Morgunblaðið - 09.08.1989, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
Forseti íslands í Kanada:
Vigdís heiðursdoktor
við Manitoba-háskóla
Winnipeg. Frá Karli Blöndai, fréttaritara
SALURINN tók undir með dynj-
andi lófataki þegar Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, var
sæmd heiðursdoktorsnaftibót í
lögum við Manitoba-háskóla í
Winnipeg á föstudag. Arnold
Naimark, forseti og varakanslari
Manitoba-háskóla, sagði að ætl-
unin með nafnbótinni væri sú að
heiðra þjóðarleiðtoga sem hefði
bæði haft áhrif á samfélagið í
Manitoba og um heim allan.
Eftir að Vigdís hafði verið sæmd
nafnbótinni kvaðst hún kunna kær-
ar og innilegar þakkir fyrir þennan
heiður. í ávarpi sínu fjallaði forset-
inn um nauðsyn menntunar, meng-
un og umhverfisvemd.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra tilkynnti að íslenska ríkis-
stjórnin hefði ákveðið að veita styrk
til íslenska bókasafnisins við Man-
itoba-háskóla næstu fímm ár. Sá
styrkur nemur 5.000 dollurum á
ári og verður veittur í bókum.
íslendingabyggðin hér hefur um
langt skeið sett mark sitt á háskól-
ann í Manitoba. Árið 1951 var sett
á fót íslenskudeild sem einnig tekur
til bókmennta og átti áhugi Islend-
inga búsettra hér stóran þátt í því.
Háskólinn á einnig gott safn
ísienskra bóka en þar eru um
24.000 íslenskir titlar og er þetta
þriðja stærsta safn íslenskra bóka
í heim.
Forseti íslands hélt síðdegis á
föstudag í Listasafn Winnipeg til
Morgunblaðsins.
að opna sýningu handrita úr Arna-
safni sem aðeins hafa verið flutt
tvisvar úr landi áður frá því að
handritin komu heim annars vegar
til Genúa á Ítalíu og hins vegar til
New York. Sex handrit hafa verið
flutt hingað en þau elstu sem eru
frá 11. öld eru of viðkvæm til flutn-
ings og eru því heima. Á sýning-
unni era m.a. 14. aldar handrit af
Njálu og Snorra Edda frá 18. öld.
Dr. Jónas Kristjánsson fylgdi hand-
ritunum hingað og hefur undirbúið
sýninguna þ.á m. 30 síðna bækling
með inngangi eftir Vigdísi Finn-
bogadóttur.
Vigdís lagði einnig blómsveig að
styttu Jóns Sigurðssonar sem reist
hefur verið fyrir utan þinghúsið í
Winnipeg og kemur kunnuglega
fyrir sjónir í framandi umhverfí.
Forsetinn kom til Winnipeg á mið-
vikudag og tók George Johnson,
landstjóri í Manitoba, sem er af
íslenskum ættum, á móti Vigdísi
ásamt mörgum Vestur-íslendingum
sem hafa beðið þess með eftirvænt-
ingu að hitta forsetann.
Um helgina var íslendingadag-
urinn haldinn hundraðasta sinni.
Alls komu um tíu þúsund íslending-
ar til Kanada á seinni hluta 19.
aldar, margir þeirra til Manitoba
. eftir Heklugosið 1873. Þeir settust
að í Mikley, sem á ensku er nefnd
Hecla Island, og tóku bólfestu þar
sem síðar var kallað Gimli. Þar fór
íslendingadagurinn fram og tóku
um 50.000 manns þátt í hátíðar-
höldunum að þessu sinni. Forsetinn
hélt einnig til Mikleyjar og skoðaði
fæðingarstað landkönnuðarins Vil-
hjálms Stefánssonar í Árnesi og
Guttorms J. Guttormssonar skálds
í Riverton. í Gimli skoðaði Vigdís
White Rock þar sem fýrstu íslend-
ingarnir lentu og kynnti Ted Árna-
son, borgarstjóri í Gimli, forsetann
fyrir Thuru Bjarnason og Noru
Salmundson. Þær eru dætur fyrsta
barnsins sem fæddist í Nýja-íslandi
rétt eftir lendinguna á White Rock
napra haustnótt árið 1875. Forseta-
heimsókninni lauk í gær þriðjudag
og hélt Vigdís þá heim til íslands.
