Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 48
48 MORGUNBIÍA.ÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989 5)1987 Universal Press Syndicate „Jona.S, þú vanost ^om'dLjohir i' happdrxttim-" Með morgnnkaffinu Ég vil að þér vitið að ráðn- ing mín fyrir 45 árum var á folskum forsendum ... HÖGNI HREKKVÍSI „ þETTA ER PAP N^JASTA NJVJA. " Unglingar skattpíndir Einstök þjónusta Til Velvakanda. Það hefur dregist hjá mér að láta þessar línur frá mér fara. Fólki er svo tamt að sjá það neikvæða í tilverunni en taka hinu jákvæða sem sjálfsögðum hlut, það hverfur úr huga og er oft lítt þakkað. Mig langar að minnast á atvik, sem henti mig í Hagkaupum ný- lega. Ég missti niður glas, sem fór í þúsund mola en ekki var ég fyrr búin að beygja mig niður til að bjarga klaufaskap mínum, en ungur maður kom aðvífandi og sagðist skyldu sjá um þetta og bauð mér að fara og ná í annað glas.. í annan tíma gleymdi ég hönsk- um og fékk þá með skilum. Það virðist vera fylgst með hlutunum á þeim stað. Að lokum varð páskalærið eftir hjá mér. Kom það fljótlega í leitirn- ar og fékk ég það sent heim eftir minni beiðni fljótt og vel. Ég minnist þess hve Hagkaup byijaði smátt en jók einatt við starf- semi sína og hefur þróast í það mikla fyrirtæki, sem það nú er, enda sýnir hinn mikli fjöldi við- skiptavina vinsældir þess. Er það skýrt dæmi um einstaklingsfram- takið, er það fær að njóta sín og hefur alla burði til. Björg M. Thoroddsen Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til fóstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfh, nafnnúmer og heimilisfóng verða að fylgja öllu efhi til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafh- leyndar. Til Velvakanda. Mig langar að taka undir með öllum þeim krökkum á mínumm aldri (þ.e. 14—15 ára), sem hafa mótmælt skattpíningum ríkisstjórn- arinnar á pkkur. Mér finnst það alveg fráleitt, að vinna fyrir lægra kaupi en sextán ára unglingar og þurfa auk þess að borga skatta, sem sextán ára og eldri þurfa ekki að borga. Hve- nær fáum við vinnandi unglingar undir sextán ára aldri afhent skatt- kort? Til Velvakanda. Það væri synd að segja að Jón Baldvin Hannibalsson hafi ekki átt sér hugsjónir um dagana — þótt þær hafi löngum ekki þótt einnar áttar eða samræmanlegar. Árum saman var þessi maður uppbelgdur af þeirri hugsjón að brýnast væri að útrýma framsóknarmennskunni úr þjóðfélaginu. Trúlega á hann pólitískan frama sinn að þakka vasklegri framgöngu í því trúboði. Enda málefnið hið mikilvægasta. Og hugsjónamaðurinn komst snyrtilega að orði um áform sín: Hann ætlaði að moka Framsóknar- flórinn! Sem og nauðsynlegt var áður en bytjað yrði að mjólka íhaldskúna, sem stendur í klyftir í Ég get nefnt, sém dæmi, að í júnímánuði sl. fékk ég sem svarar kr. 30.398 í heildarlaun. Af því greiddi ég kr. 1.824 í skatta. Þetta eru kannski ekki miklir peningar í augum háttvirtra stjórnmálamanna en fyrir mig er þetta talsverð upp- hæð. Hér með beini ég þeim tilmælum til ríkisstjórnar þessa lands, að hún ráði sem allra fyrst bót á þessu óréttlæti. Kærar þakkir til Velvakanda. Ingibjörg Hreftia Björnsdóttir mykjunni og hefir gert lengst af öldinni. Er mönnum sérstaklega minnisstætt hversu vel kýrin kunni við sig í þeim stellingum á árunum 1974—78. 