Morgunblaðið - 18.05.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
Hæstiréttur:
Frávísiuiamrskurd-
ur felldur úr gildi
HÆSTIRÉTTUR hefiir fellt ór gildi frávísunarúrskurð borgardóms
Reylqavíkur í máli Jafiiréttisráðs, fyrir hönd Helgu Kress, gegn
menntamálaráðherra og Qármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs. Þar
með er borgardómara gert að taka afstöðu til þess hvort mennta-
málaráðherra hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafiia stöðu og
jafiian rétt karla og kvenna með því að veita Matthíasi Viðari Sæ-
mundssyni stöðu lektors við heimspekideild í desember 1985.
Af sex umsækjendum um stöð- vísaði málinu frá og taldi galla á
una voru Matthías Viðar og Helga
talin hæfust en dómnefnd mælti
með Helgu, sem hefði víðtækari
reynslu. Hun fékk einnig flest at-
kvæði á deildarfundi og taldi, þegar
ráðherra skipaði Matthías í stöð-
una, rétt sinn samkvæmt fyrr-
greindum lögum brotinn. Jafnréttis-
ráð stefndi ráðherrum fyrir dóm
fyrir hönd Helgu en borgardómari
málatilbúnaði. Hæstaréttardómar-
amir Þór Vilhjálmsson, Bjami K.
Bjamason og Amljótur Bjömsson,
settur dómari, töldu hins vegar að
dómkröfur Jafnréttisráðs hafi rúm-
ast innan málshöfðunarheimildar
laga um jafna stöðu og jafnan rétt
karla og kvenna og felldu fráví-
sunarúrskurðinn úr gildi.
Páll Halldórsson formaður BHMR:
Samninganefiid fram-
selur ekki samningsrétt
PÁLL Halldórsson, formaður Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna, segir að grundvallarmisskilningur komi fram í máli Ólafs Ragn-
ars Grimssonar, Qármálaráðherra, í viðtali í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins, þar sem lýst er gangi samningaviðræðna um helgina 6.-8.
maí. Þar segir Ólafur meðal annars að hann og öll samninganefiid ríkis-
ins hafi staðið í þeirri trú að verið væri sameiginlega að ganga frá
lokasamningi.
„í fyrsta lagi var þetta viðræðu-
nefnd frá BHMR sem hafði ekki
umboð til þess að gera samning. Það
átti að vera viðsemjendum okkar
fullkomlega ljóst. Það er hluti af
okkar samningskerfi að samninga-
nefndin framselur ekki samnings-
réttinn. Þetta er mjög mikilvægt at-
riði og flest mistök í samningavið-
ræðunum hafa verið gerð fyrir þá
sök að ekki hefur verið horft til
þessa,“ sagði Páll.
„í annan stað hafa skapast þau
vinnubrögð í samninganefnd ríkisins
að hún kemur aftur og aftur með
sömu hlutina með smávægilegum
breytingum. Megin athugasemdir
okkar fá aldrei að komast inn, þó
einhveijar orðalagsbreytingar fái náð
fyrir augum nefndarinnar. Síðan er
staðið upp og sagt að um sameigin-
legan texta sé að ræða. Þetta eru
vinnubrögð sem nefndin hefur tamið
sér og notað, stundum með nokkrum
góðum árangri. Inn í þá texta sem
um var íjallað um þessa helgi kom-
ust aldrei meginatriði kröfugerðar
okkar,“ sagði Páll Halldórsson enn-
fremur.
