Morgunblaðið - 18.05.1989, Síða 39

Morgunblaðið - 18.05.1989, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989 39 Minning: Þórður Gíslason, Hafharfirði Góður nágranni hefur verið kall- aður yfir móðuna miklu. Hann átti við erfiðan sjúkdóm að stríða og vitað var að hveiju stefndi, enda þótt það kæmi ekki fram í tali, þegar við hittumst að máli. Þórður Gíslason, sem flestir þekktu sem Þórð á Hvaleyri, lést 7. maí 1989. Hann var Ámesingur að ætt, fæddur 28. apríl 1911 að Hólum í Stokkseyrarhreppi. For- eldrar hans voru hjónin Guðfinna Sigurðardóttir og Gísli Jónsson er þar bjuggu. Þau fluttu að Hvaleyri við Hafnarfjörð árið 1915 og stund- uðu þar búskap á meðan kraftar leyfðu. Þórður ólst upp í stórum hópi systkina en alls vom þau tíu og náðu átta þeirra fullorðins aldri en tvö létust ung. Þórður kvongað- ist Ingibjörgu Bjarnadóttur 20. des- ember 1941. Hún er ættuð frá Neskaupstað en foreldrar hennar vom hjónin Guðrún Friðbjömsdóttir frá Þingmúla á Héraði og Bjarni Sveinsson frá Viðfirði. Þórður og Ingibjörg keyptu húsið að Suðurgötu 62, sem þá var ný- byggt og stofnuðu þar heimili sitt og hafa ávallt búið þar síðan. Börn þeirra vom fimm. Tvíburar sem dóu ung en hin em Guðfinnur Gísli og Bjami Rúnar, sem báðir em tækni- fræðingar og Hrafnhildur sem er viðskiptafræðingur. Öll er þau mesta efnisfólk og hafa stofnað sín eigin heimili og em bamabörnin sex. Þórður starfaði um tíma hjá Áætlunarbílum Hafnarfjarðar en lengst af stundaði hann vömbif- reiðaakstur. Það gerðu sumir bræðra hans einnig og unnu þeir mikið saman og um mörg ár seldu þeir og fluttu sand til húsbygginga og var viðbmgðið dugnaði Hvaleyr- arbræðra því oftast þurfti að moka sandinum á bílana með handverk- fæmm. En það brást ekki að sand- urinn kæmi á tilsettum tíma. Þórður var mikið ljúfmenni, traustur og hjálpsamur. Hann var snyrtimenni í allri umgengni, sívinnandi við að þrífa og laga bílana það sem með þurfti eða hlúa að húsinu. Vom þau hjónin mjög samhent í því að prýða í kringum sig og var fagurt að líta vel ræktað- an og blómum skiýddan garðinn þeirra. Þórður var mikill gölskyldu- maður og barnabörnin vom kær- komin í heimsókn eða til lengri dvalar ef með þurfti af einhverjum ástæðum. Með Þórði er góður maður geng- inn. Góður og traustur vinur. Burt- för hans breytir svipmótí götunnar okkar, ljúfi og glaðlegi maðurinn er horfinn. Hann var .einn þeirra manna sem mat og virti góðar dyggðir eins og trúmennsku, skyldurækni og heiðarleika. Það er mannbætandi að kynnast og eiga slíka samferðamenn. Við flytjum Þórði þakkir og biðjum honum blessunar guðs á nýjum vegum. Eftirlifandi konu hans og fjölskyldu flytjum við innilegar samúðarkveðj- ur. Páll V. Danielsson Prentun þessarar greinar í blað- inu í gær misfórst. Er hún því birt á ný og beðist velvirðingar á mistök- unum. Guðrún Sigurðar- dóttir - Kveðjuorð Fædd 15. júlí 1907 Dáin 7. mai 1989 Aðeins nokkrar kveðjulínur til að minnast vinkonu minnar Guðrúnar Sigurðardóttur með þakklæti fyrir að eiga svo mikinn þátt í að gera bernsku mína ríkari en ella hefði verið. Ég gekk um heimili hennar eins og kötturinn Himmelíus um árabil. Þar var enginn dyrasími og vinir og vandamenn komu og fóru eins og hluti af heimilisfólkinu. Þeir nutu ómældrar gestrisni, hlýju og hinnar léttu kímni sem ríkti þar. Sem uppalandi var Guðrún ein- stök. Ekkert nöldur eða skammir en maður var fljótur að bæta úr ef maður sá að henni mislíkaði. Á hinn bóginn dugði aldrei minna en fyrstu verðlaun ef við krakkarnir gerðum viðvik. í mínum augum sem bams veitti heimili Guðrúnar öryggi og ánægju og virtist vandamála- laust. Það hefur þó varla verið þar sem hún var ekkja og 5 barna móðir auk þess sem hún vann fulla vinnu utan heimilisins. Fari hún í friði. Kristín Kristinsdóttir SPURÐU UM et Limiö se"1 alll! »r |ýiargar geröir- TÓmSTUnDflHÚSID HF Laugavegi 164, sími 21901 m Hunt’s Minute Gourmet er lausnin fyrir þá sem gjarnan vilja borða kjarngóðan og ljúffengan mat en hafa lítinn tíma til að elda hann og enn minni tíma til að þvo upp. Hunt’s Minute Gourmet eru sósur blandaðar grænmeti og ávöxtum, 6 tegundir sem henta bæði fyrir kjöt og fisk. Bragðtegundir: ítalskur réttur (Cliicken Cacciatore) Súrsætur réttur (Sweet & Sour Chicken) Grillréttur (Barbecued Chicken) Austurlenskur réttur (Oriental Beef) ítalskar kjötbollur rneð sósu (Italian Meatballs with sauce) Kreólaréttur (Cajun Pork) Heildsöludreifíng: Innnes hf. Nýjung fyrir örbylgjuofnaeigendur SæSkeram^tiir á STÍpsunclu engin fyrirhöfn9 enginn uppþvottur Leiðbeiningar: / hverjum pakka eru þrír pokar, einn með kryddi, annar með sósu og sá þriðji til að elda I. Þú velur síðan það hráefni sem þér hentar (450-500g). 1. Kjötið / fiskurinn er skorið í litlar ræmur og sett i eldunarpokann, kryddpokinn er tæmdur út í og öllu blandað vel saman. 2. Pokanum er lokað og hann látinn vera í ofninum í jafnmargar mínútur og leiðbeiningamar á pakkanum segja til um, fer eftir hráefni. 3. Þá er sósunni bætt saman við, pokanum lokað og hann látinn vera í örbylgjuofninum þann tíma sem leiðbeiningarnar segja til um. 4. Maturinn er til, fjórir vel útilátnir skammtar af Ijúffengum pottrétti. Núðlur, hrtsgrjón eða hrásalat fer mjög vel með þessum réttum. Athugið að hráefnið sem notað er verður að vera fullþiðið. & ^3 o © 4 5 6 ^ fs 9 TOSHIBA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.