Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 38
óq . : 71- : ’PíXDTMMI1 fflQAJH'/'»03ÖM
dö MORGUNBLAÐIÐ - FIMMTUDAGUR 27: JUtl' 1989----------------------------------- - -........ ...................-
í Svarfaðardal og Halldór N. Sigur-
jónsson frá Hallbjarnarstöðum á
Tjörnesi. Hún fluttist átján ára
gömul til Reykjavíkur þar sem hún
kynntist síðar manni sínum
Tryggva Magnússyni frá Bitru í
Eyjafirði. Hann starfaði lengst af á
Pósthúsinu í Reykjavík. Þau eign-
uðust þrjú börn, Baldur f. 1931,
Brynja f. 1932 og Magnús f. 1943.
Þau misstu báða synina snögglega
og langt fyrir aldur fram. Magnús
drukknaði tæplega átján ára að
aldri árið 1961, þá einn eftir í for-
eldrahúsum. Baldur lést tæplega
38 ára eftir skamma en erfiða sjúk-
dómslegu árið 1969. Brynja er því
ein eftirlifandi barna þeirra.
Tryggvi maður hennar lést 1971.
Þó amma væri ekki langskóla-
gengin þá var hún góðum gáfum
gædd og bjó yfir góðri dómgreind.
Eins og margir íslendingar af henn-
ar kynslóð nýtti hún sér þá mennt-
un sem stóð til boða og ber þar
hátt kveðskap Stephan G. Steph-
anssonar. Óhætt er að fullyrða að
margt í lífsskoðun hennar hafi átt
rætur í ljóðum hans. Þannig endur-
speglaðist sýn hennar á manneskj-
una í þessum ljóðlínum sem hún
vísaði oft til:
Þitt er menntað af og önd,
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd,
hjartað sanna og góða.
Amma var okkur barnabörnun-
um alltaf góð. Sjálf kenndi hún
ekki með útásetningum eða athuga-
semdum. Hún kenndi með góðu
fordæmi. Sú mikla alúð við heimilis-
verk, eldamennsku, garðvinnu, og
raunar allt það sem hún tók sér
fyrir hendur, verður okkur barna-
börnunum án efa til leiðsagnar í
lífi okkar.
Lífið gaf henni mikið, þ.e.a.s.
góðan mann og börn/ Hún missti
líka mikið. Hún fýlltist aldrei sjálfs-
vorkunn eða beiskju út í lífið en
tókst að draga jákvæðan lærdóm
af erfiðri reynslu. Amma trúði því
að jarðvist einstaklingsins væri að-
eins þrep í þroskasögu hans og að
framundan væru mörg æðri tilvist-
arstig. Því varð henni tíðrætt eink-
um síðustu árin um þá endurfundi
sem hún ætti í vændum við mann-
inn sinn og drengina sem farnir
voru á undan. Hún var ekki í nokkr-
um vafa um að þeir endurfundir
yrðu ánægjulegir.
Við óskum ömmu okkar góðrar
ferðar með þökk fyrir samfýlgdina.
Tryggvi, Valgerður, Stef-
án, Haraldur og Magnús.
Hún amma Dóra er dáin. Við
barnabörnin söknum innilegrar
stemmningsmanneskju sem átti svo
mikið í okkur öllum. Hún gat verið
rífandi skemmtileg og hafði lifandi
áhuga á samtímanum. Hjá henni
áttum við athvarf, hún var ærleg
amma og höfðingi heim að sækja.
En hún bar umhyggju fyrir fleirum
en sínum nánustu. Margir áttu sér
vísan griðastað á Hringbraut 116,
því amma skaut oft skjóishúsi yfir
utanbæjarfólk sem var að læra að
fóta sig á mölinni. Að þessu bjó hún
á efri árum, þegar afa Tryggva
naut ekki Iengur við, því amma
hafði þá jafnan ungmenni á heimil-
inu um lengri eða skemmri tíma
0g var því sjaldan ein á báti.
Hún amma okkar hlaut mörg
högg og stór í lífinu og þau stærst
þegar hún missti syni sína báða í
blóma aldurs. En hún var sterk og
stóð höggin af sér eins og hetja en
hefur um leið orðið að brynja sig
svo að hún varð hrjúfari eftir en
áður. Hún reyndist ætt sinni og
afkomendum stoð og stytta.
Garðurinn á Hringbrautinni var
hennar líf og yndi. Þrátt fyrir sólar-
leysi og hafnæðing vestast í Vestur-
bænum náði gróðurinn í garðinum
að dafna og blómgast undir hennar
handarjaðri svo að til þess var tek-
ið. Orð eftirlætisskálds hennar og
frænda, Stephans G., um grenitréð
koma nú í hugann:
Þar sem öllum öðrum tijám
of lágt þótti að gróa
undir skuggaholtum hám,
hneppt við sortaflóa
sprastu, háa, gilda grön,
grænust allra skóga.
S.Y.E., T.Þ.E.
+ ÓLAFUR K. EINARSSON, fyrrverandi verkstjóri hjá vita- og hafnamálastofnun, andaðist í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði þriðjudaginn 25. þ.m. Aðstandendur.
+ Hjartkær systir okkar og mágkona, HELGA MAGNÚSDÓTTIR kennari, Hjarðarhaga 26, Reykjavik, lést 25. þessa mánaðar. Kristín Magnúsdóttir Möller, EinarTh. Magnússon, Petrína H. Steinadóttir, Guðmundur Óli Ólason.
