Morgunblaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 26
26
MORGVNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989
4-
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989
27
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulitrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 80 kr. eintakið.
Alþýðubandalagið
flokkur í upplausn
Alþýðubandalagið er flokkur
í upplausn. Allt frá því Ólaf-
ur Ragnar Grímsson náði kjöri
sem formaður flokksins í óþökk
gamla valdakjarnans innan hans,
sem á rætur til Kommúnista-
flokks íslands, hafa þeir sem
urðu undir beðið færis að ná sér
niðri á formanninum. Þeir hafa
nú hafist handa um það.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
ekki þau ítök í stjóm Utgáfufé-
lags Þjóðviljans, að hann ráði því
hvetjir taka við ritstjóm blaðs-
ins, nú þegar tveir ritstjórar þess
hafa hætt störfum við blaðið.
Aðeins Ámi Bergmann situr þar
eftir á ritstjórastóli en hann hef-
ur það sér helst til ágætis að
mati þeirra sem hafa ráð blaðsins
í hendi sér, að hann hefur lítil
afskipti haft af daglegri stjóm
blaðsins eða flokkspólitískum
skrifum í það.
Málgagn Alþýðubandalagsins
hefur ekki aðeins verið tekið
undan áhrifavaldi formanns þess.
Það hefur einnig verið ákveðið
að selja húseign flokksins, án
þess að hann sé hafður með í
ráðum. Gamla valdaklíkan í Al-
þýðubandalaginu bjó þannig um
hnúta að gullkistur sjóðsins og
eignir eru í hennar vörslu hvað
sem tautar og raular og kemur
þar Sigfúsarsjóður til sögunnar.
Af samtölum um húsnæðismál
flokksins í blaðinu hér á miðviku-
dag má ráða, að Ólafur Ragnar
sé næsta utangátta um fram-
kvæmd þeirra mála. Er það sér-
kennileg aðstaða fyrir formann
stjórnmálaflokks að vita kannski
aðeins fyrir tilviljun um heimilis-
fangið á bækistöðvum flokksins
síns og minnir á stöðu Hannibals
Valdimarssonar, þegar hann var
formaður Alþýðuflokksins.
Eftir að í ljós kom að Þjóðvilj-
inn var úr höndum formanns
Alþýðubandalagsins og hann er
ekki hafður með í ráðum um
flokksbækistöðvamar, ákváðu
andstæðingar Ólafs Ragnars að
taka af honum Alþýðubandalags-
félagið í Reykjavík. Gerðist það
á aðalfundi þess í fyrrakvöld.
Hafa nú stuðningsmenn Ólafs
Ragnars og áhugafólk um nána
samvinnu vinstri manna ákveðið
að stofna nýtt félag innan Al-
þýðubandalagsins. Er ekki unnt
að líta á þá ákvörðun nema sem
skref til þess að stofna til form-
legs klofnings innan Alþýðu-
. bandalagsins. Verður það vafa-
laust rannsóknarefni fyrir stjóm-
málafræðinga framtíðarinnar,
hvernig formennsku hefur verið
háttað í stjórnmálaflokki, þegar
stuðningsmenn formannsins
sjálfs telja sig knúna til að stofna
nýjan flokk innan flokksins.
í Morgunblaðssamtali fyrir
skömmu lagði Ólafur Ragnar
Grímsson á ráðin um það, hvem-
ig háttað skyldi samstarfi þeirra
þriggja flokka sem mynda núver-
andi ríkisstjórn. Hann leit ekki
aðeins til þeirra tveggja ára sem
eftir eru af þessu kjörtímabili
heldur einnig til næstu íjögurra
ára. Þeir sem standa með Ólafi
Ragnari að ríkisstjóminni hafa
ekki viljað ræða mikið um þessa
framtíðardrauma, ekki einu sinni
Jón Baldvin Hannibalsson sem
fór þó um landið á rauðu ljósi
til að boða nýja tíma í vinstra
samstarfi. Nú blasir við að þess-
ir framtíðardraumar Ólafs Ragn-
ars hafa byggst á hæpnu mati á
stöðu hans sjálfs innan Alþýðu-
bandalagsins. Honum hefur að
minnsta kosti ekki tekist að
halda þannig á málum, að
framtíð flokksins sé öllum ljós.
Skammsýni Ólafs Ragnars
Grímssonar nær ekki einungis til
málefna flokks hans. Engu er
líkara en hann hafi ekki gert sér
nokkra grein fyrir því, að í kjöl-
far kjarasamninganna sem hann
hafði forgöngu um ásamt Ög-
mundi Jónassyni, formanni
BSRB, sigldu verðhækkanir.
