Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989
39
Birna Káradóttir reyndist hlutskörpust í
eldri flokki unglinga á hryssu sinni Gjóstru.
Brynjar Jón Stefánsson á Hrönn hefur hér
tekið við Sleipnisskildinum úr hendi Gunn-
ars Gunnarssonar formanns.
Birgir Gunnarsson og Gustur náðu bestum
árangri unglinga hjá Sleipni.
Myndarlegt Murneyramót
Syðra-Langholt
Árlegt hestaþing hestamannafé-
laganna Sleipnis og Smára, sem
starfa á milli Þjórsár og Hvítár-
Ölfusár, var haldið á Mumeyri dag-
ana 15. og 16. júlí. Að venju var
þetta hestaþing fjölsótt enda veður
ágætt báða dagana. Fólk kom ríðandi
víðs vegar að, austan úr Rangár-
þingi, vestan úr Laugardal, Þorláks-
höfn og víðar. Mikill fjöldi hrossa var
skráður í keppni, þar sem menn öttu
saman hestum sínum auk þess sem
þeir lögðp áherslu á fegurð þeirra
og snilli. í úrslitakeppni urðu nokkrar
tilfærslr við röðun (sjá einkunnir).
I hlaupum náðust ágætir tímar en
þátttaka var með dræmasta móti.
Úrslit mótsins urðu sem hér segir:
Unglingar 13-15 ára (Sleipnir)
1. Birgir Gunnarsson á Gusti .8,22
2. íris Sveinbjörnsd. á Perlu .8,14
3. Sigurður Óli Kristinsson
áEldingu ................. 8,12
4. Ragnhildur Loftsdóttir
áSindra ................,......7,66
Unglingar 12 ára og yngri (Sleipnir)
1. Ingvar Hjálmarss. á Skugga .8,30
2. Soffla Sveinsdóttir á Hrafni .8,28
3. Guðmundur Valgeir Gunnarsson
áFlaumi ....................... 8,09
4. Margeir Steingrímss.
á Grána ......................8,08
5. Haukur Baldursson á Rabbí .8,00
Unglingar 13-15 ára (Smári)
1. Bima Káradóttir á Gjóstu .....8,08
2. Guðrún H. Helgad. á Ljúf .....7,84
3. Margrét Ámadóttir á Fána .....7,78
4. Herdís Eiríksd. á Skugga ... 7,69
5. Guðjón Geirsson á Straumi .7,57
Unglingar 12 ára og yngri (Smári)
1. SaraD. Ásgeirsd. áSval ....8,38
2. Hulda H. Stefánsdóttir
á Svarta-Svani ...............8,32
3. Harpa S. Magnúsdóttir
áHring .......................8,28
4. Sigurborg Jónsd. áTinnu ..,8,18
5. Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir
áGlitfaxa ....................8,15
A-flokkur gæðinga (Slcipnir)
1. Hrönn frá Holti, eig. Elín Árnad., kn.
Brynjar Jón Stefánss........ 8,25
2. Fjalar frá S-Skörðugili, eig. Freyja og
Albert, Votmúla, kn. Freyja Hilmarsd. 8,24
3. Huginn frá Kjartansstöðum, eig. og kn.
Þorvaldur Sveinsson ..........8,20
4. Freyr frá Eyjarhólum, eig. Þorsteinn
Jóhannsson, kn. Leifur Helgason .7,98
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Gunnar Gunnarsson hefiir hér afhent fimm efstu verðlaun í b-flokki gæðinga hjá Sleipni. F.v.:
Bryndís Arnardóttir á Sóma, Hulda Brynjólfsdóttir á Feyki, Krisljón Kristjánsson á Camus, Einar
Oder Magnússon á Atgeir og Þorvaldur Sveinsson hampar bikarnum og situr Ögra.
Sex efstu hestar í b-flokki gæðinga hjá Smára. F.v.: Helgi Kjartansson situr Pegasus, Gunnar Egils-
son og Léttfeti, Jóhanna B. Ingólfedóttir og Vök, Jón Vilmundarson og Birtingur, Sigurður Sig-
mundsson og Þokki, Guðmundur A. Sigfússon situr Spegil og Sigurður Páll Smárason stendur
lengst til hægri.
