Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 46
46 C
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
4
Balasjov efstur á
Fjarkaskákmótinu
Skák
Bragi Kristjánsson
Fjarkaskákmóti Skáksambands
íslands lauk með sigri sovéska stór-
meistarans, Júrí Balasjovs. Hann
hlaut 9!4 vinning af 13 mögulegum,
tapaði ekki skák. Lítið hefur borið
á Balasjov á undanfömum árum,
en hann var orðinn einn sterkasti
skákmaður heims fyrir 15 árum. Á
Fjarkamótinu fór hann rólega af
stað, en eftir mikinn heppnissigur
á Sævari Bjamasyni í 5. umferð
héldu honum engin bönd. Hann
sýndi sínar bestu hliðar og hlaut 6
vinninga í 8 síðustu skákunum.
Margeir Pétursson varð annar með
•9 vinninga. Hann var með daufasta
móti í byijun, hafði 4 vinninga eft-
ir 7 skákir, en sýndi sína réttu getu
eftir það og fékk 5 vinninga í
síðustu 6 umferðum. Helgi Ólafsson
lenti í þriðja sæti með 8& vinning.
Hann tapaði ekki skák á mótinu
og vom vinningsskákir hans listavel
tefldar. Jón L. Ámason og sovéski
stórmeistarinn, Vereslav Eingom,
urðu jafnir í 4.-5. sæti, hlutu 8
vinninga hvor. Jón byijaði illa, en
glæsilegur lokasprettur, 5 vinning-
ar í sex síðustu umferðunum, bjarg-
aði málum. Eingom er lítt þekktur
skákmaður utan heimalands síns,
en er greinilega geysisterkur stór-
meistari. Hann tefldi rólega, og
sýndi ótrúlega tækni í úrvinnslu
örlítilla yfírburða. Hann lenti aðeins
I vandræðum í ævintýralegri skák
við Jón L., en þar féll hann á tíma
í betri stöðu eftir miklar tímahraks-
sviptingar. Karl Þorsteins, Þröstur
Þórhallsson og Norðmaðurinn Jón-
athan Tisdall höfnuðu í 6.-8. sæti
með helmingi mögulegra vinninga.
Þeir tefldu misjafnlega og uppskáru
í samræmi við það.
Frammistaða Hannesar Hlífars
veldur miklum vonbrigðum, og
Englendingamir tefldu illa. Sigurð-
ur Daði tefldi af hörku og getur
verið sáttur við árangurinn. Hann
er jafnaldri Hannesar Hlífars, að-
eins 17 ára gamall, og er enn eitt
stórmeistaraefnið úr „Skákskóla
Óla H.“ í Taflfélagi Reykjavíkur.
Björgvin og Sævar voru óþekkjan-
legir á mótinu og bíða nú óþreyju-
fullir næsta móts til að sýna, hvað
í þeim býr.
Lokastaðan (Elo-stig í svigum):
1. Balasjov (Sovétríkjunum,
stórmeistari, (2530), 9!4 v.
2. Margeir Pétursson, stórmeistari,
(2530), 9 v.
3. Helgi Ólafsson, stórmeistari,
(2520), S4 v.
4. -5. Jón L. Ámason, stórmeist-
ari, (2550), 8 v.
4.-5. Eingom (Sovétríkjunum),
stórmeistari, (2570), 8 v.
6.-8. Karl Þorsteins, alþjóðlegur
meistari, (2430), 64 v.
6.-8. Þröstur Þórhallsson, alþjóðl.
meistari, (2415), 64 v.
6.-8. Tisdall (Noregi), alþjóðlegur
meistari, (2460) 64 v.
9.—10. Hannes Hlífar Stefánsson,
alþjl. meist. (2480), 6 v.
9.—10. W. Watson (Englandi),
alþjl. meistari, (2505), 6 v.
11. Hodgson (Englandi), stór-
meistari, (2545), 64 v.
12. Sigurður Daði Sigfússon,
(2310), 5 v.