Bjartsýni hans um afkomu ríkis-
sjóðs er sama marki brennd.
Andstæðingar Ólafs Ragnars
Grímssonar innan Alþýðubanda-
lagsins telja, að hann hafi brotið
brýr að baki sér í kjaraviðræðum
og verkfalli BHMR. Þá hafi hann
svipt sjálfan sig fylgi þeirra hópa,
sem stóðu helst að uppgangi
hans innan Alþýðubandalagsins,
nú eigi hann allt sitt undir stuðn-
ingi gömlu valdaklíkunnar í
flokknum.
Uppgjörið er að hefjast innan
Alþýðubandalagsins. Atburðirnir
undanfama daga gætu verið
upphafið að formlegum klofningi
innan flokksins. I samtali við
Morgunblaðið í gær segir Margr-
ét S. Bjömsdóttir, sem er í for-
ystusveit stofnenda hins nýja al-
þýðubandalagsfélags: „Ahuga-
mál okkar er fyrst og fremst
framtíðin, umræða um stjórnmál
og samvinnu íslenskra vinstri
manna. Um það mun hið nýja
félag snúast verði af stofnun
þess. Við eram ánægð með þessa
þróun og eram bjartsýn á mögu-
leika íslenskra jafnaðarmanna."
Þessi orð benda til þess að hluti
Alþýðubandalags gæti gengið til
liðs við Alþýðuflokk. Þá hefðu
vinstri menn farið í heilan hring
á hálfri öld og væra komnir aft-
ur til ársins 1938.
ISLANDSHEIMSOKN JOHANNESAR PALS PAFA II
Pílagrímsferð til krist-
inna í löndum ykkar
—segir Jóhannes Páll II páfi í ávarpi til
Norðurlandabúa við upphaf ferðar
Kæru vinir minir.
Mig langar til að senda ykkur hjartanlegar kveðjur nú þegar ég
undirbý hirðisheimsókn mína til Norðurlandanna. Þjóðhöfðingjar
ykkar, forsætisráðherrar og yfirmenn lútersku kirkjudeildanna í lönd-
um ykkar voru svo vinsamleg að bjóða mér að koma og ég hlakka
afar mikið til heimsóknarinnar. Einkum hlakka ég þó til að hitta litla
en hjartkæra kaþólska söfnuði ykkar.
Fyrst og fremst er það ætlunin
að ferð mín verði pílagrímsferð í
þágu trúarinnar til kristinna í lönd-
um ykkar. Mig langar til að heiðra
kristinn arf ykkar og dýrlinga fort-
íðarinnar, karla og konur sem skópu
sögu ykkar, ekki síst með því að
treysta ævinlega á mátt fagnaðar-
erindisins. Ég mun nota tækifærið
í löndum ykkar og þakka Guði fyr-
ir ný og fom afrek norrænu þjóð-
anna ásamt öllum öðrum er vilja
sameinast mér í bæn. Það er einnig
einlæg von mín að nærvera biskups-
ins í Róm verði til að auka veg
samkirkjulegu hreyfingarinnar sem
fengið hefur kristna menn til að
hætta aldagömlum deilum og heíja
í staðinn raunhæfar og einlægar
viðræður ásamt samvinnu um
áhugamál beggja.
Félagsmál og efnahagur í löndum
Fylgdist með ferð-
um páfa til Póllands
MEÐAL þeirra fjölmörgu blaða-
manna sem fylgjast með heim-
sókn Jóhannesar Páls páfa til
íslands er Ray Dabrowski. Hann
er fiölmiðlaritari Stór-Evrópu-
deildar Aðventista og hefiir að-
setur í London þar sem hann rit-
stýrir jafhframt blaðinu Coas-
cience and Liberty. Dabrowski
er pólskfæddur og hefur fylgst
með Jóhannesi Páli páfa í þrem
heimsóknum hans til ættlands
sins síðan hann varð páfi.
Dabrowski segir ótrúlega breyt-
ingu hafa orðið í afstöðu stjómvalda
til kristinnar trúar í Austantjalds-
ríkjunum, m.a. ætli ungverska
stjómin að leggja niður ráðuneytið
sem séð hefur um að hamla áhrifum
kaþólsku kirkjunnar. Ákafar hvatn-
ingar páfa til að mannréttindi verði
haldin í heiðri hafi tvímælalaust
orðið til að stappa stálinu í Pólveija
sem flestir era kaþólskir og, sem
eðlilegt er, mjög stoltir af þessum
syni ættjarðarinnar.
