Morgunblaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989
Sauðárkrókur:
••
Ollum sagt upp
hjá Loðskinni
ÖLLU starfsfólki Loðskinns
hf. á Sauðárkróki, 50 talsins,
hefur verið sagt upp störfiim
frá og með 1. júní. Að sögn
Þorbjamar Arnasonar, fram-
kvæmdastjóra var það gert
vegna endurskipulagningar
og lagfæringa á rekstrinum.
Hann sagðist reikna með að
meirihluti starfsfólksins yrði
endurráðinn að þeim aðgerð-
um loknum.
Að sögn Þorbjöms hefur verið
yfir 20 milljóna króna tap á
rekstrinum á síðasta ári. Flest
bendi til þess að hægt verði að
snúa þeirri þróun við, enda sé í
dag meiri eftirspum eftir fram-
leiðslunni en hægt er að anna.
Nýtt fiskverð í
burðarliðnum
NYTT lágmarksverð á fiski
verður að öllum líkindum
ákveðið nú fyrir sunnnudag,
sjómannadaginn.
Líklegast er talið að ákveðin
verði um 5% hækkun og síðar
í þessum mánuði fylgi gengis-
felling til að bæta fiskvinnsl-
unni upp þann útgjaldaauka
sem verðhækkuninni fylgir.
Nýtt fiskverð gildir frá og með
upphafi þessa mánaðar.
Skilagjald
á einnota um-
búðir komið á
' SAMKVÆMT nýiri reglugerð
iðnaðarráðuneytisins er nú
byijað að leggja skilagjald, 5
krónur, á drykki í einnota
umbúðum. Þegar umbúðunum
er skilað verður gjaldið end-
urgreitt.
I frétt frá ráðuneytinu um
þetta mál segir m.a. að sérstakt
hlutafélag, Endurvinnslan hf.,
verði stofnað í næstu viku og
muni félagið skipuleggja söfnun-
ar-og skilakerfi. Gert er ráð fyr-
ir að móttaka skilagjaldskyldra
umbúða geti hafist í lok júlí eða
byijun ágúst.
Arnarflugs-
vél kyrrsett
í Amsterdam
FLUGVÉL frá Amarflugi
tafðist í nokkrar klukkustund-
ir á Schiphol-flugvelli í Amst-
erdam í gær, þar sem hún
hafði verið kyrrsett. Kristinn
Sigtryggsson forstjóri Amar-
flugs segir að um misskilning
hafi verið að ræða, þar sem
kyrrsetningin hafi verið
vegna skuldar við flugvöllinn,
sem félagið hafi greitt á rétt-
um tíma, en ekki komist rétta
boðleið.
Kristinn sagði að auk tafar
vegna kyrrsetningarinnar hafi
verið bætt við hvíldartíma fyrir
áhöfn flugvélarinnar áður en
hún fór heim aftur í gærkvöldi.
Vélin var í áætlunarflugi og all-
margir farþegar með og aðrir
biðu hér heima eftir að fara ut-
an, þeirra á meðal 70 manna
hópur frá Samvinnuferð-
um/Landsýn. „Okkur þykir
þetta leitt vegna farþega okkar,
sem urðu fyrir óþægindum,“
sagði Kristinn.
Morgunblaðið/Þorkell
Vélarbilun íFokker
Bilun varð í öðrum hreyfli einnar af Fokker-vélum Flugleiða sem var
í áætlunarflugi frá Akureyri til Reykjavíkur í gærkvöldi. Varð að
slökkva á hreyflinum, en lending heppnaðist fullkomlega og engan
sakaði. 44 manns voru um borð.
Á myndinni skoða flugvirkjar bilaða hreyfilinn eftir lendinguna.
Sljórn Sambands sparisjóða:
Ahugi á að kaupa
hlut ríkisins í Út-
vegsbanka ítrekaður
STJÓRN Sambands sparisjóða hefúr samþykkt að ítreka áhuga spari-
sjóðanna á að hefja alvarlegar viðræður við viðræðunefiid viðskipta-
ráðherra um kaup á hlutabréfaeign ríkisins í Utvegsbankanum.
Samþykkt borgarsljórnar:
Baldvin Tryggvason, formaður
Sambands sparisjóða, segir að við-
ræðunefnd viðskiptaráðherra um
sölu á hlutabréfum ríkisins í Út-
vegsbankanum hafi á fúndi í desem-
ber síðastliðnum útilokað sparisjóð-
ina frá kaupum á hlutabréfunum á
þeirri forsendu að sparisjóðimir
hefðu ekki sameinast.
',,Nú hefur hins vegar komið fram
á opinberum vettvangi, að líkur séu
til þess að ríkisvaldið sé reiðubúið
til þess að selja hlutabréfaeign sína
þremur einkabönkum, jafnvel þó
Áfram veittar uiidan-
þágur frá hundabanni
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti á fúndi sínum í gærkvöldi
með 11 atkvæðum gegn 2 að halda áfram að veita undanþágur frá
banni við hundahaldi í borginni, að lokinni annarri umræðu um
nýja samþykkt um hundahald. Samþykkt var að herða skilyrði fyrir
veitingu hundaleyfis verulega.
