Morgunblaðið - 09.08.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
21
Norðurland:
Tónleikaferð kórs
Flensborgarskóla
KÓR Flensborgarskóla leggnr upp í tónleikaferð um Norðurland í
næstu viku. Fyrstu tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju föstudaginn
11. ágúst kl. 20.30. Þá mun kórinn syngja í Reykjahlíðarkirkju laugar-
daginn 13. ágúst kl. 15.00 og ljúka síðan ferðinni með tónleikum i
Húsavíkurkirkju það sama kvöld kl. 20.30.
Á tónleikunum kemur fram ungur
einsöngvari, Aðalsteinn Einarsson.
Hann hefur stundað nám við Söng-
skólann í Reykjavík.
Á efnisskránni að þessu sinni
verða m.a. kirkjuleg verk frá ýmsum
tímum, lög frá 16. öld og þjóðlög frá
Norðurlöndum. Kór Flensborgar-
skóla hefur starfað k'ðan 1981 og
komið víða fram. Hann tók þátt í
Evrópa cantat-söngmóti í Sviss árið
1987 og síðastliðið sumar hélt kórinn
ferna sjálfstæða tónleika á Italíu.
Stærsta verkefni kórsins til þessa
er Gloría í D-dúr eftur Vivaldi sem
flutt var á tónleikum nú í vor. Kórinn
vinnur nú að fyrstu hljómplötu sinni.
Stjómandi kórsins er Margrét Jó-
hanna Pálmadóttir.
Hermann Stefánsson klarinettuleikari og Helena Stefánsson sópran-
söngkona.
Tónleikar í Norræna húsinu
Tonlistarmenmrmr Helena Stefánsson sopran, Hermann Stefánsson
klarinettuleikari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari halda tón-
leika í Norræna húsinu í kvöld, miðvikudaginn 9. ágúst, kl. 20.30. Þau
flytja lög eftir Wilhelm Peterson-Berger, Debussy, Jórunni Viðar, Ed-
vard Gneg og fleiri tónskáld.
Hermann Stefánsson fæddist á
Islandi 1962 og byijaði að læra á
klarinett í Tónlistarskóla Akraness.
Árið 1976 fluttist hann tii Svíþjóðar
með flölskyldu sinni og hefur búið
þar síðan. Hann hefur lokið prófi frá
Tónlistarháskólanum í Piteá og ein-
leikaraprófi frá Konservatoríinu í
Rotterdam. Hann stundar nú nám
sem Fulbright-styrkþegi við „Uni-
versity of Southern California" í Los
Angeles.
Sópransöngkonan Helena Stef-
ánsson fæddist í Svíþjóð 1961. Hún
lauk söngkennaraprófi frá Tónlistar-
háskólanum í Piteá. hún hefur einnig
verið í söngtímum hjá Hilary Reyn-
olds og Tina de Roos í Hollandi. Hún
stundar nú nám við „University of
Southern California" í Los Angeles.
Á stuttmyndasýningu á Hótel Borg í kvöld verða m.a. sýndar mynd-
ir eftir Lárus Ými Óskarsson og Hilmar Oddsson.
Hundadagar 89:
Lifandi myndir á Borg
Besti vinur ljóðsins mun standa fyrir þremur uppákomum á
Hundadögum 89 og verður sú fyrsta í kvöld, miðvikudag klukkan
21, þar sem vinurinn tekur að sér að vera Besti vinur Iifandi mynda.
A þessu kvöldi verður sýndur
fjöldi stuttmynda eftir bæði kvik-
myndagerðarmenn sem og mynd-
listarmenn og hafa margar þeirra
ekki sést í langan tíma eða borið
fyrir augu almennings áður. Edda
Sverrisdóttir hefur haft veg og
vanda af undirbúningi þessa kvölds
og sagði hún að um væri að ræða
filmljóð, skólamyndir og tilrauna-
og framúrstefnumyndir, flestar frá
þessum áratug en þó eru nokkrar
frá áttunda áratugnum. Lengd
myndanna er mjög misjöfn, hinar
stystu eru um tvær mínútur en þær
lengstu um tuttugu mínútur. Edda
sagðist reikna með að um 10 - 12
kvikmyndir yrðu á dagskránni og
heildarlengd sýningarinnar á Hótel
Borg yrði væntanlega um tveir og
hálfur klukkutími.
