Morgunblaðið - 23.03.1989, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
C 39
TÓNLEIKAR
Hlaut góða
dóma fyrir
einleik
á píanó
Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari lék einleik í píanó-
konsert Mozarts í A dúr KV 488 á
tónleikum City University Chamber
Orchestra í London þann 9. mars
síðastliðinn. Hún hlaut góðar við-
tökur áheyrenda en meðal gesta
voru pólska tónskáldið Andrzej
Panufnik, Richaed Thomas fyrrver-
andi sendiherra Breta á fslandi og
Sigríður Ella Magnúsdóttir söng-
kona. Nína Margrét mun ljúka
MA-prófí í Music Performance frá
City University á þessu ári og fjall-
ar lokaritgerð hennar um íslenska
píanótónlist.
Nína Margrét Grímsdóttir.
SÖNGUR OG SÖGUR
Jónasarkvöld í Eyjum
Jópas Ámason rithöfundur heim- Munin á Hótel Þórshamri. Söng- og sagði sögur en stjórnandi söng-
sótti Vestmanneyinga fyrir hópur úr Eyjum hafði æft dagskrá hópsins var Hafsteinn Guðfínnsson.
skömmu þar sem sérstakt Jónasar- úr söngvabókum Jónasar og var Á myndinni má sjá Jónas með söng-
kvöld var haldið á veitingastaðnum húsfyllir. Jónas fór á kostum, söng hópnum í Munanum.
l.W.'Sgííí
■■■•■■
Þessi hópur vann að umsögn barna- og unglingabóka.
Skreytingahópur að störfum.
GRUNNSKÓLAR
Þemavika í
Alftamýrarskóla
Það er árviss viðburður hjá nem-
endum grunnskóla landsins að
nokkra daga á ári er venjulegu skóla-
starfi ýtt til hliðar og tekin upp alls
kyns hópvinna á svokallaðri þema-
viku.
Álftamýrarskóli er engin undan-
tekning frá þessu og voru dagamir
13.-16. mars helgaðir bömum og
unglingum í tilefni bama og ungl-
ingaviku. Að venju tóku aðeins nem-
endur úr efri árgöngum þátt í verk-
efninu, það er að segja úr 7., 8. og
9. bekk skólans. Var nemendum
blandað saman og skipt í vinnuhópá
og vom verkefni þeirra til dæmis
barna- og unglingabækur, skreyting-
ar á sal skólans og myndbandsupp-
tökur, en sá hópur sá um að festa
allt sem fram fór á filmu.
Þemavikunni lauk síðan með árs-
hátíð nemenda á sal skólans þar sem
nemendur skemmtu hver öðrum, til
dæmis fiuttu nemendur níunda
bekkjar frumsamið verk undir leik-
stjóm Jónínú H'. Jó'nsciöttúr. ’
í PÁSKAVIKUNNI
VERÐA VERSLANIR OPNAR
SEMHÉRSEGIR:
Þriðjudaginn 21.mars frá kl. 10-19
Miðvikudaginn 22. mars frá kl. 10-20
Matvöruverslun frá kl. 10-21
Laugardaginn 25. mars frá kl. 10-16
KRINGIdN
- VERSLUN OG SKEMMTUN í EINNIFERÐ!
í KRINGLUNNI ER ALLTAF GOTT VEÐUR OG ÞAR
ERU NÆG ÓKEYPIS BÍLASTÆÐI. ÞAÐ GERIR
PÁSKAINNKAUPIN AUÐVELD OG ÁHYGGJULAUS.