Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 28
28 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989 Boðið til Brúð- kaups Fígarós Mozart, 12 ára. Eftir málverki Thadd&ns Helblings. UM HÖFUNDA eftir Krisíján Arnason Það er kunnara en frá þurfi að segja að söngleikir eru einatt aug- lýstir og nefndir á nafn sem verk eins höfundar og þá auðvitað tón- skáldsins, en nafni þess sem hefur lagt sjálfan grundvöll verksins með hinu svonefnda líbrettó eða texta er sjaldan flíkað, þótt söngleikir fari sigurför óperuhúsa í millum, enda leiða áhorfendur yfirleitt lítt hugann að því hver hafi þar um vélt, þótt þeir kunni að vera býsna hnýsnir um hagi tónskáldsins. Þetta kemur raunar vel heim við það að menn virðast sækja óperu- hús öðru fremur til að láta heillast af sætlegum söng og hljóðfæraleik og kannski glæsilegri sviðsmynd og búningum í leiðinni, sem megna að hrífa þá burt úr hversdagslífi þeirra inn í fjarlægan og misfellu- lausan töfraheim, þar sem allt gengur upp og er ólíkt því sem þeir eiga að venjast. Dygð textahöfundar ætti þá ekki síst að liggja í því að trana sér sem minnst fram með einhveiju sem gæti truflað og spillt ánægju óperu- gestsins af þvi að fylgjast með laglinum sem hann getur siðan raulað fyrir munni sér á leiðinni út. Textinn mætti þess vegna vera sem allra þynnstur og fremur gæddur þeim eiginleikum að vera þjáll og hljómfagur en skiljanlegur, og efnisþráðurinn ætti að sneiða sem mest hjá vandamálum eða aðstæðum áhorfandans en vera þeim mun ríkari að tilbreytingu og óvæntum uppákomum sem gefa persónunum á sviðinu ærið tilefni til að ausa úr brunni hjarta síns í tilkomumiklum aríusöng. Vilyrði um samstarf En hvað sem annars kann að vera til í ofansögðu þá má a.m.k. af tilurð söngleiksins Brúðkaup Fígarós sjá að tónskáldinu hefur hreint ekki verið sama með hveijum hann ynni eða hvaða efni yrði fyrir valinu. Mozart hafði þá fengið sig fullsaddan af samstarfi við Varesco þann er gerði textann við Idom- eneo og þurfti nú á öðrum liprari TEXTANS og skemmtilegri samstarfsmanni að halda. Þá vildi svo vel til að í Vínarborg var um þessar mundir staddur annar ítali sem nefndist Lorenzo da Ponte og hafði verið á vegum hins v.olduga Salieris og gert fyrir hann textann að ópe- runni II Ricco d’un Giomo. Sú ópera hafði hins vegar fengið dræmar undirtektir og þá lá auðvit- að beinast við fyrir tónskáldið að skella skuldinni á líbrettistann og slíta samstarfí við hann og fá sér annan sem hét Costi. Með þessu gerði hinn mikli Salieri höfuðkeppi- nauti sínum, Mozart, talsverðan greiða og ekki síður óperugestum eftirtínians, því að da Ponte átti eftir að gera texta við þijú mestu meistaraverk Mozarts á ítölsku: Brúðkaup Fígarós, Don Gio- vanni og Cosi fan tutte og virðist samband þeirra beggja og samstarf hafa verið með besta móti, eins og árangurinn ber vitni um. Það er engu líkara en Mozart hafi séð það fyrir,, því eftir að fundum þeirra hafði fyrst borið saman og Mozart stungið upp á samstarfi við da Ponte og fengið vilyrði fyrir því, ritar hann: „Hver veit hvort hann efnir loforðið, eða vill efna það. Það er vitað mál að þessir ágætu Italir eru ekkert nema stimamýkt- in, þegar maður er nálægt þeim. Ekki meira um það, við erum farin að þekkja þá. Ef hann er á snærum Salieris, fæ ég ekkert frá honum, meðan ég lifi." Prestlærður hagyrðingur Af þessum orðum má marka að Mozart er mikið í mun að fá da Ponte til samstarfs við sig, sem bendir til þess að hann hafi notið álits sem textahöfundur, enda hafði hann eftir að hafa slitið samstarfi við Salieri gert óperutexta með betri árangri og haft vit á því að byggja þá á leikritum fremstu skopleikjaskálda þess tíma, þeirra Goldoni og Beaumarchais. Þetta þarf ekki að koma á óvart, því da Ponte hafði fengist við skáldskap frá blautu bamsbeini, en að vísu einnig við ýmislegt annað um ævina og það misjafnt. Hann var fæddist í grennd við Feneyjar árið 1749, þar sem faðir hans var sút- ari af gyðingakyni, og hét upphaf- lega-Emanuele Conegliano. Nafnið Lorenzo da Ponte hlaut hann, þeg- ar faðirinn giftist kaþólskri stúlku og þurfti í því tilefni að láta skírast. Við það opnaðist Lorenzo leið til menntunar í kaþólskum skólum og sóttist pilti námið svo vel að karli föður hans þótti ekki minna mega duga en að hann yrði prestur, þótt