Morgunblaðið - 18.05.1989, Page 25
1-
Dýrasta
borg
Banda-
ríkjanna
Flórída. Frá Atla Steinarssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
New York er enn sem fyrr
dýrasta borg Bandaríkjanna.
Þar kostar 303,36 dollara að
meðaltali að leigja sér hótel-
herbergi, bílaleigubíl og kaupa
þijár máltíðir á sólarhring.
Þetta er niðurstaða árlegrar
könnunar sem tímaritið Corp-
orate Travelé stendur fyrir og
birtir ávallt í maí. Áðurnefndur
dvalarkostnaður í New York
var í fyrra 270,24 dollarar og
hækkaði því um 11,6% á árinu
eða næstum fjórum sinnum
meira en meðaltalshækkunin
(3,3%) var í 100 helstu við-
skiptaborgum j3andaríkjanna.
Skýrsla SIPRI:
Útgjöld til
hermála lækka
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, frétta
ritara Morgunblaðsins.
í fyrsta sinn í mörg ár lækk-
uðu samanlögð útgjöld þjóða
heimsins til hermála í fyrra
og vopnuðum átökum fækkaði
úr 33 í 28. Þetta kemur fram
í skýrslu Friðarrannsóknar-
stofnunarinnar í Stokkhólmi,
SIPRI, sem birt var í gær. Það
veldur þó nokkrum ugg innan
stofnunarinnar að 24 þróun-
arríki hafa komið sér upp eld-
flaugum sem borið. geta
kjamaodda. Kjarnorkutilraun-
um er einnig haldið áfram
hvarvetna í heiminum og eru
Frakkar, Sovétmenn og
Bandaríkjamenn þar í fýlking-
arbijósti. 40 kjamorku-
sprengjur vora sprengdar í til-
raunaskyni í fyrra.
Kína:
Játa þátttöku
í Víetnams-
stríðinu
Hong Kong. Reuter.
KÍNVERSK stjórnvöld hafa
viðurkennt að hafa sent
320.000 manna herlið til Víet-
nams á sjöunda áratugnum til
að beijast við bandarískt her-
lið og suður-víetnamska
bandamenn þeirra. Skýrt var
frá þessu í hinni hálfopinbera
fréttastofu Kínversku frétta-
þjónustunni á þriðjudag og þar
var þess jafnframt getið að
kínversk stjórnvöld hefðu stutt
norður-víetnamska herinn og
Víetkong-skæraliða með 20
milljarða dollara Qárframlagi,
rúmlega 1.000 milljörðum ísl.
króna. Fréttastofan greindi frá
því að 4.000 kínverskir her-
menn hefðu fallið í stríðinu.
Mandela lýkur
laganámi
NELSON Mandela, blökku-
mannaleiðtoginn sem afplánar
lífstíðarfangelsi fýrir andóf
gegn stjórn hvíta minnihlutans
í Suður-Afríku, hlaut á mið-
vikudag æðstu prófgráðu í lög-
um sem veitt er við háskólann
í Suður-Afríku. Hann fékk
prófskírteinið sent í pósti í
fangelsið í Paarl skammt frá
Höfðaborg og nafn hans verð-
ur ekki lesið upp við útskriftar-
hátíðina. Mandela, sem er sjö-
tugur að aldri, las undir prófið
í fangelsi og lokaritgerðina,
sem meðal annars ijallar um
suður-afrísk herlög, skrifaði
hann á sjúkrahúsi í Höfðaborg
þar sem hann var undir lækn-
ishöridum vegna lugnabólgu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
Reuter
Súkkulaði-Eiffel
Stærsti EifFel-turn úr súkkulaði hefur verið byggður í móttökusal
hótels í Singapore. Súkkulaðiturninn er 7,2 metrar á hæð, vegur
1,6 tonn og fimm súkkulaðigerðarmenn voru Qórar vikur að
byggja turninn. Fundið var upp á tiltækinu til að heiðra 100 ára
afmæli Eiffel-turasins í París.
• •
Oldungadeild Bandaríkjaþings:
Smíði FSX-þot-
unnar samþykkt
Washington. Reuter.
