Morgunblaðið - 18.05.1989, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
Vaclav Havel látinn laus:
Sannleiksástin getur
gert mann að leiðtoga
Andófsmaðurinn segist ætla að tjá skoð-
anir sínar þótt það kosti fangelsisvist
Prag. Reuter.
TÉKKNESKI rithöfundurinn og andófsmaðurinn Vaclav Havel var
látinn laus í gær eftir að hafa afþlánað helming af 8 mánaða fangels-
isvist sem hann var dæmdur í fyrir „undirróður gegn stjómvöld-
um“. Þegar fréttamenn spurðu Havel í gær hvemig honum litist á
að vera orðinn nokkurs konar andlegur leiðtogi andófsmanna austan-
tjalds svaraði rithöfiindurinn: „Það breytir engu um það að ég mun
alltaf segja mína skoðun hvort sem ég verð gerður að þjóðhetju eða
stungið í dýflissu. Ég hef alltaf lagt metnað minn í að segja sannleik-
ann. Við búum við þær óeðlilegu kringumstæður að sannleiksástin
getur gert mann að leiðtoga stjómarandspymu."
Reuter
Havel, sem
tilnefndur hef-
ur verið til bók-
menntaverð-
launa Nóbels á
þessu ári, sagði
að áskorun
3.000 tékkne-
skra lista-
manna og
menntamanna
hefði gert gæfumuninn og knúið
stjórnvöld til að láta sig lausan.
Vestrænir stjómmálaskýrendur
töldu að tékknesk stjómvöld kynnu
einnig að hafa viljað brynja sig fyr-
ir gagnrýni á mannréttindaráð-
stefnu sem hefst í París síðar í
mánuðinum.
Havel var handtekinn 16. janúar
í Prag fyrir að taka þátt í miklum
óeirðum í tilefni þess að 20 ár voru
liðin síðan tékkneski námsmaðurinn
Jan Palach lést. Palach bar eld að
sjálfum sér til að mótmæla innrás
sovéska hersins í Tékkóslóvakíu.
Mánuði eftir handtökuna var
Havel dæmdur í 8 mánaða fangelsi
fyrir „undirróður og fyrir að hindra
störf opinberra embættismanna".
Meðferðin á Havel, sem er einn
fremsti rithöfundur Tékka, vakti
gífurlega reiði og andúð bæði í
Tékkóslóvakíu og erlendis. Rithöf-
undurinn minnit í gær á að enn
sæti fjöldi andófsmanna í fangelsi
í Tékkóslóvakíu fyrir skoðanir
sínar.
Havel var sleppt að þessu sinni
skilorðsbundið í 18 mánuði. Áður
hefur hann setið nærri fímm ár í
fangelsi fyrir andóf gegn stjóm-
völdum.
Petra Schnitzler og Heinrich Striibig á blaðamannafiindi í síðustu viku. Þeim og þriðja Vestur-Þjóðverj-
anum, Thomas að nafiii, var rænt í fyrradag en Schnitzler sleppt aftur. Störfuðu þau fyrir vestur-þýsku
hjálparstofhunina ASME, eina fárra, sem eftir eru í Líbanon. Innfelida myndin er af líbanska öfgamann-
inum Mohammed Ali Hammadi, sem vestur-þýskur dómstól dæmdi fyrir morð í gær.
V estur-Þýskaland:
Fékk ævilangt fiingelsi
fyrir morð og flugrán
Tveir Vestur-Þjóðverjar í haldi mannræningja í Líbanon
Frankfurt, Beirut. Reuter.
VESTUR-þýskur dómstóll dæmdi
í gær líbanska öfgamanninn Mo-
hammed Ali Hammadi í Iífstíðar-
fangelsi fyrir að hafa myrt Banda-
ríkjamann um borð í farþegaþotu
fi'á TWA-flugfélaginu en henni var
rænt árið 1985. 10 vopnaðir menn
rændu þremur Vestur-Þjóðveijum
í fyrradag í Suður-Líbanon en
slepptu einum skömmu síðar.
Þögn Dengs gerist æ háværari
Peking. Reuter.
FRÉTTASKÝRENDUR eru sammála um að kínversk stjórnvöld
geti ekki setið aðgerðarlaus öllu lengur og horft á stúdentaóeirðim-
ar magnast. Annað hvort þurfa valdhafar að koma til móts við kröf-
ur námsmanna eða beita valdi eigi mótmælin ekki að breytast í
þjóðaruppreisn. Stúdentar krefjast lýðræðis og frelsis og njóta vax-
andi stuðnings almennings og fjöhniðla. Þeir setja einnig kröfuna
um opinskáar viðræður við yfirvöld á oddinn. Andspænis henni er
þögn Dengs Xiaopings, hins 84 ára gamla leiðtoga Kína, þrúgandi
og vekur spurningar um stöðu hans og heilsu. Deng er enn opinber
leiðtogi Kína en hefur ekkert embætti með höndum nema for-
mennsku í hermálanefiid kommúnistaflokksins.
Ritsjóri Kínverska dagblaðsins
hefur brotið af sér hlekki ritskoðun-
ar að undanfömu í krafti stúden-
tauppreisnarinnar og tekið afstöðu
með námsmönnum. í gær reyndi
hann að ráða í fund sem Míkhaíl
Gorbatsjov, Sovétleiðtogi, átti með
Zhao Ziyang, formanni kommúni-
staflokksins og helsta umbóta-
sinnanum meðal valdhafa í Kína.