það starf hafi átt einkar illa við Lorenzo að sjálfs sögn og jafnvel verið honum þvert um geð. Hann hafði í skóla mestan áhuga á kveð- skap og lék sér að því að þýða af latínu yfir á ítölsku og öfugt. En er hann hafði að áliti manna num- ið hin klerklegu fræði til nokkurrar hlítar, hóf hann kennslu við presta- skóla en gafst brátt upp á því og hélt út í lífið, prýddur sinni prest- legu tign. Hiðljúfalíf Feneyjar voru um þessar mundir mikil gleðinnar borg, þar sem menn gátu notið ávaxta liðins stórveld- istíma án þess að þurfa að taka neinn hlút alvarlega, hvort sem voru lærðir eða leikir. Hér var því rétti staðurinn fyrir da Ponte til að leika lausum hala og steypa sér út í hið ljúfa líf, jafnt ástarævin- týri sem fjárhættuspil, sem hvort tveggja hafði í för með sér mikla skuldasöfnun, en prestsskrúðann gat hann notað sér til framdráttar til að komast í margvíslegan gleð- skap. Um tíma stundaði hann þó skólakennslu en var fljótt vikið úr embætti fyrir að hafa ort kvæði í anda Rousseaus, og þar kom einn- ig að hann taldi sér ráðlegast að hvefa frá Feneyjum, áður en hann lenti bak við lás og slá. Það var því sem hlypi á snærið hjá honum nokkru síðar, er honum barst boðs- bréf norðan frá Saxlandi um að taka við stöðu óperuhirðskálds í Dresden, en þegar þangað kom reyndist bréfíð vera falsað af óvild- armanni hans á Ítalíu sem vildi greinilega losna við hann sem lengst norður. Saxlandsdvölin varð því skemmri en skyldi og þaðan lá leiðin til Vínarborgar, þar sem hann komst í tæri við Salieri og síðar Mozart, eins og að ofan greinir. Eftir lát Jósefs keisara annars sem hafði haldið hlífiskildi yfír honum gegn óvildarmönnum í Vín, varð honum ekki heldur vært þar og þóttist góður að sleppa þaðan lif- andi. Hann fór þá á flakk milli ýmissa borga Evrópu. í Trieste kvæntist hann ungri kaupmanns- dóttur og í Prag hitti hann landa sinn Casanova sem ráðlagði honum að fara fremur til Lundúna en Parísar en stíga þó þar aldrei fæti inn á ítalskt kaffíhús né skrifa nokkru sinni nafn sitt á víxil. Þótt hann hafi fylgt fyrstu ráð- leggingunni lét hann sér auðsjáan- lega þær tvær síðari í léttu rúmi liggja, þvi áður en varði var hann enn á kafí í skuldasúpu og hrökkl- aðist frá Lundúnum vestur um haf, þar sem hann hafði ofan af fyrir sér með ítölskukennslu og margvíslegu braski uns hann lést þar í hárri elli árið 1839 eftir að hafa skriftað og hlotið syndaaf- lausn og blessun móður kirkju. Skáldverk í banni Það var Mozart sem stakk upp á því við da Ponte árið 1784 að þeir gerðu saman söngleik eftir nýju leikriti samtímahöfundarins Beaumarchais, Brúðkaupi Fíga- rós eða Brjálaður dagur (Le Mariage de Figaro ou la Folle Journée) eins og það hét fullu nafni. Þetta má teljast nokkuð djörf uppástunga, ef haft er í huga að leikritið, sem var nýtt af nálinni, samið 1781, hafði verið í banni jafnt í Frakklandi sem í Austurríki og höfundur jafnvel orðið að þola fímm daga fangavist að boði Lúðvíks XVI, en eftir að banninu hafði verið aflétt í Frakklandi þetta sama ár, 1784, var leikritið sýnt þar við mikla hrifningu. Fyrir vikið naut það þegar talsverðrar frægðar og umtals, sem höfundurinn reyndi á allan hátt að kynda undir og notfæra sér. Það má hins vegar spyija hvað hafí valdið þessu banni og eins hvort það hafi verið hugsan- legt ádeilugildi eða frægðin ein sem glæddi áhuga þeirra Mozarts og da Pontes. Söngleikjaformið er í sjálfu sér ekki vel til þess fallið að koma á framfæri ádeilu, þar sem orðræða hlýtur að drukkna í sætu tónaflóði, enda er óhætt að segja að allt þess Káttar hafi mildast í höndum þeirra félaga. Hins vegar gefur efnisþráðurinn sjálfur allgóða mynd af misrétti aðalsþjóðfélags- ins, þar sem lýst er hvemig höfð- inginn Almaviva greifi ætlar að komast yfír Súsönnu, brúði Fígarós þjóns síns, og eyða með henni sjálfri brúðkaupsnótt hennar, með tilvísun til svonefnds droit du seigneur eða ius primae noctis sem forðum átti að hafa veitt aðalsmönnum heimild til slíks gagnvart undirsátum sínum, en hann verður þó að lúta í lægra haldi fyrir sameiginlegum herbrögðum Fígarós, Súsönnu og Pierre Augustin Caron de Beaumarchais (1732—1799). Teikningafatriði úr Brúðkaupi Figarós, birtist fyrstí „The IUustratediLondon News“, 12. nóvember 1887

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.