Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989 5 Skoðanakönnun Skáíss: Fylgi Sjálfstæðisflokks 53% 28% segjast styðja ríkissljórnina, 78% andvígir SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi 53,1% fylgi, yrði kosið til Al- þingis nú, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Skáís gerði dagana 1. og 2. ágúst síðastliðinn. I síðustu alþingiskosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 27,2% atkvæða. Framsóknarflokkur fengi 17,1% og Kvennalisti 14,9%, Alþýðubadalag 6,9% og Alþýðuflokkur 6,4%, aðrir minna. I sömu könnun var spurt um fylgi ríkisstjórnarinnar og sögðust 28,2% styðja hana, en 71,8% voru andvígir. Þá kváðust 77,7% vilja að brugðist yrði við halla á ríkissjóði með niðurskurði ríkisút- gjalda, en 6,4% með hækkun skatta. Framangreindar niðurstöðutölur eru hlutfall þeirra sem tóku afstöðu. 655 manns, 18 ára og eidri, voru spurðir í könnun Skáís. Niðurstöður fara hér á eftir, tölur í svigum sýna hlutfallslegt fylgi viðkomandi flokks í þingkosningunum 25. apríl 1987. 199 kváðust mundu kjósa Sjálfstæð- isflokkinn, ef kosið yrði til Alþingis nú. Það eru 30,4% úrtaksins og 53,1% þeirra sem afstöðu tóku (27,2%). 64 nefndu Framsóknar- flokk, eða 9,8% úrtaksins og 17,1% þeirra sem tóku afstöðu (18,9%). 56 nefndu Kvennalista, eða 8,5% úrtaks og 14,9% þeirra sem tóku afstöðu (10,1%). 26 nefndu Alþýðubandalag, það eru 4,0% aðspurðra og 6,9% þeirra sem tóku afstöðu (13,3%). Alþýðuflokk nefndu 24, eða 3,7% aðspurðra og 6,4% þeirra sem tóku afstöðu (15,2%). Aðrir flokkar fengu minna fylgi, Borgaraflokk nefndu fjórir, 1,1% þeirra sem afstöðu tóku (10,9%), Frjálslynda hægrimenn nefndi einn og Flokk mannsins einn. Fylgi annarra flokka mældist ekki. 166 voru óákveðnir, eða 25,3% aðspurðra. 68 kváðust mundu skila auðu eða ekki kjósa og 46 svöruðu ekki spurningunni. Afstöðu tóku 375, eða 57,3% aðspurðra. Sjálfstæðisflokkur og Kvennalisti hafa aukið fylgi sitt miðað við könn- un Skáís í júní síðastliðnum, fylgi annarra flokka hefur minnkað eða staðið í stað. Spurt var um stuðning við ríkis- stjórnina. 379 kváðust ekki styðja hana, 149 kváðust styðja hana, 98 voru óákveðnir og 29 svöruðu ekki spurningunni. 80,6% aðspurðra tóku afstöðu. Þeir sem styðja ríkisstjórn- ina eru 28,2% og andvígir 71,8% þeirra sem afstöðu tóku. Niðurstöð- urnar sýna nær óbreyttan stuðning við stjórnina frá síðustu könnun í júní síðastliðnum. Spurt var hvort viðkomandi vildi kosningar strax, eða bíða með þær þar til kjörtímabiii lýkur. 90,1% tóku afstöðu, af þeim vildu 42,8% kosning- ar strax og 52,6% bíða með þær. Þá var spurt hvort ætti að bregð- ast við halla ríkissjóðs með hækkun skatta eða með niðurskurði ríkisút- gjalda. 77,7% þeirra sem afstöðu tóku vildu niðurskurð, 6,4% hækkun skatta og 16,0% vildu fara báðar leiðirnar. 86,1% tóku afstöðu. Aðspurðir voru beðnir að nefna einn til þijá stjórnmálamenn sem þeir bæru mikið traust til. Steingrím- ur Hermannsson forsætisráðherra fékk flestar tilnefningar, 132, eða 37,8%. Næstur kemur Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra með 123, eða 35,2%, þá Þorsteinn Pálsson með 90 tilnefningar, eða 25,8%. Næstir í röðinni voru Davíð Oddsson borgarstjóri, Jón Sigurðsson ráð- herra, Ólafur Ragnar Grímsson ráð- herra, Jóhanna Sigurðardóttir ráð- herra, Friðrik Sophusson alþingis- maður, Jón Baldvin Hannibalsson ráðherra, Svavar Gestsson ráðherra og Guðrún Agnarsdóttir alþingis- maður. Loks var spurt um afnota- gjöld Ríkisútvarpsins; hvort allir eigi að greiða þau, eða hvort menn eigi að geta sagt þeim upp ef þeir vilja. 95,4% aðspurðra tóku afstöðu. Af þeim kváðust 37,4% vilja að allir greiði afnotagjöldin, 58,9% sögðust vilja að fólk geti sagt upp, annað svar gáfu 3,7%. • I v': ■ öSiMÍbI' ij ' - > Él: “llf , 'Æ Þarna sérðu Júlíus. Hann kann að njóta lífsins. Júlíus er lánsamur maöur og hann lítur framtíðina björtum augum. Hann á íbúð og bíl, er í ágætri vinnu og lætur ýmislegt eftir sér. Júlíus lætur sig oft dreyma en ólíkt mörgum öðrum lætur hann drauma sína rætast. Eitt af því skemmtilegasta sem hann gerir er að ferðast til fjarlægra landa enda gerir hann mikið af því. Júlíus er þó ekki hátekjumaður en hann er skynsamur. Hann er í viðskipmm við Fjárfestingarfélag ísiands hf. Það gerir gæfumuninn. * *Júlíus byrjaði ungur að leggja til hliðar af launum sínum til þess að safna í vara- sjóð ef eitthvað færi úrskeiðis. Hann var að vísu ekki ánægður með vextina til að byrja með en hélt að það tæki því ekki að kynna sér betri leiðir af því að upphæðin varsvolítil. Árið 1985 komst Júlíus hins vegar í samband við sérfræðinga Fjárfestingar- félagsins og áttaði sig á því að peningarn- ir hans gætu margfaldast á stuttum tíma. Þá átti hann 300.000 kr. í sparifé. Á rúmurn fjórum árum er upphæðin orðin 1.200.000 kr. og árið 1990 hefur fjárhæðin líklega tvöfaldast að raun- gildi. Sannarlega álitlegur varasjóður það - og hann fer vaxandi! Júlíus heldur áfram að leggja til hliðar af launum sín- um og ávaxtar féð hjá Fjárfestingarfé- laginu. Það gerir hann m.a. til þess að geta farið í langt sumarleyfi á hverju ári. Þetta er maður sem kann að lifa lífinu! Þessar tölur eru raunverulegar en nafnið ekki. Hafðu samband, athugaðu hvort við getum aðstoðað þig. FJÁRFESTINGARFÉLAG ÍSIANDS HF. HAFNARSTRÆTI • KRINGLUNNI ■ AKUREYRI 28566 689700 25000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.