Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 22
er uui vs mn eieAjav MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JULI 1989 Ekkert lát á óveðri í Indlandi: Þúsund sjómanna saknað Nýju Dehlí. Reuter. Á áttunda hundrað manns hafa týnt lífi af völdum monsúnrign- inga í Indlandi frá því á laugar- dag auk þess sem ekki er enn vitað um afdrif þúsunda manna. Óveðrið er hið versta, sem geng- ið hefur yfir Indland í mörg ár. Á sjötta hundrað manns hafa beðið bana í sambandsríkinu Ma- harashtra í vesturhluta Indlands. Á þriðja þúsund manns er saknað þar, m.a. um eitt þúsund sjómanna, sem voru á sjó þegar skyndilega gerði foráttuveður á Arabíuflóa. Samgöngur lágu niðri í Bombay, helstu borg Maharashtra, í gær, þriðja daginn í röð. Mikil röskun hefur orðið á öllu lífi í borginni. Veðurstofa Indlands spáði því í gær að óveður yrði áfram. Gífurlegt tjón er orðið á uppskeru af völdum þess og eyðilegging á vegum og öðrum mannvirkjum er mikil. í þorpi skammt frá Bombay, Vaju, féll aurskriða og grófust 37 manns undir henni. í grannríkinu Andhra Pradesh biðu 119 manns bana vegna vatnavaxtanna. Þar er talið að um 70.000 hús hafi eyði- lagst. Hong Kong: Reuter í hitabylgju á Trafalgar-torgi Miklar hitar hafa þjakað bæði menn og ferfætlinga suður í álfu að undanförnu. Fregnir hafa borist af skógareldum í Suður-Frakklandi og áhugamenn um garðrækt víða um lönd kvarta sáran undan þurrk- unum. Þessi mynd var hins vegar tekin á Trafalgar-togi í hjarta Lundúna en þar er plagsiður manna sá að kæla sig í gosbrunnum er heitt er í veðri. Hitinn í Lundúnum hefur farið í 30 stig á hádegi og veðurfræðingar spá óbreyttu veðri út vikuna. í öðrum Evrópulönd- um er einnig veðurblíða,_ að sögn Veðurstofu íslands; um nónleytið í gær var 27 stiga hiti í Ósló og í Portúgal og á Spáni fór hann upp í 36 stig. Orðrómur um illa með- • c TVOFALDUR ferð á flóttamönnum jfVINNINGUR: á laugardag handa þér, ef þú hittír á réttu tölumar. Láttu þínar tölur ekki vanta í þetta sinn! j Hong Kong. Reuter. LÖGREGLUYFIRVÖLD í Hong Kong vísuðu í gær á bug orðrómi um að lögreglumenn hefðu barið til óbóta konur, börn og gamalt fólk í búðum flóttamanna fr'á Víetnam. Stjórn nýlendunnar hefúr heitið því að málið verði rannsakað. Fulltrúi Flóttamannahjálpar Samein- uðu þjóðanna segist hafa sannanir fyrir því að lögregluforingjar hafi ráðist með kylfúm á fólk í Sek Kong-búðunum á sunnudag er flóttamennirnir tóku við bögglum með ýmsum nauðþurftum frá vin- um utan gaddavírsgirðingar búðanna. í skýrslu lögreglunnar á mánu- smávægilegum. Einn maður, sem dag sagði að Víetnamarnir hefðu ræðaist með gijótkasti á bækistöð lögreglunnar í búðunum sem hýsa um 7.200 flóttamenn er komið hafa yfír hafið á smábátum til Hong Kong. Yfirmaður lögreglu á svæð- inu segir að íjórir flóttamenn hafi orðið fyrir meiðslum, þar af þrír verið hafði veikur, lést og að sögn heimildarmanna í lögreglunni var dauðdaginn ekki vegna veikind- anna. Embættismenn SÞ segja fyölda fólks hafa slasast. Um 30.000 flóttamenn hafa komið til nýlendunnar á þessu ári. Yfir 50 þúsund víetnamskir flótta- menn eru nú í Hong Kong; þar af hafa um 36 þúsund komið eftir að yfirvöld hófu að reyna að stemma stigu við flóttamannastraumnum með því að takmarka útgáfu land- vistarleyfa á síðasta'ári. Nú er þess krafist að flóttamennirnir sanni að þeir hafi flúið heimaland sitt af pólitískum ástæðum. Breska stjórnin, sem ræður Hong Kong, hefur átt viðræður við yfir- völd í Hanoi, höfuðborg Víetnams, og er m.a. ráðgert að þvinga fólk til að snúa aftur heim komi í ljós að það hafi aðeins verið að flýja fátæktarbaslið í Víetnam. mBm Sími 6851 11. Upplýsingasímsvari 681511. JHmgÉíiMfltffifclfe Metsölubloð á hverjum degi! Ermarsundsflug mistekst Reuter Louis Bleriot, sonarsonur alnafna síns, sem flaug fyrstur manna yfir Ermarsund fyrir 80 árum, situr hér á eftirlíkingu af flugvél afa síns, sem marar í kafi þrjá km undan strönd Englands. Bresk flugkona, Gloria Pullen, reyndi í gær að endurtaka flug Bleriots frá Calais til Dover í tilefni af- mælisins. Tilraunin mistókst, en bæði Pullen og fararslyóta hennar var bjargað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.