Morgunblaðið - 18.05.1989, Page 52

Morgunblaðið - 18.05.1989, Page 52
SAGA CLASS í heimi hraða og athafna FLUGLEIDIR I MERKI UM GÓEAN ÚTBÚNAÐ NÍÐSTERK ÞUNGAVIGTARLÍNA FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. # Veiðimenn fögnuðu afmæli Stangaveiðimenn fjöl- menntu á 50 ára afmæli Stangaveiðifélags Reykjavíkur á Hótel Sögu í gær. Þar gæddu þeir sér m.a. á 500 manna tertu, sem var eins og fáni félags- ins. Væntanlega hefur umræðuefnið verið kom- andi veiðisumar, en fyrstu laxana má veiða í næstu viku. Félagar í SVFR eru á þriðja þúsund en stofn- endur fyrir 50 árum voru 43. Tveir eru eftirlifandi og var annar þeirra við- staddur afmælisfundinn í gær, Valur Gíslason leik- ari, en hann er handhafi félagsskírteinis nr. 1. Næturfundur hjá BHMR og ríkinu: Vonir bundnar við að samn- ingar takist í þessari lotu Framhaldsskólanemar neita að sækja próf í sumar VIÐRÆÐUR Bandalags háskóla- | menntaðra ríkisstarfsmanna og stjómvalda um nýjan kjarasamn- ing vom í fullurn gangi á mið- nætti í nótt. Reiknað var með að I Aldís óhreyfð 1 viku; Kostnaður- inn 800 þús- und á dag ALDÍS, hin nýja Boeing-737- þota Flugleiða, hefur staðið óhreyfð í viku vegna kjara- deilu flugmanna félagsins, sem fara fram á sérstaka álagsgreiðslu fyrir að fljúga vélinni. Að sögn Einars Sig- urðssonar, blaðafúlltrúa Flugleiða, er kostnaður fé- lagsins vegna vélarinnar rúmlega 800 þús. krónur á dag, þar sem hún stendur óhreyfð. Einar sagði að borist hefðu fyrirspumir frá tveimur flugfé- lögum, bresku og bandarísku, um kaup eða leigu á vélinni en ekki hefur verið tekin afstaða til þeirra ennþá. „Menn fylgjast með vélunum og vita hvað er að gerast hér hjá okkur og all- ir sem geta náð í vélar teljast mjög heppnir því að það vantar víða vélar," sagði Einar. Sagði hann að krafa flug- manna um sérstaka launa- hækkun fyrir að fljúga þessum vélum, hefði komið fram eftir að vélin var komin til landsins þegar verið var að semja um hámarks flugtíma. Vitað var að seroja þyrfti sérstaklega um fjölda flugtíma, þar sem flug- menn fóru fram á að þeir yrðu mest átta í einu en í gildi er samningur sama stéttarfélags við Amarflug um tíu tíma flug á Boeing-737-vélunum. ekki yrði staðið upp frá samninga- borðinu fyrr en niðurstaða væri fengin. Fáein atriði en mikilvæg voru ófrágengin og brugðið gat til beggja vona, þó aðilar ættu síður von á því. Viðræðumar seinnipartinn í gær og í gærkvöldi snerust meðal annars um að skýra frekar ákvæði um end- urskoðun á launakerfi háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna sem hefði að markmiði að samræma kjör þeirra kjörum háskólamanna á al- mennum markaði, þar sem segir að þess skuli gætt að umræddar breyt- ingar valdi ekki röskun á hinu al- menna launakerfi í landinu. Þá vildu háskólamenn að samningurinn yrði uppsegjanlegur haustið 1990 í stað 1. júlí 1991 eða að öðrum kosti að endurskoðunarákvæðið í samningn- um yrði gert afdráttarlausara. Þá var ófrágengið hvemig gengið yrði frá greiðslum fyrir vinnu og bakvakt- ír í verkfalli, en rætt um eingreiðslu í því sambandi. Einnig var ófrágeng- ið hvemig staðið yrði að skólalokum og sérstakur viðræðuhópur skipaður fulltrúum HÍK, menntamálaráðu- neytisins og skólameisturum fjallaði um það. Kennarar gera kröfu um að ekki verði slakað á faglegum kröf- um við útskrift nemenda og að yfir- vinna verði greidd fyrir frágang skólaársins. Talið var að erfítt gæti orðið að finna lausn á þessu máli, en fulltrúar nemenda afhentu í gær deiluaðilum harðort bréf, þar sem segir að kennsla yfir sumarmánuðina þýði aðeins hærri laun handa kennur- um en lægri handa nemendum. Nem- endur kreíjast þess að allar hug- myndir um frekari skólasetu þeirra verði að engu gerðar og að kennarar veiti þeim umbun erfiðis síns á þeim forsendum, sem þegar liggja fyrir, eins og það er orðað. „Ég held að það sé margt sem bendir til þess að úr þessu gæti orð- ið samningur. Það eru eitt eða tvö atriði sem eftir er að ganga frá og ekki hefur verið komist að efnislegu samkomulagi um,“ sagði Wincie Jó- hannsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags og varaformaður BHMR skömmu fyrir miðnættið í nótt. Hún sagði að ekki yrði hægt að ræða um framkvæmd skólaloka í hveijum skóla fyrir sig, fyrr en ákvörðun um frestun verkfalls hefði verið