13. —14. Sævar Bjamason, alþjóð-
legur meistari, (2335), 3 v.
13.—14. Björgvin Jónsson
(2405), 3 v.
Fjarkamótið fór vel fram, en var
mjög illa sótt af áhorfendum.
Líklega er aðalástæðan sú, að ís-
lendingar séu búnir að fá nóg af
skák í bili, komnir með „skáktimb-
urmenn". Flestir bestu skákmenn
heims tefldu í Reykjavík í október
sl. á Heimsbikarmóti Stöðvar 2,
síðan kom Ólympíuskákmótið, þá
einvígi Jóhanns Hjartarsonar og
Karpovs, og loks þetta mót. Önnur
ástæða en lítil umfjöllun fjölmiðla.
Skáksambandsmenn kynntu mótið
lítið í byijun og fjölmiðlar birtu
óvenjulitlar fréttir og fáar greinar
um mótið. Gulltrygging fyrir
áhugaleysi almennings fékkst svo
með B-heimsmeistarakeppninni í
handknattleik, er þjóðin fékk enn
eitt handboltaæðið.
Að lokum skulum við sjá tvær
skákir, fyrst handbragð sigurvegar-
ans og síðan sögulega skák Jóns
L. við Eingom.
13. umferð:
Hvitt: J. Balasjov (Sovétríkjun-
um). Svart: J. Tisdall (Noregi).
Caro-Kann.
1. e4 - c6. 2. d3
Balasjov kýs fremur að tefla
Kóngsindverska-vöm með skiptum
litum heldur en að tefla venjulega
Caro-Kann-byijun.
2. - d5, 3. Rd2 - g6, 4. Rgf3 -
Bg7, 5. g3 — dxe4
Tisdall sneiðir hjá algengasta
framhaldinu 5. — e5, 6. Bg2 —
Re7, 7. 0-0 - 0-0, 8. b4!? - a5,
9. bxa5 — Dxa5, 10. a4 — Dc7
með örlítið betra tafli fyrir hvít.
6. dxc4 - Rf6
Önnur leið er hér 6. — e5, 7.
Bg2 - Be6, 8. 0-0 - Rh6, 9. De2,
0-0, 10. Rc4 — f6, 11. b3 og hvítur
hefur betri færi.
7. Bg2 - 0-0, 8. 0-0 - Ra6
Klúðurslegur Ieikur. Eðlilegt
virðist að leika 8. — Dc7 ásamt
e7 — e5.
9. De2 - Da5?
Eftir þennan leik lendir svartur
í mjög erfiðri stöðu. Rejmandi var
að koma mönnum út á borðið með
9. — Be6 og svara Rf3 — g5 með
Ra6 — c7.
10. e5 - Rd5, 11. Rb3! - Dc7,
12. c4 - Rb6, 13. Bf4 - Be6, 14.
Hacl - Had8, 15. Rbd4 - Bg4,
16. h3 — Bxf3, 17. Rxf3 — e6
Svartur kemst líklega ekki hjá
því að veikja reitina d6 og f6 á
þennan hátt, því hvítur hótar h3 —
h4 ásamt Bg2 — h3, t.d. 17. —
Dc8, 18. h4 - Rc7, 19. De3 -
Re6, 20. Bh3 o.s.frv.
18. b3 - h6, 19. h4 - Rb4, 20.
Hc3 - c5, 21. Hel - Hd7, 22.
a3 - Rc6, 23. De3 - Rd4, 24.
g4! - Kh7, 25. Rd2! - Hc8
Auðvitað ekki 25. — g5?, 26.
hxg5 — hxg5, 27. Bg3! og eftir
standa einungis fleiri göt í svörtu
stöðunni.
26. Re4 - Dd8
Ekki gengur 26. — Bxe5?, 27.
Rf6+ ásamt 28. Bxe5.
Balasjov á ný yflrburðastöðu og
að auki 30 mínútur á klukkunni á
móti 7 mínútum Norðmannsins.
