið í dag skírdag á vegum
Flugleiða, Stöðvar 2 og Hesta-
Ieigunnar í Laxnesi en þessir
aðilar stóðu fyrir fyrstu þolreið-
arkeppninni, sem haldin er hér-
lendis, síðastliðið sumar.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða Helgi Sigurðsson dýralæknir
og þýstíur þolreiðargarpur, Gerd
Mildenberger. Hefur hann tekið
þátt í þolreiðarkeppni víða um Evr-
ópu og oftast keppt á íslenskum
hestum. Mildenberger hefur komið
tvisvar til íslands og í bæði skiptin
ferðast á hestum og telur hann ís-
land ákjósanlegan stað fyrir þolreið-
arkeppni og nefnir í því sambandi
skemmtilegar reiðleiðir og mikla
náttúmfegurð.
Sauðárkrókur;
Kiwanisskákmót
Sauðárkróki.
KIWANISMENN á Sauðárkróki gengust nú I marsbyijun fyrir
opnu skákmóti meðal grunnskólanemenda í Skagafirði og var
mótið haldið i Gagnfræðaskólanum á Sauðárkróki. Er þetta i
nnnað ginn sem mót þetta er haldið, en stefiit er að því að um
árlegan viðburð verði að ræða.
Keppt var í tveim aldursflokk-
um, 10 ára og yngri og 11 ára
og eldri. Keppt var um vegiega
bikara, farandgripi, en auk þess
fengu þrír efstu í hvomm flokki
verðlaunapeninga. Skákstjóri var
Pálmi Sighvatsson.
Þátttakendur vora alls fímmtíu
og tveir, frá flestum skólum í
héraðinu, og er það nokkur flölg-
un frá því í fyrra. í yngri flokkum
sigraði Bjöm Margeirsson úr
Steinsstaðaskóla með fímm vinn-
inga, í öðm sæti var Davíð Þór
Rúnarsson, en hann sigraði Gunn-
ar Guðmundsson í bráðabana um
sætið, en báðir vom þeir með §óra
vinninga. Davíð og Gunnar era
frá_ Sauðárkróki.
í eldri flokki þurfti einnig
bráðabana til þess að útkljá stöðu
efstu manna, en þar sigraði Hall-
dór Stefánsson úr Steinsstaða-
skóla Berg Reynisson úr Varma-
hlíðarskóla, en báðir voru þeir
með sex og hálfan vinning. í þriðja
sæti var svo Sveinn B. Friðriksson
úr Steinsstaðaskóla með fímm
vinninga.
Kiwanismenn á Sauðárkróki
sitja ekki auðum höndum fremur
en fyrri daginn en starf klúbbsins
hefur verið þróttmikið á undanf-
ömum ámm. Aðalfjáröflunarleið
Kiwanismanna er físksala í sveit-
um Skagafjarðar, sem er mjög
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson.
Steinn Sigurðsson formður Kiwanisklúbbsins Drangeyjar ásamt
sigurvegurum í yngri flokki. F.v. Björn Margeirsson, Davið Þór
Rúnarsson og Gunnar Guðmundsson.
vinsæl hjá þeim sem þessarar
þjónustu njóta.
Nýlega færðu Kiwanismenn
sambýli fatlaðra á Sauðárkróki
gjafír og í haust stóðu þeir fyrir
endurskinsmerkjaherferð í skól-
um héraðsins. Þá halda þeir ár-
legt bikarmót f sundi ásamt Ung-
mennafélaginu Tindastól að sumr-
inu og í maí er reiðhjóladagur í
samvinnu við lögregluna. Formað-
ur Kiwanisklúbbsins Drangeyjar
er Steinn Sigurðsson.
- BB
Fulltrúi Flugleiða í þessu sam-
starfi er Halldór Bjamason og sagði
hann ástæður fyrir þátttöku Flug-
leiða væm þær að áhugi útlendinga
á íslenska hestinum færi vaxandi
ár frá ári og Flugleiðir hefðu á
undanfömum ámm selt mikið af
hestaferðum og átt samstarf við
hestaleigur víðsvegar um landið.
„Við teljum að kynning á íslenská
hestinum erlendis hafí áhrif á þessa
sölu. Þolreið er snar þáttur í hesta-
mennskunni erléndis og líklegt er
að ef boðið er upp á þolreiðar-
keppni hérlendis megi stækka aðdá-
endahóp íslenska hestsins vemlega.
Til þess að mögulegt sé að halda
þolreiðarkeppni hérlendis svo vel
fari og áður en farið verður að
auglýsa slík mót erlendis þurfum
við að kunna til verka. Þessvegna
tökum við þátt í þessu námskeiðs-
haldi ásamt Stöð 2 og Hestaleig-
unni í Laxnesi. Nú er farin sú leið
að hestamannafélagið Hörður í
Kjósarsýslu sér um framkvæmd og
undirbúning námskeiðsins og vænt-
anlega munu félagið sjá um fram-
kvæmd á þolreiðarkeppni sem hald-
in verður í sumar. Segja má að
megintilgangurinn með námskeið-
inu nú sé að fá fleiri og betur undir-
búna keppendur — bæði hesta og
menn — næsta sumar," sagði Hall-
dór að lokum.
Námskeiðið hefst klukkan 13
eftir hádegi en það verður haldið í
Gagnfræðaskólanum í Mosfellsbæ.
Byggist námskeiðið á fyrirlestmm
og myndbandssýningum en einnig
verður þátttakendum kennt að taka
púls á hestum og fer sá þáttur fram
í hesthúsahverfínu við Varmár-
bakka í Mosfellsbæ.