Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 24
24
tóORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
Ungverjaland:
Slj órnarandstæðing-
ar vinna tvö þingsæti
Búdapest. Reuter.
IMRE Pozsgay, þekktasti um-
bótasinninn í röðum ungverskra
kommúnista, hefúr hvatt til þess
að gerðar verði róttækar breyt-
ingar á flokknum til að afstýra
stjórnarkreppu í landinu. Ung-
versk dagblöð skýrðu frá þessu í
gær en á laugardag varð ung-
verski kommúnistaflokkurinn
fyrir öðru áfallinu á rúmum
tveimur vikum er frambjóðendur
helsta stjórnarandstöðuflokksins,
Lýðræðisfylkingarinnar, unnu
tvö sæti í aukakosningum um
sæti á þingi.
Ungversk dagblöð höfðu í gær
eftir Pozsgay að ósigurinn væri
mikið áfall þó svo ekki væri öll nótt
úti enn. Niðurstaðan sýndi að
kommúnistar yrðu að aðlaga sig að
breyttum aðstæðum því ella væri
sú hætta fyrir hendi að stjórnar-
kreppa gripi um sig. Hann lýsti og
þeirri skoðun sinni að hvorki komm-
únistaflokkurinn né stjórnarand-
stæðan væru búin undir öldungis
frjálsar kosningar sem fram eiga
að fara á næsta ári. Væri það eitt
helsta verkefni flokksins að bæta
úr þessu. Pozsgay minnti á að
flokksþing yrði haldið í októbermán-
uði. Sagði hann að helsta verkefni
þess yrði að leita lausna á vanda
þjóðarinnar og stjórnarflokksins.
Kosið var um tvö þingsæti á laug-
ardag og vann Lýðræðisfylkingin
sigur í báðum kjördæmunum. Fylk-
ingin hafði þegar unnið eitt sæti í
kosningum þann 22. júlí en úrslitin
í fjórða kjördæminu voru lýst ógild
þar eð kosningaþátttakan var innan
við 50%. Sagnfæðingurinn Erno
Raffay, frambjóðandi Lýðræðisfylk-
ingarinnar í Szeged í suðurhluta
landsins, hlaut tæp 62% atkvæða
en frambjóðandi kommúnista hlaut
rúm 22%. í Keeskemet, skammt frá
höfuðborginni Búdapest, hlaut
frambjóðandi stjómarandstöðunnar,
Jozsef Debreczni, 70,4 prósent at-
kvæða en fulltrúi flokksins aðeins
21,4 prósent.
Þetta er í fyrsta skipti frá árinu
1947 sem fijálsar kosningar fara
fram í Ungveijalandi og þykja úr-
slitin mikið áfall fyrir kommúnista-
flokkinn. Stjómvöld í Ungveijalandi
hafa heitið því að fram fari fijálsar
kosningar um mitt næsta ár og verð-
ur óháðum stjómmálasamtökum
heimilað að taka þátt í þeim. Þingið
í Ungveijalandi hefur enn ekki
formlega samþykkt nýju kosninga-
löggjöfina og reglur um starfsemi
stjórnmálaflokka en búist er við að
þau lög verði afgreidd í haust.
Ungverskir menntamenn, rithöf-
undar og skáld, stofnuðu Lýðræðis-
fylkinguna fyrir tæpum tveimur
ámm en skráðir félagar í henni em
tæplega 20.000. Á vettvangi efna-
hagsmála berst fylkingin fyrir
blönduðu hagkerfi en önnur helstu
baráttumálin em þingræði og aukið
félagslegt réttlæti.
Reuter
Geofifrey Palmer, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, og eiginkona hans, Margaret, ræða við fréttamenn i
Wellington í gær.
David Lange, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, segir af sér:
Fylgt verður óbreyttri
stefiiu í kj aruorkumálum
- segir arftaki hans, Geoffrey Palmer
Wellington. Reuter.
GEOFFREY Palmer tók í gær við embætti forsætisráðherra Nýja-
Sjálands af David Lange sem sagði af sér á mánudag. Palmer, sem
verið hefúr aðstoðarforsætisráðherra, lýsti yfir því að fylgt yrði
óbreyttri stefnu í kjarnorkumálum en sú ákvörðun stjórnar Verka-
mannaflokksins að banna kjamorkuknúnum skipum og skipum sem
talin eru bera kjarnorkuvopn að leita til hafiiar á Nýja-Sjálandi hefúr
skaðað mjög samskipti Nýsjálendinga og Bandaríkjamanna. Sýnt þykir
að helsta verkefiii Palmers verði að tryggja sættir innan Verkamanna-
flokksins en verulega hefúr dregið úr fylgi hans ef marka má skoðana-
kannanir.
Afsögn David Lange kom á óvart
en hann hafði verið við völd í fimm
ár og notið umtalsverðra vinsælda.