tekin. Skólameistarar ætla að boða til kennarafunda strax í dag, ef verkfallið leysist. í framhaldi af þeim fundum munu þeir ræða við nemendur. Að sögn Þóris Auðólfs- sonar, eins af fulltrúum nemenda, kemur ekki til greina af margra hálfu að sitja í skóla framyfir mánaðamót, þar sem flestir hafi ráðið sig í vinnu og í mörgum skólum séu útskriftar- nemar á leið í löngu undirbúnar utan- landsferðir á allra næstu dögum. „Mér finnst endastöðin vera að nálgast. Þetta er að vísu búin að vera mjög löng lota og flókin vinna frá því snemma í morgun," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, fjármála- ráðherra, skömmu fyrir miðnættið. Hann sagði að sá tímapunktur væri að nálgast að menn þyrftu að hrökkva eða stökkva. Verkfalli bílstj óra frestað um sólarhring VERKFALLI langferðabílstjóra- félagsins Sleipnis, sem boðað hafði verið á miðnætti í gær- kvöldi, hefur verið frestað þar til á miðnætti í kvöld. Um tíma í gærkvöldi leit út fyrir að verk- fall skylli á þar sem ekki gekk saman með atvinnurekendum og bílstjórum. Um miðnættið náðist hins vegar samkomulag um að fresta verkfallinu og semja bók- un, sem lögð verður fyrir félags- fúnd Sleipnis kl. 20 í kvöld. Flugmenn og bankamenn sátu einnig á fundum hjá ríkissáttasemj- ara ásamt viðsemjendum sínum í gærdag og fram á kvöld. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissátta- semjara þokaðist lítið eitt í sam- komulagsátt í deilu flugmanna og Flugleiða í gær. Þar var þó engin lausn í sjónmáli í gærkvöldi, en Guðlaugur bjóst við að setið yrði áfram á fundi fram á nóttina. Sáttaviðræður bankamanna og bankanna báru hins vegar engan árangur í gær, að sögn sáttasemj- ara. Gott verð fyrir g’áma- fisk í Belgíu Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. í GÆR var á fískmarkaðinum í Zeebrugge boðinn upp fískur úr gámi frá Vestmannaeyjum. Hér var fyrst og fremst um steinbít og ufsa að ræða. Meðalverð á steinbíti var rúmlega 60 kr. en tæplega 80 kr. fyrir ufsann. Kaupendur á markaðinum létu vel af fiskinum og sögðu þetta uppboð auka tiltrú þeirra á íslenskum físki. Fiskur frá íslandi hefur ekki ver- ið boðinn upp reglulega í Belgíu og samkvæmt heimildum fréttaritara mun fnykurinn úr karfagámum sem hingað bárust fyrir nokkrum miss- erum enn í vitum fiskkaupmanna en einungs íjórðungur þeirrar send- ingar reyndist hæfur til manneldis! Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Til greina kemur að skipta Aðalverktökum í tvö félög Undaþága firá reglum Mannvirkjasjóðs til umræðu, segir Þorsteinn Pálsson JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir eðlilegt að ríkið eignist meirihluta í íslenskum aðalverktökum. Núverandi ástand sé með öllu óverjandi. Ráðherra segir að til greina komi að íslenskum aðalverktökum verði skipt í tvö félög: eiginlegt verktakafyrirtæki og eignarhalds- félag, „sem er ekkert annað en samkomulag um það hvernig upp- söfnuðum auði verði skilað til eig- enda,“ segir Jón Baldvin. „Á liðnum áratugum hefur þetta fyrirtæki vaxið upp í að verða eitt hið öflugasta í landinu. Eignir þess, umfram og óviðkomandi hinni eig- inlegu verktakastarfsemi, nema milljörðum," segir Jón Baldvin. Ráðherra leggst gegn hugmynd- inni um opin útboð, þar sem hann segir að taka verði með í reikning- inn reglur Mannvirkjasjóðs NATO þess efnis að opin útboð fari fram í öllum aðildarlöndum Atlantshafs- bandalagsins. Slík tilhögun segir hann að mundi skaða íslenska hagsmuni. Jón Baldvin útilokar ekki að Ís- lenskum aðalverktökum verði breytt í almenningshlutafélag, en þá þurfi að býggja hér upp raun- verulegan hlutaij ármarkað. Mótun framtíðarfyrirkomulags félagsins verði verkefni nýrrar stjórnar Að- alverktaka. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir það vera mikinn misskilning að halda því fram að einokun á framkvæmdum á vegum varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli, í höndum íslenskra aðalverktaka, sé nær meginstefnu Mannvirkjasjóðs NATO, en það að fá undanþágu frá reglunni um út- boð í öllum löndum NATO-ríkjanna í þá veru að opin útboð um fram- kvæmdirnar fari fram hér á ís- landi. Hann segir jafnframt að sjálfstæðismenn hafi aldrei litið á veru varnarliðsins á íslandi, sem auðlind, eða útveg. Sjá ennfremur viðtöl á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.