Morgunblaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989
V estmannaeyjar:
Fjölmennur útífundur
Vestmannaeyjum
STÉTTAFELÖGIN í Vestmannaeyjum efiidu til útifundar á Stakka-
gerðistúninu í Vestmannaeyjum í gær. Um 300 manns mættu á fúnd-
inn sem er einhver fjölmennasti útifúndur sem haldinn hefúr verið
í Eyjum í áraraðir.
Fiskvinnslustöðvar lokuðu um
miðjan dag og verslanir voru lokað-
ar meðan á fundinum stóð. Fundar-
menn báru kröfuspjöld með hinum
ýmsu áletrunum.
Vilborg Þorsteinsdóttir, formað-
ur Verkakvennafélagsins Snótar,
sljórnaði fundinum en ávörp fluttu
Jón Kjartansson ,formaður Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja, og Þor-
gerður Jóhannsdóttir, formaður
Starfsmannafélags Vestmanna-
eyja.
Jón las upp yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar sem kom inn á samn-
ingafund ASÍ og VSÍ í lok samn-
ingagerðar í vor og var ein af for-
sendunum fýrir að samningar tók-
ust. Jón rakti þær hækkanir sem
gengið hafa jrfir og fullyrti að þær
væru komnar langt fram yfir þær
launahækkanir sem fengust við
gerð síðustu samninga. I lok
ávarpsins sagði Jón að ríkisstjórnin
hefði brugðist og launþegar yrðu
að grípa til aðgerða.
Þorgerður tók í sama streng og
Jón og varaði ráðamenn þjóðarinnar
við að launþegar létu ekki bjóða sér
framkomu þá sem ríkisstjómin
hefði nú sýnt af sér. „Við lýsum
yfir vanþóknun okkar á verkum
þessarar ríkisstjórnar,“ vom loka-
orð Þorgerðar.
í lok fundarins var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
Útifundur stéttafélaganna í
Vestmannaeyjum, haldinn 1. júní
1989, mótmælir harðlega þeim
gengdarlausu verðhækkunum sem
dunið hafa yfir landsmenn og ekk-
ert lát virðist vera á.
Loforðin sem ríkisstjórnin gaf við
gerð kjarasamninganna, um aðhald
í verðlagsmálum, hafa verið svikin.
Fundurinn telur að loforð ríkis-
stjórnarinnar, um aðhald í verðlags-
málum, hafi verið ein af meginstoð-
unum undir gerð samninganna.
Standi ríkisstjómin ekki við gefin
loforð, telur fundurinn að forsendur
kjarasamninganna séu brostnar.
Því skorar fundurinn á heildar-
samtök launafólks að beita þeim
aðgerðum sem duga til að veija
þann kaupmátt sem samið var um.
Grímur
Frá útifundinum í Eyjum.
Morgunblaiðið/Grímur
Verðhækkunum mótmælt á á Lækjartorgi;
Grundvöllur samn-
inganna er að hrynja
FJÖLMENNI mótmælti verð-
hækkunum undanfarinna daga á
almennum fjöklafundi sem Al-
VEÐURHORFUR I DAG, 2. JUNI
YFIRLIT í GÆR: Hæg breytileg átt eða vestangola víðast hvar á
landinu og sumstaðar dálítíl súld.
SPÁ: Víðast hvar hæg breytileg átt. Súldarloft vestanlands og við
ströndina norðanlands en úrkomulítið í öðrum landshlutum.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Hæg breytileg átt og
skýjað víðast hvar. Sumstaðar súld við vesturströndina en annars
þurrt. Hiti nálægt meðallagi.
