Morgunblaðið - 18.05.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
39
Minning:
Þórður Gíslason,
Hafharfirði
Góður nágranni hefur verið kall-
aður yfir móðuna miklu. Hann átti
við erfiðan sjúkdóm að stríða og
vitað var að hveiju stefndi, enda
þótt það kæmi ekki fram í tali,
þegar við hittumst að máli.
Þórður Gíslason, sem flestir
þekktu sem Þórð á Hvaleyri, lést
7. maí 1989. Hann var Ámesingur
að ætt, fæddur 28. apríl 1911 að
Hólum í Stokkseyrarhreppi. For-
eldrar hans voru hjónin Guðfinna
Sigurðardóttir og Gísli Jónsson er
þar bjuggu. Þau fluttu að Hvaleyri
við Hafnarfjörð árið 1915 og stund-
uðu þar búskap á meðan kraftar
leyfðu. Þórður ólst upp í stórum
hópi systkina en alls vom þau tíu
og náðu átta þeirra fullorðins aldri
en tvö létust ung. Þórður kvongað-
ist Ingibjörgu Bjarnadóttur 20. des-
ember 1941. Hún er ættuð frá
Neskaupstað en foreldrar hennar
vom hjónin Guðrún Friðbjömsdóttir
frá Þingmúla á Héraði og Bjarni
Sveinsson frá Viðfirði.
Þórður og Ingibjörg keyptu húsið
að Suðurgötu 62, sem þá var ný-
byggt og stofnuðu þar heimili sitt
og hafa ávallt búið þar síðan. Börn
þeirra vom fimm. Tvíburar sem dóu
ung en hin em Guðfinnur Gísli og
Bjami Rúnar, sem báðir em tækni-
fræðingar og Hrafnhildur sem er
viðskiptafræðingur. Öll er þau
mesta efnisfólk og hafa stofnað sín
eigin heimili og em bamabörnin
sex.
Þórður starfaði um tíma hjá
Áætlunarbílum Hafnarfjarðar en
lengst af stundaði hann vömbif-
reiðaakstur. Það gerðu sumir
bræðra hans einnig og unnu þeir
mikið saman og um mörg ár seldu
þeir og fluttu sand til húsbygginga
og var viðbmgðið dugnaði Hvaleyr-
arbræðra því oftast þurfti að moka
sandinum á bílana með handverk-
fæmm. En það brást ekki að sand-
urinn kæmi á tilsettum tíma.
Þórður var mikið ljúfmenni,
traustur og hjálpsamur. Hann var
snyrtimenni í allri umgengni,
sívinnandi við að þrífa og laga
bílana það sem með þurfti eða hlúa
að húsinu. Vom þau hjónin mjög
samhent í því að prýða í kringum
sig og var fagurt að líta vel ræktað-
an og blómum skiýddan garðinn
þeirra. Þórður var mikill gölskyldu-
maður og barnabörnin vom kær-
komin í heimsókn eða til lengri
dvalar ef með þurfti af einhverjum
ástæðum.
Með Þórði er góður maður geng-
inn. Góður og traustur vinur. Burt-
för hans breytir svipmótí götunnar
okkar, ljúfi og glaðlegi maðurinn
er horfinn. Hann var .einn þeirra
manna sem mat og virti góðar
dyggðir eins og trúmennsku,
skyldurækni og heiðarleika. Það er
mannbætandi að kynnast og eiga
slíka samferðamenn. Við flytjum
Þórði þakkir og biðjum honum
blessunar guðs á nýjum vegum.
Eftirlifandi konu hans og fjölskyldu
flytjum við innilegar samúðarkveðj-
ur.
Páll V. Danielsson
Prentun þessarar greinar í blað-
inu í gær misfórst. Er hún því birt
á ný og beðist velvirðingar á mistök-
unum.
Guðrún
Sigurðar-
dóttir -
Kveðjuorð
Fædd 15. júlí 1907
Dáin 7. mai 1989
Aðeins nokkrar kveðjulínur til að
minnast vinkonu minnar Guðrúnar
Sigurðardóttur með þakklæti fyrir
að eiga svo mikinn þátt í að gera
bernsku mína ríkari en ella hefði
verið. Ég gekk um heimili hennar
eins og kötturinn Himmelíus um
árabil. Þar var enginn dyrasími og
vinir og vandamenn komu og fóru
eins og hluti af heimilisfólkinu.
Þeir nutu ómældrar gestrisni, hlýju
og hinnar léttu kímni sem ríkti
þar. Sem uppalandi var Guðrún ein-
stök. Ekkert nöldur eða skammir
en maður var fljótur að bæta úr
ef maður sá að henni mislíkaði. Á
hinn bóginn dugði aldrei minna en
fyrstu verðlaun ef við krakkarnir
gerðum viðvik. í mínum augum sem
bams veitti heimili Guðrúnar öryggi
og ánægju og virtist vandamála-
laust. Það hefur þó varla verið þar
sem hún var ekkja og 5 barna
móðir auk þess sem hún vann fulla
vinnu utan heimilisins. Fari hún í
friði.
Kristín Kristinsdóttir
SPURÐU UM
et
Limiö se"1
alll! »r
|ýiargar
geröir-
TÓmSTUnDflHÚSID HF
Laugavegi 164, sími 21901
m
Hunt’s Minute Gourmet er lausnin fyrir þá sem
gjarnan vilja borða kjarngóðan og ljúffengan mat
en hafa lítinn tíma til að elda hann og enn minni tíma til
að þvo upp. Hunt’s Minute Gourmet eru sósur blandaðar
grænmeti og ávöxtum, 6 tegundir sem henta bæði fyrir
kjöt og fisk.
Bragðtegundir:
ítalskur réttur (Cliicken Cacciatore)
Súrsætur réttur (Sweet & Sour Chicken)
Grillréttur (Barbecued Chicken)
Austurlenskur réttur (Oriental Beef)
ítalskar kjötbollur rneð sósu (Italian Meatballs with sauce)
Kreólaréttur (Cajun Pork)
Heildsöludreifíng: Innnes hf.
Nýjung fyrir örbylgjuofnaeigendur
SæSkeram^tiir á STÍpsunclu
engin fyrirhöfn9 enginn uppþvottur
Leiðbeiningar:
/ hverjum pakka eru þrír pokar,
einn með kryddi, annar með sósu
og sá þriðji til að elda I. Þú velur
síðan það hráefni sem þér hentar
(450-500g).
1. Kjötið / fiskurinn er skorið í
litlar ræmur og sett i
eldunarpokann, kryddpokinn
er tæmdur út í og öllu blandað
vel saman.
2. Pokanum er lokað og hann
látinn vera í ofninum í
jafnmargar mínútur og
leiðbeiningamar á pakkanum
segja til um, fer eftir hráefni.
3. Þá er sósunni bætt saman við,
pokanum lokað og hann látinn
vera í örbylgjuofninum þann
tíma sem leiðbeiningarnar
segja til um.
4. Maturinn er til, fjórir vel
útilátnir skammtar af
Ijúffengum pottrétti. Núðlur,
hrtsgrjón eða hrásalat fer
mjög vel með þessum réttum.
Athugið að hráefnið sem
notað er verður að vera
fullþiðið.
& ^3
o ©
4 5 6
^ fs 9
TOSHIBA