27. Rf6+! - Bxf6, 28. exfB - h5
Örvænting, því svartur er glatað-
ur eftir 28. — Dxf6, 29. Bxh6 —
Dxh4, 30. Bg5 — Dxg4, 31. De5!
og hótunin Hc3 — h3+ gerir út um
skákina.
29. gxh5 - Dxf6
Eða 29. — Rf5, 30. De5 o.s.frv.
30. Be5 — Dxh4
Eða 30. — Df5, 31. hxg6+ með
svipaðri niðurstöðu og í skákinni.
31. hxg+ — fxg6, 32. Dcl —
Dg4, 33. Hh3+ - Kg8, 34. Dh6
og svartur gafst upp, því hann
getur ekki varist máthótunum hvits
nema því fylgi mikið liðstap._
10. umferð: Hvítt: Jón L. Arna-
son. Svart: Vereslav Eiongorn
(Sovétríkjunum). Frönsk-vöm.
1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3 -
Bb4, 4. e5 — Re7, 5. a3 — Bxc3+,
6. bxc3 — c5, 7. Dg4
Jón L. er í vígaham og fer því út
í flókið og tvíeggjað afbrigði. Marg-
ur meistarinn teflir hér rólega og
leikur 7. Rf3 ásamt 8. a4, en þann-
ig var Robert Fischer vanur að <
mæta Franskri-vöm.
7. - Kf8?!
Þessi ólánlegi leikur hlýtur að 4
teljast neyðarbrauð. Eingom er "
greinilega ekki tilbúinn í hið vin-
sæla afbrigði. 7. — 0-0!? t.d. 8. Bd3
- f5, 9. exf6 e.p. - Hxf6, 10. Bg5
- Hf7, 11. Dh5 - g6, 12. Dh4 -
Dc7, 13. Dg3! - Da5, 14. Bd2 -
c4, 15. Be2 - Rf5, 16. Dg5 -
Rd7, 17. g4 - Rd6, 18. f3 - Da4,
19. h4! - Hf6, 20. h5 - Rf7, 21.
Dh4 með betra tafli fyrir hvít (Psak-
his-Ehlvest, Erevan 1988).
Önnur leið, sem hefur gefist hvíti
vel að undanfömu, er 7. — Dc7,
8. Dxg7 — Hg8, 9. Dxh7 — cxd4,
10. Re2 — Rbc6, 11. f4 — dxc3,
12. Dd3 o.s.frv.
8. a4
Sterklega kemur til greina að
leika hér 8. h4 ásamt 9. Hh3. í því
tilviki hefur hrókurinn auga með
peðinu á c3 auk þess að hóta að
fara til g3 eða f3 til sóknar að
svarta kónginum.
8. - Dc7, 9. Rf3 — b6 |
Svartur vill ekki opna skálínuna
a3 — f8 fyrir hvíta biskupinn á cl
og hafnar þess vegna leiðinni 9. —
cxd4, 10 Dxd4 o.s.frv.
10. Ba3 - h6!
Svartur bíður með að leika Bc8
— a6 þangað til hvítur hefur leikið
biskupi sínum frá fl, og notar
tímann á meðan til að undirbúa
Kg8 - h7.
11. Bd3 - Ba6, 12. 0-0 - Kg8,
13. a5
Eftir 13. c4 — Bxc4, 14. Bxc4 —
dxc4, 15. dxc5 — bxc5, 16. Dxc4
— Rd7 ásamt Rd5 heldur svartur
sínu.
13. - Bxd3, 14. cxd3 - Rd7, 15.
c4 - Kh7, 16. cxd5 - Rxd5
Eða 16. — exd5, 17. Rh4 ásamt
f2 — f4 — f5 o.s.frv. 5
17. De4+ - g6, 18. Hfcl - Kg7, 1
19. Rd2 - Hab8, 20. Rc4 - Dd8,
21. axb6 — axb6,22. dxc5 — bxc5, 4
23. Re3 - Rb4
Betra en 23. — Rxe3, 24. fxe3
o.s.frv.