Meðal mynda sem sýndar verða
eru verðlaunamynd Lárusar Ýmis
Óskarssonar Fugl í búri, mynd
Eddu Sverrisdóttur Brynja, Freys
Þormóðssonar Andvarp, Jóns
Gnarr og Siguijóns Kjartanssonar
Hýri Morðinginn, tyggjó eftir Þór
Elís Pálsson og mynd án titils eft-
ir Eddu Hákonardóttur. Fjórar
síðasttöldu myndirnar hafa ekki
komið fyrir sjónir almennings áður
og myndir þeirra Freys, Jóns og
Siguijóns eru frá þessu ári. Þá
verða einnig sýndar myndirnar
Rumenatomia eftir Kára Schram,
Match eftir Ólaf Rögnvaldsson og
Séra minn þekkir þér F.M.R. eftir
Hllmar Oddsson. Edda sagði að
með þessu væri ekki allt tálið því
vænta mætti að ýmsar óvæntar
myndir ræki á fjörur gesta í kvöld.
Sérstakur heiðursgestur kvöldsins
verður Þorgeir Þorgeirsson rithQf-
undur og kvikmyndagerðarmaður.
Besti vinur lifandi mynda hefst
í kvöld klukkan 21 og er aðgöngu-
miðaverði stillt í hóf. Veitingasala
Hótel Borgar verður opin fyrir og
eftir sýningu myndanna.
Byggðastofiiun:
Sjö fyrirtæki
óska eftir
50 millj. kr.
Byggðastoftiun
ræður ekki við
þetta, segir Guð-
mundur Malm-
quist forstjóri
„BYGGÐASTOFNUN ræður ekki
við að leggja fram hlutafé fyrir
þetta miklar fjárhæðir sem stend-
ur,“ sagði Guðmundur Malmquist
forsljóri Byggðastofnunar í sam-
tali við Morgunblaðið um umsókn-
ir sjö fyrirtækja um 50 milljóna
króna hlutafjárframlög stofnunar-
innar. Á stjórnarfundi í Byggða-
stofhun í síðustu viku var ákveðið
að fresta afgreiðslu óska fyrir-
tækjanna um hlutafjárframlög til
síðari tíma.
Guðmundur sagði að fyrirtækin
sjö væru úr fiskeldisgreininni,
pijóna- og saumaiðnaði auk þess sem
meðal umsækjenda væru hótel og
iðnfyrirtæki. Hann kvað lög og reglu-
gerðir um Byggðastofnun einna helst
heimila hlutafjáreign hennar í ný-
sto/nuðum fyrirtækjum.
í frétt sem stjórn Byggðastofn-
unnar sendi frá sér eftir fundinn á
miðvikudag kom fram að ekki hafði
verið gert ráð fyrir svo mikilli ásókn
í hlutafé frá stofnuninni sem raun
ber vitni. Guðmundur benti á, að þær
umsóknir sem nú lægju fyrir varð-
andi þetta málefni gætu boðað enn
aukná ásókn í hlutaijárframlög frá
Byggðastofnun.
Hafbu þaö gott
í Hólminum
i
Áætlunarferðir Batdufs tií
Brjánstækjar
/'V1'' / %/,
vistiegt notei - ijaiastæöt -
Sundlaug - Verslun - Bakarí -
Söiuskáli og öll sú þjónusta
sem ferðamaðurinn þarfnast.
i Stykkistiólmi
- Eyiateröir
Heildarupphæð vinninga
05.08. var 2.071.112.
Enginn hafði 5 rétta, sem
var kr. 1.770.518.
Bónusvinninginn fengu 8
og fær hver kr. 38.409.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 7.260
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 340.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt I Sjónvarpinu.
Sími 685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulínan: 99 1002.