Reuter
Tíu daga heimsókn Vigdísar Finnbojgadóttur til Kanada lauk í gær.
Forsetinn kom víða við, heimsótti Islendingabyggðir og ræddi við
kanadíska ráðamenn. Myndin var tekin í Ottawa, höfiiðborg Kanada,
er Vigdís hafði lagt blómsveig að minnisvarða um fallna hermenn
íslendingadagurinn fjölsóttur:
Stærsta hátíð I sögu Gimli
Gimli Frá Tom Oleson, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLENDINGADAGURINN var haldinn hátíðlegur hundraðasta sinni á
mánudag í Gimli og höfðu íbúarnir á orði að þessi dagur myndi seint
líða þeim úr minni. Raunar fóru hátíðarhöldin fram yfir helgina en
þau náðu hámarki á mánudag er Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, tók þátt í glæsilegri skrúðgöngu ásamt miklum fíölda fólks.
Þúsundir manna fögnuðu forseta hafí tekið þátt í hátíðarhöldunum og
íslands er skrúðgangan fór hjá. Fag-
urlega skreyttir vagnar voru dregnir
um götur Gimli, lúðrasveitir léku
göngulög, gamlir bílar voru sýndir
auk þess sem margir kusu að aka
um göturnar í hestvögnum að göml-
um sið. Talið er að um 50.000 manns
hefur fjölmennari samkunda aldrei
verið haldin í sögu Gimli en þar búa
um 3.000 manns.
Að skrúðgöngunni lokinni var
haldið í skemmtigarð Gimli-bæjar.
Lilja Arnason flutti ávarp Fjallkon-
unnar og viðstaddir fögnuðu ákaft
er Vigdís Finnbogadóttir tók til máls
og hrósaði Vestur-íslendingum fyrir
þá virðingu sem þeir sýndu menning-
ararfleifð sinni og kvað ljóst vera að
þeir væru stoltir af uppruna sínum.
Gestum gafst tækifæri til að
bragða á þjóðlegum íslenskum rétt-
um og íslenskir listamenn m.a. þau
Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari
og Gunnar Kvaran sellóleikari léku
fyrir viðstadda auk þess sem karla-
kórinn Fóstbræður kom einnig fram.
Nokkuð öruggur sigur
TR á Bayern Munchen
Skák
Margeir Pétursson
Taflfélag Reykjavíkur sló
Bayem Miinchen út úr Evrópu
keppni skákfélaga um helgina
og er nú komið í átta liða úr-
slit. Lokatölumar í viðureign-
inni vom Qh-Sh TR í vil, sigur-
inn var þó mun ömggari en
tölumar gefa til kynna. Fyrstu
§ómm skákunum lauk með
sigri taflfélagsmanna og þótt
Þjóðverjarnir berðust hat-
rammri baráttu til að jafha var
munurinn of mikill til að þeir
ættu raunhæfa möguleika.
Báðar sveitirnar stilltu upp sínu
sterkasta liði og tefldu alls átta
stórmeistarar og fimm alþjóðlegir
meistarar á Hótel Loftleiðum um
helgina.
Úrslit í fyrri umferðinni urðu
þannig:
Ribli-Jóhann 0-1
Kindermann-Jón L 0-1
Bischoff-Margeir 1-0
Hickl-Helgi 0-1
Hertneck-Hannes 0-1
Hecht-Karl jafht.
Jafntefliskóngurinn Ribli teflir
mun grimmar fyrir lið sitt, en
fyrir eigin reikning og hann lagði
út í töluverðar flækjur gegn Jó-
hanni. Þá missti hann gjörsam-
lega þráðinn og tapaði fljótt.
Jón L. tefldi byijunina rólega
gegn Kindermann og uppskar
þann árangur að Þjóðveijinn
gleymdi að gæta að vömum
sínum. Jón vann því fljótt og ör-
ugglega. Bischoff tefldi byijunina
mjög rólega að vanda en þegar
ég gat þráleikið lék ég í staðinn
heiftarlega af mér og fékk lakari
stöðu. Eftir það hélt hann vel á
spöðunum og tókst að niinnka
muninn.
