Morgunblaðið - 18.05.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
21
Vegna hagstæðra samninga við
Hewlett Packard á íslandi getur Tölvufræðslan
boðið öllum nemendum sínum HP tölvur og
búnað á sér- staklega hagstæðu verði. Þeir
sem hafa einhvern tímann sótt námskeið hjá
Tölvufræðslunni geta keypt HP tölvur á þessu
frábæra tilboðsverði.
m\Ö VJpP0
S\Ó\Q
\öWQ^ot<
\ss\\eg
SlOIQ
0g VlÚSQOqri
K.ópaWW'
Sjón er sögu ríkari!
sjáið HP tölvurnar og hús-
gögnin í nýja húsnæðinu
okkar í Borgartúni 24.
Opið laugardag
frákl. 10-16.
Ath.: Ennfremureru bækur Tölvufræðsl-
unnar til sölu á frábæru kynningarverði.
Tölvufræðslan
Náttúrufegnrð Þing-
valla heillaði gestina
ÞINGVELLIR skörtuðu sínu fegursta þegar sænsku forsætisráð-
herrahjónin, Ingvar og Ingrid Carlsson, komu þangað í gærmorgun.
Sr. Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður tók á móti gestunum og sagði
þeim sögu Þingvalla og fræddi þá um jarðfræði og önnur sérkenni
svæðisins. Gestirnir hrifust af fegurð hins forna sögustaðar og létu
ekki á sig fá þótt nístingskalt væri í lofti, enda veður mjög bjart
og kyrrt.
í fylgd með sænsku forsætisráð-
herrahjónunum voru Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra og
kona hans, Edda Guðmundsdóttir.
Steingrímur tók að sér hlutverk
leiðsögumannsins þegar komið var
við á Nesjavöllum og fræddi hina
sænsku gesti um orkuveituna, sem
þar er í byggingu.
Að lokinni ferðinni til Þingvalla
buðu borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson og kona hans,
Astríður Thorarensen, til miðdags-
verðar í Viðeyjarstofu. Sr. Þórir
Stephensen staðarhaldari í Viðey
sýndi gestunum byggingamar og
sýningu á munum, sem fundist
hafa í fornleifagreftri í eynni og
komið hefur verið fyrir í kjallara
Viðeyjarstofu.
Að lokinni Viðeyjarferinni þágu
gestimir kaffiveitingar í Höfða og
að því loknu átti Ingvar Carlsson
fund með íslenskum Jafnaðarmönn-
um.
í dag heimsækir sænski forsætis-
ráðherrann Höfn í Hornafirði, þar
verður meðal annars skoðað frysti-
hús og þegnar veitingar sveitar-
stjórnar. Ingvar Carlsson og föm-
neyti hans fara utan til Svíþjóðar
síðdegis í dag.
Borgartúni 28 og Borgartúni 24
Símar 687590 og 626655.
Opinber heimsókn sænska forsætisráðherrans:
Bæjarsljórn Kópavogs:
Flutningi varnaþings til
Hafharfjarðar mótmælt
BÆJARSTJÓRN Kópavogs hefúr samþykkt með tíu samhljóða atkvæð-
um ályktun, þar sem mótmælt er frumvarpi um dómsmál, sem er til
afgreiðslu á Alþingi. Frumvarpið felur í sér að vamaþing ibúa sveitar-
félgasins verði flutt til Hafharfjarðar.
Ályktun bæjarstjómar var borin
fram af Richard Björgvinssyni,
Braga Michaelsyni, Guðna Stefáns-
syni, Arnóri Pálssyni og Skúla Sig-
urgrímssyni. í henni segir að: „Það
Hafuarijörður:
Slapp vel úr
hörðum árekstri
ÖKUMAÐUR lítillar sendibifreið-
ar slapp betur en á horfðist frá
hörðum árekstri við vömbíl á
mótum nýju Reykjanesbrautarinn-
ar og Hafnarfjarðarvegar um há-
degisbilið í gær.
Umferð um Reykjanesbraut hefur
stöðvunarskyldu gagnvart umferð
um Hafnarfjarðarveg. Vörubílnum
var ekið eftir Reykjanesbrautinni og
inn á Hafnarfjarðarveg, í veg fyrir
lítinn frambyggðan sendibíl af
Mitsubishi-gerð. Sendibíllinn lenti á
varadekki á hlið vörbílsins og er ta-
lið að það hafí forðað ökumanninum
frá alvarlegutn meiðslum, því hann
klemmdist fastur í bíl sínum og
þurfti tækjabíll slökkviliðs að losa
hann úr ónýtu flakinu. Hann var
talsvert meiddur én talinn óbrotinn.
hefur borist til vitundar bæjarstjórn-
ar Kópavogs, að á Alþingi sé sótt
að sjálfstæði bæjarfélagsins með
þeim hætti að samþykkja eigi á Al-
þingi fmmvarp um dómsmál, sem
fela í sér þá ákvörðun, að varnarþing
íbúa sveitarfélagsins verði flutt til
Hafnarflarðar.
Bæjarstjóm Kópavogs telur slík
áform vega harðlega að sjálfstæði
sveitarfélagsins og lítur svo á, að
réttur hins almenna borgara sé m.a.
óumdeilanlega fólginn í því að geta
varið og sótt mál sín á heimavarnar-
þingi í Kópavogi, svo sem verið hefur
frá upphafi þessa bæjarfélags. Það
em mannréttindi í því að þurfa ekki
að fara til annarra héraða í þeim
efnum.
Er því eindreigið mótmælt öllum
slíkum áformum og lítur bæjarstjóm
á þau sem beina árás á sjálfstæði
sveitarfélagsins og skorar á hið háa
Alþingi að leggja slík áform á hill-
Það borgar sig að
vera nemandi hjá
Tölvufræðslunni
Morgunblaðið/Bjami
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra greinir sænskum starfc-
bróður sínum, Ingvari Carlssyni, frá orkuveitunni á Nesjavöllum.
Frá vinstri Ingrid og Ingvar Carlsson, Steingrímur og Edda Guð-
mundsdóttir. Gufan sem þarna brýst fram er sótt niður á rúmlega
tvö þúsund metra dýpi.
Edda Jónsdóttir við teikningar sínar.
Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir
Kaupmannahöfíi:
Edda Jóns-
dóttir sýnir í
Gallerí SCAG
Jónshúsi.
NÆR 90 listaverk, vatnslita-
myndir og teikningar, eru nú
til sýnis í Gallerí SCAG í
Amaliegade. Er það listakonan
Edda Jónsdóttir, sem haldið
hefur um pensil og blýant.
Myndirnar eru ýmist unnar í
París eða Garðabæ, en Edda
dvaldi í París í nokkra mánuði í
haust og breytti þar að nokkm
um tjáningarform, því að áður var
hún þekktust sem grafíklistamað-
ur. Sýningin ber nafnið „Draum-
ar“ og em sumir draumarnir upp-
mnnir í Notre Dame, því dóm-
kirkjan í París hafði sérstök áhrif
á listamanninn. Við opnun sýning-
arinnar var efnt til happdrættis
um 2 verk Eddu og verður dregið
um vinninga úr nöfnum sýningar-
gesta 19. maí. Næsta sýning Eddu
Jónsdóttur verður opnuð í Gallerí
Nýhöfn 10. júní nk. og tengist
þar ýmsum atburðum, m.a. Jóns-
messuhátíð.
- G.L. Ásg.