Morgunblaðið - 18.05.1989, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
Afínæliskveðja:
Aðalsteinn Jóhanns-
son á Skjaldfönn
Vinur minn Aðalsteinn á Skjald-
fönn varð áttræður þann 16. maí.
Eg minnist Aðalsteins fyrst þegar
hann kom á hvetju hausti út á Isa-
flörð með féð til slátrunar og amma
mín eyddi mörgum dögum í að und-
irbúa komu hans, en hjá henni gisti
Aðalsteinn jafnan. Það var heilmikill
viðburður þegar Steini á Skjaldfönn
kom í bæinn og lét maður sig ekki
vanta á bryggjuna. Þama birtist
hann stór og stæðilegur með amar-
nef og hafði hátt. Það var einna
líkast því að þarna væri afi á Knerri
ljóslifandi kominn.
Þegar að því kom að reynt yrði
að koma mér til manns var ég send-
ur í sveit eins og flest ungmenni af
minni kynslóð. Ég var svo gæfusam-
ur að komast á Skjaldfönn og hófst
þá vinátta okkar Aðalsteins.
Ég man enn þegar hann tók á
móti mér á bryggjunni á Melgras-
eyri kaldan vordag í byrjun maí. Ég
var vel klæddur að mér fannst, en
Steini spurði mig hvort ég væri ekki
með neina úlpu. „Jú, ég er í henni“
svaraði ég. „Það er ekkert skjól í
þessu" svaraði hann. „Hann blæs
köldu hérna af jöklinum á leiðinni
frameftir" bætti hann við og pakkaði
mér síðan inní stóru gæruúlpuna sína
og setti mig aftast í kerrukassann.
Að því loknu settist hann uppá drátt-
arvélina og við mjökuðumst í áttina
heim að Skjaldfönn. Síðan hefur mér
alltaf fundist ég kominn heim er ég
kem að Skjaldfönn.
Á sínum yngri árum var Aðal-
steinn annálað hraustmenni og eimir
enn eftir af hreysti hans, þó hann
sé orðinn slitinn eftir erfiði dagsins.
Margan ferðamanninn hefur hann
borið yfir Selá, vatnsmesta fljót Vest-
fjarðakjálkans. Heyrt hef ég sögur
af því að hann hafi borið tvo full-
orðna í einu yfir ána í vexti og sjálf-
ur varð ég vitni að því að hann bar
þijá stálpaða stráka í einu yfír, þá
kominn á sjötugsaldur.
Glöggur og athugull er Aðalsteinn
með afbrigðum og hafa vísindamenn
oft notið góðs af því við rannsóknir
sínar. Til dæmis man ég að dr. Finn-
ur Guðmundsson fékk upplýsingar
hjá Aðalsteini við rannsóknir sínar á
ijúpnastofninum, en sá síðamefndi
hafði fylgst sérstaklega með Græn-
landsijúpu og tekið sýni fyrir dr.
Finn. Einnig stundaði Aðalsteinn
mælingar fyrir Jöklarannsóknafélag-
ið á skriðjökli Drangajökuls í Kaldal-
óni í áratugi. Fyrir stuttu birtist í
Morgunblaðinu frétt um að brúna á
Mórillu í Kaldalóni hefði tekið af í
snjóflóði og var meginuppistaðan í
þeirri frétt greinargerð frá Aðalsteini
á Slqaldfönn, sem hann sendi Jökla-
rannsóknafélaginu fyrir 21 ári, þegar
sömu brú tók af í snjóflóði. Þar kom
greinilega fram hvemig snjóflóðið
hefði fallið og benti Aðalsteinn einn-
ig á að með því að færa brúna um
nokkra tugi metra mætti koma í veg
fyrir að sagan endurtæki sig. Ekki
þótti ráðamönnum ástæða til að fara
eftir þeim ráðleggingum, enda hefur
komið á daginn að það hefði betur
verið gert.
Á tímabili komu breskir háskóla-
stúdentar ásamt kennurum sínum
árlega til rannsókna við rætur
Drangajökuls. Aðalsteinn veitti þeim
ýmsar upplýsingar og fræddi þá þrátt
fyrir að hann kunni ekki stakt orð í
ensku og þeir ekki í íslensku. Gaman
var að fylgjast með þeirri sýni-
kennslu sem þá fór fram og held ég
að stúdentamir hafi ekkert síður
lært af þessum íslenska bónda en
af prófessorum sínum.
Eitt stærsta safn ömefna fyrir
eina jörð, sem til er á Ömefnastofn-
un er ömefnaskrá Aðalsteins á
Skjaldfönn. Enda furðuðum við
strákamir okkur á því hvemig mað-
urinn gæti þekkt nöfn á nánast hveij-
um steini og hverri laut í landareign-
inni, en það kemur trúlega til af því
Karlmannaföt
kr. 3.995,- til 9.990,-
Terylenebuxur kr. 1.195,- til 1.995,-
Gallabuxur kr. 1.195,-, 1.230,- og 1.295,-
Flauelsbuxur kr. 1.110,- og 1.900,-
Sumarblússur kr. 2.770,- og 2.390,-
Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Auglýsing frá
menntamálaráðuneytinu
Hátíóardagskrá
f Þjóðleikhúsinu í tilefni af aldarafmæli
Gunnars Gunnarssonar, skálds,
fimmtudaginn 18. maí nk. kl. 17.30.