Helgi vann Hickl örugglega,
eftir misheppnaða peðsfóm Þjóð-
veijans í miðtaflinu. Hertneck
virtist heldur enga möguleika eiga
gegn rökréttri taflmennsku Hann-
esar. Karl Þorsteins átti í höggi
við aldursforseta Þjóðveijanna,
hinn fímmtuga Hans-Joachim
Hecht, sem tefldi m.a. á
Reykjavíkurskákmóti 1970. Karl
lenti í erfiðu endatafli með peði
minna, sem honum tókst með
þrautseigju að halda.
Eins og vænta mátti skiptu
Bæjaramir Hertneck út af í seinni
umferðinni, höfðu greinilega ekki
trú á honum með svörtu gegn
Hannesi, eftir útreiðina daginn
áður. TR hafði nú hvítt á fyrsta,
þriðja og fimmta borði:
Jóhann-Ribli 0-1
Jón L-Kindermann jafiit
Margeir-Bischoff jafht
Helgi-Hickl jafht
Hannes-Hecht jafiit
Karl-Schlosser 0-1
Það er ekki svo auðvelt að tefla
upp á að halda hlut sínum og það
kom ekki á óvart þótt gestirnir
hefðu betur í þessari umferð. Jó-
hanni urðu á mistök í byijuninni
gegn Ribli sem hélt vel á spöðun-
um í framhaldinu. Sigurinn var
þó ekki alveg vís þegar Jóhann
féll á tíma í 40. leik. Skák Jóns
og Kindermanns lauk síðast. Þjóð-
veijarnir þurftu nauðsynlega á
vinningi að halda til að jafna
metin, en Jón virtist aldrei í nokk-
urri taphættu og hafði heldur
betri stöðu í lokin.
Ég fékk vænlega stöðu gegn
Bischoff, en hann varðist vel og
varð niðurstaðan jafntefli með
þráleik, þegar tímamörkununum
hafði verið náð. Byijun Helga virt-
ist misheppnast, en honum tókst
að halda Hickl í skefjum, fyrst
með því að fórna peði og síðan
skiptamun. Hannes fékk þægi-
legri stöðu gegn Hecht, en eftir
vemleg uppskipti á peðum var
samið jafntefli. Karl tefldi við hinn
sprenglærða Philip Schlosser og
fékk á sig nýtt tízkuafbrigði gegn
Griinfeldsvörn sinni. Mótspil Karls
virtist um tíma fullnægjandi, en
Þjóðveijinn hélt vel á spöðunum
og vann í endatafli. í seinni um-
ferðinni fór rafmagnið af í lokin
í u.þ.b. hálftíma, en keppendur
tóku því með jafnaðargeði og virt-
ist það ekki hafa teljandi áhrif á
gáng skákanna.
Taflfélag Reykjavíkur hefur nú
náð að slá tvö öflug félög út úr
keppninni, fyrst Anderlecht frá
Belgíu, með hollensku stórmeist-
urunum Timman og Sosonko og
belgíska ólympíuliðinu, og nú
v-þýzku meistarana. Það má þó
vænta þess að róðurinn þyngist
enn í átta liða úrsiitunum, sem
fara fram um miðjan október
næstkomandi. Fréttir af öðmm
úrslitum í annarri umferð hafa
ekki borist, nema hvað Solingen
frá V-Þýzkalandi (Spassky, Húb-
ner, Lobron, Kavalek o.fl.) sló út
Honved, Búdapest (Sax, Pinter
o.fl.) 7-5. Auk Solingen má vænta
а. m.k. tveggja sovézkra sveita og
einnar ungverskrar í átta liða úr-
slitunum.
Hvítt: Zoltan Ribli
Svart: Jóhann Hjartarson
Drottningarbragð
1. Rf3 - Rfö 2. d4 - d5 3. c4
- e6 4. Rc3 - Be7 5. Bg5 - h6
б. Bh4 - 0-0 7. e3 - b6 8. Be2
- Bb7 9. Bxfö - Bxfö 10. cxd5
- exd5 11. 0-0 - De7 12. Db3
- Hd8 13. Hfel!?
Mun algengara er 13. Hacl eða
13. Hadl, en það getur komið sér
vel að hafa hrók andspænis svörtu
drottningunni
13. — c5 14. dxc5 — Bxc3 15.
Dxc3 — bxc5 16. Re5
Endurbót Riblis á taflmennsku
hans sjálfs gegn Vaganjan í
Niksic 1978, en þá jafnaði svartur
taflið eftir 16. Hacl — Rd7 17.
