Morgunblaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989
49
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
HEFURÐU VERÐSKYN?
Þá skaltu líta nánar á þetta...
)
)
Landbúnaður:
Ofvaxin yfirbygging
Til Velvakanda.
Nokkra athygli vekur að nú und-
anfarið auglýsa bændaskólar stíft
eftir nemendum. Ef að líkum lætur
eiga þessir væntanlegu nemendur
litið erindi út í þá atvinnugrein sem
hér um ræðir um ófyrirsjáanlega
I framtíð, þar sem landbúnaður þarf
I ennþá að dragast verulega saman
vegna offramleiðslu og það ennþá
eira en áður hafði verið talið.
I Yfirbygging þessa landbúnaðar-
TMi------------
II
Þessir hringdu ...
Dýr landbúnaður
Borgari hringdi:
„Athyglisverð grein birtist í Vel-
vakanda fyrir skömmu og bar hún
fyrirsögnina „Landbúnaður: Of-
vaxin yfirbygging". Þar var vaknin
athygli á því hversu margir lifa af
alls konar gerviþjónustu sem teng-
ist landbúnaði hér. á landi og hversu
miklu bákni hefur verið komið upp
í kringum hann. Engin .furða þó
bóndinn beri lítið úr bítum þegar
halda þarf uppi öllu þessu liði. Ein-
hver tíma auglýsti fjármálaráð-
herra eftir sparnaðartillögum. Þó
það hafi verið annar fjármálaráð-
herra en sá sem nú situr mætti
vekja athygli á þessu. Hvernig
væri að beita nú hnífnum og leggja
niður flestar þessar stofnanir sem
lifa á landbúnaðinum og spara
þannig milljónir króna?“
Tímabært að banna
reykingar
Lesandi hringdi:
„Ég vil þakka Samvinnuferð-
um-Landsýn fyrir að banna
reykingar í Mallorca ferðum. Það
er löngu tímabært að banna
reykingar í flugvélum. í fyrra lenti
dóttir mín í því að hún fékk ekki
reyklaus sæti og var hún með böm
sín tvö sem þola ekki reyk. Varð
hún að vera á gangi um flugvélina
með bömin til að forðast reykjar-
svæluna og spillti þetta ánægjunni
af ferðalaginu.
Eins er ástndið í flugstöð Leifs
Eiríkssonar óþolandi. Þar er léleg
loftræsting, ef hún er einhver.
Reykingar eru leyfðar við nokkur
borð í kaffistofunni en fyrir bragð-
ið er reykjarsvæla yfir allt þar.
Eins er við útgöngudyrnar, þar er
svo mikill reykjarmökkur að þar
er hreinlega ólíft. Þarna ætti að
banna allar reykingar."
Svört leðurtaska
Aðfaranótt sunnudags gleymdist
svört leðurtaska með peningaveski,
snyrtivömm o. fl. við pylsuvagninn
í Lækjargötu. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í Guðrúnu
í síma 10005.
Kvenprestar fylki liði
Helga hringdi:
„Mér finnst að allir okkar kven-
prestar ættu að fyikja liði við mess-
ur páfa bæði á Landakotstúni og
Þingvöllum. Þannig mætti sýna
honum að við lítum svo á að Guð
hafi skapað bæði konur og karla,
bæði kynin þurfi til að viðhalda
mannkyninu og áð bæði kynin beri
sömu ábyrð á lífinu á jörðinni.“
eru, muni ekki láta á sér standa I
áður en árið er liðið ef svo fer fram JH
sem horfir. fl
J. Gunnarsson
Leitar 1
gamalla I
i • •__M
Kettlingar
Tveir tveggja mánuða gamlir
kettlingar fást gefins. Upplýsingar
í síma 657086.
Drengjahjól
Blátt drengjahjól er í óskilum í
Goðheimum. Upplýsingar í síma
681101. •
Köttur
Hvítur fressköttur með svörtum
flekkjum fór að heiman frá sér að
Hávallagötu fyrir nokkra. Hann er
ómerktur. Vinsamlegast hringið í
síma 15409 eða 26046 ef hann
hefur einhvers staðar komið fram.
Rúskinnsjakki
Rúskinnsjakki með gleraugum í
vasa fannst fyrir skömmu. Upplýs-
ingar í síma 614952.
Kettlingar
Sjö vikna vel vandir
angórakettlingar, annar brúnn en
hinn grár, fást gefins. Upplýsingar
í síma 673024.
Að komast aftur úr öllum
Til Velvakanda.
Undir blaktandi fánum og herlúðrum hvell-
um
sig hópaði þjóðanna safn, [og gjöllum
þangað fór og af íslandi flokkur af keppend-
um
og fékk á sig töluvert nafn: [snjöllum
í þeirri iþrótt að komast aftur úr öllum
var enginn í heimi þeim jafn.
Þannig orti Jón prófessor Helga-
son í Kaupmannahöfn fyrir mörgum
aratugum um för íslendinga á
Ólympíuleika. Og víst mátti einnig
heimfæra þessar Ijóðlínur upp á för
okkar manna til Seoul á sl. ári. Þar
fór flest á hvolf, líkt og bátur sigl-
ingakappanna. í Kóreu-förinni skorti
þó ekkert á fjölmennið í fararstjórn-
inni héðan.
Nú hefur svipað gerzt að því er
varðar sönglagakeppnina í Sviss. En
landinn er alltaf samur við sig: Kenn-
ir hlutdrægum dómnefndum og
vondri hvalveiðistefnu (?). Að lagið,
sem héðan var sent, hafi verið Iélegt
og flutningur eftir því, kemur víst
fáum í hug. •
En eftir á að hyggja: Hveiju nam
’kostnaðurinn, sem skattgreiðendur
borga.
Ingibjörg Sigurðardóttir
GASTÆKI
Höfum fyrirliggjandi eldavélar, luktir, ofna, ísskápa, vatns-
hitara, stálvaska meö eldavélum og m.fl. sem henta
bátum, húsbílum, tjöldum, sumarbústööum og víöa annars-
staðar.
Skeljungsbúðin
Síöumúla 33
símar 681722 og 38125
1
€
4
VM 930 þvottavélin
Stiglaus hitastilling. Hrað-, ullar- og
gardínuþvottur, E sparnaðarþvottur.
Áfangavinding. 600/900 sn.
íslensk handþók.
Blomberq
Verö kr. 56*900#'
Staðgr. 54.060,-
GÓÐ KJÖR
TT 320 þurrkarinn
90 lítra þurrkrými.
Næg niðurkæling á þvotti. 2 hitastig.
Blomberq
Einar Farestveit&Co.hf.
BORQARTÚN 28, SÍMAR: (91) 18995 OQ 622900 - NÆO BÍLA8TÆOI
STEYPT
NIÐURFÖLL,
RISTAR,
KARMAR
OGLOK i
Sérsteypum einnig annað eftir pöntun.
JÁRNSTEYPAN HF.
ÁNANAUSTUM 3, SÍMAR 24407 - 624260
JÁRNSTEYPA - ÁLSTEYPA - KOPARSTEYPA