Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989
15
orðið þannig til — að einhver felur
mér að koma til skila til þriðja að-
ila — ég er þá í skuld — þar til ég
hef skilað því, sem mér var falið
að afhenda.
Brátt munum við minnast 1000
ára afmælis kristnitökunnar á Al-
þingi — og enn lengur hefur Krist-
ur verið játaður á landinu okkar —
allt frá upphafi mannabyggðar hef-
ur Kristur átt hér lærisveina — og
til þeirra hafa hljómað boð hans: —
Farið og gjörið allar þjóðir að læri-
sveinum!
Og hér gegndi Skálholt lengst
af lykilhlutverki — sem miðstöð
íslenzkrar kristni — fyrsta biskups-
setrið — andleg aflstöð — héðan
hárust helgir straumar út í þjóðlífið.
A þessum helga stað hlýtur ætíð
að vera vakandi spurningin: — Höf-
um við hlýðnazt hinzta boði Krists?
— Höfum við komið til skila því,
sem hann fól okkur?
Hljótum við ekki með hryggð að
játa skuld okkar — skuld við þá —
er við áttum að flytja fagnaðarer-
indið? — Við höfum um of haldið
fyrir okkur sjálf því — sem við átt-
um að deila með öðrum. — Við
stöndum öll í sporum rangláta ráðs-
mannsins — hvernig getum við
mætt reikningsskilum okkar við
Guð?.— Þessi spurning er áleitnari
í mínum huga eftir þessa ferð mína
austur í Asíu — en nokkru sinni
fyrr.
Sýnum fyrirhyggju — búum okk-
ur undir reikningsskilin — ekki á
sama hátt og rangláti ráðsmaðurinn
— með því að svíkja og falsa. —
Förum að orðum Krists í niðurlagi
guðspjallsins — öflum okkur líka
vina með hinum rangláta mammon.
Okkur er trúað fyrir miklu af
veraldlegum gæðum — því verður
mikils af okkur krafizt — við verð-
um spurð um ráðsmennsku okkar
— meðferð okkar á gjöfum Guðs. —
Gjöldum skuld okkar við líðandi og
örsnauða — látum okkur varða
vandamál þeirra — sem fá vart
dregið fram lífið vegna skorts. —
Við þurfum aldrei að spyija eins
og Kain forðum: — Á ég að gæta
bróður míns? — Okkur ber skylda
til þess.
Fyrirgefið — ef ykkur finnst þessi
prédikun ekki hæfa hátiðlegu tilefni
dagsins — en þetta fyllir hjarta
mitt á þessari stundu — því get ég
ekki þagað. — Guð hefur lokið upp
augum mínum á nýjan hátt. —
Myndirnar að austan víkja ekki úr
huga mér: — Gamla konan — flótta-
mennirnir — öskuhaugabörnin.
Hlutverk kirkju Krists er aðeins
eitt: — Að boða syndugum og
snauðum mönnum náð Guðs og
miskunn — óverðskuldað — fyrir
náð Guðs í Kristi Jesú — kross-
festum og upprisnum frelsara og
Drottni.
Guð hjálpi okkur til þess að reyn-
ast réttlátir ráðsmenn — ekki fyrir
eigin kraft eða verðleika — heldur
fyrir náð og miskunn Guðs.
Amen
ELHÚSVIFTUR
FALLEGAR - VANDAÐAR
• meö eða án kolsíu
• 3ja hraöa mótor
• tvö innbyggö Ijós
• útdraganlegur skermur
AÐEINS KR.
7.250,-
Fleiri gerðir fáanlegar,
einnig til innbyggingar.
ÆOnix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420
Gefið í botn í kvartmílukeppni.
Kvartmíla á bifhjólum
Ágóðinn rennur til Krísuvíkursamtakanna
BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldis-
ins, Sniglarnir, eftia til fyrstu
kvartmílukeppninnar hérlendis
þar sem eingöngu er keppt á
bifhjólum, sunnudaginn 30. júlí.
Allir ágóði af keppninni rennur
til Krísuvíkursamtakanna.
Keppnin verður haldin á
kvartmílubrautinni við Straumsvík
og hefst klukkan 14. Keppnin fer
þó ekki fram ef rigning verður,
segir í frétt frá Sniglunum. 30 til
40 hjól í sex stærðarflokkum taka
þátt í keppninni. Mikill hraði verður
á þeim, sem dæmi á nefna að sá
sem á brautarmetið var á 230 km
hraða þegar hann kom í markið.
Þá verður ýmislegt fleira en keppni,
til dæmis verður mótorhjólum ekið
á afturdekkjunum einum alla braut-
ina og fleiri sýningar.
Aðgangseyrir verður 300 krónur.
Metsölublaó á hverjum degi!
Þú tjaldar ekki til einnar nætur
í tjaldi frá
Skátabúðinni
Skátabúðin býður ótrúiegt
úrval af ísienskum og eriend-
um tjöldum. Allt frá eins
manns göngutjöldum til stórra
fjölskyldutjalda. Sérþekking
okkar í sölu og meðferð á
tjöldum sem og öðrum úti-
verubúnaði er þín trygging.
Við hjá Skátabúðinni viljum
geta sagt að „þú tjaldir ekki
til einnar nætur" í tjaldi frá
okkur.
SWAK fMMÚK
SNORRABRAUT 60 SÍM112045