Da3 Hdc8. Nú virðist eðlilegasti
leikur Jóhanns vera 16. — Rd7,
en hann vill tefla virkar og leggur
nokkuð mikið á stöðuna.
16. - a5!? 17. Bh5! - Hf8 18.
Bf3 - Ra6 19. h3
Fram að þessu hefur tafl-
mennska Riblis verið þróttmikil,
e» þessi og næsti leikur hans em
linkulegir og duga ekki til að við-
halda frumkvæðinu. Eðlilegt virð-
ist 19. Rd3 og hvíta staðan er
þægilegri.
19. - Dg5 20. a3 - Hfe8 21.
Rc4 - He6! 22. Dd2??
Tapleikurinn. 22. Rxa5?? var
einnig mjög slæmur vegna 22. —
d4!, en rétt var 22. Rd2! — a4
(22. — d4 23. exd4 — exd4 24.
Dxd4 - Hd8 25. Dc3 - Hc8 26.
Hxe6! - Hxc3 27. He8+ - Kh7
28. bxc3 dugirtæplega til að jafna
taflið.) 23. Dc2 og möguleikamir
virðast nokkuð jafnir.
22. - Hfö! 23. Rxa5 - Hxf3 24.
Rxb7 - Hxh3 25. f4?
Enn leikur Ribli af sér, en það
var líklega orðið um seinan að
bjarga taflinu, svo sem sézt af
afbrigðinu 25. b4 — He8! 26.
Rxc5 — Rxc5 27. bxc5 He6 28.
Hadl — Dh4! 29. gxh3 — Dxh3
30. Dd3 - He5 34rT’e4 - Hg5+
32. Dg3 - Hxg3+ 33. fxg3 -
Dxg3+ 34. Khl — d4! og svartur
ætti að vinna.
25. - Dg3 26. Dxd5 - Rc7 27.
Dd2 - Hh2 28. Hacl - Re6 29.
Dd5 - Dh4 30. Kfl - He8 31.
Dd7 — He7 og hvítur gafst upp.
Eftirfarandi skák lauk fyrst,
þýzki stórmeistarinn fær hroða-
lega útreið:
Hvítt: Jón L. Ámason
Svart: Stefan Kindermann
Frönsk vöm
1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rd2 -
c5 4. Rgf3 — cxd4 5. exd5 —
Dxd5 6. Bc4 - Dd6 7. 0-0 -
Rfö 8. Rb3 - Rc6 9. Rbxd4 -
Rxd4 10. Rxd4 - a6 11. Hel -
Dc7 12. De2 - Bd6 13. h3
Þetta hefur verið talinn óþarfí,
þvi peðið er hvort eð er eitrað.
13. - 0-0 14. c3 - b5 15. Bd3
- Bb7 16. Bg5 - Bh2+?
Þjóðveijanum hleypur of mikið
kapp í kinn við rólega tafl-
mennsku hvíts og gleymir að
gæta að eigin vörnum. Eftir þenn-
an og næsta leik hans er staðan
gertöpuð. Eðlilegt var 16. — Rd5
og staðan má heita u.þ.b. í jafn-
vægi.
17. Khl - Bf4 18. Bxfö - gxfö
19. Dg4+ — Bg5
Ömurlegur leikur, en 19. — Kh8
mátti svara með 20. Dh4 — f5
21. Bxf5! - exf5 22. Df6+ - Kg8
23. Rxf5 og mátar.
20. Dh5 - h6 21. h4 - Bf4
22. Rf5! - Hfd8 23. Dg4+ -
Kf8 24. Dg7+ - Ke8
Hvítur gæti nú unnið tvö peð
með því að leika 25. Dg8+ o.s.frv.,
en hann á glæsilega línurofsfléttu,
sem vinnur svörtu drottninguna:
25. Hxe6+! - fee6 26. Rd6+ -
Hxd6 27. Dxc7 - Hxd3 28.
Dxb7 — Had8 29. g3 og svartur
gafst upp.
Skákstjórar í keppninni, sem
fór vel fram, voru þeir Guðmund-
ur Arnlaugsson, Ólafur Ásgríms-
son og Ríkharður Sveinsson, allt
alþjóðlegir skákdómarar. Aðsókn
að keppninni var nokkuð góð báða
dagana.