5. Bliki frá Breiðabliki, eig. Ulfar Vilhjálms-
son, kn í úrsl. Þórður
Stefánsson ..........................8,17
B-flokkur gæðinga (Sleipnir)
1. Ögri frá Strönd, eig. og kn. Þorvaldur
Sveinsson ...........................8,57
2. Atgeir frá Skipanesi, eig. Einar Öder og
Magnús Hákonarson, kn. Einar Öder ..8,29
3. Camus frá Oddgeirshólum, eig. Ámi
Guðmundsson, kn. í úrsl. Kristján Kristjáns-
son .................................8,39
4. Feykir frá Hreiðurborg, eig. og kn. Hulda
Brynjólfsdóttir .....................8,35
5. Sómi frá Hjarðarbóli, eig. Davíð Guð-
mundsson, kn. Bryndís
Arnardóttir .........................8,31
A-flokkur gæðinga (Smári)
Í^Freisting frá Stóra-Hofi, eig. Anna S.
Sigurðard. og Jón Hermannss., kn. Jón
Hermannss............................8,03
2. Vaka frá Skollagróf, eig. og kn. Sigurð-
urH. Jónsson ........................8,01
3. Snerrir frá Flúðum, eig. og kn. Þórunn
Ansnes ..............................7,96
4. Blakkur frá Hvítárholti, eig. Elin Kristj-
ánsdóttir, kn. Elín
Ósk Þórisdóttir .....................7,63
5. Snælda frá Skollagróf, eig. og kn. Sigurð-
ur H. Jónsson
B-flokkur gæðinga (Smári)
1. Spegill frá V-Geldingaholti, eig. Sigfús
Guðmundsson, kn. Guðmundur A. Sigfús-
son .................................8,37
2. Þokki frá S-Langholti, eig. og kn. Sigurð-
ur Sigmundsson ......................8,39
3. Birtingur frá Ólafsvöllum, eig. Sigríður
Pétursdóttir, kn. Jón
Vilmundarson ........................8,14
4. Vök frá Hrafnkelsstöðum, eig. og kn.
JóhannaB. Ingólfsd...................8,14
5. Léttfeti frá Bæ í Bæjarsveit, eig. og kn.
Gunnar Egilsson .....................8,06
6. Pegasus frá Mykjunesi, eig. Kristjana
Kjartansdóttir, kn. Helgi Kjartansson .8,06
300 m brokk
1. Frigg, eig. og kn. Jóhann
Valdimarsson ...................41,0sek.
2. Kolskeggur, eig. Rósmarí Þorleifsd., kn.
-Annie B. Sigfúsdóttir.
3. Stígandi, eig. Guðbjörg Siguröard., kn.
Fjóla Kristinsd.................42,8 sek.
250 m stökk
' 1. Subaru-Brúnn, eig. Guðni Kristinsson,
kn. Magnús Benedikts-
son ........................... 18,5sek.
2. Garri, eig. Pétur Kjartansson, kn. Guð-
mundurj. Jónsson ....................18,6
1. Rökkvi, eig. Pétur Kjartansson.
250 m nýliðastökk
1. Bingó, eig. og kn. Halldór Vilhjálmsson
....................................20,6
2. Dreki, eig. Óli Pétur Gunnarsson, kn.
Alda Sverrisdóttir ..................21,5
350 m stökk
1. Elías, eig. Guðni Kristinsson, kn. Magnús
Benediktsson .......................25,7
2. Don, eig. Guðni Kristinsson, kn. Gunnar
Örn Williamsson .....................26,2
3. Kóngur, eig. og kn. Guðmundur J. Jóns-
son .................................26,7
800 m stökk
1. Lótus, eig. Kristinn Guðnason, kn. Magn-
ús Benediktsson ....................65,0
2. Valsi, eig. Guðni Kristinsson, kn. Gunnar
Örn Williamsson .....................67,0
150 m nýliðaskeið
1. Blakkur, eig. Elín Kristjánsdóttir, kn.
Elín Ósk Þórisdóttir ................20,9
(hlaut Buslubikarinn).
150 m skeið
L Freyja, eig. og kn. Jóhann
Valdimarsson ........................15,1
2. Skrúður, eig. Jón Gíslason, kn. Einar
Öder Magnússon ......................16,3
3. Krapi, eig. Hafsteinn Jónsson, kn. Jón
Kristinn Hafsteinsson.