Ávörp flytja Svavar Gestsson, menntamálaráðherra,
og Steinunn Sigurðardóttir,
varaformaður Rithöfundasambands íslands.
Sveinn Skorri Höskuldsson, prófessor,
flytur erindi um skáldskap Gunnars Gunnarssonar.
Leiklestur úr Svartfugli: Þorsteinn Gunnarsson,
Jakob Þór Einarsson, Sigurður Karlsson og
Gísli Rúnar Jónsson flytja.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Arnar Jónsson les kafla úr Fjallkirkjunni
og flytur Ijóð eftir Guðmund Böðvarsson.
Gísli Halldórsson flytur Ijóð eftir Hannes Pétursson.
Gunnar Kvaran leikur einleik á selló.
Kynnir verður Kristbjörg Kjeld.
Dagskráin er opin öllum. Aðgangur ókeypis.
Menntamálaráðuneytið.
að sama ættin hefur setið Skjaldfönn
í marga ættliði.
Snyrtimennska hefur ætíð setið í
fyrirrúmi við búskapinn hjá Aðal-
steini og er fagurt heim að líta á
Skjaldfönn. Hann veit líka nákvæm-
lega hvar í staflanum er hægt að
fínna girðingarstaur, sem passar í
tiltekna holu. Þótt manni hafi stund-
um þótt sérviskan keyra um þverbak
held ég að Steini hafí oftast haft
rétt fyrir sér og með fyrirhyggju
sparað erfiði og tvíverknað.
Búskapur á Skjaldfönn hefur oft
verið erfíður, því eins og nafnið bend-
ir til er snjóþungt í dalnum og oftast
lítið um vetrarbeit. En með elju og
dugnaði hefur þeim feðgum Aðal-
steini og Indriða, syni hans, tekist
að rækta góðan fjárstofn og ná ein-
hveijum bestu afurðum sem þekkjast
hér á landi. Alltaf hefur verið kapp-
kostað að búa vel að skepnum og
gefa þeim nóg. Á kalárunum í lok
sjöunda áratugarins var brugðist við
minnkandi heyfeng með hey- og fóð-
urbætiskaupum og stórfenglegri
ræktun og er túnið á Skjaldfönn nú
eitt hið stærsta á Vestfjörðum. Fjár-
húsin á Skjaldfönn eru byggð eftir
fyrirsögn Áðalsteins og er ég þess
fullviss að starfsmenn Teiknistofu
landbúnaðarins hafa haft mikið gagn
af samstarfí við hann. Fjárhúsin
þóttu nýstárleg á sínum tíma og var
fyrst og fremst haft í huga að vel
færi um féð í þeim og nóg pláss
væri um sauðburðinn. Þetta kemur
sér vel á köldu vori eins og nú, þeg-
ar útlit er fyrir að hver ær muni
bera á húsi.
Aðalsteinn hefur verið gæfumaður
í sínu einkalífí. Hann er kvæntur
Hólmfríði Indriðadóttur frá Ytra-
Fjalli í Aðaldal og eiga þau þijú börn
og átta bamabörn.
Ég og fjölskylda mín sendum Að-
alsteini bestu kveðjur á þessum tíma-
mótum og ég veit að ég mæli fyrir
munn allra, sem hafa verið í sveit
hjá þeim hjónum að við vorum ríkari
eftir.
Guðmundur Kr. Eydal
Afínæliskveðja:
Guðlaug Guðmunds-
dóttir, Bjarnanesi
Guðlaug Guðmundsdóttir
Bjamanesi, Nesjum, Homafirði, er
áttræð í dag, 18. maí. Hún er fædd
á Austurhóli í Nesjum 18.05.1909
og var sjötta í röðinni af níu systkin-
um. Foreldrar hennar vom Guð-
björg Sigurðardóttir og Guðmundur
Jónasson. Fimm ára gömul missti
hún föður sinn og var þá tekin í
fóstur af ættingjum sínum á Stapa
í sömu sveit. Þar var hún fram að
tvítugsaldri er hún giftist Sigjóni
Einarssyni á Meðalfelli. Þar bjuggu
þau til ársins l948 er þau fluttu í
Bjamames. Þau eignuðust 4 böm,
Snorra, Ingibjörgu, Þorstein og
Jónu. Sigjón lést árið 1961. Guð-
laug hefur tekið virkan þátt í fé-
lagslífi í sinni sveit til dæmis leik-
starfsemi. Hún hefur starfað í kven-
félaginu Vöku frá stofnun þess.