24. d4 - Dc7!?y 25. d5!? - exd5
Engu betra er 25. — Dxe5, 26.
Vöðviúrbaki
græddur á rist
VIÐAR Gíslason matsveínn, má þakka læknum á lýtalækningadeild
Landspítalans að hann heldur fætinum eftir slys sem hann varð
fyrir á miðunum 200 sjómilur frá landi. Hafði verið reynt að gera
að sárum hans þegar drep komst f vinstri rist og var þá ákveðið
að freista þess að bjarga fætinum með þvi að taka vöðva úr baki
og græða ofan á ristina. Þrír læknar tóku þátt í aðgerðinni sem
tók átta klukkustundir, þeir Ólafur Einarsson 0g Jens Kjartans-
son, sem báðir eru lýtalæknar og Þráinn Rósmundsson barnalæknir.
fyrr en undir hádegi því við urðum
að koma við á Rifí og taka þar
eldsneyti."
Viðar gekkst þegar undir aðgerð
á Landspítalanum en ristarbeinin
voru öll brotin og lúgan hafði skaf-
ið niður mjúkparta og allt skinn
frá ökla fram á tær. „Við reyndum
að leggja skinnið yflr og tókum
húð af læri og græddum þar sem
á vantaði, en sú aðgerð tókst ekki,
því drep komst í ristina," sagði
Ólafur Einarsson læknir. „Þegar
frá leið varð að hreinsa upp sárið
og taka í burtu þann hluta sem
drepið var komið í og þá var þessi
stóra aðgerð ákveðin. Mun það
vera í fyrsta sinn á íslandi að heill
vöðvi með æðakerfl er fluttur af
einúm líkamshluta á annan og
æðamar tengdar."
Tekinn var vöðvi nálægt herða-
blaði sem ásamt öðrum hreyflr
handlegginn. Bláæð og slagæð í
vöðvanum var tengd bláæð og
Það var í lok október síðastliðinn
þegar rækjutogarinn Pétur Jóns-
son RE var staddur skammt frá
miðlínu milli Grænlands og ís-
lands, að stórri jámlúgu á efra
dekki var lokað, og á milli varð
vinstri fótur Viðars. „Þetta voru
mannleg mistök og ekkert annað,"
sagði Viðar. „Strákurinn sem
stjómaði lúgunni er alveg miður
sín en ég ásaka hann ekki. Honum
tókst að stöðva lúguna um það bil
sem hún var að lokast annars hefði
tekið framan af fætinum. Slysið
varð í blíðskaparveðri um klukkan
hálf átta að morgni. Þyrla Land-
helgisgæslunnar var komin til okk-
ar rúmlega tíu um morguninn og
fram að þeim tíma leið ég ólýsan-
legar kvalir. Þessi lyf sem eru um
borð í togurunum og gripið er til
þegar slys verða, duga alls ekki.
Það var ekki fyrr en þyrlan kom
sem mér fór að líða skár en ég var
ekki kominn á Borgarspítalann
Ólafur Einarsson læknir og Við-
ar Gislason matsveinn virða fyrir
sér árangurinn af vel heppnaðri
skurðaðgerð en yöðvinn sem
fluttur var er ennþá bólginn.
Eins og sjá má er bakvöðvinn vel
gróinn á ristinni en þegar drep
komst í sárið missti Viðar eina
tána.
Morgunblaðið/Emilfa
slagæð í ökklanum. Aðgerðin var
meðal annars gerð í gegnum smá-
sjá og lauk með því að húð var
tekin af læri og grædd yfír vöð-
vann. Viðar dvaldi á Reykjalundi
í einn og hálfan mánuð eftir að-
gerðina í þjálfun með bakvöðvana
og hefur tekist að þjálfa aðra vöðva
upp í að gegna því hlutverki sem
fyrri vöðvi gegndi.
„Það er alveg ljóst að Viðar
hefði ekki getað haldið fætinum