Hann sagði að spumingin um
réttmæti fóstureyðinga væri að vísu
nokkurt hitamál í pólsku kosning-
unum sem heíjast á sunnudag en
myndi þó ekki verða til að kljúfa
fylkingar stjómarandstæðinga.
Margir kaþólskir í hreyfingunni
Ray Dabrowski Morgunblaðið/Sverrir
tækju undir sjónarmið kirkjunnar
sem fordæmir fóstureyðingar en
þeir væra ekki endilega á því að
rétt væri að setja lög á þingi um
að fangelsa beri lækna fyrir að
eyða fóstri eins og rætt hefði verið
um.
ykkar allra era hvorttveggja á háu
stigi. Ykkur er það kappsmál að
hlurskipti annarra þjóða verði hið
sama, einkum í þróunarlöndunum.
Samfélag allra manna á jörðunni
er ykkur skuldbundið vegna þessa
örlætis og bróðurkærleika. Ka-
þólska kirkjan hefur fyrir sitt leyti
lagt megin áherslu á þróun allra
landa í starfi sínu. í embættisgjörð-
um mínum hef ég reynt að boða
félagslegar lausnir kirkjunnar á
þrúgandi vandamálum mannkyns-
ins. Ég er sannfærður um að vegur-
inn fram á við verður ekki fundinn
án þess að taka tillit til vaxandi
áherslu fólks um allan heim á rétt-
indi einstaklingsins, grandvallar-
mannréttindi.
Það nægir ekki að sinna ein-
vörðungu efnislegum þörfum; full-
nægja verður einnig frelsi andans
sem er kjami þess er gerir okkur
að mönnum. Þess vegna vona ég
að mér leyfist að hylla það sem
áunnist hefur í þessum efnum hjá
ykkur og tjá ykkur skoðanir mínar
á sameiginlegri ábyrgð á frekari
sókn til friðar, réttlætis, frelsis og
samstöðu.
Ég þakka öllum sem undirbúa
komu mína, sérstaklega þeim er sjá
um andlegan undirbúning með það
að markmiði að samræður okkar
verði í reynd einlægar. Ég treysti
á guðlegan innblástur og hand-
leiðslu í ferð minni.
Við Norðmenn segi ég: „Gud
velsigne dere alle.“ Við íslendinga:
„Guð blessi ykkur öll.“ Við Finna:
„Jumala siunatkoon teita kaikkia."
Við Dani: „Gud velsigne jer alle“
og við Svía: „Gud valsigna er alla.“
Morgunblaðið/Þorkell
Gregoríanskur söngur
æfður fyrir páfamessu
Söngsveitin Fílharmónía kom saman á Landakotstúni í gærkvöldi
á æfingu fyrir messu páfa þar næstkomandi sunnudag. Með níutíu
manna söngsveit leika blásarar úr Synfóníuhljómsveit íslands, en
stjómandi er Úlrik Ólason, organisti Landakotskirkju. Hann seg-
ir æfingar fyrir messuna hafa hafist strax eftir flutning FUharm-
óníu á Sálumessu Mozarts um páskana, en síðsta hálfa mánuðinn
hafi hópurinn komið saman á hveiju kvöldi. Sungin verður grego-
riönsk messa á sunnudagsmorguninn, með latneskum sálmalögum.
Páfamessa:
Sextíu börn ganga til
altaris í fyrsta sinn
FYRSTA altarisganga sextíu ka-
þólskra bama víðs vegar að af
landinu verður í messu páfa á
Landakotstúni á sunnudag.
Bömin eru á aldrinum átta til
ellefii ára og hafa í tvö ár búið
sig undir fyrstu altarisgönguna
og skriftiraar. Séra Georg, skóla-
stjóri Landakotsskóla, var feng-
inn til að segja stuttlega frá
þessu.
Að sögn séra Georgs ganga ka-
þólsk böm í fyrsta sinn til altaris
sex til átta ára gömul, en aldurinn
er mismunandi eftir löndum. Hann
segir flest barnanna sem ganga til
altaris hjá páfa á sunnudag vera
átta ára, en nokkur sem komi utan
af landi séu eldri. Tæpur helmingur
hópsins er búsettur í vamarstöðinni
á Keflavíkurflugvelli.