+ Móðir mín, tengdamóðir og amma, KARA ÁSLAUG HELGADÓTTIR, Frakkastíg 7, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 25. júlí. Ingibjörg Jónsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Áslaug Sigurðardóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson.
+ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, tengdadóttir og amma, SVEINFRÍÐUR ALDA ÞORGEIRSDÓTTIR, Smyrlahrauni 42, Hafnarfirði, lést að morgni 26. júlí í Víðistaðaspítala. Jarðarförin auglýst síðar. Vilhjálmur Sveinsson, Esther Kristinsdóttir, Sigurður Bergsteinsson, Þorgeir Vilhjálmsson, Björg Ingimundardóttir, Sveinn Rúnar Vilhjálmsson, Helga Fjeldsted, Sesselja Unnur Vilhjálmsdóttir, Valgeir Guðbjartsson, Jónfna Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir, Sveinn Guðmundsson og barnabörn.
Faðir okkar, GUÐLAUGUR STEFÁNSSON, Helgafellsbraut 21, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju föstudaginn 28. júlí kl. 14.00. Inga og Guðfinna Guðlaugsdætur.
Útför GUÐRÍÐAR ERLU MAGNÚSDÓTTUR SHETTY, semi lést 10. júlí í sjúkrahúsi í Rockville, Maryland, Bandaríkjun- um, fer fram föstudaginn 28. júlí kl. 15.00 í Fossvogskirkju. Vithal Shetty, Ravindra Thor Shetty, Teresa Shetty, Axel Magnússon, Karl Magnússon, Elísabet Magnúsdóttir, Sverrir Magnússon.
Eiginmaður minn, HJÖRLEIFUR SIGURÐSSON fyrrum vegaverkstjóri frá Hrísdal, Miðbrekku 1, Ólafsvík, lést 23. júlí. Útförin fer fram frá Fáskrúðarbakkakirkju laugardag- inn 29. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaöir en þeir sem vildu minnast hins látna láti Fáskrúðarbakkakirkju eða Hjartavernd njóta þess. Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 10.00 að morgni laugardags. Kristín Hansdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför FRIÐRIKKU GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Bjarnarstöðum, Bárðardal. Vandamenn.
Dórothea Halldórs
dóttir — Minning
Þann 19. júlí sl. lést í Landspítal-
anum amma okkar, Dórothea Hall-
dórsdóttir, eftir stutta sjúkdóms-
legu. Amma Dóra, eins og við vor-
um vön að kalla hana, bjó í 55 ár
á Hringbraut 116 í Reykjavík. Nú
þegar hún hefur kvatt þennan heim
leita minningarnar frá Hringbraut-
inni á hugann.
Á Hringbrautinni bjuggu amma
og afi sér heimili sem var í raun
annað heimili fyrir okkur barna-
börnin. Þangað sóttum við systkinin
oftar en á nokkum annan stað utan
heimilis okkar enda fór það svo að
þrjú okkar dvöldum þar heilu vet-
urna. Þar nutum við þeirrar róar
sem oft fylgir eldra fólki en sjaldn-
ar er áð finna á bammörgum heim-
ilum. Þá var rætt um lífið og tilver-
una, leystar stærðfræðiþrautir hjá
afa og var þá einn af hápunktunum
þegar amma færði okkur sunnu-
dagskaffið í rúmið.
I gegnum tíðina varð heimili
þeirra einnig athvarf fjölmargra
ættingja og annarra um lengri eða
skemmri tíma. Þannig hafa margir
notið þeirrar gestrisni og umhyggju
sem ömmu var svo eðlilegt og sjálf-
gefið að veita. Henni var lagið að
taka á móti, matreiða og bera fram
fyrir gesti sína svo áreynslulaust,
t
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KJARTANS ÞORSTEINSSONAR,
Ólafsbraut 44,
Ólafsvík.
Hulda Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir flytjum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför litlu dætra okkar og systra,
HULDU OG MARGRÉTAR HAUKSDÆTRA.
Sérstaklega þökkum við starfsliði Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri fyrir ómetanlega aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Ólöf Tryggvadóttir, Haukur ívarsson
og systkini hinna látnu.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR H. JÓNSSONAR.
Viktoría Sigurgeirsdóttir,
Sigmundur Guðmundsson, Unnur Sch. Thorsteinsson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Snorri Karlsson,
Jón Þ. Guðmundsson, Anna Bjarnason,
Guðrún Guðmundsdóttir, Ragnar Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar,
SIGURJÓNS HALLBJÖRNSSONAR
simvirkjameistara,
Sörlaskjóli 82.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldóra Guðný Sigurjónsdóttir,
Erna Sigurjónsdóttir.
+
Hjartanlegar þakkir flytjum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar og dóttur,
dóttur okkar og dótturdóttur
ÁSTU JÓNU RAGNARSDÓTTUR OG
HÖNNU MARÍU ÁSGEIRSDÓTTUR.
Sérstaklega þökkum við starfsliði Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri fyrir ómetanlega aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd ættingja og annarra vandamanna,
Ásgeir Vilhelm Bragason,
Erla ívarsdóttir, Ragnar Elinórsson.
að maður fékk ekki þá tilfinningu
að vera gestur í húsi hennar né að
haft væri fyrir manni.
Amma fæddist þann 19. apríl
árið 1904 á Húsavík. Þar ólst hún
upp hjá foreldrum sínum í hópi átta
systkina, tveggja bræðra og sex
systra. Foreldrar hennar voru Ingi-
björg Stefánsdóttir frá Skáldalæk