Oldungadeild Bandaríkjaþings hefiir lagt blessun sína yfir samning
milli ríkisstjóraa Bandaríkj anna og Japan um smíði nýrrar orrustu-
þotu, FSX-þotunnar. Er niðurstaða þessi talin umtalsverður sigur
fyrir rikissljóra George Bush Bandarikjaforseta.
Forsetinn og ýmsir háttsettir
embættismenn höfðu lagt hart að
þingmönnum að samþyklq'a samn-
inginn. Fram kom tillaga þess efnis
að hætt yrði við smíði þotunnar en
hún var felld með 52 atkvæðum
gegn 47. Þeir sem andvígir era því
að Bandaríkjamenn og Japanir ráð-
ist f sameiningu í þetta verkefni
hafa haldið því fram að ríkisstjórn
Bush eigi að krefjast þess að Japan-
ir falli frá vemdarstefnu sinni, sem
getið hefur af sér umtalsverðan
ójöfnuð í viðskiptum landanna.
Hafa þeir hinir sömu sagt að raun-
hæfara væri að selja Japönum orr-
ustuþotur af gerðinni F-16 í stað
þess að gera þeim kleift að fram-
leiða FSX-þotuna, sem minnir um
margt á fýrmefndu gerðina. Neiti
Japanir að samþykkja þennan kost
beri að grípa til efnhagslegra refsi-
aðgerða gegn þeim.
Óldungadeildin samþykkti sér-
stakt viðbótarákvæði við samning-
inn sem demókratinn Robert Byrd,
lagði fram í umræðunni. Það kveð-
ur m.a. á um eftirlit með fram-
kvæmd verkefnisins til að tryggja
að eitthvert þriðja ríki geti ekki
fært sér í nyt tækniþekkingu þá
sem beitt er við smíði þotunnar.
Ríkisstjómin hafði lýst sig andvíga
ákvæði þessu en það var samykkt
með 72 atkvæðum gegn 27.
STAÐGREIÐSLA 1989
NÁMSMANNA-
SKATTKORT
Breytt fyrirkomulag
rsk ;
RÍKISSKATTSTJÓRI 1
HVERJIR EIGA RÉTT
Á NÁMSMANNA-
SKATTKORTI?
Rétt á námsmannaskattkorti árið
1989 eiga þeir námsmenn, fæddir
1973 eða fyrr, sem stundað hafa
nám á vormisseri og nýtt hafa lítið
sem ekkert af persónuafslætti sín-
um á þeim tíma og ekki flutt hann
til maka.
BREYTT ÚTGÁFU-
FYRIRKOMULAG
Sú breyting hefur verið gerð að
í ár þarf ekki að sækja sérstak-
lega um námsmannaskattkort
nema í undantekningartilvik-
um. Ríkisskattstjóri mun á grund-
velli upplýsinga frá skólum um það
hverjir teljast námsmenn og frá
launagreiðendum um nýtingu
persónuafsláttar þeirra gefa út
námsmannaskattkort og senda til
þeirra sem rétt eiga á þeim í byrjun
júní nk.
Námsmenn við erlenda
skóla þurfa hins vegar að sækja
sérstaklega um námsmanna-
skattkort til ríkisskattstjóra.
Útgáfu námsmannaskatt-
korta annast staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,150
Reykjavík. Sími 91 -623300.
BREYTTUR GILDISTÍMI
Gildistíma námsmannaskatt-
kortsins hefur verið breytt. Nú er
heimilt að nota námsmannaskatt-
kortið frá útgáfudegi til og með 31.
desember 1989 í staðjúní, júlí og
ágústeinsog áður.
Athugið að námsmanna-
skattkort gefin út á árinu 1988
eru ekki lengur í gildi.
BREYTT MEÐFERÐ
PERSÓNUAFSLÁTTAR
Á námsmannaskattkorti 1989
kemur fram heildarfjárhæð per-
sónuafsláttar sem kortið veitir rétt
til en ekki mánaðarleg fjárhæð
eins og áður. Við ákvörðun stað-
greiðslu korthafa ber launagreið-
anda að draga þennan afslátt frá
eftir þörfum þar til hann er upp-
urinn, samhliða persónuafslætti
námsmanns samkvæmt aðal-
skattkorti og skattkorti maka hans
ef þau eru afhent honum.