Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
C 5
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Ekki stingandi strá að fínna
fyrir rjúpurnar, því verða þær
að leita á náðir þorpsbúa hvað
fæðuöflun snertir.
Suðureyri:
Rjúpur í
byggð
Suðureyri.
NÚ ERU heiðar og hlíðar á kafí
undir þykkum hvitum snjófeldi
og þvi ekki stingandi strá að finna
fyrir blessuðu rjúpurnar. Þær
verða því að leita á náðir þorps-
búa hvað fæðuöflun snertir.
Rjúpur er ekki daglegir gestir hér
í þorpinu, fyrir utan jólamánuðinn,
þegar þær sjást hangandi á snúru-
staurunum nýskotnar. Fáeinar ijúp-
ur hafa sést hér á undanfömum vik-
um.
Ein ijúpan gerði sér lítið fyrir og
tyllti sér óhrædd á svalabrún hjá
reyndri rjúpnaskyttu um daginn.
Honum varð nokkuð brugðið, en
brást hinn besti við og kallaði á ljós-
myndara til að mynda þennan góða
gest.
Vonandi fyrirgefa þær okkur
mönnunum það, að ættingar þeirra
hafi mett margan Súgfirðinginn eft-
ir jólahátíðamar.
— R. Schmidt
Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir.
Málverk eftir Þóru Sigurðar-
dóttur í Gallerí Kongo.
Kaupmannahöfn:
Verk Þóru
Sigurðardóttur
í Gallerí Kongo
Jónshúsi.
í GALLERÍ Kongo í Store Kong-
ensgade stendur nú yfir sýning
Þóru ^ Sigurðardóttur, sem búsett
er í Árósum.
Ungir danskir myndlistarmenn
reka galleríið saman og er það nú
ramminn um 14 málverk og 17
teikningar Þóru.
Hún stundar nám í Jósku listaaka-
demíunni í Árósum, sem er ungur
skóli, og eru þar um 40 nemendur.
Þóra er fædd á Akureyri árið
1954 og var nemandi við Myndlista-
og handíðaskóla íslands. Maður
hennar, Sumarliði ísleifsson cand.
mag., stundar framhaldsnám í sögu
hér í landi.
Listakonan hefur haldið sýningar
heima og myndskreytt bækur og
tímarit.
— G.L. Ásg.
FíRDASKRIFSTOFAN IIRVAL
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.
UTSÝN
Ferðaskrifstofan Utspi hf
Stmi: 603060
Gömul veröld — nýr heimur
Til Kípur (Kýpur) á vit ástar og ævintýra
A Kípur (Kýpur) skín sólin 340 daga ársins og á sumrin
er sjórinn um 25 stiga heitur. Ástargyðjan Afródíta reis
þar úr sjávarlöðrinu og helgaði sér eyjuna.
En Kípur (Kýpur) er meira en hreiður ástarinnar. í meira
en 8000 ár hafa menn búið á Kípur (Kýpur), enda land-
kostir miklir, og um eyjuna leikur andrúmsloft goðsagna
og löngu liðinna tíma.
Kípur (Kýpur) liggur fyrir botni Miðjarðarhafs, á mörkum
þriggja heimsálfa; Evrópu, Asíu og Afríku. Þaðan er því
auðvelt að heimsækja fleiri framandi staói. Tveggja til fjög-
urra daga ferðir til ísraels og Egiptalands (Egyptalands)
hafa notið mestra vinsælda.
I Kípurferð (Kýpurferð) nýtur þú hvíldar, sólar og skemmt-
unar við bestu aðstæður og getur einnig látið drauminn
um að sjá sögustaði Biblíunnar og píramída Egiptalands
(Egyptalands) rætast.
Flpgid er vikulega til Kipur (Kýpur).