0g sæmilega 1983—87, nema seinnipartinn, þegar stag- kálfurinn Þorsteinn bytjaði að bauta, þegar honum gerðist ógreið leiðin að jötu og júgri. En allt er þetta liðin tíð. Jón Baldvin Hannibalsson er að vísu staddur í Framsóknarfjósinu. En ekki til að moka flórinn. Þvert á móti kunni hann svo vel við ástand- ið að hann tók til við að moka inn í fjósið — úr haughúsinu. Og stend- ur nú hugsjónamaðurinn þar í herð- ar og mokar inn af miklum og sann- færðum móð. Melamaður Fjósamaðurinn Víkveiji skrifar Síðasta helgin í júlí er mesta umferðarhelgin í Frakklandi en að þessu sinni voru um 12 milljónir manna á ferðalagi á vegum lan.dsins að sögn yfirvalda. Flestir héldu frá norðri til suðurs eða öfugt og í Rhone-dalnum í kringum Lyon mynduðust um 100 km langar rað- ir bíla. Sagði í blöðunum að þeir sem höfðu lagt af stað frá París klukkan fjögur að morgni laugar- dagsins 29. júlí hefðu aðeins komið klukkustundu fyrr suður að strönd Miðjarðarhafsins en þeir sem héldu af stað fjórum tímum síðar frá París. Tafirnar voru mestar fyrri hluta dags í kringum Lyon. Vikveiji hélt sig utan frönsku hraðbraut- anna um þessa helgi og varð ekki fyrir neinum töfum á ánægjulegu ferðalagi um fagrar franskar sveit- ir. Hann tekur undir með öðrum útlendingum, að franskir bílstjórar sýna þeim ekki mikla tillitssemi sem aka um sveitir þeirra og njóta út- sýnis. Þeir aka gjarnan alveg upp undir þann sem á undan þeim er og þjóta síðan þóttafullir fram úr, þegar færi gefst. xxx Veðurblíðan hefur verjð einstök í Frakklandi og sveitafólk skammt fyrir sunnan borgina Lim- oges í miðju landinu sagði, að þar hefði verið sólskin á hveijum ein- asta degi frá því á jólum. Bretar státa sig af því núna, að í suður- hluta Englands hafi sólin skinið að meðaltaii 10 klukkustundir á dag í síðustu þijá mánuði. Lægðirnar hafa allar haldið sig norðarlega eins veðráttan í Reykjavík sýnir. I Eng- landi og á meginlandinu bera menn veðrið núna saman við hitann og sólskinið sumarið 1976. Syðst í Frakklandi hafa bændur ekki farið varhluta af þeim vand- ræðum sem fylgja þurrkunum. Vatnsskortur er víða og skógareld- ar eyðileggja stór landsvæði og stefna lífi og limum fólks í hættu. Það getur oft orðið heitt í bílnum þegar ekið er í rúmlega 30 stiga hita og glampandi sólskini. Er þá sjaldan lítið annað til varnar en að spretta úr spori og Iáta gustinn sem við það myndast kæla sig. Þeir sem þurfa að sitja tímunum saman í biðröðum á hraðbrautum geta ekki bjargað sér undan hitanum og sól- inni með þeim hætti og hlýtur vist- in þar oft að vera slæm. Margir vildu liklega frekar hafa verið á sveitavegunum. XXX Um þessa miklu umferðarhelgi Frakka urðu 669 slys á vegum Iandsins. 80 týndu lífi í umferðar- slysum og 1.069 slösuðust. Franska lögreglan er ekki í vafa um, að hraðinn sé hættulegastur i, umferð- inni, þeim mun hraðar sem ekið sé því meiri hætta sé á alvarlegum slysum ef eithvað fer úrskeiðis. í þessu mati frönsku lögreglunn- ar felast engin ný sannindi. A hinn bóginn er deilt um það, hve há- markshraði á hraðbrautum eigi að vera mikill og gilda um það ólkar reglur í Evrópulöndum. Francois Mitterrand Frakklandsforseti vék að þessu í viðtali við fimm evrópsk blöð á dögunum, þegar hann ræddi um þá ósk Vestur-Þjóðveija að ákveðið verði, að innan Evrópu- bandalagsins verði bílar með hreinsibúnað (katalísatoij. Sagðist forsetínn geta fallist á þetta en hitt ættu Þjóðverjar að athuga, að sú skipan þeirra að hafa engar reglur um hámarkshraða á hraðbrautum leiddi til meiri útblásturs á kol- tvísýringi en ef hraðinn væri tak- markaður og ættu menn að hafa samræmi í hlutunum, Þjóðveijar hafa löngum deilt um það hvort takmarka eigi hraða á hraðbrautunum og jafnan hafnað því. Hitinn í þeim umræðum er til marks um að umferðarmálin og allt sem að þeim lýtur getur valdið deilum milli ríkja eins og allt ann- að. Til dæmis er sagt að þýskum ferðamönnum á Ítalíu hafi fækkað eftir að yfirvöld þar ákváðu að lækka hámarkshraða á sumrin til að draga úr hættu á slysum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.