Guðlaug býr nú í íbúð aldraðra að
Víkurbraut 26 á Höfn. Á afmælis-
daginn verður hún á heimili dóttur
sinnar áð Hagatúni 7, Höfn.
Vinur
Marghleyp-
ur og meskalín
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin:
Ungn byssubófarnir — „Young
Guns“
Leikstjóri Christopher Cain.
Handrit John Fusco. Myndatöku-
stjóri Dean Semler. Tónlist Ant-
hony Marinelli. Aðalleikendur
Emilio Esteves, Kiefer Suther-
land, Lou Diamond Phillips.
Bandarísk. 20th Century Fox
1988.
Ungu byssubófamir verður
kannske ekki til þess að gera bylt-
ingu í vinsældum vestra — þó svo
hún hafi fengið athyglisverða að-
sókn þar sem hún hefur verið sýnd
— hinsvegar skipar hún sér sam-
stundis í flokk með skemmtilegum
og fmmlegum hliðarskrefum í sögu
formsins. Stfllinn er sterkur, efnis-
tökin órög, leikurinn og leikaravalið
einkar forvitnilegt og óhjákvæmi-
lega ber maður hana saman við
annan vestra, Sjö hetjur, sem einn-
ig státaði á sínum tíma af leikhóp
ungra og upprennandi harðjaxla
hvíta tjaldsins. Og strákunum í
Ungu byssubófunum, þeim Sheen-
bræðmm, Sutherland, Phillips,
Mulroney og Siemaszko vegnar
ekkert síður en McQueen, Cobum,
Dexter, Bronson, Vaughn og Buck-
holz í hinum sögufræga stórvestra.
En lengra nær samlíkingin ekki.
Söguþráður Ungra byssubófa er
ærslafenginn og öllum hefðum
ægir saman. Spunnið er, eina ferð-
ina enn, í kringum endalok þess
fræga byssubófa, drengsins Billy,
og ólætin minna á hræring af Peck-
inpah, Hawks og Leone. En
grimmdin og rómantíkin, mesk-
alíntripp og hæghraða drápsatriði
ríma illa saman hjá Cain, hann er
greinilega fullur af nýstárlegum
hugmyndum, jafnvel offullur.
Brlds
Arnór Ragnarsson
Alslemma 1989
SIEMENS
Ekki bara örbylgjuofn!
• Hann er venjulegur ofn, grillofn og örbylgjuofn,
allt í senn.
• íslenskur leiðarvísir og tvær íslenskar
matreiðslubækur fylgja.
• Og verðið er frábært:
Almennt verð kr. 42.000,-
Staðgreiðsluverð kr. 39.900,-
SMITH&NORLAND
__________NÓATÚNI 4 - SÍMI 28300
HF4302
Skráning f Reykjavíkur-alslemmunni er
nú á lokastigi. Skráð er hjá Forskoti sf., í
s: 91-623326 (Jakob) og i s: 91-673006
(Ólafur).
Viðtökur hafa verið mjög góðar hjá spil-
urum af höfuðborgarsvæðinu (yfir 30 pör
skráð til leiks) en aftur á móti vantar enn
utanbæjarspilara. Er sérstaklega skorað á
þessa spilara að vera með frá upphafi.
Næstu 2 mót verða öll utan Reykjavíkur-
svæðisins, sem hér segir: Kirkjubæjar-
klaustri 10,—11. júní, Hrafnagili v/Akur-
eyri 24.-25. júní.
Varðandi skráningu á gistirými i mót
utan höfuðborgarsvæðisins, er nauðsynlegt
að taka fram að keppendur sjálfir verða
að annast þá hluti með því að hafa sam-
band beint við Eddu-hótelin.
Spilamennska í Gerðubergi næsta laugar-
dag hefst kl. 13. Skráð verður f mótið á
mótsstað, ef spilarar mæta tímanlega til
skráningar. Spilamennsku verður fram-
haldið á laugardagskvöldið og síðasta Iotan
hefst kl. 12 á hádegi sunnudag.
Verðlaun í Alslemmu 1989 nema sam-
tals 1,7 millj. króna, miðað við lágmarks-
þátttöku (35 pör).
í lokin er vert að geta þess að 10—12
efstu pörum úr Alslemmu verður boðin
þátttaka (þeim að kostnaðarlausu) í Stór-
móti í haust, með þátttöku erlendra stór-
meistara, á borð við Omar Sharif o.fl.
Bridsfélag” Kvenna
Tveimur umferðum af þremur er nú lok-
ið í hraðsveitakeppninni og er staðan þann-
Sv. Ólfnu Kjartansdóttur 1099
Sv. YénýarViðarsdóttur 1095
Sv. Önnu Lúðvfksdóttur 1059
Sv. Öldu Hansen 1057
Sv. Sigrúnar Pétursdóttur 1025
Sv. Þorgerðar Þórarinsdóttur 1013