Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JULI 1989
Sólarlandaferðir:
Pantanir taka kipp
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
„Það er nú í lagi með þetta ennþá.“ Jón Helgason í Miðhúsum lítur eftir töðunni á túninu.
Heyskaparhorfiir á Suðurlandi:
Fóðurgildið fellur með
hverjum degi sem líður
Bændur vonast eftir þurrki í lok vikunnar
Selfossi.
„ÞAÐ ER sama hvaða heyskaparaðferð er notuð, það er erfitt
að bjarga sér núna,“ sagði einn þeirra bænda í Ámessýslu sem
rætt var við í gær um heyskaparhorfúr. Hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands fengust þær upplýsingar að margir bændur væru
ekki enn byijaðir að slá og þeir sem væru byrjaðir ættu marg-
ir hey í hrakningum.
í eðlilegu sumri er fyrri slætti
yflrleitt lokið um þetta leyti eða
hann langt kominn. Flestir bænd-
ur á Suðurlandi vestanverðu byij-
uðu slátt fyrir um hálfum mán-
uði, heldur seinna en venjulega
vegna þess hversu spretta var lítil
í vor. Þrátt fyrir ótíðina hafa sum-
ir bændur náð að slá og hirða af
um þriðjungi túna sinna. Þetta á
einkum við um þá sem eru með
heita súgþurrkun, en hún gefur
möguleika á að hirða töðuna lítt
þurra. Þá hafa menn náð að hirða
nokkuð í súrhey og í rúllubagga
en rigningin hefur þar sett mönn-
um skorður.
„Þetta fer að verða alvarlegt
því tún fara að spretta úr sér og
fóðurgildið fellur með hveijum
deginum þegar grasið skríður,“
sagði Vilmundur Jónsson bóndi í
Skeiðháholti. Jón Helgason bóndi
í Miðhúsum í Gnúpveijahreppi
sagðist hafa gert eins og margir,
að slá út á spána fyrir rúmri viku.
„Hún lagðist illa í mig vestanátt-
in,“ sagði Jón, og einnig að það
hefði verið trú manna áður fyrr
að þurrkur í þeirri átt stæði aldr-
ei nema 1-2 daga, og það hefði
komið á daginn.
í gær mátti víða sjá bændur
við slátt þar sem spáin hefur ver-
ið nokkuð hagstæð fyrir síðari
hluta vikunnar. Víða má sjá guln-
að hey á túnum sem hefur hrak-
ist í viku til tíu daga og hætt við
að það skemmist bregði ekki fljót-
lega til betri tíðar. Hins Vegar erú
víða nýslegnir flekkir sem benda
til þess að bændur hafi trú á að
brátt bregði til betri tíðar. En einn
viðmælendanna sagði reyndar að
það hlyti að gerast á næstunni.
- Sig. Jóns.
Alþýðubanki og Iðnaðarbanki:
Sameining bankanna samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta
SALA sólarlandaferða hefur tek-
ið skyndilegan kipp undanfarna
viku hjá ferðaskrifstofum í höfiið-
borginni. Svo virðist sem menn
séu orðnir leiðir á rigningunni
sunnanlands og vilji fara að kom-
ast í betra veður. I ágúst er hins
vegar uppselt í flestar ferðir og
erfitt að koma fólki að.
„Menn hringja hér og vilja helzt
fara í fyrramálið, í síðasta lagi eft-
ir tvo eða þijá daga,“ sagði Helgi
Jóhannsson, forstjóri Samvinnu-
ferða/Landsýnar. „Síminn hefur
ekki þagnað og það er greinilegt
að menn eru orðnir langþreyttir á
rigningunni. Nú er hins vegar upp-
selt í margar ferðir, þannig að
mesta vinnan hjá okkur fer í að
reyna að finna einhvéija ferða-
möguleika með erlendum ferðá-
skrifstofum. Sömuleiðis er byijað
að bóka í ferðir í september."
Helgi sagði að ferðaskrifstofan
hefði fyrr í sumar boðið fólki upp
á að komast ódýrt til sólarlanda
með mjög stuttum fyrirvara ef sæti
losnuðu til dæmis óvænt. „Menn
hafa staðið í biðröð allt upp í fjór-
tán tíma eftir þessum ferðum, þótt
allt sé uppselt. Til að spara mönnum
Hálendið:
Margar slóð-
ir lokaðar
ENN eru viss svæði á hálend-
inu lokuð umferð farartækja,
svæðið norðan Hofsjökuls,
Fjallabaksleiðirnar, svæði
norðan Langjökuls og Hellis-
skarðsleið um Hlöðuvelli. Enn
er mikill snjór á þessum slóð-
um og aurbleytan eftir því.
