Morgunblaðið - 09.08.1989, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
23
Afganistan:
Eldflaugar valda
leppstjórninni
þungum búsiflum
Kabúl. Reuter.
AFGANSKIR skæruliðar hæfðu í gær stærsta vopnabúr leppstjórnar
Sovétmanna í Kabúl með eldflaug og nötraði og skalf borgin í marg-
ar klukkustundir á eftir vegna keðjuvirkandi sprenginga í vopnabúr-
inu. I gær hæfði önnur eldflaug skæruliða sendiráð Sovétríkjanna í
borginni, en að sögn starfsmanna sendiráðsins urðu engin slys á
mönnum af hennar völdum.
Sprengingarnar í vopnabúrinu,
sem er um 1 km frá Kabúl-flug-
velli, héldu áfram langt fram á
nótt, en sjá mátti himinháar eld-
tungurnar og sprengingarnar úr
margra km fjarlægð og þykkur
reykur byrgði annars stjörnubjart-
an himinninn. Undanfarna fimm
daga hafa eldflaugaárásir dunið á
Kabúl og hefur að minnsta kosti
21 maður fallið og 117 særst í borg-
inni.
Að sögn starfsmanna hjálpar-
stofnana í Kabúl voru fimm alvar-
lega særðir menn færðir í sjúkrahús
skömmu eftir að sprengingarnar
hófust og var búist við að bekkur-
inn yrði þrengra setinn eftir því sem
á liði nóttina.
Þessi síðasta árás afganskra
skæruliða á borgina er talið eitt
mesta áfall, sem leppstjórn Sovét-
manna hefur orðið fyrir undanfarna
mánuði. Skæruliðar hafa látið eld-
flaugar dynja á Kabúl undanfarinn
mánuð, en þeir halda til í ijöllunum
hringinn í kring um borgina.
Nágrannar sovéska sendiráðsins
í Kabúl, sem er kippkorn frá varnar-
málaráðuneytinu, segja að svo virt-
ist sem fleiri en ein eldflaug hafi
hæft sendiráðið á mánudag, að
minnsta kosti hafi fleiri en ein
sprenging heyrst þaðan. Þeir kváð-
ust einnig hafa heyrt sögusagnir
um að tveir hefðu látið lífið í árá-
sinni, sem átti sér stað daginn eftir
að Edúard Shevardnadze, utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna, kom í
eins dags heimsókn til Afganistan.
Á mánudag hæfðu að minnsta kosti
40 eldflaugar skotmörk í Kabúl.
Reuter
Jórdanskur hermaður ræðst
einn síns liðs inn ílsrael
Jórdanskur hermaður fór í gær yfir landamærin til ísraels þar sem
hann særði bandarískan ferðamann og hélt hermanni í gíslingu í
þrjár stundir áður en ísraelskir hermenn náðu að fella hann. Jórdan-
inn var í einkennisbúningi og með vélbyssu þegar hann fór inn í
suðurhluta ísraels, um 50 km norður af borginni Eilat við Rauða-
haf. Hermaðurinn fór inn í alþjóðlegt samyrkjubú og skaut á fyrsta
manninn, sem hann sá. Að sögn vitna hrópaði hann: „Þetta er fyrir
bróður minn“ um leið og hann skaut á bandaríska konu, sem þarna
var á ferðalagi. Að því loknu tók liann unga stúlku úr ísraelsher í
gíslingu inni í verkfærageymslu, sem umsvifalaust var umkringd.
Maðurinn krafðist þess að fá Kóraninn, trúarbók múhameðstrúar-
manna, í hendur, sem hann og fékk, en þegar samningaviðræður
höfðu engan árangur borið eftir þrjár klukkustundir, skaut ísraelsk-
ur hermaður Jórdanann til bana í gegn um glugga á geymslunni.
Á myndinni sést hvar breitt er yfir lík Jórdanans.
Bretland:
Yiðræður á döfínni
við Argentínumenn
St. Andrews, Skotlandi. Frá Gudmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefúr sam-
þykkt, að teknar verði upp viðræð-
ur við argentínsk stjórnvöld um
ágreiningsefni ríkjanna. Var frá
þessu skýrt í dagblaðinu Times á
mánudag. Ríkisstjórnir landanna
hafa ekki ræðst við formlega síðan
1984 og Argentínumenn hafa ekki
enn lýst yfir, að Falklandseyj-
astriðinu sé lokið.
í Times sagði, að sendiherrar
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum
ætluðu að hittast innan skamms til
að búa í haginn fyrir viðræðurnar
og einnig, að Thatcher hefði fallist
á þær þegar Carlos Menem, forseti
Argentínu, féll frá þvi skilyrði, að
rætt yrði um stjórnskipulega stöðu
Falklandseyja. Argentínumenn
munu leggja mikla áherslu á, að
Bretar aflétti 150 mílna verndar-
svæði umhverfis Falklandseyjar og
talið er, að Bretar muni krefjast þess
á móti, að Argentínustjórn lýsi yfir
formlegum styijaldarlokum.
Fulltrúar allra bresku stjórnmála-
flokkanna hafa tekið þessum tíðind-
um vel, en nokkrir þingmenn leggja
þó mikla áherslu á, að alls ekki verði
rætt um neina breytingu á núverandi
stöðu Falklandseyja.
] Electrolux
útlitsgallaða kæli- og frystiskápa
með verulegum afslætti!
Vörumarkaðurinn
KRINGLUNNI SÍMI 685440
Nú skaltu nota tækifærið — ágústtilboóió er gisting í tvær
nætur með morgunverði fyrir aðeins 4.650 krónur á mann
í 2ja manna herbergi.
Hótel
Stykkishólmur
Sími 93-81330
Telex 2192
Vistlegt hótei í fögru umhverfi
Hafðu það gott
í HÓLMINUM!
85 40