Ein veigamesta breytingin á fyrri
reglugerð er sú, að vilji menn fá
leyfi til að halda hund í fjölbýlis-
húsi þurfa allir íbúar í stigagangin-
um að veita skrifiegt samþykki sitt.
Vilji menn hafa hund í raðhúsi eða
parhúsi þarf samþykki aðliggjandi
íbúða. í fjölbýlishúsum þar sem
sérinngangar em á íbúðum þarf
samþykki allra íbúðareigenda.
Þá er nú óheimilt með öllu að
fara með hunda í almenningsgarða,
svo og um Bankastræti, Laugaveg
að Rauðarárstíg, Lækjartorg og
Austurstræti, en áður vom hundar
leyfðir þar frá kl. 9 á kvöldin til 8
á morgnana. Bannað verður að fara
með hunda á útivistarsvæðin í
Öskjuhlíð, Elliðaárdal og Viðey.
Einu svæðin, þar sem sleppa má
hundum lausum, em Geirsnef,
Geldinganes og auð og ónýtt svæði
fjarri íbúðabyggð.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi sjálfstæðismanna og
formaður nefndar sem endurskoð-
aði reglur um hundahald, segist
telja þetta veigamiklar breytingar
og hann skori á hundaeigendur að
virða nýju reglurnar.
Siguijón Pétursson, borgarfull-
trúi Alþýðubandalags, sagði sig á
sínum tíma úr „hundanefndinni".
Hann lét bóka á borgarstjórnar-
fundinum að í október á síðasta ári
hefðu farið fram almennar kosning-
ar um hundahald í Reykjavík, og
þótt þátttaka hefði verið dræm
hefðu úrslitin sýnt skýra andstöðu
Reykvíkinga við áframhaldandi
undanþágur frá hundabanni. Skoð-
anir kjósenda væm nú að engu
hafðar, og hann greiddi því at-
kvæði gegn samþykktinni.
Elín G. Ólafsdóttir, fulltrúi
Kvennalistans, lagði til að við næstu
borgarstjómarkosningar yrði al-
menn atkvæðagreiðsla um undan-
þágu frá hundabanni. Sú tillaga var
felld með 8 atkvæðum gegn 4.
þeir hafi ekki sameinast. Við eigum
því erfitt með að skilja hvers vegna
ennþá er ekki hægt að ræða við
sparisjóðina um kaupin, þrátt fyrir
að sparisjóðimir séu með heildar-
innlán, sem em jafnhá innlánum
allra þessara þriggja viðskipta-
banka til samans, og þrátt fyrir að
eiginfjárstaða sparisjóðanna var
betri um síðustu áramót heldur en (
þessara banka. Við höfum ávallt
lýst því yfir að við væmm reiðubún-
ir til þess að vinna að sammna
sparisjóðanna, en að sjálfsögðu
verðum við að fara eftir þeirri lög-
gjöf, sem nú er í gildi um spari-
sjóði, og teljum jafnframt mjög
brýnt að tengsl sparisjóðanna við
heimabyggðir þeirra verði ekki rof-
in. Við emm hins vegar með það
mikið og náið samstarf, að það eitt
útaf fyrir sig er nánast eins og um
sammna sparisjóðanna væri að
ræða, en samt sem áður væmm við
fúsir til þess að vinna að formlegum
sammna þeirra í stóra heild á næstu
ámm sé þess þörf. Þá ber að hafa
í huga að sparisjóðimir em dreifðir
út um allt land, og við myndum því
uppfylla betur það skilyrði ráðherra
að eignaraðildin yrði dreifð, sér-
staklega þegar litið er til þess að
að baki sparisjóðanna em engir
hagsmunahópar, og eignaraðildin
yrði að vemlegum hluta utan
Reyiqavíkur. Við teljum því hags-
munum þjóðfélagsins best borgið
með því að við verðum eignaraðilar
að Útvegsbankanum heldur en ein-
hveijir aðrir,“ sagði Baldvin.
Dregið úr verðhækkun kindakjöts
NIÐURGREIÐSLUR búvara
vegna verðlagningar nú um mán-
aðamótin verða ekki auknar frá
því sem áður var ákveðið. Þetta
var staðfest á ríkisstjómarfundi í
gærmorgun. Að sögn Steingríms
J. Sigfússonar, landbúnaðarráð-
herra, verður þó dregið úr hækk-
un kindakjötsins og notaðar til
þess niðurgreiðslur vaxta- og
geymslukostnaðar sem svigrúm
er til innan fjárlaga. Þá verður
niðurgreiðslum breytt á mjólkur-
vömm, þannig að þær verða aukn-
ar á smjöri og nýmjólk til að draga
úr hækkunum, en minnkaðar á
rjóma og ýmsum öðmm tegund-
um.