Karl Ásgrímsson hjá vegaeft-
irlitinu sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að meira að segja opn-
ar slóðir nyrðra hefðu spillst illa
í rigningunum á þeim slóðunr
síðustu daga, þannig væri
Sprengisandur aðeins fær rútum
að því tilskyldu að þær væru.
með dríf á öllum hjólum.
Karl sagði enn fremur að erf-
itt væri að spá því hvenær þær
leiðir, sem enn eru lokaðar, yrðu
opnaðar en unnið væri að opnun
á Fjallabaksleið milli Eldgjár og
Landmannalauga og eins á há-
lendið upp úr Eyjafirði. „Þetta
fer eiginlega allt eftir veðurfari,
ef það verður votviðrasamt
seinkar þessu öllu enn, annars
gengur það hraðar fyrir sig,“’
sagði Karl.
Sjá kort á bls. 27.
biðina höfum við sett miða í
gluggann um að engin sæti séu
laus. Menn bíða samt,“ sagði Helgi.
Helgi sagði að bæði væri það
veðrið sunnanlands, sem virtist ýta
við mönnum að panta sólarlanda-
ferðir, en einnig væri reynslan sú
að skriða af pöntunum kæmi þegar
ríkið borgaði út endurgreiðslur á
ofgreiddum skatti, barnabætur og
aðrar greiðslur, sem koma í póst-
kassann í byijun ágúst.
Ríkissjóður
Greiðslustaða
hagstæð í
Seðlabanka
FYRSTU sex mánuði ársins var
greiðslustaða ríkissjóðs gagn-
vart Seðlabanka hagstæð um 1,5
milljarða króna, en áætlanir
höfðu gert ráð fyrir að hún yrði
óhagstæð um 5 milljarða á þess-
um tíma. Helstu ástæður þessa
eru taldar þær, að rekstraraf-
koma ríkissjóðs er nokkurn veg-
inn í samræmi við áætlanir enn
sem komið er, og svo að innlend
lánsfjáröflun hefúr gengið betur
en ráð var fyrir gert.
Að sögn Más Guðmundssonar
efnahagsráðgjafa Jjármálaráðherra
hefur þróunin verið sú, að greiðslu-
staða ríkissjóðs gagnvart Seðla-
banka versnar á fyrri hluta árs, en
batnar á síðari hluta þess. Þannig
hafi verið gert ráð fyrir neikvæðri
stöðu um 5 milljarða á tímabilinu
janúar til júní í ár, og búist við að
úr rættist á haustmánuðum.
„Hins vegar hafa öflug lánsfjár-
öflun innanlands og það að rekstr-
arafkoma ríkissjóðs er nokkum
veginn samkvæmt áætlun haft þau
áhrif að í stað neikvæðrar stöðu er
greiðslustaðan jákvæð sem nemur
1,5 milljörðum króna,“ sagði Már.
Hluthafafiindir Iðnaðarbanka
og Alþýðubanka samþykktu í gær
hlutabréfakaup bankanna, ásamt
Verzlunarbanka, í Útvegsbankan-
um og samruna bankanna fjög-
urra. Að hluthafafúndi Útvegs-
bankans loknum, 1. ágúst, verður
ekkert í vegi sameiningar bank-
anna í hinn nýja íslandsbanka.
Stefiit er að því að í byijun ágúst
geti nýtt bankaráð tekið ákvörðun
um skipulag og helztu stjórnendur
bankans og ákveðið honum mark-
mið og hlutverk.
Á hluthafafundi Iðnaðarbankans
var sameiningin samþykkt með
99,85% atkvæða. Víglundur Þor-
steinsson, sem var fundarstjóri, tók
svo til orða að eftir þessi úrslit væri
hugtakið „rússnesk kosning" úr sög-
unni. Svipuð niðurstaða fékkst á
hluthafafundi Verzlunarbankans í
fyrradag; þar voru 98,9% hluthafa á
fundinum hlynntir sameiningunni.
Andstaða var örlítið meiri hjá hlut-
höfum Alþýðubankans. Sameiningin
fékk 96,5% greiddra atkvæða, en
2,1% voru á móti. Að sameiningunni
samþykktri var ákveðið að auka
hlutafé í bankanum um 380 milljónir
króna. Það er nauðsynlegt til þess
að Alþýðubankinn geti staðið við
skuldbindingar sínar um hlutafé í
íslandsbanka, en reiknað er með að
hver bankanna þriggja eigi þar 833
milljóna hlut. í máli Asmundar Stef-
ánssonar, formanns bankaráðs, kom
fram að Iðnaðarbanki ætti eigið fé
umfram þá upphæð, Iíklega um 200
milljónir. Með 100 milljóna hlutaíjár-
aukningu, sem Verzlunarbankinn
hefði heimild fyrir, myndi eigið fé
hans sennilega samsvara hlutnum í
íslandsbanka. Samkvæmt skýrslu
um efnahag Alþýðubanka, sem lögð
var fram á fundinum, er eigið fé
hans hins vegar aðeins um 400 millj-
ónir króna.