í viðræðunum skýrði Ziyang hver
væri staða Dengs en menn hafa
velt henni fyrir sér að undanfömu
vegna þess að ekkert hefur heyrst
frá leiðtoganum. Ziyang á að hafa
sagt að fyrir tveimur árum hefði
forysta fiokksins ákveðið að ráð-
færa sig við Deng um öll meiri
háttar mál og var þessu slegið upp
í blaðinu með fyrirsögninni: „Deng
enn stýrimaður þjóðarinnar!“. Rit-
sjórinn taldi búa undir orðum Ziy-
angs að ábyrgðin á ástandinu í
landinu lægi á herðum Dengs.
Deng hefur ekki tjáð sig opin-
berlega um óeirðimar síðan þær
hófust, það hefur komið í hlut Ziy-
angs að reyna að sefa námsmenn
ýmist með hótunum eða blíðmæl-
um. Hins vegar er talið nokkuð
víst að harkaleg yfirlýsing komm-
únistaflokksins frá 26. apríl sé
runnin undan rifjum Dengs. Hún
olli stúdentum mikilli bræði og
kynti undir mótmælin.
Ziyang, sem er 69 ára gamall,
hefur árangurslaust reynt að vinna
pólitískum umbótum fylgi á æðstu
valdastöðum. í gær gekk hann
lengra en nokkru sinni fyrr í til-
boði sem hann gerði námsmönnum.
Þar hét flokksformaðurinn því að
námsmenn í mótmælasvelti yrðu
ekki teknir til bæna ef þeir hættu
aðgerðunum, flokkurinn myndi
móta raunhæfar aðgerðir til að
renna stoðum undir iýðræði og
þegnréttindi og vinna á spillingu.
Endurbætt landsstjóm yrði reist á
heiðarleika og óflekkaðri fortíð og
myndi hún hlúa að opinskárri um-
ræðu í þjóðfélaginu.
Námsmenn höfnuðu þessu til-
boði með þeim orðum að þar væri
t.d. ekki að finna svar við kröfu
þeirra um viðræður sem sjónvarpað
yrði beint. Auk þess væri yfirlýs-
ingin frá 26. apríl ekki dregin tii
baka. Af slagorðum á mótmæla-
spjöldum á Torgi hins himneska
friðar má ráða að leiðtogar flokks-
ins séu búnir að missa allt traust
almennings. í fyrstu beindust spjót-
in einkum að Deng en nú er enginn
málsmetandi ráðamaður undanskil-
inn gagnrýni. Úr því sem komið
er virðist sem róttækar manna-
breytingar í forystu kommúnista-
flokksins og áþreifanleg loforð um
umbætur séu eina leiðin til að
stöðva mótmælin með friðsamleg-
um hætti.
Reuter
Deng Xiaoping fær það óþvegið
á mótmælaspjöldum náms-
manna á Torgi hins himneska
friðar. Á spjaldinu vinstra meg-
in er vitnað í geymd en ekki
gleymd ummæli Dengs þegar
hann sagði að gamla kynslóðin
ætti að víkja. Hægra megin má
sjá almenning sem bókstaflega
þyrstir í lýðræði.
Réttarhöldin yfir Hammadi hafa
staðið yfir í 10 mánuði og sagði dóm-
arinn, Heiner Muckenberger, þegar
hann las upp úrskurðinn, að vestur-
þýskt réttarkerfi gæti ekki beygt sig
fyrir öfgamönnum, sem rændu Vest-
ur-Þjóðveijum í Líbanon. Foreldrar
bandaríska hermannsins, Roberts
Stethems, sem Hammadi og félagi
hans myrtu, kváðust í gær fagna
dóminum en töldu þó, að morðinginn
ætti skilda harðari refsingu en vest-
ur-þýsk lög leyfðu. Talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins
lýsti einnig ánægju sinni með
lífstíðardóminn.
Hammadi var handtekinn í flug-
höfninni í Frankfurt í janúar 1987
en til sökunauts hans hefur ekki
náðst. Viðurkenndi Hammadi að
hafa rænt flugvélinni en kenndi fé-
laga sínum um að hafa myrt Stet-
hem. Var hann dæmdur fyrir aðild
að morðinu, fyrir flugrán, gíslatöku
og ofbeldi gagnvart farþegunum. Þá
var hann einnig fundinn sekur um
að hafa reynt að smygla sprengiefni
til Vestur-Þýskalands þegar hann
var handtekinn.
Vestur-Þjóðveijamir, sem rænt
var í fyrradag, eru Heinrich Striibig,
Petra Schnitzler og samstarfsmaður
þeirra, sem kallaður er Thomas.
Schnitzler var látin laus skömmu
síðar. Öll starfa þau fyrir vestur-
þýsku hjálparstofnunina ASME og
er þetta í annað sinn í sama mánuðin-
um, sem þeim Striibig og Schnitzler
er rænt. Talið er, að mannránin að
þessu sinni tengist réttarhöldunum
yfir Hammadi en í fyrra sinnið var
þess krafist, að araba í fangelsi á
Kýpur yrði sleppt.
10%«rfdáMurá "ffi:1 i
eMhúsmnréllinguni
ifiÍBÖb-:
TYOFALDUR
STALVASKU R
L 9980.-J L 5??Orj
rfÍLBÖÍj"í
ELDHUS
VIFTA
r rIrjm níðurgámalt "I
■ OG SETJUM UPP NYTT |
Við fjarlægjum^ömlu eldhús eða baðinnréttinguna
I o|setjumuppnyjameðöllu. Þúfærðnýjamálmngu, |
flisalögn,duKaeðaparkettog ný tæki 1 einum pakka. i
Goðgreiðslukjör áöllu...í alltað 18mánuði.
OPIÐTILKL.21 ÍKVÖLD
Líú
BÆJARHRAUNI8 HAFNARFIRÐI
SIMI: 651499