VEÐURYFIRLIT Á HÁDEGI í DAG
ÞETTA kort er byggt á veðurspá frá í gær, sent frá Englandi í
gegnum gervihnött og tekið af veðurkortarita hjá Radíómiðun,
Grandagarði, Reykjavík. Vegna verkfalls Félags íslenzkra náttúru-
fræðinga eru ekki gerðar veðurspár hjá Veðurstofu íslands og verða
lesendur Morgunblaðsins því sjálfir að spá í veðrið, eins og þeim er
lagið.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Staöur hitl veöur Staður hitl veður
Akureyri 4 skýjafi Genf 17 heiðskírt
Reykjavík 6 skýjað Hamborg 19 heiðskírt
Kaíró 35 heiðskírt
Helsinki 16 heiðsklrt Kanarf 25 heiðskírt
Kaupmannah. 19 heiðskírt London 20 hálfskýjað
Narssarssuaq Madrid 26 skýjað
Nuuk 8 snjókoma Malaga 24 heiðskírt
Osló 11 alskýjað Mallorca 24 heiðskírt
Stokkhólmur 20 léttskýjað Marseille 23 heiðskírt
Þórshöfn 7 rigning Moskva 20 skýjaö
Aþena 25 París 21 léttskýjaö
Amsterdam 20 léttskýjað Prag 22 heiðskírt
Berlín 21 heiöskírt Róm 18 skúrir
Belgrad 20 skúrir Varsjá 19 hálfskýjað
Briissel 22 léttskýjað Vfn 11 rigning
FranlfftJrt \ / 21, heifyskírt Zunch 17 sffyjað / L
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Meðal þeirra sem tóku á móti Sigurði Ámasyni þegar hann kom
úr síðustu ferð sinni sem skipherra hjá Landhelgisgæslunni var
fjölskylda hans, og á myndinni sést eiginkona Sigurðar, Edda
Jónsdóttir, ásamt sonardótturínni, Birau Sif Magnúsdóttur, sem
færði afa sínum blóm í tilefni dagsins. En á innfelldu myndinni
sést Sigurður Árnason í brúnni á varðskipinu Tý að lokinni siðustu
ferð sinni sem skipherra hjá Landhelgisgæslunni.
I land eftir 42 ár á sjónum
SIGURÐUR Ámason skipherra á varðskipinu Tý kom til
Reykjavíkurhafiiar í gærmorgun úr sinni siðustu ferð sem skip-
herra þjá Landhelgisgæslunni, en hann lætur nú af störfúm þar
eftir rúmlega Qörutíu ára starf.
Sigurður, sem er 61 árs að
aldri, hóf fyrst störf hjá Land-
helgisgæslunni sem vélgæslumað-
ur árið 1947. Hann varð stýrimað-
ur árið 1953 og skipherra í afleys-
ingum árið 1957. Sigurður var
fastráðinn sem skipherra árið
1959, pg hefur hann gegnt því
starfí óslitið síðan. Fyrsta skipið
sem Sigurður var skipherra á hjá
Landhelgisgæslunni var varð-
báturinn Gautur, sem áður hét
óðinn, en það var 76 tonna bátur
sem smíðaður var á Akureyri.
Hann hefur verið skipherra á Tý
síðastliðin tíu ár, en þar áður var
hann skipherra á Ægi.
Aðspurður sagði Sigurður
Ámason í samtali við Morgun-
blaðið að sá atburður sem honum
væri efst í huga þegar hann liti
yfír farinn veg væru skipskaðarn-
ir í ísafjarðardjúpi í febrúarbyrjun
árið 1968. í ofsaveðri sem þá
geisaði fórst vélbáturinn Heiðrún
II frá Bolungarvík með sex manna
áhöfn og breski togarinn Ross
Cleveland fórst með nítján manna
áhöfn, en breski togarinn Notts
County strandaði á Snæfjalla-
strönd. Sigurði, sem þá var skip-
herra á Óðni, tókst ásamt áhöfn
sinni að bjarga skipshöfninni af
togaranum, átján manns, en einn
skipverja var látinn úr kulda og
vosbúð. Hlaut Sigurður, ásamt
stýrimönnunum á Oðni, þeim Sig-
uijóni Hannessyni og Pálma Hlöð-
verssyni, heiðursmerki bresku
krúnunnar fyrir þetta björgunar-
afrek.