Undirbúningi bamanna er þann-
ig háttað að þau hittast vikulega
um tveggja ára skeið ásamt nunn-
um eða prestum og læra um altar-
is- og skriftasakramentið og mess-
una. Að sögn séra Georgs er mikil-
vægt að vandað sé til undirbúnings
bamanna, þar sem í altaris-
göngunni komist fólk í nánasta
snertingu við Krist. Segir séra Ge-
org að kaþólikkar taki við altaris-
sakramenti í hverri messu, og sum-
ir sæki messur daglega.
Aðspurður um skriftirnar segir
séra Georg, að reyni menn að gera
sér grein fyrir að mistökum sínum
og viðurkenna þau til að hljóta fyrir-
gefningu öðlist þeir einnig styrk
fyrir framtíðina. Hann segir að
skriftir fullorðins fólks séu líkar
samtali til að losa sig við ýmsa erfið-
leika. Börn byiji skriftir snemma
og oft fækki ferðum þeirra í skrifta-
stól meðan á táningsáranum standi,
enda ráði kaþólikkar hvort og hve-
nær þeir gangi til skrifta.
í lok samtalsins við séra Georg
er hann inntur eftir hvort hann telji
að heimsókn páfa verði til þess að
fleiri íslendingar gangi í kaþólska
söfnuðinn. Hann kveðst vera sam-
mála Branderburg, biskup í Svíþjóð,
um að það verði líklega ekki svo
neinu nemi. Hann voni hins vegar
að heimsóknin hafi þau áhrif að
kristið fólk hérlendis leggi enn
meiri rækt við trú sína.
Páfi kemur með Frónfara:
*
Islenskur matur fram-
reiddur á leiðinni
JÓHANNES Páll H páfi kemur
til landsins frá Tromsö í Noregi
með Frónfara, Boeing 727 þotu
Flugleiða, á laugardag. Flugvélin
lendir á Keflavíkurflugvelli
klukkan 13.00. Miklar öryggis-
ráðstafanir verða gerðar í flug-
vélinni, sem og á flugvöllunum
hér og í Noregi. Flugstjóri í ferð-
inni verður Bjöm Guðmundsson,
en hann er einn reyndasti flug-
stjóri Flugleiða, að sögn Einars
Sigurðssonar blaðafiilltrúa. Á
leiðinni verður páfa og fylgdar-
Iiði hans borinn íslenskur matur,
sem yfirmatsveinn Flugleiða
framreiðir.
Flugvélinni verður skipt í þijú
farrými. Fremst verður páfi, ásamt
einkaritara sínum og þjónustufólki.
Á öðra farrými verða 32 kardinál-
ar, biskupar og aðrir kirkjunnar
menn og á þriðja farrými verður
hópur 50 blaðamanna, sem fylgja
páfa á ferðum hans.
Öll áhöfn Frónfara verður
íslensk. Bjöm Guðmundsson verður
flugstjóri, aðstoðarflugmaður verð-
ur Láras Guðgeirsson. Átta manns
verða í flugþjónustuliði undir stjóm
Emu Hrólfsdóttur, yfirflugfreyju
Flugleiða.
A leiðinni til íslands verður páfa
og fylgdarliði hans borinn íslenskur
matur. Yfirmatreiðslumaður Flug-
leiða, Jón Sigurðsson, fer utan með
flugvélinni og hefur með höndum
matreiðsluna á leiðinni hingað. Á
matseðlinum verða sjávarréttir og
gæðakjöt.
Frónfari er nýjasta Boeing 727
vél Flugleiða. Ástæðan fyrir því að
hún er notuð, en ekki önnur hvor
hinna nýju 737 véla, er að sögn
Einars Sigurðssonar sú, að þessar
vélar era stærri.
Öryggisgæsla verður mikil, en
hins vegar er ekki hægt að upplýsa
í smáatriðum í hveiju hún felst. Þó
er vitað, að í Tromsö er gæslan í
Frónfari
höndum sérstakrar öryggisnefndar
norska hersins og á Keflavíkurflug-
velli sér lögreglusljórinn í Keflavík
um öryggismálin.
Héðan fer páfi á sunnudag með
flugvél frá ítalska flugfélaginu Alit-
alia. Menn þaðan hafa einmitt verið
hér til að gefa góð ráð til Flugleiða-
manna um tilhögun og þjónustu um
borð í Frónfara og hafa þeir lýst
ánægju með aðstöðuna og þjón-
ustuna, segir Einar Sigurðsson.