Norðan, 4vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/*■■/* Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
Q Hitastig:
10 gráður á Celsíus
\J Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
-]- Skafrenningur
jT Þrumuveður
VEÐUR VlBA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 9 skýjað Reykjavik 7 skýjað
Bergen 8 léttskýjað
Helsinki 10 skýjað
Kaupmannah. 11 skýjað
Narssarssuaq 8 alskýjað
Nuuk 3 rigning
Osló 7 rigning
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Algarve 16 þokumóða
Amsterdam / 9 skúr
Barcelona 17 þokumóða
Berlin 12 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar 17 rigning
Frankfurt 10 léttskýjað
Glasgow 3 léttskýjað
Hamborg 11 hálfskýjað
Las Palmas vantar
London 9 skýjað
Los Angeles vantar
Lúxemborg 10 léttskýjað
Madríd 13 skýjað
Malaga 14 þokumóða
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal vantar
New York vantar
Orlando vantar
Paris 10 léttskýjað
Róm 16 þokumóða
Vín 11 rigning
Washington vantar
Winnipeg vantar
þýðusambands íslands og Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja
efiidu til á Lækjartorgi seinni-
partinn í gær. A fúndinum var
samþykkt ályktun þar sem gengd-
arlausum verðhækkunum undan-
farinna daga er harðlega mót-
mælt og ríkissljómin vörað við
afleiðingum þess að þær nái fram
að ganga. Ásmundur Stefánsson,
forseti Alþýðusambands íslands,
sagði að aðgerðir hlytu að fylgja
í kjölfarið léti ríkissfjómin sér
ekki segjast. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar í Reykjavík
sóttu á bilinu 15-20 þúsund manns
fúndinn.
í ályktun fundarins, sem var sam-
þykkt einróma, segir ennfremur að
með hækkununum, bresti forsendur
nýgerðra kjarasamninga. „Sú ríkis-
stjórn sem við samningsgerðina lof-
aði aðhaldi í verðlagsmálum ber
ábyrgð á því að verðhækkanir séu
stöðvaðar. Fundurinn skorar á
stjómvöld að bæta launafólki þann
skaða sem það hefur orðið fyrir.
Fundurinn krefst þess að ríkisstjóm-
in stöðvi þegar í stað allar verð-
hækkanir og standi við fýrirheit í
nýgerðum kjarasamningum.“
Asmundur Stefánsson, forseti
ASI, og Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB, ávörpuðu fundinn, en
auk þess barst honum fjöldi kveðja
og hvatninga frá verkalýðs- og
starfsmannafélögum víðs vegar að
af landinu.
„Ofurtekjufólkið hjá
Flugleiðum“
Ögmundur Jónasson rakti í ávarpi
sínu lið fyrir lið fyrirheit ríkisstjórn-
innar í kjarasamningunum við BSRB
annars vegar og efndirnar hins veg-
ar hvað snerti þær hækkanir sem
heimilaðar hefðu verið undanfarið.
Samningarnir sem BSRB hefði gert
hefðu verið jafnlaunasamningar í
anda sanngirni, sem hefðu fært þeim
mest sem minnst hefðu fýrir. At-
vinnurekendur hefðu reiðst þessum
samningum og fundist þeir of háir.
Þeir hefðu heimtað stórfellda kjara-
skerðingu og margir stjórnmála-
menn hefðu tekið undir sönginn um
að ekki væri svigrúm. Við þessar
aðstæður hefði BSRB gert kjara-
samninga, gegn kjaraskerðingu og
um verðlagseftirlit og verðlagsað-
hald.
„Auðvitað vitum við að það eru
til skýringar á þessu öllu sarnan,"
sagði hann eftir að hafa rakið verð-
lagshækkanimar. „Þeirra skýringa
má leita í efnahagsreikningum olíu-
fyrirtækja, skipafélaga, flugfélaga
og okurfyrirtækja. En heimilin hafa
líka sína efnahagsreikninga og þá
má einnig útskýra. Auðvitað vitum
við að þegar ofurtekjufólki hjá Flug-
leiðum eru veittar hækkanir um
tæpar 40 þúsund krónur á mánuði
eða sem nemur launum lágtekju-
manns, þá þarf að sækja þá peninga
einhvers staðar. Og nú á að sækja
þá í okkar vasa, þess fólks sem gerði
jafnlaunasamninga. Það fólk á nú
að borga hærri flugfargjöld í flugi
innanlands. Þetta ákvað ríkisstjóm-
in. Þessari ákvörðun og öðrum
ákvörðunum ríkisstjómarinnar, sem
opna fyrir verðhækkunarbylgjuna
mótmælum við. Við mótmælum öll
sem einn,“ sagði Ögmundur.
