Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 32
12 MÖRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKÚDAGUr! j9. ÁGÚST 1989 ATVINNUAUGl YSINGAR Sjúkraþjálfarar Á Höfn í Hornafirði er laus staða sjúkraþjálfara. Allar upplýsingar gefur Ásmundur Gíslason, Skjólgarði, símar 97-81118 og 97-81221. „Au - pair“ Óska eftir samviskusamri og barngóðri „au- pair“, eldri en 18 ára, á íslenskt- enskt heim- ili í nágrenni London. Má ekki reykja. Upplýsingar í síma 31223. íþróttakennarar Grunnskólinn á Hofsósi, Skagafirði, leitar að fjölhæfum íþróttakennara til starfa, sem einnig gæti sinnt hannyrða- og myndmennta- kennslu. Full staða. Húsnæðishlunnindi í boði. Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Svandís Ingimundardóttir, í síma 95-37395. Myllubakkaskóli, Keflavík Við Myllubakkaskóla í Keflavík eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar. 1. Almenn kennsla. (Tvær stöður). 2. Uppeldisfulltrúi (V2 staða). A iidéSla skólaáii vei'ua uin 750 riéiTiéiiuui í skólanum og eru þeir á aldrinum 6-11 ára. Allar frekari upplýsingar gefa skólastjóri í síma 92-11884 og 92-11450 og yfirkennari í síma 92-11686. Frá Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands Af sérstökum ástæðum vantar kennara í forskólakennslu. Um er að ræða 2/3 hluta úr stöðu. Einnig vantar umsjónarkennara í sjöunda bekk með áherslu á stærðfræði og líffræði. Upplýsingar í símum 91-84566, 91-32221 og 92-46519. Skólastjóri „Au pair“ - Bandaríkjunum í New Jersey eru tvær fjölskyldur að leita eftir íslenskum stúlkum, ekki yngri en 20 ára, til barnagæslu og léttra heimilisstarfa. Upplýsingar gefur Ásta í síma 2015285641, New Jersey, milli kl. 13.00 og 16.00 að íslenskum tíma. Sjálfsbjörg - landssamband fatlabra Hátúni 12 - Sími 29133 - Pósthólf 5147 - 105 Reykjavlk - ísland Ritari Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, óskar eftir að ráða ritara strax. Um er að ræða fullt starf. Við leitum að ritara sem er góðum kostum búinn, s.s. stundvísi, nákvæmni og með góða kunnáttu í ýmsum skrifstofustörfum. Upplýsingar gefur skrifstofustjóri í síma 29133. Smiður Okkur vantar smið, vanan verkstæðisvinnu. Upplýsingar gefur Ólafur í síma 76440. Fiskvinna - ræsting Lítið einkafyrirtæki í Reykjavík vantar vanan starfskraft við snyrtingu þorskflaka. BÓNUS. Einnig vantar starfskraft við ræstingu fisk- verkunar þrisvar í viku. Upplýsingar í síma 21938 á skrifstofutíma. Mosfellsbær Starfsfólk óskast í hlutastörf fyrir og eftir hádegi: 1. Afgreiðsla og pökkun. 2. Ræsting. Vinnutími 4-5 stundir á dag. Upplýsingar á staðnum. Mosfellsbakarí, Urðarholti 2. Sálfræðingur - kennsluráðgjafi Sálfræðingur óskast til starfa við Fræðslu- skrifstofu Vestfjarða. Ennfremur er laus staða kennsluráðgjafa. Kennarapróf og starfsreynsla áskilin. Framhaldsmenntun æskileg. Mjög góð vinnuaðstaða. Nánari upplýsingar veitir fræðslustjóri, Pétur Bjarnason, í símum 94-3855 og 94-4684. Gæðaeftirlit Óskum að ráða aðstoðarmann við gæðaeftir- lit í verksmiðju okkar í Sundahöfn. Starfið felst í sýnatöku, efnagreiningum, skráningu upplýsinga og öðrum verkefnum eftir nánari fyrirmælum hverju sinni. Vinnutími er frá kl. 13.00 til 17.00. Skriflegar umsóknir sendist til Ewos hf. fyrir 15. ágúst nk. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Ewos hf., Korngarði 12, 124 Reykjavík. Afgreiðslustörf Viljum ráða starfsmenn til framtíðarstarfa á bensínstöðvar Skeljungs á Reykjavíkursvæð- inu. Um er að ræða afgreiðslustörf úti við. Vaktavinna. Störfin eru laus 1. september nk. Æskilegur aldur 20-55 ára. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Skeljungs, Suðurlandsbraut 4, 5. hæð. Nánari upplýsingar veittar á staðnum. Skeljungur hf. Starfsfólk óskast í verslun okkar. Upplýsingar gefur Hilmar á staðnum milli kl. 14.00 og 17.00, ekki í síma. KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2. Kennarar Vegna forfalla vantar kennara við Grunnskól- ann á Hellu tímabilið september-febrúar á komandi skólaári. Meðal kennslugreina: Kennsla yngri barna. Upplýsingar veita skólastjóri í síma 98-75943 og formaður skólanefndar í síma 98-78452. Verksmiðjustörf Lýsi hf. óskar að ráða fólk til almennra verk- smiðjustarfa. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir verkstjóri á Grandavegi 42 (ekki í síma). Verksmiðjustörf Okkur vantar tvo duglega starfsmenn í Tropí/Svala-verksmiðju fyrirtækisins í pökk- unar/ettirlitsstort. Umsækjendur eiga helst að vera á aldrinum 19-24 ára. Rætt verður við umsækjendur fimmtudaginn 10. ágúst nk. milli kl. 09.00 og 10.00. Starfsmannastjóri, Smjörlíki/Sól hf., Þverholti 10, s. 26300. Verslunarstjóri Stórt fyrirtæki í Reykjavík vill ráða verslunar- stjóra til starfa við einn af sölustöðum þess. Um er að ræða nýtt starf, sem viðkomandi aðili tæki þátt í að móta. Starfið felur í sér afgreiðslu viðskiptavina, starfsmannastjórn, vörupantanir og vöruuppröðun. Umsækjandi þarf að hafa verslunarreynslu, geta unnið sjálfstætt og hafa áhuga á sölu- og þjónustustörfum. Umsóknir sendist auglýsingadeild Morgun- blaðsins fyrir 20. ágúst nk. merktar: „S - 8673“. HLÍÐABÆR Þjónustudejld Múlabæjar Flókagötu 53 - Sími 621722 -105 Fteykjavík Umönnun - þjálfun Hlíðabær, þjónustudeild Múlabæjar, er dagdeild fyrir fólk með ein- kenni um heilabilun (Alzheimer’s syndrom). Heimilið tók til starfa i byrjun árs 1986. Á heimilinu starfa sjúkraliðar og annað starfsfólk með fjölbreytta reynslu í heilbrigðisþjónustu. Forstöðumaður er geð- hjúkrunarfræðingur, I störfum deildarinnar er leitast viö að vinna markvisst að færnis- þjálfun einstaklinganna, bæði á andlegu og likamlegu sviði. Við leitum að tveimur starfsmönnum í fullt starf í Hlíðabæ. Æskilegt er að viðkomandi hafi sjúkraliðamenntun eða þroskaþjálfa- menntun. Einnig kemur til greina að ráða starfsfólk án sérmenntunar en með starfs- reynslu úr geðheilbrigðis- eða öldrunarþjón- ustu. Um er að ræða fjölbreytt störf sem krefjast frumkvæðis en góðrar samvinnu við alla starfsmenn heimilisins. Skilyrði fyrir ráðningu er mikill áhugi á viðfangsefni stofn- unarinnar og áreiðanleiki til vinnu. Allar nánari upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður Hlíðabæjar, Þóra Arnfinns- dóttir, geðhjúkrunarfræðingur í síma 621722, virka daga. Umsóknarfrestur rennur út 14. ágúst nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.