Páfi blessar nýja
íslenska táknmynd
úr g’ulli í messu
Hluti söluverðs rennur til blindra
í MESSU páfa á Landakotstúni
mun hann veita viðtöku og blessa
táknmynd úr gulli sem Ásgeir
Gunnarsson, fyrrum forsljóri
Veltis, hefur hannað og látið
smíða. Gulltáknið myndar þre-
faldan kross og er meðal fárra
gjafa frá einkaaðilum sem ákveð-
ið var að páfi veitti viðtöku. For-
seti íslands og biskup munu einn-
ig þiggja gullkrossa Ásgeirs að
gjöf. Einkaleyfi hefur fengist fyr-
ir þessum mun, er seldur verður
sem skartgripur í mörgum lönd-
um. Hluti af söluverði hvers
kross mun renna til blindra á
íslandi og erlendis.
Ásgeir Gunnarsson segist hafa
viljað leggja einhveiju góðu málefni
lið með sölu táknmyndarinnar sem
hann kýs að kalla „Gullnu þrenning-
una“. Því hafi hann haft samband
við Halldór Rafnar hjá samtökum
blindra og sjónskertra og reifað
hugmyndina um að framleiða og
selja táknið með því skilorði að
blindir njóti góðs af. Sigurður Stein-
þórsson gullsmiður í Gulli og silfri
hafi tekið að sér að smíða krossinn
og nú hafi einkaleyfi verið fengið
í Svíþjóð og maður ráðinn til mark-
aðssetningar í mörgum löndum.
Ásgeir sýndi Alfred Jolson biskup
kaþólska söfnuðarins krossinn þeg-
ár hann heyrði að páfí væri væntan-
legur hingað til lands. í páfagarði
var ákveðið að hans heilagleiki
tæki við krossinum í messu sinni
hér á landi og blessaði. Sá kross
verður síðan varðveittur í blindra-
heimilinu í Reykjavík en samskonar
gripur í Vatikaninu.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti íslands, tekur við hálsmeni með
krossinum þrefalda á skrifstofu
>AFI AISLANDI 3,OG 4. JUN! Cc
- 00
-c
Gáfu út póstkort
með mynd af páfa
Kortaútgáfan Aurora Borealis á Akureyri hefiir gefið út
þetta póstkort með mynd af Jóhannesi Páli páfa. Fyrirtæk-
ið reka Anna G. Torfadóttir og Soffia Amadóttir, en á
vegum þess hefur komið út jólakort með myndum úr
Teiknibók frá Amastofnun og skrautletrað Faðir vor á
latínu. Páfapóstkortið er fáanlegt í bókaverslunum og
miiy’agripabúðum í miðborg Reykjavíkur.
i 331 N111 invd NHOÍ 3dOd
Morgunblaðið/RAX
Páfi mun blessa kross eins og
þennan í messu á sunnudaginn.
Jafiiframt þiggja forseti íslands
og biskup krossa að gjöf.
sinni í stjómarráðinu fyrir hádegi
í dag. Þá mun Halldór Rafnar af-
henda biskupnum yfir íslandi, hr.
Pétri Sigurgeirssyni, „Gullnu
þrenninguna" í hófí er haldið verður
síðdegis í tilefni af sjötugsafmæli
biskups í dag.
Segir Ásgeir Gunnarsson mikinn
heiður að biskup og forseti íslands
þiggi gulltáknið, sem hugsað sé sem
íslenskt framlag til blindra.
Minnispen-
ingar vegna
Norðurlanda-
ferðar páfa
í TILEFNI af heimsókn Jóhann-
esar Páls II páfa til íslands em
gefhir út minnispeningar, sem
seldir em samtimis á Norður-
löndunum í takmörkuðu upplagi:
Málmur Upplag Vigt Stœrð Vcrð
Brons 15.000 230 g 70 mm 2.930
Silfur (925) 2.500 180 g 70 mm 10.700
Silfur (925) 24 g 33 mm 2.690
70 mm peningarnir verða af-
greiddir í öskjum með undirstöðu
úr tré og upprunaskírteini. 33 mm
peningarnir verða afgreiddir í
myntöslqum.
Afgreiðsla hérlendis í bókabúð-
inni Hafnarstræti 4 og hjá félagi
katólskra, Hávallagötu 16.
Nauðsynlegt er að panta sem
fyrst þar sem upplagið, sem hingað
fæst, er mjög takmarkað.