Ásmundur sagði að um nýtt hluta-
fé yrði einkum leitað til lífeyrissjóð-
anna, enda hefðu þeir hagsmuni af
stofnun nýs banka, sem gæti komið
peningum þeirra á vexti, og þar sem
þeir réðu meiru sjálfir um nýtingu
ijár síns en í núverandi bankakerfi.
Núverandi hluthafar myndu væntan-
lega ekki nýta forkaupsrétt sinn á
hlutafé að fullu og þannig einnig sjá
til þess að almenningur fengi tæki-
færi til að kaupa hluti í bankanum.
Miklar umræður urðu á fundi Al-
þýðubankans, og urðu fulltrúar
ýmissa hluthafa til að andmæla ráða-
hagnum. Nokkrir töluðu um að verið
væri að bregðast þeim hugsjónum,
sem ráðið hefðu stofnun bankans,
með því að ganga í eina sæng með
„auðvaldinu“. í ályktun frá verka-
lýðsfélaginu Jökli á Höfn var því lýst
yfir að ef af sameiningunni yrði,
væru forsendur fyrir eignaraðild Jök-
uls að Alþýðubankanum brostnar.
Einnig væri félagið á móti því að fé
lífeyrissjóðanna væri notað til kaupa
á hlutafé í nýja bankanum. Hrafn-
kell A. Jónsson, formaður verkalýðs-
félagsins Árvakurs á Eskifirði, tók
undir það, að það væri óæskilegt að
fé lífeyrissjóðanna rynni í banka á
suðvesturhorninu. Frekar ætti að
nota það til að styrkja atvinnulíf
heima í héraði, sem ætti í vök að
veijast. Fleiri tóku undir þessi sjónar-
mið.
Söluskattsmál Hagvirkis hf.:
Best væri að aðilam-
ir mættust á miðri leið
— segir sýslumaður Rangárvallasýsiu
„ÉG hef tekið afstöðu til greinagerðar lögmanns Hagvirkis, og þrátt
fyrir að við séum ekki að öllu leyti sáttir við hana, þá er vissulega
margt rétt og satt í greinargerðinni," sagði Friðjón Guðröðarson sýslu-
maður Rangárvallasýslu í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. I grein-
argerð lögmanns Hagvirkis er meðal annars bent á, að söluskattsmál
fyrirtækisins séu þegar fyrir dómstólum í Hafharfirði. Hagvirki beri
því ekki að leggja fram bankatryggingu til að tryggja áframhaldandi
dómsmeðferð.
„Afstaða mín liggur nú fyrir í
dómsmálaráðuneytinu, og verður þar
ti! sameiginlegrar skoðunar fyrir
sýslumannsembættið, dóms- og ijár-
málaráðuneytin fram að helgi,“ sagði
Friðjón. „Þetta mál er alls ekki ein-
falt. Málsaðilar þurfa að gefa sér
tíma til að finna bestu leiðimar að
farsælli lausn, og helst að mætast á
miðri leið.“ Friðjón sagðist í lengstu
lög vilja forðast lokunaraðgerðir
gagnvart Hagvirki, og slíku mætti
vonandi komast hjá með sameigin-
legu átaki beggja aðila. „Það má
segja að samningaviðræður séu í
gangi eins og er, og við erum þessa
dagana að svara bréfi Hagvirkis. Ég
sé mjög mikla annmarka á því að
loka þessu fyrirtæki. Hins vegar
getum við alls ekki fallist á þeirra
■ meginsjónarmið, því það kemur ekki
annað til greina en að lagðar verði
fram tryggingar sem við teljum full-
nægjandi. Þá mætti hnika til kröf-
unni um bankatryggingu ef sann-
gjarnt og eðlilegt þykir.“ Friðjón
sagði að málið væri fyrir dómstólum,
og út af fyrir sig væri ekkert því til
fyrirstöðu að ljúka því þar, þó ekk-
ert væri ljóst í þeim efnum. „Hins
vegar er lagalegur möguleiki á lokun
enn fyrir hendi,“ sagði Friðjón að
lokum.
Vinnuveitendasamband íslands
sendi forsætisráðherra í gær álits-
gerð, þar sem, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins, fram koma sjón-
armið sambandsins varðandi þá um-
ræðu sem skapast hefur um sölu-
skattsmál hinna ýmsu fyrirtækja.