Hann rakti ekki nákvæmlega ástæð-
ur afsagnarinnar en kvað heilsufar
sitt hafa haft áhrif á þessa ákvörð-
un. Þá lét hann að því liggja að deil-
ur innan Verkamannaflokksins hefðu
grafið undan ríkisstjórninni. Lange
hefur átt í deilum við Roger Dou-
glas, fyrrum íjármálaráðherra, en
Lange vék honum úr ríkisstjórn sinni
í byijun ársins. Þingmenn Verka-
mannaflokksins samþykktu hins veg-
ar í atkvæðagreiðslu í síðustu viku
tillögu þess efnis að Douglas tæki
aftur sæti í ríkisstjóminni. Þeir Dou-
glas og David Lange áttu náið sam-
starf er Verkamannaflokkurinn
komst til valda árið 1984 eftir stór-
sigur í þingkosningum. Douglas tók
þá þegar við að gera róttækar breyt-
ingar á efnahagslífí Nýja-Sjálands
og beitti sér m.a. fyrir því að niður-
greiðslur í landbúnaði voru lagðar
af auk þess sem ijöldi ríkisfyrirtækja
var seldur. Lange studdi stefnu þessa
í fyrstu en á síðasta ári tóku þeir
að deila um hversu langt skyldi geng-
ið. Hefur Lange sakað Douglas um
Nýr leiðtogi sljórnarflokksins í Japan:
Toshiko Kaifii spáð frem-
ur stuttrí setu á valdastóli
Tókíó. Reuter.
ÞINGFLOKKUR Fijálslynda lýðræðisflokksins, stjórnarflokksins
í Japan, kaus í gær Toshiki Kaifii leiðtoga flokksins í stað Sosoku
Unos sem sagði af sér fyrir skömmu. Uno varð að víkja efitir
mesta kosningaósigur flokksins í 34 ár en hann missti þá meiri-
hluta sinn í efri deild þingsins. Kaiíú fékk 297 af 447 gildum at-
kvæðum en helsd keppinautur hans, Yoshiro Hayashi, hlaut 120.
Stjómarflokkurinn er í reynd bandalag margra flokka og hópa.
Nýi leiðtoginn er lítt þekktur utan flokksins en hefúr veitt for-
ystu minnsta flokksbrotinu sem kennt er við fyrrum efnahagsmála-
ráðherra, Toshio Komoto. Stærstu brotin eru undir forystu Nobor-
us Takeshita, fyrrum forsætisráðherra, og Shintaros Abe, sem
áður var utanríkisráðherra. Báðir þessir menn urðu að segja af
sér vegna Recruit-íjármálahneykslisins ásamt mörgum öðrum
háttsettum valdamönnum stjórnarflokksins en sá fyrrnefndi er
talinn hafa ráðið miklu um kjör Kaifús.
Kaifu er 58 ára gamall, hefur
litla reynslu af utanríkis- og fjár-
málum, en hefur tvisvar gegnt
embætti menntamálaráðherra.
Hann er sagður góður ræðumaður
og mannasættir, en einn helsti
kosturinn við manninn er talinn
sá að hann hefur nokkurn veginn
hreinan skjöld í fjármálum, þótt
sem svarar 5,8 milljónum ísl.kr.
rynnu í kosningasjóði hans frá
Recruit-fyrirtækinu, og ekkert
hefur heyrst um annað í fari hans
sem gæti reynst vopn í höndum
andstæðinganna, t.d. ótæpilegt
kvennafar. Ósigur stjórnarflokks-
ins í kosningunum átti fyrst og
fremst rætur að rekja til reiði al-
mennings vegna Recruit-hneyksl-
isins og nýs söluskatts en ná-
kvæmar upplýsingar í fjölmiðlum
um ástaleiki fjölskyldumannsins
Unos með skyndikonum urðu ekki
til að bæta stöðu stjómarflokks-
ins. „Konan hans hefur góð tök á
honum og myndi aldrei líða slíkt,"
sagði ónafngreindur kunningi
Kaifus um hann. Eiginkonan er
sögð hafa bein í nefinu og hefur
m.a. neitað að styðja hann í stjórn-
málabaráttunni með því að halda
veislur í heimahúsum fyrir
pólitíska vildarvini. „Hún býður
þeim bara te, ekkert meðlæti og
heldur ekkert áfengi,“ sagði annar
kunningi leiðtogans sem sagði
konuna uppskera óvinsældir fyrir
bragðið.
Kaifu lýsti því yfir í gær að
hann styddi hefðbundna samvinnu
Japana við Bandaríkjamenn en
sagðist einnig myndu beina at-
hyglinni að málefnum Asíulanda,
umbótum í Austur-Evrópu og
skuldabyrði Þriðjaheimsríkja. Um
3% söluskattinn umdeilda sagði
Kaifu að hann vildi breyta honum
í „velferðarsöluskatt" og tekjur
af honum ættu að renna óskiptar
til eftirlauna og annarra velferð-
armála. „En mikilvægast er að
endurskoða lög um fjárframlög
til stjórnmálamanna," sagði nýi
leiðtoginn á blaðamannafundi.