250 m skeið
1. Glaumur, eig. Jón Björnss. og Guðlaugur
Antonss., kn. Guðlaugur Antonsson ....23,5
2. Blakkur, eig. og kn. Magnús Einarsson
23,6
3. Geisli, eig. Einar Magnússon, kn. Rúna
Einarsdóttir ........................25,2
Riddarabikar Sleipnis hlaut Einar Öder
Magnússon og Sveinsmerki Smára Guð-
mundur A. Sigfússon.
Lárus L. Magnússon
vélstjóri - Minning
Fæddur 7. nóvember 1908
Dáinn ll.júlí 1989
Skjótt skipast veður í lofti. Lár-
us vinur okkar féll heimavið og
Iést af afleiðingum meiðslanna.
Við höfðum búist við heimsókn
hans í haust eins og flest undanfar-
in ár.
Lárus Lúðvík fæddist á ísafirði
7. nóvember 1908, sonur hjónanna
Helgu Jónsdóttur og Magnúsar
Magnússonar kaupmanns. Lárus
var elstur, systkini hans eru Ás-
geir vélstjóri og Kristín húsmóðir,
bæði búsett í Reykjavík.
Hann ólst upp á ísafirði. Fór
ungur til sjós og tengdist sjónum
þeim böndum sem aldrei slitnuðu.
Um tvítugt fór hann suður til
náms. Hann var í smiðjum í
Reykjavík og Vestmannaeyjum og
varð eldsmiður. Fór síðan í Vélskól-
ann og lauk vélstjóraprófi 1933.
Síðan starfaði hann sem vélstjóri
á ýmsum bátum og skipum. Um
1940 réðst hann til Skipaútgerðar
ríkisins, sem þá annaðist gæslu
landhelginnar og síðar til Land-
helgisgæslunnar þegar hún tók við
því hlutverki. Lárus starfaði við
landhelgisgæslu í rúm þrjátíu ár.
Hann tók þátt í báðum þorskastríð-
unum og mörgum björgunarað-
gerðum. Hann endaði á Ægi, en
hafði þá verið vélstjóri á öllum
varðskipunum. Eftir að hann hætti
hjá Landhelgisgæslunni vann hann
ýmis störf í landi, var meðal ann-
ars gæslumaður véla Almanna-
varna ríkisins.
Lárus kvæntist Hrefnu Leu
Magnúsdóttur og eignuðust þau
tvö börn, Guðrúnu og Brynjólf.
Guðrún er gift Oliver Bárðarsyni
múrarameistara í Njarðvíkum.
Hún á fjögur börn, Onnu Leu,
Láru Bryndísi, Ólaf og Gunnar, og
fjögur barnabörn. Brynjólfur er
lögreglumaður í Bolungarvík,
kvæntur Huldu Margréti Þorkels-
dóttur. Lárus og Hrefna slitu sam-
vistir. Hún lést á síðastliðnu ári.
Árið 1960 kvæntist hann Ástu
Björnsdóttur, Seljavegi 17, og þar
var heimili þeirra síðan. Þau voru
samrýnd, gestrisni og höfðingjar
heim að sækja. Hún var ákaflega
skemmtileg kona og tíguleg. Hann
traustur og trygglyndur, góð-
mennskan í blóð borin. Hann hafði
ákveðnar skoðanir og stóð fast á
þeim. ÁstaJést fyrir tæpum fjórum
árum og syrgði Lárus hana mjög.
Lárus eignaðist trillu fyrir
nokkrum árum og hafði mikla
ánægju af því að fara á henni út
á sjó, dytta að henni og af félags-
skapnum á Grandanum. Gaman
var að heyra hann segja frá. Hann
hafði siglt um öll heimsins höf og
þekkti landið sitt vel, til dæmis
hverja vík og vog á strandlengj-
unni. Hann var mikill útivistarmað-
ur og hafði gaman af öllum veiði-
skap. Þau Ásta komu hingað að
Laugalandi í Borgarfirði á hveiju
hausti og gafst honum þá tæki-
færi til veiða. Við eigum góðar
minningar frá dvöl þeirra hér.
Að leiðarlokum kveðjum við hér
á Laugalandi kæran vin og minn-
umst ánægjulegra samverustunda.
Ástvinum hans flytjum, við okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Þar sem góðir menn fara eru
Guðs vegir.
Lea K. Þórhallsdóttir