Hann spurði hver væri sá sið-
ferðisgrundvöllur sem lægi að baki
því að það fólk sem væri á örorku-
og ellilífeyrisbótum nyti ekki þess
orlofsauka, sem kjarasamningar
kvæðu á um. Hveijar væru
stríðsskaðabætur þessa fólks? Ög-
mundur svaraði með því að rekja
að á undanfömu heilu ári hefðu
bætur til elli- og örorkulífeyrisþega
hækkað um 1,5% í mars síðastliðnum
og um 5,3% frá 1. maí. Nú í dag
bæmst þær fréttir innan úr ráðu-
neytum að þjónustugjöld fyrir lækn-
isaðstoð og lyf handa þeim myndu
hækka á bilinu 15-22%. „Þessu
ranglæti mótmælum við öll. Þetta
er ekki bara krafa um sanngirni.
Var ekki verið að tala um verðstöðv-
un á opinberri þjónustu."
Ríkisstjórnin hefiir brugðist
Ásmundur Stefánsson rifjaði upp
í ávarpi sínu yfirlýsingu ríkisstjóm-
arinnar til þess að greiða fyrir gerð
kjarasamninga ASI og VSÍ fyrir
mánuði síðan þess efnis að hún
myndi spoma eins og frekast væri
kostur við verðhækkunum næstu
misserin. Þess sæust engin merki
að ríkisstjórnin hefði uppi einhveija
tilburði til þess að standa við þessa
yfirlýsingu. „Ég segi þess vegna:
Ríkisstjómarflokkamir hafa brugð-
ist og það er hart og það er sárt.
Það er auðvitað sárast fyrir okkur
sem kusum þá sem flokka jafnréttis
og félagshyggju. Ef verðhækkana-
sóttin bráir ekki af ríkisstjóminni
þá hljóta viðbrögð okkar að verða
hörð. Þau hljóta að verða mjög hörð.
Láti ríkisstjómin ekki segjast þá
verða frekari aðgerðir til þess að
knýja ríkisstjómina til þess að
standa við sinn hlut að fylgja í kjöl-
farið. Við verðum að láta það ger-
ast.“
Ásmundur sagði að sá fjöldi sem
mættur væri á fundinn sýndi að fólki
væri full alvara með að láta stjórn-
völd standa við yfirlýsingar sínar við
gerð kjarasamninga. Það væri krist-
altært að sá lærdómur sem mætti
draga af þessum efndum fyrirheita
væri að í næstu samningum yrði að
krefjast vísitölutryggingar launa.
Búvöruverðshækkunin nú hækkaði
útgjöld meðal fjölskyldu um 1.200
krónur á mánuði. Þessi eina hækkun
æti þannig upp meira en helming
af 2.000 króna upphafshækkun
kjarasamninganna. 8,20 króna
hækkun bensínlítrans nú, þar sem
meira en helmingur rynni í ríkiskass-
ann yki útgjöld manns sem æki 300
kílómetra á viku um 1.100 krónur
á mánuði ,og þar af tæki ríkissjóðuir
600 krónur. Þannig magnaði ríkis-
stjórnin verðbólgnna og þetta tvennt
tæki til sín á þriðja þúsund á mán-
uði. „Grundvöllur samningana er að
hrynja og það verður knýja ríkis-
stjómina til þess að taka mark á
eigin fyrirheitum," sagði Ásmundur.