Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989
13
Steinar hf.:
Fjóiar snældur í feröalagið
Steinar hf. hafa gefið út Qórar
snældur í pakka, sem þeir kalla
Ferðalög. Snældurnar hafa að
geyma íslensk lög með ýmsum
flytjendum og eru þau alls
fimmtíu. Hulstur sem ætla má
að þoli talsvert hnjask er utan
um snældurnar, enda pakkinn
hugsaður til að taka með í ferða-
lagið að því er segir í fréttatil-
kynningu frá Steinum.
Snældurnar fjórar í Ferðalags
pakkanum kallast Bandalög, Sól-
arlög, Háttalög og Bítlalög og má
hvort sem er kaupa þær sér eða í
pakkanum. Samnefnd plata er hef-
ur að geyma lög Bandalagssnæl-
dunnar hefur þegar selst í rúmlega
3000 eintökum og er því orðin
„Gullplata“. Á henni er að finna
ný lög, svo sem Danska lagið,
Stelpurokk og Strákana í götunni.
Hinar snældurnar þrjár hafa að
geyma eldri lög. Á Bítlalögum er
að finna tónlist með hljómsveitum
sem voru upp á sitt besta á bítla-
tímabilinu og á Háttalögum eru
það róleg lög meðal annars flutt
af Pálma Gunnarssyni og Vilhjálmi
Vilhjálmssyni. Sumarlögin inni-
halda aftur á móti tónlist sem á
að koma fólki í sumarskap, að því
er segir í tilkynningunni.
í BMW 3-línunni eru annarsvegar 2ja og 4ra
dyra bílar og hinsvegar 5 dyra Touring skutbíl-
ar. Þú borgar minnst fyrir BMW í 2ja dyra út-
færslunni, en hann kostar álíka og lítill jap-
anskur bíll meö sérútbúinni vél. Munurinn er
mikill milli BMW og japanskra bíla, og dæmi
þá hver fyrir sig.
Einkenni BMW eru þau sömu í öllum útfærsl-
um. Hann er aflmikill, hefur frábæra akstureig-
inleika og snerpu sem þú getur treyst þegar
mest á reynir. Fjöörunin og annar tæknilegur
útbúnaður er fyrsta flokks enda hér á ferðinni
bíll sem er gerður fyrir kröfuharða kaupendur.
Það er eftirsóknarvert að eiga og aka BMW,
þess vegna viljum við gera okkar ítrasta til að
þú njótir þess besta, og eignist BMW. Þér er
hér með boðið að koma og reynsluaka BMW
3-línunni eða öðrum BMW bílum, þiggja hjá
okkur veitingar og ræða við sölumenn um
hagstæða greiðsluskilmála. Viljir þú að við
tökum gamla bílinn sem greiðslu upp í nýjan
BMW, skaltu hiklaust notfæra þér skiptitilboðið
okkar sem auðveldar þér að eignast BMW á
góðum kjörum.
BMW 3161, 2ja dyra kostar frá kr. 1.227 þúsund.
Bílaumboðið selur einnig notaöa BMW.
Leitaöu upplýsinga hjá sölumönnum.
Njóttu þess besta, — eignastu BMW.
ÞAÐ ER EINFALT MÁL
AÐ SEMJA VIÐ OKKUR.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, Reykjavik, simi 686633
iinstakur bill
fyrir
kröfuharða. *
Kviksaga frá Þingvallafundi
skólann á Akureyri. Margar fyrir-
spurnir höfðu borist um sjávarút-
vegsbraut skólans. Nú síðustu daga
hafa hins vegar borist þangað
margar fyrirspurnir um það hvort
stofnunin muni verða lögð niður.
Kviksagan er því þess eðlis, að hún
grefur undan tiltrú fólks á Háskól-
anum. Þetta hlýtur m.enntamála-
ráðherra að vera ljóst, og er því
illt, að hann skuli ekki hafa séð sér
fært að kveða orðróminn niður.
Höfúndur er menn taskólakennari
á Akureyri.
eftir Tómas Inga
Olrich
Á fundi ríkisstjórnarinnar á Þing-
völlum miðvikudaginn 12. júlí var
fjallað um slæma stöðu ríkissjóðs.
I yfirlýsingu fjármálaráðherra að
fundi loknum kóm fram að skera
ætti niður ríkisútgjöld, en að ekki
hefði verið ákveðið hverju yrði fórn-
að. Fréttastofa Bylgjunnar birti
daginn eftir upplýsingar um það,
sem rætt hafði verið um að skera
niður á ríkisstjórnarfundinum. Með-
al þess, sem þar var nefnt, var sú
hugmynd að leggja niður Háskól-
ann á Akureyri.
Hjá fréttastofu Bylgjunnar fást
þær upplýsingar að umræddrar
fréttar hafi fréttamennirnir Arn-
þrúður Karlsdóttir og Glúmur Bald-
vinsson aflað. Þessi fregn byggðist
ekki á neinum upplýsingum, sem
fram komu á blaðamannafundi fjár-
málaráðherra og hefur fréttamönn-
um annarra fjölmiðla ekki tekist
að fá fréttina staðfesta. Þótt frétta-
stofa Bylgjunnar sé ófáanleg til að
greina frá heimildamanni, er þó
fullyrt á þeim bæ að hann sé áreið-
anlegur.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra mun hafa haft samband
við fréttastofu Bylgjunnar og lýst
því yfir að sú hugmynd, að leggja
niður Háskólann á Akureyri, hafi
ekki verið rædd í menntamálaráðu-
neytinu. Sú athugasemd var flutt á
Bylgjunni. Hins vegar var fregnin
um að málið hefði komið til um-
ræðu á ríkisstjórnarfundinum ekki
borin til baka.
Það hefur ekki góð áhrif á rekst-
ur neins fýrirtækis, þegar fréttist
að þeir, sem yfir það eru settir, séu
Engin ástæða er til þess að trúa
þvi að þessi frétt sé sönn. Ráð-
herrar ríkisstjómarinnar em reikul-
ir í efnahagsmálum, en enginn ætl-
ar þeim það lánleysi að kyrkja í
fæðingu þá tilraun til að efla
vísinda- og rannsóknastarf utan
höfuðborgarinnar, sem stofnun
Háskólans á Akureyri var og er.
Það era aðeins fjórir mánuðir síðan
ríkisstjórnin tók þá ákvörðun, að
við Háskólann á Akureyri hæfist
kennsla í sjávarútvegsfræði í árs-
byijun 1990. Sú ákvörðun var í
fullu samræmi við óskir heima-
manna og skiptir sköpum um starf-
semi stofnunarinnar og sérstöðu.
Ég kýs því að líta svo á að hér
sé um kvitt að ræða. Kviksagan er
hins vegar mjög skaðleg fyrir Há-
Tómas Ingp Olrich
„Ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar eru reikulir í
efnahagsmálum, en
enginn ætlar þeim það
lánleysi að kyrkja í fæð-
ingu þá tilraun til að
efla vísinda- og rann-
sóknastarf utan höfiið-
borgarinnar, sem stofn-
un Háskólans á Akur-
eyri var og er.“
að velta því fyrir sér, hvort ekki
sé nauðsynlegt að leggja það niður.
Fréttir af því tagi, hvort sem þær
era sannar eða kvittur einn, skaða
starfsemi fyrirtækisins og orðstír.
Svo er að sjálfsögðu einnig um
menntastofnanir.
MARKA
3
...ekki bara önnur útsalan...
• •
Faxafen 14
(ofanBónus)
SgPPveX eftfr því!!
100X HSKUFÖT