Gert er ráð fyrir því að hann verði
útnefndur forsætisráðherra í dag,
miðvikudag.
Lítil reynsla Kaifus af valdam-
iklum embættum og veik staða
Komoto-brotsins, sem hefur að-
eins 30 þingsæti, innan stjómar-
flokksins veldur því að stjórn-
málaskýrendur hafa litla trú á því
að hann sitji lengi í embætti.
„Raunverulegir valdhafar í Frjáls-
lynda lýðræðisflokknum geta hve-
nær sem er velt honum úr sessi,“
Reuter
Toshiki Kaifú fagnar kjöri sínu
í stöðu leiðtoga Fijálslynda lýð-
ræðisflokksins, stjórnarflokks-
ins í Japan, í gær. Búist er við
því að hann verði kjörinn for-
sætisráðherra í dag.
segir stjórnmálafræðiprófessor
við Kyoto-háskólann. Aðrir ganga
lengra og segja Kaifu svo ósjálf-
stæðan að í reynd sé valdaferill
hans eins konar framhald á ferli
Takeshita. Einnig benda menn á
að Kaifu verður fyrsti forsætis-
ráðherra í sögu flokksins sem
ekki hefur meirihluta í báðum
deildum þingsins. Þótt neðri deild-
in, þar sem stjómin hefur enn
meirihluta, hafi mun meiri völd
er Ijóst að stjórnarandstæðingar
í efri deildinni geta tafið stjórnar-
framvörp og velgt ríkssstjórninni
svo undir uggum að flestir álíta
Kaifu nauðbeygðan til að boða til
þingkosninga þegar í haust.
undirróðurstarfsemi gegn ríkis-
stjórninni.
Fylgi Verkamannaflokksins hefur
farið ört dvínandi á undanförnum
mánuðum ef marka má skoðana-
kannanir. Lange hefur sagt að þessa
þróun megi rekja til deilna innan
flokksins og erfiðleika í efnahagslífi
Nýsjálendinga. Atvinnuleysi er mikið
og fjölmörg fyrirtæki hafa orðið
gjaldþrota vegna hárra vaxta.
Kosningasigur Verkamanna-
flokksins árið 1984 vakti mikla at-
hygli víða um heim. Eitt helsta bar-'
áttumál flokksins var að banna heim-
sóknir kjarnorkuknúinna skipa og
skipa sem talin voru bera kjarnorku-
vopn. Þessi ákvörðun leiddi til þess
að varnarsamstarfi Bandaríkja-
manna og Nýsjálendinga á vettvangi
ANZUS-bandalagsins var slitið en
Ástralía á einnig aðild að því. Allt
frá þessu hafa samskipti Bandaríkja-
manna og Nýsjálendinga verið með
stirðara móti.
Arftaki Lange, Geoffrey Palmer,
lýsti yfir því í gær að ekki yrði hvik-
að frá þessari stefnu en áður höfðu
stjórnvöld í Bandaríkjunum hvatt
hann til þess að taka hana til endur-
skoðunar. Sagði hann stjórn sína
reiðubúna til að eiga viðræður og
vinsamleg samskipti við Bandaríkja-
menn en bætti við að engar líkur
væra á því að herskipum með kjarn-
orkuvopn innanborðs yrði leyft að
leita til hafnar á Nýja-Sjálandi. Þó
svo fylgi Verkamannaflokksins hafi
minnkað sýna skoðanakannanir að
mikill meirihluti Nýsjálendinga er
hlynntur þessari stefnu ríkisstjórnar-
innar.
Palmer, sem er 47 ára, var kjörinn
varaformaður Verkamannaflokksins
árið 1983 og tók við embætti aðstoð-
arforsætisráðherra eftir kosingasig-
urinn árið 1984. Að auki hefur hann
verið ráðherra umhverfis- og dóms-
mála en hann er lögfræðingur að
mennt. Aðstoðarmaður hans verður
Helen Clark sem áður fór með emb-
ætti ráðherra húsnæðis- og heilbrigð-
ismála.
Stjórnmálaskýrendur telja að
helsta verkefni nýja forsætisráð-
herrans verði að tryggja sættir í
flokknum. Kosningar fara fram á
næsta ári og þykir sýnt að Verka-
mannaflokkurinn muni eiga í veru-
legum erfiðleikum ef Palmer tekst
ekki að bera klæði á vopnin en að
sama skapi þykir ólíklegt að Roger
Douglas og aðrir talsmenn hægri-
vængs Verkamannaflokksins láti af
gagnrýni sinni.