Morgunblaðið - 27.07.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989
4
• ■ ■
|
íéiíéíi®
Sjóflugvélin hífð á land við syðri enda flugbrautarinnar í Skeijafírði,
Morgunblaðið/RAX
Sjóflugvélinni bjargað á land
SJÓFLUGVÉLINNI, sem legið hefur á hvolfi á Skeijafirði, hefiir nú
verið bjargað á land. Það var hópur flugvirlga, ásamt verkamönnum,
mönnum úr siglingaklúbbnum Ými og einum kafara sem náðu vélinni
upp úr sjónum og fluttu hana í eitt flugskýlanna á Reykjavíkurflug-
velli. Þetta var gert að tilstuðlan bandarísks tryggingarfélags sem
vélin var tryggð hjá.
Guðbjartur Torfason flugvirki,
sem er í forsvari fyrir björgunar-
mönnunum, segir að björgun vélar-
innar hafi gengið áfallalaust fyrir
sig. Fyrst hafi hún verið flutt upp
að syðri enda flugbrautarinnar í
Skeijafirði. Þar hafi svo krani verið
notaður til að hífa hana á land.
Að sögn Guðbjarts eru ekki miklar
skemmdir á vélinni að utan en hins-
vegar má búast við að seltan í sjónum
hafi unnið nokkurt tjón, einkum á
mótomum. Mun vélin verða hreinsuð
og lagfærð hérlendis, að beiðni
tryggingarfélagsins og annast fjórir
flugvirkjar það verk.
VEÐURHORFUR í DAG, 27. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Fremur hæg norðan- og norðvestanátt. Skúrir um
vestan- og norðvestanvert landið, en úrkomulaust annarstaðar.
SPÁ: Yfír austanverðu landinu er 989 mb. lægð sem þokast norð-
austur. Veður mun heldur kólna, einkum norðan- og vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG:Norðanátt, að mestu þurrt á suðaustur-
landi, en rigning eða súld í öðrum landshlutum. Hiti 9—10 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG:Fremur hæg norðavestanátt. Dálítil súld
eða rigning norðanlands, en úrkomulítið eða úrkomulaust annar-
staðar. Hiti 7—9 stig.
TAKN:
■Q ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
r r r r Rigning
/ / /
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
•\ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V H
= Þoka
— Þokumóða
’, » Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær aö fsl. tíma
hiti veöur
Akureyri 10 rígning
Reykjavik 8 súld
Bergen 23 skýjað
Helsinki 27 skýjað
Kaupmannah. 25 léttskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Osló 26 léttskýjað
Stokkhólmur 25 heiðskirt
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 30 þokumóða
Amsterdam 23 mistur
Barcelona 29 mistur
Berlín 28 léttskýjað
Chicago 23 þokumóða
Feneyjar 28 léttskýjað
Frankfurt 23 hálfskýjað
Glasgow 18 skýjað
Hamborg 25 léttskýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 25 skýjað
Los Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg 24 íéttskýjað
Madríd 32 heiðskírt
Malaga 28 mistur
Mallorca vantar
Montreai vantar
New York vantar
Orlando vantar
Paris vantar
Róm 29 léttskýjað
Vín vantar
Washington 26 mistur
Winnipeg vantar
Hvalatalningarleiðangurinn:
Töluvert sást af hvölum
af mörgum tegundum
Töluvert af hvölum, af ýmsum tegundum, sást í fyrstu lotu hvala-
talningarleiðangurs Hafrannsóknarstofnunar. Tvö hvalveiðiskip bæt-
ast í dag í hóp leiðangursskipanna.
Árni Friðriksson RE og Barðinn
GK hafa undanfamar tvær vikur
verið á leitarsvæði djúpt suður af
Grænlandi og íslandi. Náði svæðið
suður á 50 breiddargráðu norðlægr-
ar breiddar, á móts við Ermarsund.
Jóhann Siguijónsson sjávarlíf-
fræðingur, sem stjórnar leiðangrin-
um, sagði við Morgunblaðið að leið-
angursmenn hefðu orðið varir við
töluvert af hval af öllum möguleg-
um tegundum. Þar á meðal hefði
orðið vart við sandreiðar vestast á
svæðinu, en íslensku vísindamenn-
imir leggja aðaláherslu á að telja
dýr af þeirri tegund.
Jóhann sagði að þessi svæði
sunnan við Island væm mjög for-
vitnileg, þar sem lítið væri vitað
um þau, og áhugavert yrði að bera
niðurstöður talningar þar saman við
talningar á hafsvæðinu norðar, sem
íslendingar þekktu mjög vel.
Alls taka 15 skip ogtvær flugvél-
ar þátt í hvalatalningunni í sumar.
íslendingar senda fjögur skip. Arni
Friðriksson og Barðinn fara aftur
nú fyrir helgina á sama svæði og
áður. í morgun fóm hvalveiðiskipin
af stað. Hvalur 9 verður á svæðinu
við Austur-Grænland og djúpt vest-
ur af íslandi, en Hvalur 8 verður
vestur og suður af landinu. Leið-
angrinum lýkur um miðjan ágúst.