Verðlagsnefndir búvara hafa lokið
störfum fyrir nokkru og verða nýir
verðlistar gefnir út í dag. Smásölu-
verð mjólkurvara hækkar um 13%
að meðaltali að sögn landbúnaðar-
ráðherra, kindakjöt um 5% (í stað
9% að óbreyttum niðurgreiðslum),
egg og kjúklingar um 7—8% og nau-
takjöt um 10%.
Steingrímur sagðist hafa áhyggjur
af því að þessar mikilvægu neyslu-
vörur hækkuðu þetta mikið og að
það yrði til að draga frekar úr sölu
þeirra. En því miður sæu menn enga
raunhæfa möguleika til að afstýra
þeim.
Steingrímur J. Sigfusson, landbúnaðarráðherra:
Gríðarlegt áfall hætti loðdýra-
bændur búskap í stórum stíl
Heildarfiárfesting í loðdýraræktinni orðin 3 milljarðar
„ÞAÐ verður gríðarlegt áfall ef loðdýrabændur hætta búskap í stór-
um stíl, en ég hef vonast til þess að það gerðist ekki nú á miðju ári.
Það er hins vegar alveg Ijóst að þegar þessu framleiðsluári lýkur
verða menn að meta stöðu sína, og taka ákvörðun um hvort þeir
lóga dýrunum eða setja bústofiiinn á eitt árið enn,“ segir Steingrím-
ur J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra. í Morgunblaðinu í gær kom
fram að lfklegt sé að jafiivel allir loðdýrabændur á Suðurlandi hætti
loðdýrarækt á þessu ári, og samkvæmt heimildum blaðsins er svip-
aða sögu að segja úr öðrum landshlutum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sambandi íslenskra loðdýrarækt-
enda er áætlað að heildarfjárfesting
í loðdýraræktinni sé tæplega þrír
milljarðar króna í dag, en hún er öll
í skuld. Fjárfesting í refarækt er
rúmlega 800 milljónir, í minkarækt
tæplega 1.700 milljónir, ogfjárfest-
ing í fóðurstöðvum er um 400 millj-
ónir króna. Þá munu rekstrarskuld-
ir vera miklar, t.d. vegna fóður-
kaupa, auk lausaskulda í bönkum.
Áætlað er að um 300 störf séu í
loðdýraræktinni, hjá bændunum
sjálfum, skinnaverkunum, fóður-
stöðvum og annarri þjónustu sem
tengist búgreininni.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
að á næstunni yrði haldinn fundur
fulltrúa frá landbúnaðarráðuneyt-
inu, Stofnlánadeild landbúnaðarins,
Framleiðnisjóði og Byggðastofnun,
auk fulltrúa frá Sambandi íslenskra
loðdýraræktenda og Stéttarsam-
bandi bænda. Þar yrði lögð fram
skýrsla nefndar á vegum ráðuneyt-
isins, sem kannað hefur ijárhags-
stöðu og möguleika þeirra loðdýra-
bænda, sem sótt hafa um aðstoð
til nefndarinnar. Fundurinn væri
meðal annars hugsaður til þess að
þeir aðilar, sem lagt hafa fjármagn
í loðdýraræktina, þ. e. Stofnlána-
deildin, Framleiðnisjóður og
Byggðastofnun, gætu geti borið sig
saman um stöðu búgreinarinnar
eins og hún blásir við í dag.
„Á þessum fundi verður fjallað
um þá íjárfestingu sem lögð hefur
verið í loðdýraræktina, stöðu ein-
stakra bænda og byggðaáhrifin af
því ef loðdýraræktin hrynur. Það
er ljóst að í fjölmörgum tilfellum
hefur fólk ekkert annað að hverfa
að ef svo fer, og ég fæ ekki séð
að nokkuð sé til staðar til að færa
til baka í þeim tilfellum sem menn
hafa afsalað sér framleiðslurétti í
hefðbundnum búgreinum, þegar
þeir hófu loðdýrarækt. Það er eng-
inn fullvirðisréttur tiltækur handa
þessu fólki, og þyrfti því að byija
á að taka hann af öðrum, ef út-
hluta ætti því honum á ný. Mér
sýnist því ljóst að í einhveijum til-
vikum muni fólk flosna upp af jörð-
um sínum ef svona fer, og verður
sá hópur kannski stærri en maður
var að vona.“
Aðspurður sagði Steingrímur að
þegar gripið var til þeirra ráðstaf-
ana í vetur að veita ijármagni til
niðurgreiðslu á fóðri og til að lána
bændum, hefði ekki verið gefinn
neinn ádráttur eða fyrirheit um
frekari aðstoð. „Ég tók það skýrt
fram þá, að menn yrðu að reyna
meta stöðuna hver fyrir sig, vegna
þess að ég vil ekki halda mönnum
áfram í þessari búgrein út á ein-
hveijar tálvonir. Ég held að kannski
hefði fyrr mátt svara mönnum
þannig, að þeim væru ekki gefnar
vonir um hluti sem ekki stæðust."