Sigurður hóf nám í rafíðnaðar-
fræði við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti síðastliðið haust, og
ætlar hann að halda því áfram
næsta vetur. Aðspurður um hvort
hann hyggðist leggja stund á raf-
virkjun í framtíðinni sagðist hann
telja það ólíklegt. „Ástæðan fyrir
því að ég fór í þetta nám er sú
að ég hef alltaf haft gaman af
því að fíkta í rafmagni, en ætli
maður verði ekki latur að byija á
nýju starfí kominn á þennan ald-
ur.“
1.800 atvinnulausir í apríl
39 þúsund atvinnuleysisdagar
voru skráðir á landinu öllu í apríl-
mánuði síðastliðnum, 21 þúsund
hjá konum og 18 þúsund hjá körl-
um. Atvinnuleysisdögum hefúr
fækkað um 15 þúsund frá mánuð-
inum á undan, eða um 27%. Þetta
Skákmót í Moskvu:
ÞRÍR íslenskir skákmenn taka nú
þátt í opnu skákmóti f Moskvu,
og eftir tvær umferðir eru þeir
allir með 1'h vinning. 124 skák-
menn, þar af 70 stórmeistarar,
taka þátt í mótinu, sem er jafii-
framt úrtökumót fyrír næstu
heimsbikarkeppni.
Hannes Hlífar Stefánsson hefur
staðið sig best íslendinganna til
þessa, en hann gerði jafntefli við ísra-
elska stórmeistarann Muery í 1.
umferð og vann sovéska stórmeistar-
ann Romanishin í 2. umferð. Mar-
geir Pétursson vann bandaríska stór-
meistarann Shamkovic í 1. umferð
en gerði í annari umferð jafntefli við
franska piltinn Joel Lautier, sem er
núverandi Evrópumeistari unglinga.
Helgi Ólafsson byijaði á að gera jafn-
tefli við finnska stórmeistarann
Westerinen en vann í 2. umferð Sja-
bakoy, frá Soyétríkjununv,
Skákmótið er mjög sterkt, en lág-
samsvarar þvf að 1.800 manns
hafi að meðaltali verið á atvinnu-
leysisskrá f mánuðinum, eða sem
svarar til 1,4% af mannafla. Þetta
kemur fram f frétt frá Vinnumála-
skrifstofú félagsmálaráðuneytis-
ins.
marksskákstig eru 2500. Undan-
tekning var þó gefin fyrir unglinga.
Margeir Pétursson sagði við Morgun-
blaðið, að aðstaða væri góð á skák-
stað, en þó væri full mikill hávaði í
áhorfendum, sem fá að vera nokkuð
nálægt keppendum.
í fréttinni segir, að enda þótt at-
vinnuleysisdögum hafi fækkað frá
mánuðinum á undan, sé ástandið
mun verra en í aprílmánuði undan-
farin ár. Meðaltal skráðra atvinnu-
leysisdaga undanfarin þijú ár, í april-
mánuði, var 15 þúsund'-dagar, eða
0,5% af mannafla, en 18 þúsund
dagar, eða 0,7% af mannafla, síðustu
fímm ár.
Sá bati sem nú hefur átt sér stað
varð að þremur fjórðu hlutum utan
höfuðborgarsvæðisins og gætir þar
einkum áhrifa frá aflasælli vertið. Á
sama tíma gætti samdráttar f þjón-
ustugreinum á höfuðborgarsvæðinu.
í fréttinni kemur fram að hjá Ráðn-
ingarskrifstofu Reykjavíkurborgar
eru umsækjendur um sumarvinnu,
það er skólafólk, nú þrefalt fleiri en
á sama tíma í fyrra og hjá Vinnum-
iðlun námsmanna eru fimm umsækj-
endur um hvert starf sem í boði er.
Þá er óvissa um sumarvinnu skóla-
fólks víða annars staðar á landinu.
Tónlistarskólinn:
Vortónleikar í dag
VORTÓNLEIKAR Tónlistarskólans í Reykjavík verða að Kjar-
valsstöðum fimmtudaginn 18. maí og hefjast kl. 18.00.
Leikin verða píanóverk eftir verk fyrir einleiksflautu eftir
Rachmaninoff, Debussy, Chopin,
J.S. Bach og Kabalevsky, Sónata
fyrir selló og píanó eftir Sjos-
takovits, Sónata op. 17 fyrir
hom og píanó eftir. Beethoven,'
Debussy, Preludium og Allegro
fyrir fiðlu og píanó eftir Pugn-
ani-Keisler og fleira.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimití. ■
Islensku skákmenn-
irnirmeð IV2 vinning