Lögreglan hefiir fært
150 bíla til skoðunar
Bifreiðaskoðun íslands hf. hefur
fengið til skoðunar samtals 150
bíla sem lögreglan hefiir fært
þangað. Lögreglan á höfiiðborgar-
svæðinu hefiir að undanförnu
stöðvað bíla sem búið á að vera
að skoða á þessu ári. Lögreglan
gerir þetta í samráði við Bifireiða-
Kjúklingar
á afslætti
UM 20.000 kjúklingar verða seldir
á sérstöku afsláttarverði frá og
með deginum í dag samkvæmt
fréttatilkynningu frá Alifuglasöl-
unni sf. Stendur útsalan meðan
birgðir endast. Fyrirtækið er sölu-
og dreifingaraðili fyrir Hol-
takjúklinga, Móa, Fjöregg og ís-
fiigl.
Umræddir kjúklingar verða á boð-
stólum í vel flestum matvömverslun-
um á Reykjavíkursvæðinu og seljast
tveir og tveir saman á 559 krónur
kílóið. Verða þeir í vel merktum neyt-
endapakningum.
skoðun sem tekur á móti bílunum
utan venjulegs opnunartíma.
Lögreglan gerði fyrstu atrennuna
að bíleigendum á fimmtudag og kom
þá með samtals 90 bíla sem trassað
hafði verið að koma með til skoðun-
ar, að sögn Kjartans Ragnars fram-
kvæmdastjóra Bifreiðaskoðunar ís-
lands. Á þriðjudag færði lögreglan
þangð 60 bíla.
„Aðgerðir lögreglunnar hafa
hvetjandi áhrif á þá sem eiga að
vera búnir að Iáta skoða bíla sína,
sagði Kjartan, þannig að fólk kemur
að sjálfdáðum þegar fréttist af
þeim.“ Ástæðu þess að lögreglan
stendur fyrir þessum aðgerðum nú
taldi Kjartan vera þá að mesta ferða-
helgin ársins, Vecslunarmannahelg-
in, er skammt undan. Tilgangurinn
væri að auka umferðaröryggi.
Reglan fyrir því hvenær koma á
með bíl til skoðunnar er sú að farið
er eftir síðasta tölustafnum á núm-
eraplötunni og gildir það um bæði
gömlu og nýju númerin. Ef númerið
endar á sjö á bíllinn að koma inn til
skoðunnar í júlí, en lögreglann stöðv-
ar bíla þó ekki nema liðnir séu tveir
mánuðir þar framyfir.
Beið í hálfan annan tíma
- segir eigandi Stekkjarhamars sem
varð vélarvana í fyrrinótt.
„Ég beið hálfan annan tíma í blæjalogni eftir að verða dreginn í
land og þykir verst að þarna fiskaðist ekkert,“ segir Karl Olsen eig-
andi bátsins Stekkjarhamars sem varð vélarvana á Syðra-hrauni um
tólf mílur út af Garðskaga í fyrrinótt.
Karl var á heimleið af hand- hann hafi fengið eitthvað á 400
færaveiðum undir miðnætti aðfara-
nótt miðvikudagsins þegar olíukælir
fór að leka í bátnum. Hann fékk
annan bát, Mími, sem var á veiðum
í grenndinni til að sækja sig og
draga inn í Njarðvíkurhöfn. Þangað
var komið laust fyrir klukkan fimm
í fyrrinótt. Þrátt fyrir óhappið
kveðst Karl ánægður með túrinn,
Elsta kona,
landsins látin
Selfossi.
ELSTA kona landsins, Ingilaug
Teitsdóttir frá Tungu i Fljótshlíð,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands í
gær á 105. aldursári. Hún hefði
orðið 105 ára 4. águst næstkom-
andi.
Ingilaug fæddist á Gijótá í
Fljótshlíð, dóttir Teits Ólafssonar
og Sigurlaugar Sveinsdóttur. Hún
bjó í Tungu í Fljótshlíð ásamt manni
sínum Guðjóni Jónssyni sem lést
1952. Þau eignuðust fjögur böm,
Guðrúnu, Sigurlaugu, Oddgeir og
Þórunni, sem öll eru á lífi við átt-
ræðisaldur.
kíló af fiski sem teljist ágætt eftir
þriggja tíma handfæraveiðar.
Stekkjarhamar er tíu tonna bátur,
sjósettur á þessu ári.
„Lambakjöt á
lágmarksverði“:
400 tonn seld
YFIR 400 tonn hafa selst af
„lambakjöti á lágmarks-
verði“. Talið er að þau 550
tonn sem ákveðið var að
selja með þessum hætti
verði uppseld um aðra helgi,
að sögn Jóhanns Guðmunds-
sonar deildarstjóra í land-
búnaðarráðuneytinu.
Ríkisstjómin ákvað að veita
45 milljónum kr. til þessa sér-
staka söluátaks sem hófst 3.
þessa mánaðar. Dugar það til
sölu á um 550 tonnum. Um
síðustu helgi var búið að selja
390 tonn. Mest sala er í úrvals-
flokknum, að sögn Jóhanns.
— Sig. Jóns.